Leita í fréttum mbl.is

Mun VG halda áfram að brjóta mannréttindi?

Allt útlit er nú fyrir ríkisstjórn verkalýðsflokkanna sem í orði kveðnu eru málsvarar jöfnuðar og réttlætis. Hið fyrsta verk slíkrar ríkisstjórnar ætti að vera að fara að áliti mannréttindanefndar SÞ um að hætta að brjóta mannréttindi á sjómönnum. Þó að málið virðist augljóst er ekki á vísan að róa þar sem leiðtogi VG á sér svarta sögu hvað varðar afskipti sín af illræmdu kvótakerfi. Steingrímur J. Sigfússon studdi á sínum tíma framsal veiðiheimilda og drap á dreif umræðu um breytingar á kerfinu í kjölfar Valdimarsdómsins sem nú er orðinn 10 ára gamall.
mbl.is Hittast kl. 14 í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hreinsamviska

Fáðu þér flottan bol gegn Íhaldinu. Sjá nánar á síðunni hreinsamviska.blog.is

hreinsamviska, 27.1.2009 kl. 14:01

2 Smámynd: Óskar Þorkelsson

umm þetta er ríkisstjórn fram að vorkosningum Sigurjón.. starfsstjórn sem sagt...

Óskar Þorkelsson, 27.1.2009 kl. 14:16

3 identicon

Án þess að gera lítið úr því að bæta þurfi úr mannréttindabroti á sjómönnum eða öðrum þá finnst mér æði mörg mál mikilvægari í þeim darraðardansi sem íslenskt þjófélag fer í gegnum þessa dagana.  Fyrsta verkið hlýtur að vera að efla tiltrú almennings og erlendra birgja á íslensku samfélagi sem og taka til í stjórnsýslunni.  Þá fáum við hugsanlega réttsýnni leiðtoga sem geta þá tekið á mannréttindabrotum á hinum ýmsu sviðum.

Erlingur (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 15:02

4 identicon

Ætla frjálslyndir að bjóða sig fram í næstu kostningum... er þetta ekki dauður flokkur sem þjóðin myndi aldrei vilja sjá í ríkisstjórn...

Er ekki best að þig hættið alveg afskiptum af ríkismálum... Þið hljótið að detta alveg út af þingi í næstu kostningum á erfitt með að trúa öðru. Flokkur með aðeins eitt málefni, þar sem það hefur ekki einu sinni lausn á getur og á aldrei að leyfa að sitja einhversstaðar í stjórn.

Ragnar (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 15:42

5 identicon

Hreinsamviska,málefnið er afbragð,en verðið á þessari druslu er algerlega út úr korti.

 Sigurjón Það eru mörg hár fallin til jarðar,síðan viðbjóðurinn var settur á ,fá hár að verða eftir,þannig að held hann hljóti að vera orðin meir og meðfærilegur.Reinið nú að komast að því af hverju þið eruð skildir útndan,eða jafnvel athugið hvort þið eruð nokkuð útundan.

Julius kristjansson (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 15:48

6 Smámynd: Aðalheiður Ámundadóttir

Ég efast um að þessi stjórn komi til með að stokka draslið upp. Hitt er aftur annað mál að draslið er hvort eð er búið að vera. Hvað verður t.d. gert þegar bankarnir verða seldir til útlanda, eiga kvótaveðin þá að fylgja með?? Ég held nú síður... og ef það á að fara að afskrifa skuldir, þá er þeim ekki stætt á að halda kerfinu, það verða engar afsakanir eftir...

Aðalheiður Ámundadóttir, 27.1.2009 kl. 15:58

7 identicon

Ragnar.þú ert ekkert inn í málum hér á Íslandi,ef þú heldur að baráttan fyrir því að endur heimta fiskveiði auðlindina,sé bara eitt málefni,Þarna fór fram 1. eigna upptaka bein og óbein,fólk hrökklaðist frá verðlausum eignum sínum.margir gjaldþrota, margir af þeim sem það þurftu að  þola,eru ekki á meðal okkar núna,semsagt heilbrigðsmál lika.2. umhverfismál,brottkast á fiski,og slæm umgeingni á fiskimiðum okkar.3.Efnahagsmál,bara sótt í það sem hefur gefið hámarks gróða,til að sukka með ímist erlendis,eða i stóru spilakössunum,hér á landi.4.Getur þú Ragnar sagt mér undir hvað marga málaflokka,1000 miljarða skuldir sjávarútvegsins,heira,sem landsmenn augljóslega verða að borga.5 Auðlindin illa nýtt.

Julius kristjansson (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 16:09

8 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Mér finnst það óneitanlega skjóta skökku við að fylgismenn VG s.s. Ragnar telji það í góðu lagi að halda áfram að brjóta mannréttindi á sjómönnum af því að Frjálslyndi flokkurinn mælist ekki hátt í skoðanakönnunum eins og er.

Ekki veit ég betur en að fólkið sem hefur hópast í mótmæli víða um land krefjist breytinga á illræmdu kvótakerfi. 

Sigurjón Þórðarson, 27.1.2009 kl. 17:28

9 identicon

Fyrst stjórnarskiptin eru afleiðing grjótkasts, og grjótkastararnir komnir með þá stjórn sem þeir vildu, liggur þá ekki beint við að nefna nýju stjórnina Grjótkastarastjórnina?

ásdís (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 19:49

10 Smámynd: Guðmundur Óli Scheving

Sæll Sigurjón

Er ekki Frjálslyndiflokkurinn búinn að míga á sig af spenningi að fá að styðja  þessa nýju ríkistjórn sem er í burðarliðnum ?

Er ekki Frjálslyndiflokkurinn tilbúinn að dansa með þessum mannréttindabrotum sem þú nefnir.

´Eg held að Frjálslyndiflokkurinn hefði átt að standa fyrir utan þetta.

Þetta finnst mér.

Guðmundur Óli Scheving, 27.1.2009 kl. 21:18

11 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Guðmundur Óli þú virðist vita meira en ég um málið en ekki var svo að heyra á þingmanni flokksins sem ég ræddi við í kvöld þ.e. ef að stjórn VG og S ætla að halda áfram að brjóta mannréttindi.

Sigurjón Þórðarson, 27.1.2009 kl. 22:15

12 Smámynd: Guðmundur Óli Scheving

Sæll Sigurjón.

Nei ég veit ekkert meira en þú sýnis mér, en það heldur bara áfram þessi leyndardómur að segja ekki neitt nema í gátum.

Bæði Frjálslyndiflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hljóta að hafa sett fram einhver skilyrði sem verður að uppfylla af hálfu næstu ríkistjórnar.

Þú hlýtur þá að geta upplýst mig um hvaða skilyrði Frjálslyndiflokkurinn setti Ingibjörgu Sólúnu og Steingrími fyrir stuðningi.

 Þú ert í beinu sambandi við þingmann úr flokknum eins og sagðir hér að ofan.

Bestu Kveðjur.

Guðmundur Óli

Guðmundur Óli Scheving, 27.1.2009 kl. 23:59

13 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ekki veit ég hvort rétt sé að tala um skilyrði en flokkurinn hefur lagt áherslu á að stjórnvöld virði álit Mannréttindanefnd SÞ.

Ef eitthvað vit væri í þessari nýju stjórn þá væri nærtækast að fá Guðjón Arnar til að taka að sér sjávarútvegsráðuneytið í stað þess að hlaða öllu klabbinu á Össur sem veit yfirleitt ekki í hvorn fótinn hann á að stíga, enda eru að venju milljarðar fyrir fótum hans s.s. í olíu, fiskeldi, vatni og Arabíu sem honum hættir til að skrika fótur á.

Sigurjón Þórðarson, 28.1.2009 kl. 00:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband