Leita í fréttum mbl.is

Einar Kristinn einstaklega flinkur í vitleysunni

Einar Kristinn skrifar bloggfærslu í dag þar sem skín í gegn reiði og svekkelsi yfir að innlendir fjölmiðlar skuli ekki sýna einhverri vitleysisgrein um íslenskan sjávarútveg og góðan árangur kvótakerfisins í Economist meiri áhuga en þeir gera. Það hefði eflaust mátt skilja þessa gremju sjávarútvegsráðherra ef ekki hefði verið tekið viðtal við hann í gær þar sem hann sagði að nauðsynlegt væri að fella niður skuldir í íslenskum sjávarútvegi - þeim hinum sama og byggði á svo einstaklega góðu kerfi.

Þeir sem hafa fylgst með Einari vita að hann er snöggur að skipta um skoðun. Skömmu fyrir kosningar hefur hann vanalega barist gegn kvótakerfinu en eftir að hann er tryggilega kominn með þingsæti er hann skyndilega hlynntur því. Fyrir nokkrum vikum var hann harður andstæðingur Evrópusambandsins - nú er hann á góðri leið með að verða harður fylgismaður.

Hvaðan skyldi Economist hafa fengið upplýsingar í þessa furðulegu grein, hverjir veittu upplýsingarnar? Þorskafli Íslands hefur vart verið minni í heila öld. Mér finnst ekki ólíklegt að leitað hafi verið upplýsinga hjá Ólafi Klemenssyni, mótmælanda mótmælanna og hagfræðingi Seðlabankans, og Ragnari Árnasyni hagfræðingi sem er álíka snjall og sjálfur Sölvi Helgason.

Ragnar fann út að vegna góðrar stöðu þjóðarbúsins í fyrra væri rétt að hætta þorskveiðum í líklega þrjú ár til þess að fá enn meiri þorskafla einhvern tímann seinna. Það er hins vegar búið að reyna þau niðurskurðarfræði með þeim árangri að þorskafli er með minnsta móti. Þetta eru ráðleggingar hagfræðingsins þvert á viðtekna vistfræði.

Nú verður spennandi að sjá í blöðunum á morgun hvort Einari Kristni hefur tekist að gráta út einhverja umfjöllun um þessa fáránlegu grein í Economist.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Sigurjón.

Eru þetta ekki einhver hræðslumerki hjá honum ?

Guðmundur Óli (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 23:44

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það er spurning hvort hann sé að reyna að kría eitthvað út í prófkjörsbaráttu ...

Sigurjón Þórðarson, 5.1.2009 kl. 23:46

3 Smámynd: Baldur Kristjánsson

Sæll! Óþarfi að hnýta í Sölva Helgason! kv. B

Baldur Kristjánsson, 5.1.2009 kl. 23:54

4 Smámynd: Víðir Benediktsson

Eitt hafði Sölvi fram yfir margan annan þó hann væri eins og hann var. Hann var ekki heimskur.

Víðir Benediktsson, 6.1.2009 kl. 07:34

5 identicon

Skrifaðu af varfærni Sigurjón, áður en þorrinn verður liðinn verða Frjálslyndir og Framsókn komnir í stjórn með Sjálfstæðisflokki.

Ómar Sigurðsson (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 10:12

6 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ómar hvernig í ósköpunum dettur þér þetta í hug.

Sigurjón Þórðarson, 6.1.2009 kl. 10:52

7 identicon

Þetta er ekki hugdetta Sigurjón, þetta er málið í dag, og ég satt best að segja að þetta sé eina leiðin. Vegna þess að það tapaðist allt of mikill tími í kosningabaráttu. Sigurjón spurðu Guðjón út í þetta, ég veit að hann kannast vel við málið.

Ómar Sigurðsson (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 00:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband