Leita í fréttum mbl.is

Eina vörn Íslands gegn Johnsenunum í Sjálfstæðisflokknum er að kjósa í vor

Eina vörn landsins gegn því að Johnsenarnir í Sjálfstæðisflokknum nái að afskrifa skuldir á flokksfyrirtækin er að kosið verði í vor. Ef boðað verður til kosninga munu ráðamenn ekki þora að fara í víðtækar og umdeildar afskriftir eins og Árni Johnsen og Einar K. Guðfinnsson hafa boðað í dag. Þá þyrftu stjórnmálamenn að hafa hreint borð og leggja fyrir þjóðina einhverja áætlun um  hvernig eigi að fara út úr vandanum og tryggja að hjól atvinnulífsins stöðvist ekki. Það er hróplegt rugl sem Einar býður upp á, að afskrifa skuldir sjávarútvegsins. Ég reikna með að eitt þeirra fyrirtækja sem lúra efst í kollinum á honum sé sjávarútvegsfyrirtæki í Bolungarvík sem er í eigu sama aðila og á hið fræga félag Stím en það skuldar hátt í 20 milljarða skv. yfirlýsingu forráðamanna félagsins. Það er miklu nær að fá uppstokkun í sjávarútveginn og að nýir aðilar komi að rekstrinum í stað þeirra sem hafa skuldsett allt upp í rjáfur og ætla svo þar að auki að láta skuldirnar falla á þjóðina og halda svo áfram eins og bindishnúturinn hafi aldrei losnað.

Sérhagsmunaklíkurnar í Sjálfstæðisflokknum reyna með öllum ráðum að komast hjá kosningum í vor og eru í þeim tilgangi tilbúnar til að gera hvað sem er, ganga í Evrópusambandið og jafnvel þar með að kljúfa flokkinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Spillingin grasserar á fullu í Sjálfstæðisflokknum. Ég vissi að Árni var búinn að taka sig á eftir að hann sat inni, þess vegna er slæmt að hann skuli vera byrjaður að umgangast gömlu félagana í flokknum aftur.

Sigurður Þórðarson, 5.1.2009 kl. 00:55

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Dittóa, eftir efninu ...

Steingrímur Helgason, 5.1.2009 kl. 01:01

3 identicon

Eftirfarandi greinarhluti er alveg eins og úr mínum munni mælt í tilefni þessa og læt ég það fylgja hér, fín grein:

"Árni Johnsen reynir í áðurnefndu viðtali að firra stjórnendur og eigendur útgerða ábyrgð á fjármálaklúðri þeirra með því að varpa ábyrgðinni á fjármálaráðgjöf bankanna. Ef það er virkilega staðreyndin að stjórnendur fyrirtækjanna skildu ekki það sem þeir voru að gera er það bara þeim mun meiri ástæða til þess að skipta um stjórnendur á rekstrinum. Líklegra er að menn hafi fyllilega vitað hvað þeir voru að gera, vildu hagnast mikið en það hafi ekki gengið upp. Ef sá hagnaður hefði skilað sér hefðu þeir notið hans en að sama skapi verða þeir taki ábyrgð á tapinu og eiga ekki að fá það ekki endurgreitt. 

Það eru miklar byrðar á íslenska ríkinu og fjölmörgum íslenskum heimilum. Það er alveg óverjandi að taka ákvörðun um að fella niður skuldir við ríka einstaklinga í gegnum fyrirtæki þeirra á meðan þeir sem minna hafa eiga að greiða sínar skuldir"

http://www.deiglan.com/index.php?itemid=12368

Vona svo að ég þurfi ekki að heyra oftar svona rugl um mismunun einstaklinga hér á landi beint í mín eyru.

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 08:12

4 identicon

Auðvita eiga ATVINNULAUSIR ÖRYRKJAR og FJÖLSKYLDUR að BORGA fyrir KVÓTA GREIFANA.Svo getum við TREYST Sjálfstæðisflokknum til að stjórna ÁFRAM siðleysinu sem er hér á LANDI.

Guðrún Hlín (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 11:26

5 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Hver af stjornmalamonnum a altingi hverra flokka sem teir tilheyra aetlar ad skera sig ur og tala mali almennings og meina tad sem teir segja?

Guðrún Magnea Helgadóttir, 5.1.2009 kl. 14:20

6 identicon

Á FIMMTUDAG fer fram gjaldþrotamál á hendur SJÓMANNI sem er á slysabótum kröfuhafi er Nýji Glitnir ehf.Það sem Árni hefur verið þekktur fyrir að hjálpa þeim sem eru í vanda staddir væri þá ekki tilvalið að HJÁLPA SJÓMANNI sem er á SLYSABÓTUM frá GJALDÞROTI.

Guðrún Hlín (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 15:19

7 identicon

Guðrún Hlín, sendu mér póst á xf@xf.is um þetta mál. Bestu kveðjur, Helgi Helgason vefstjóri xf.is

Helgi Helgason (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 15:38

8 identicon

segir þetta ekki mest um forgangsröðina hjá þessum tveim og þeirra flokk,annar að hugsa um fjárglæframenn í bolungarvík og hinn um vin sinn sem ekur um á toyota

Árni (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 16:45

9 Smámynd: Dunni

Getur ekki verið að þegar sé farið að afskrifa skuldir einstakra sjávarútvegsfyrirtækja.  Það kæmi mér ekki á óvart eftir þeim orðrómi er ég heyrði í Noregi.

Aðgerðarleysi ríkistjórnarinnar bendir til þess að Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki lagt spilin á borðið fyrir almenning. Stjórnin tefur sem mest hún má að gagnsæja rannsóknin hefjist á orsökum kreppunnar. Sjálfstæðismenn eru fyrir löngu farnir að ræða um að hjálpa "einstökum" fyrirtækjum í gegnum kreppuna og núna ropar hirðfíflið á Alþingi, Árni Johnsen, því út úr sér að nú verði að afskrifa skuldir kvótagreifanna.

Það hlýtur að vera einhver ástæða fyrir þessu ferli flokksins og með ólýkindum að þetta geti átt sér stað í skjóli Samfylkingarinnar sem þegar er orðin meðsek í spillingunni.

Dunni, 5.1.2009 kl. 19:04

10 Smámynd: Júlíus Björnsson

Einkafyrirtæki með Ríkisábyrgð eða Ríkisfyrirtæki í þágu einstaklings. Þetta er í raun tvær hliðar á sama Kommúnismanum eins og sá kendur við USSR. Jöfn tækifæri. Eins dauði er annars brauð. Allir jafnir fyrir lögum. Það skiptir okkur engu máli þótt þeir hafi verið plataðir upp úr skónum. Það nóg af greindu fólki til að leysa glópanna af ef því eru gefin tækifæri. Maður kemur í manns stað.

Júlíus Björnsson, 5.1.2009 kl. 21:47

11 identicon

Ég efast ekki augnablik um að Árni Jhonsen,seigir satt frá,að þegar blessaður útvegsmennirnir komu í bankan til að borga af lánonum sínum,að þá hafi bankin(ekki banka starfsmenn)vélað þá til að kaupa frekar hlutabréf og allskonar bréf(þó ekki klóstpappír,sem kæmi sér aldeilis vel fyrir þá núna)bílaleigur,bíla umboð,þirlur,villur,hallir,snekkjur og landareygnir vítt og breitt um allan heim...Nú segjum við bara einsog ráðherrarnir ,Geir og Björgvin,þegar þeir hirtu spariféið af skrílnum SO SORRY,,, og stöndum saman,eingin helv þögul mótmæli,komum í veg fyrir að þeir verði skornir niður..Treistum á þig Sigurjón,,haltu málinu sjóð heitu.

Júlíus Kristjánsson (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 23:04

12 Smámynd: Atli Hermannsson.

Árni  Johnsen hefur alltaf verið fyrirgreiðslupólitíkus. Sem slíkur tekur Árni að sjálfsögðu fyrst upp hanskann fyrir vin sinn Magnús Kristinsson útgerðarmann í Vestmannaeyjum sem stutt hefur Árna með ráðum og dáð og rétti honum hjálparhönd þegar mest á reyndi.

Í hálfa öld hefur peningamálastjórnin í landinu markast af því að láta útgerðina ekki sökkva - alla vega ekki við við bryggju. Þannig var gengi krónunnar fellt eftir forskrift og pöntunum frá LÍÚ svo nemur samtals 1.300% frá stríðslokum.

Þetta frábæra fyrirkomulag hefur samt ekki dugað til að halda útgerðinni frá gríðarlegri slagsíðu. Það hefur heldur ekki dugað henni að hafa frá árinu 1990 mátt veðsetja auðlindina langt upp fyrir mastur og hafa leigutekjur af því sem uppá hefur vantað. Þá býr útgerðin einnig við þau sérréttindi að allar tekjur hennar eru í erlendri mynt og eru því sjálvirkt verðtryggðari en nokkuð annað.

Einnig hafa útgerðirnar getað sótt í bankann það sem þær hafa þurft í gegnum kerfi afurðarlána sem veitt eru samstundis - og stundum áður en veitt er. Allt þetta hefur ekki dugað stórútgerðinni til að halda henni frá óborganlegri fíkn hennar eftir meira fjármagni. Heldur hefur hún, eins og komið hefur fram, á síðustu árum misnotað afurðalánin til að níðast á krónunni með einhverjum vöndlum sem kallaðir eru afleiðusamningar.

En þá gerist eitthvað " sem enginn sá fyrir"  og við það snarast aftur á merinni og í þetta skiptið á bak - ef ekki fyrir líka. Það hefur nefnilega komið í ljós að útgerðin hefur verið að leggja undir í spilavítinu um íslenski krónuna og tapaði í þetta skiptið. Þá fyrst ruddust þrír valinkunnir útgerðarmenn fram á ritvöllinn og sögðu íslensku krónuna ekki nógu góða fyrir þá -  en ekki fyrr. 

Útgerðin er gjaldþrota. Þar ofan í kaupin er "besta fiskveiðikerfi í heimi" hugmyndafræðilega gjaldþrota sem engu hefur skilað nema minni afla, minni atvinnu og landsbyggðina í rjúkandi rúst á þeim 25 árum sem sérhagsmunakerfinu hefur verið troðið ofan í  landann.

Á ekki að fara að segja stopp, hingað og ekki lengra?       

Atli Hermannsson., 6.1.2009 kl. 00:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband