Leita í fréttum mbl.is

Samfylkingin tekur fullan þátt í að fela slóðina

Örlög Samfylkingarinnar virðast stefna í að taka fullan þátt í að fela slóð þeirra sem hafa skilið eftir sig grunsemdir um stórfelld auðgunarbrot við fall bankanna. Björgvin G. Sigurðsson heldur málinu enn hjá Fjármálaeftirlitinu, en þáttur þess ætti að sjálfsögðu einnig að vera til rannsóknar. Það vakti óneitanlega furðu að yfirmaður Fjármálaeftirlitsins sagði í fréttum í gær að hann væri að rannsaka atburðarásina þangað til skömmu áður en fall bankanna varð. Þar tók hann fram að ef eitthvað misjafnt fyndist væri mögulegt að beita stjórnvaldssektum. Sömuleiðis yrði refsiverðum verknaði vísað til lögreglunnar.

Ef um lögbrot er að ræða getur málinu lokið hjá Fjármálaeftirlitinu t.d. með álagningu stjórnvaldssekta, en ef brot eru meiriháttar vísar eftirlitið málinu til lögreglu. Að auki má nefna að Fjármálaeftirlitið hefur nú þegar gripið til ýmissa annarra úrræða og ráðstafana t.d. stuðlað að varðveislu gagna. Þá hefur Fjármálaeftirlitinu borist ýmsar ábendingar og eru þær skoðaðar sérstaklega.

Nú er komið vel á annan mánuð frá því að fyrsti bankinn hrundi. Fréttir hafa lekið í fjölmiðla um að Kaupþingsmenn hafi afskrifað hjá sér skuldirnar og einn verkalýðsforinginn hefur viðurkennt opinberlega að hafa tekið þátt í þeim leik.

Menn hljóta að spyrja hvernig menn ætli að beita stjórnvaldssektum gegn fyrirtækjum sem eru komin í þrot þar sem sektirnar beinast gegn fyrirtækjunum. Í öðru lagi hlýtur almenningur að spyrja hvað tefji það að senda málið til lögreglu.

Það hefur komið á daginn að Geir Haarde vissi meira um fjárglæfrina og stöðu bankanna en hann hefur gefið í skyn og honum hefði átt að vera fullkunnugt um að sitthvað misjafnt leyndist í pokahorni FL Group og Hannesar Smárasonar þar sem núverandi formaður Listahátíðar sat þar lengi í stjórn meðan vægast sagt umdeild viðskipti fóru fram með flugfélagið Sterling.

Er meðvitað verið að tefja rannsókn málsins af því að hún snertir æðstu stjórnmálamenn, ráðherra og ráðuneytisstjóra beint? Hvaða tal er þetta um að allt eigi að vera uppi á borðinu þegar allt er augljóslega í felum undir borðinu? Þorgerður Katrín, Ingibjörg Sólrún, Björgvin Guðni, Geir Hilmar og Árni Matthías segja þetta öll en málið er samt í einni þoku. Ekki var hægt að upplýsa um laun bankastjóra, ekki hægt að greina frá rannsókn og nú man fjármálaráðherra ekki hvort ráðning núverandi bankastjóra er tímabundin eða ekki.

Öll rannsókn er í skötulíki. Það er þó óskandi að Björgvin verði ekki uppvís að því að beita pólitískum áhrifum til að stöðva Fjármálaeftirlitið í að vísa málum til lögreglunnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sjálfstæðisflokkurinn er fullfær um að fela slóð sína án hjálpar frá Samfylkingunni. Það er bara þannig með ykkur hægrimennina að spilling virðist loða við ykkur öðrum fremur. Sjáðu bara pólitíkina í Bandaríkjunum, þar hafa frjálshyggjupésar, ekki ólíkir ykkur hægri mönnunum hér á Íslandi, sett allt á annan endann í fjármálum heimsins alls. Þökk sé þeirri pólitík sem þú aðhyllist er allt að fara til fjandans. Þú eins og aðrir hljótið að endurhugsa ykkar pólitíska rétttrúnað og leggja frjálshyggjuhugsanir á hilluna.

Valsól (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 18:07

2 identicon

Sæll,

Þú segir:

"Nú er komið vel á annan mánuð frá því að fyrsti bankinn hrundi."    Mig minnir að neyðarlögin hafi verið sett 6. okt. þannig að þau eiga afmæli í dag.    Í kjölfarið féll Landsbankinn svo það er svolítið ofmælt að tala um "vel á annan mánuð...!!!     Þér fyrirgefst þetta því svo mörg hneykslismál hafa komið upp í kjölfarið að það má segja að þar sé margra ára forði og auðvelt að ruglast á tímanum!

Hvað býr undir aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnar og stjórnarandstöðu?    Ég skil vel að Sjálfstæðisflokkur vilji ekki fara frá núna og sennilega er stjórnin að reyna að hvítþvo sem flesta og sópa undir teppið sem mestu af ógeðinu sem finnst.      Ég skil hins vegar ekki af hverju stjórnarandstaðan er algerlega aðgerðarlaus.     Þeir hafa möguleika á að flytja þingsályktun um vantraust á ríkisstjórnina og það er að ég held eina leiðin til að fá þingmenn til að mótmæla eða gangast við spillingunni, vanhæfninni, lyginni og öllu því sem fylgir.     Ganga allir þingmenn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar undir það jarðarmen að styðja ríkisstjórnina og þar með að halda þessu sjónarspili áfram??????    Kjósendur eiga þá að fá að vita það svo hægt verði að refsa þeim á viðeigandi hátt. Var ekki sagt að vitlausari ríkisstjórn væri ekki hægt að fá jafnvel þó meðlimir hennar hefðu verið valdir af handahófi úr símaskránni!!     Er virkilega ekkert farið að hrikta í trú stjórnarþingmanna á getu ríkisstjórnarinnar???     Ef enginn þorir að víkja út af flokkslínunni og trúnni, þá trúi ég ekki að margir þeirra - að Jóhönnu undanskildri - eigi langa framtíð í starfi.   Sjálfsagt er rétt að "fólk er fífl"   en svo mikil fífl trúi ég ekki að fólk sé að það vilji hafa allt þetta lið á launaskrá sinni eftir næstu kosningar.     Fólkið og reyndar þingmennirnir líka eiga einn kost enn til að mótmæla - að mæta í mótmælin á Austurvelli á laugardaginn.    Ef fáir mæta, 1000-2000 þá er málið dautt - fólk er fífl!

 Kveðja,

Ragnar Eiríksson

Ragnar Eiríksson (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 19:15

3 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Ragnar, er ekki óhætt að tímasetja fallið við 29. september þegar Glitnir var þjóðnýttur?

Berglind Steinsdóttir, 6.11.2008 kl. 19:49

4 Smámynd: Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir

Það ætla ég rétt að vona að frjálslyndiflokkurinn ætli að stands við sitt. vonandi verður hann kominn í sjtórnar samstarf við Vinstrigræna í vor. Annað er það ekki.

Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir, 6.11.2008 kl. 20:10

5 identicon

Berglind!

Jú auðvitað er það rétt hjá þér - ég var satt að segja alveg búinn að gleyma þeirri viku og Glitni með!    Maður þyrfti að fara að skrifa dagbók til að halda lagi á þessu rugli öllu saman!       Fyrirgefðu Sigurjón - þetta nálgast að vera "vel á annan mánuð"!     

Að lokum - ég bara trúi ekki að Samfylkingin haldi saman um að halda ríkisstjórninni á floti mikið lengur!

R

Ragnar Eiríksson (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 21:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband