Leita í fréttum mbl.is

Gunnar Páll er lítið peð

Eflaust væri skynsamlegast fyrir Gunnar Pál að stíga til hliðar, vinna sér síðan aftur traust innan verkalýðshreyfingarinnar og geta með þeim hætti tekið þátt í að móta ábyrga afstöðu. Þannig setti hann gott fordæmi sem ég er sannfærður um að margir umbjóðendur hans vilja að ráðamenn sýni. Gunnar Páll er einfaldalega dæmi um hversu illlega flækt verkalýðshreyfingin er í fjármálaóreiðuna í samfélaginu.

Verkalýðshreyfingin á fulltrúa í stjórn lífeyrissjóða sem fjárfestu linnulaust í fjárglæfrafyrirtækjunum. Verkalýðshreyfingin hefur tekið þátt í þöggun um viðkvæm mál sem snerta viðskiptalífið, s.s. ofurveðsetningu á sameign þjóðarinnar, og hefur með því stutt óréttlátt kvótakerfi. Hún hefur lagt blessun sína yfir mannréttindabrot á sjómönnum.


mbl.is Ekki hægt að taka aðra ákvörðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

´Eg tel úr því sem komið er ætti restin að gera hreint fyrir sínum dyrum. Það virðist allt leka undan teppinu núna hér á Íslandi .Með kveðju Guðrún Hlín

guðrún hlín adolfsdótt (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 21:44

2 Smámynd: Friðrik Höskuldsson

Sæll félagi. Lítið peð er ekki rétt, en þar sem þú þarft að gæta orða þinna stöðuþinnar vegna er þetta sennilega réttlætanlegt orðaval. Maðurinn sat þarna og opinberaði vanhæfni sína og reyndi að réttlæta glæpinn, en honum tókst aðeins að gera mig enn brjálaðri yfir stöðunni. Ég er um það bil að tapa öllu mínu, hef alltaf verið viðskiptavinur Kaupþings en skil nú ekkert upp né niður í öllu bullinu sem er í gangi. Hef alltaf staðið í skilum með allt mitt, en af völdum svona skítamakks og peða, er allt hrunið og ekkert hægt að gera. Eða hvað?

Ég hef kosið Frjálslynda í mörg ár, geri það áfram og öskra eftir réttlæti í samfélaginu. Var til sjós með Ödda og Ella, og skil ekkert í að þjóðin sé enn að blessa mannréttindabrot með þögninni. Leysum til okkar kvótann, deilum honum rétt og sanngjarnt út og leyfum nýliðun í sjavarútvegi. Annars förum við öll saman til helvítis, fljótlega.

Friðrik Höskuldsson, 5.11.2008 kl. 22:36

3 identicon

Kannski að frjálslyndir grípi nú tækifærið og fari að hvetja til aðgerða frekar en helvítis kjaftavaðallinn sem viðgengst á  þinginu þessa dagana og virðist sem sé leikur til að draga athyglina frá hinum raunverulegu hörmungum meðan hinir nýríku stela undan og koma sér burtu

mín skoðun á ástandinu er þessi

Maður fær ekki lánað fyrir happdrættismiða og neitar svo að borga lánið því það var enginn vinningur á helvítis miðann ussss

helber helvítis þjófnaður og ekkert annað

Nei látum þetta lið borga hin almenni borgari þarf að standa við sitt og fer beint á lanstraust listan sem úthrópaður vanskilamaður ef eitthvað klikkar

Skellum þessu öllu í gjaldþrotaskifti hjá þessu fólki og bjóðum afan af því þetta er ekkert öðruvísi fólk en hin almenni borgari og sömu lög hljóta að gilda um skuldbindingar þess og innheimtu á þeim

Maður gæti ælt yfir þessari rányrkju og rugli talandi um tekjur þessa fólks hvað voru þingmenn að hugsa líka að láta svona sora viðgangast hér þið berið líka ábyrgð á þessu og ættuð að beita ykkur fyrir að réttlætinu verði framfylgt því þjóðin getur ekki látiðp bjóða sér þetta

Hangir líka saman við hvað verið hefur að efla sérsveitina og lögregluna að þið vissuð þetta fyrirfram og nú á að vernda hyskið þegar sýður upp úr ekki spurning hvort heldur hvenær það gerist hjá fólkinu sem sýður á af reiði vegna órettlætisisn

Ps Glæpatíðni á eftir að stóraukast hér í formi Ofbeldis og árasa á einstaklinga 

Gudmundur Falk (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 22:59

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurjón.

Þetta er alveg rétt, verkalýðshreyfingin hefur samþykkt hæstu skatta sem finnast innan OECD, á sama tíma og hinum almennna verkamanni á lúsarlaunum hefur verið boðið að meðtaka 3% launahækkanir samninga eftir samninga.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 6.11.2008 kl. 00:10

5 identicon

Verkalýðsrekendurnir áttu líka sinn þátt í því - með þögninni allavega - að skattbyrði tekjulægsta fólksins hefur stóraukist síðustu ár m.a. vegna þess að skattleysismörk hafa ekki verið færð upp í samræmi við verðlag, voru nánast óbreytt í fjölda ára. Það gleymist alltaf að hér um að ræða fólk, sem hefur litla sem enga möguleika til tekjuaukningar, svo sem lífeyrisfólk og þau, sem vinna tekjulægstu störfin, svo sem umönnunarstörf, ræstingu og því um líkt. Þetta var m.a. staðfest rækilega nýverið í skýrslu OECD og í athugun, sem kynnt var á vegum BSRB fyrir rúmri viku, en fékk enga athygli vegna umfjöllunarinnar um stórþjófnaði hinna ráðandi stétta í þjóðfélaginu.

Ellismellur (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 05:23

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur!

Sigurður Þórðarson, 6.11.2008 kl. 14:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband