Leita í fréttum mbl.is

Vill VG enn minni fiskveiðar?

Í Fréttablaðinu í dag var umfjöllun um viðbrögð stjórnmálamanna við kvótaúthlutun næsta árs og var ekki hægt að ráða annað af svörum formanns VG en að hann teldi að veiða ætti minna af ýsu en var að öðru leyti sæmilega sáttur við ákvörðun sjávarútvegsráðherra.  Þessi svör renna eflaust ljúflega ofan í græna arm VG en stendur líklega í mörgum fylgismanni flokksins sem tengist sjávarútvegi.

Svör Karls Matthíassonar vöktu einnig athygli en hann svaraði annars vegar með stóru eða stórum spurningarmerkjum og sömuleiðis að það ætti að auka þorskeldið.  Það er eins og Kalli Matt og fleiri sem telja að þorskeldið sé svarið við vondri ráðgjöf og misvitrum stjórnvaldsákvörðunum hafi ekki hugmynd um að fóðrið í þorskeldinu kemur að enn að mestu leyti úr fiskafurðum.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Þetta er eiginlega orðið óskiljanlegt allt saman

Jón Aðalsteinn Jónsson, 2.7.2008 kl. 23:40

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Þetta er allt mjög spes.

Sigurjón Þórðarson, 2.7.2008 kl. 23:47

3 Smámynd: Víðir Benediktsson

Það gerist ekkert í þessum málum fyrr en búið er að skipta liðinu út á Hafró. Þeir sem nú eru þar vaða í villu og svima og hafa gert í mörg ár. Held að þeir viti þetta sjálfir en með því að viðurkenna eigin vanmátt og yfirsjónir dæma þeir sig úr starfi.  það verður bara einhver annar að taka þessa ákvörðun.

Víðir Benediktsson, 3.7.2008 kl. 06:46

4 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Málið er að þeir sem eru næstir í að taka við á Hafró virðast vera steyptir í sama mót.

Sigurjón Þórðarson, 3.7.2008 kl. 08:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband