4.5.2008 | 15:02
Þöggunin heldur áfram í Silfri Egils
Sú er raunin að málefni alþýðufólks sem er ekki nógu sívíliserað eða intellígent, s.s. sjómanna og vörubílstjóra, eiga ekki upp á pallborðið hjá þáttastjórnandanum Agli Helgasyni. Hann hefur hvað eftir annað hlíft stjórnmálamönnum við að svara því hvernig þeir ætli að bregðast við mannréttindabrotum gagnvart íslenskum sjómönnum.
Nú í vikunni bar það til tíðinda á forsíðu Moggans að grein hefði verið birt í Nature þar sem vísindamennirnir tóku undir sjónarmið Jóns Kristjánssonar, mín og fleiri um að nýtingarstefna Hafró væri kolröng þannig að nægt tilefni hefði verið til að taka málefni sjávarútvegsins til umræðu. Einhverra hluta vegna þykir það ekki nógu fínt, ekki nógu mikið in, og meira reið á að hlýða á rök aldinna stjórnmálamanna sem deildu um mögulega Evrópusambandsaðild 2020.
Það sem helst bar til tíðinda í þættinum var að Björgvin Sigurðsson viðskiptaráðherra sem leit óvenju vel út greindi yfirvegaður og rólegur þjóð sinni frá því að helsta verk Seðlabankans og forsætisráðherrans væri að kría út stórt erlent lán til að rétta við gengi íslensku krónunnar.
Það er stórfurðulegt í ljósi umfjöllunar Nature og málefnalegrar gagnrýni á ráðgjöf að ráðamenn fari ekki yfir það hvort skynsamlegt sé að veiða meiri þorsk.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bloggvinir
- Helga Þórðardóttir
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Jens Guð
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ásta Hafberg S.
- Jóhann Elíasson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Georg Eiður Arnarson
- Óskar Þorkelsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Hallur Magnússon
- Sigurður Þórðarson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Katrín
- Þarfagreinir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Frjálslyndi flokkurinn í Eyjafirði
- Hallgrímur Óli Helgason
- Jón Kristjánsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Kjartan Eggertsson
- Halla Rut
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- ragnar bergsson
- Bjarni Harðarson
- Rannveig Þorvaldsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Eiríkur Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- erlahlyns.blogspot.com
- Agný
- Guðjón Ólafsson
- Einar Ben
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Halldór Jónsson
- Elvar Atli Konráðsson
- Kristján H Theódórsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Helgi Már Barðason
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Víðir Benediktsson
- Valgerður Sigurðardóttir
- Jens Sigurjónsson
- Vestfirðir
- Sigurður Ásbjörnsson
- Jón Magnússon
- Viðar Friðgeirsson
- Axel Jóhannes Yngvason
- Svava S. Steinars
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Quackmore
- Árni "Gamli" Einarsson
- Haukur Már Helgason
- Þóra Guðmundsdóttir
- Heiða Þórðar
- Steingrímur Ólafsson
- Vefritid
- Ársæll Níelsson
- S. Einar Sigurðsson
- Rannveig H
- Gísli Gíslason
- Bjarni Kjartansson
- Steingrímur Helgason
- Fiðrildi
- Baldur Fjölnisson
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Linda Lea Bogadóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Hanna
- Sverrir Stormsker
- Ottó Marvin Gunnarsson
- gudni.is
- Einar Vignir Einarsson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Jóhann Kristjánsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- María Harðardóttir og Þorsteinn Narfason
- Grétar Rögnvarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Steinn Hafliðason
- Landssamband ungra frjálslyndra
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Þórir Aðalsteinsson
- Vilborg Traustadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Sævar Einarsson
- Ketilás
- Ómar Pétursson
- Eyþór Grétar Grétarsson
- FF
- Jón Þór Bjarnason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Róbert Tómasson
- Landvernd
- ThoR-E
- Haraldur Baldursson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- busblog.is
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Svanhildur Karlsdóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Árni Árnason
- Grétar Mar Jónsson
- Perla
- Ingunn Guðnadóttir
- Irma Þöll
- Skattborgari
- Gulli litli
- Jón Snæbjörnsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- kreppukallinn
- hreinsamviska
- Arinbjörn Kúld
- Orgar
- Guðjón Baldursson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Gunnar Björn Björnsson
- Haraldur Hansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Birna Steingrímsdóttir
- Gestur Guðjónsson
- Jónas Rafnar Ingason
- Stríða
- Götusmiðjan
- Brynja skordal
- Haraldur Bjarnason
- Guðmundur Óli Scheving
- Ásta
- Markús frá Djúpalæk
- Jörundur Garðarsson
- MIS
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Björn Júlíus Grímsson
- S Kristján Ingimarsson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Magnús Kristjánsson
- Bergur Sigurðsson
- Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Heimssýn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Óskar Arnórsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Árni Davíðsson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Árelíus Örn Þórðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- L.i.ú.
- Rafn Gíslason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Samtök Fullveldissinna
- Vaktin
- Arnar Guðmundsson
- Lárus Baldursson
- Sveinn Elías Hansson
- Þórarinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Berglind Steinsdóttir
- Bjarney Vigdís Ingimundardóttir
- BJÖRK
- Björn Emilsson
- Dagný
- Dominus Sanctus.
- Friðgeir Sveinsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Pálsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Högni Snær Hauksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jón Þórhallsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Ingólfsson
- Stefán Júlíusson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sveinn Björnsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Úrsúla Jünemann
- Valdimar H Jóhannesson
Tenglar
Mínir tenglar
- Losnað við pestina Þetta hefur reynst mér vel við að losna við allar pestir þá 5 mánuði sem ég hef reynt immiflexið
- Ginseng Hér fæ ég kraftinn
- Frjálslyndi flokkurinn Vill breyta kvótakerfinu
- Ungmennasamband Skagafjarðar Ég er formaður
- Hér kaupi ég tölvudótið Ódýrt og gott
Sjávarútvegsmál
- Hafró Stofnunin þar sem ákveðið er hversu mikið má veiða
- Landssamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ
- Landssamband smábátaeigenda LS
- Jörgen Niclasen Formaður Fólkaflokksins í Færeyjum
- Helgi Áss Grétarsson Sérfræðingur í HÍ á vegum LÍÚ
Fréttamiðlar
- Al Jazeera Gefur Bandaríkjamönnum engin grið
- BBC BBC
- Börsen Dönsk fjármálasíða
- Seðlabankinn Musteri Davíðs
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 98
- Frá upphafi: 1013229
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 51
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Apríl 2023
- Október 2022
- Október 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Janúar 2019
- Apríl 2018
- Desember 2017
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- Nóvember 2014
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Af mbl.is
Innlent
- Lyftari yfir fót og rjúfa þurfti hurð
- Er kynjastríð í uppsiglingu?
- Dæmdur fyrir kynferðislegt nudd á stjúpdóttur
- Viðræður í Karphúsinu ganga misvel
- Sjálfstæðisflokkurinn á einhvern hátt stjórnlaus
- Áttu að rannsaka akademíuna en gerðu það aldrei
- Kona myrt á 10 mínútna fresti
- Fatlaður drengur fær ekki þjónustu í verkfalli
- Svona verður verkfall lækna á Akureyri
- Ákærður fyrir ítrekuð brot gegn systur sinni
Erlent
- Handtekinn fyrir njósnir í bandaríska sendiráðinu
- Hefur áhyggjur af notkun eldflauganna
- Herra Volvo er genginn
- Sakar dómstólinn um gyðingahatur
- Merkel segir Trump heillaðan af einræðisherrum
- Hótar Bretum og Bandaríkjamönnum
- Hættir við að reyna að verða ráðherra Trumps
- Segir að Rússar séu að nota Úkraínu sem tilraunasvæði
- Handtökuskipun á hendur Netanjahú og Gallant
- Leitar á ný mið eftir kolranga könnun
Athugasemdir
Satt segirðu og það sem verra er að það virðist ekki vera að við sauðsvartur almúginn megum "gagnrýna" vinnubrögð fréttamanna, sem mér þykir oft á tíðum ansi vafasöm svo ekki sé nú fastar að orði kveðið, því fréttamenn og þeir sem við fjölmiðla vinna virðast setja sjálfa sig á stall fyrir ofan aðra. Þessum orðum mínum til stuðnings ætla ég að segja eina litla sögu en hvort það er tilviljun eða ekki þá kemur Lára Ómarsdóttir þar við sögu. Svo var snemma í vetur að flutningaskipið AXEL strandaði fyrir utan Hornafjarðarós og í framhaldi af því urðu væringar um borð og eitthvað vesen sem ég er nú búinn að gleyma hvað var. En Stöð 2 var á staðnum og var Lára Ómarsdóttir fulltrúi Stöðvar 2 á staðnum og flutti ansi "dramatískar" fréttir af málinu og meðal annars sagði hún að skipstjórinn myndi sennilega missa réttindin vegna gáleysis við störf. Þessi ummæli þótti mér nokkuð vafasöm og ekki koma málinu neitt við þar sem ekki höfðu farið fram nein sjópróf og vildi ég meðal annars fá að vita hvaða heimildir væru fyrir þessu. Ég hringdi á Stöð 2 og fékk samband við vaktstjóra frétta sem var Kristján Már Unnarson, þegar ég var búinn að rekja mál mitt og spurði hann svo að því hvort honum þætti að fréttatímarnir ættu að vera vettvangur fyrir "Gróusögur" sagði hann: " Þú ert búinn að koma þínum sjónarmiðum á framfæri" og kvaddi.
Jóhann Elíasson, 4.5.2008 kl. 15:25
Sæll Sigurjón!Það hringdi áðan í mig kunningi minn(kaus ekki frjálslynda) og spurði hvort ég væri að horfa á"Silfrið"Sem satt var neitaði ég því.Hafði gleymt því.Þá sagðist hann hafa skökkt á því vegna þess sem að hans dómi væri orðin þráhyggja hjá stjórnandanum að hafa bara fulltrúa 4ra af 5 flokkum á Alþingi.Ég kveikti og sá að þetta var rétt og slökkti bara aftur.Hræddur er ég um að það heyrðist hljóð úr horni ef hann sniðgengi annan stjórnarflokkinn eins augsýnilega og hann gerir við FF.Kært kvaddur
Ólafur Ragnarsson, 4.5.2008 kl. 15:26
Heill og sæll; Sigurjón og aðrir skrifarar !
Sigurjón ! Rétt til getið; hjá þér. Agli hugnast betur, menntafólk og alvitringar þeir, sem hann hefir mest samskipti við, greinilega. Ekki nógu fínt; að umgangast sjómenn og bændur, hverjir halda jú honum, sem allmörgum annarra, á ríkisjötunni, með launum þessa hroka pilts, sem margra annarra, honum líkum.
Sífur Egils; sem upphafin ESB hyggja Ný- nazistanna, er öllum hugsandi mönnum andstyggð ein, og á að vera. Fólk; af hans stássi, er allrabezt, geymt í alsælunni, suður á Brussel völlum.
Með beztu kveðjum, sem fyrr, úr Árnesþingi /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 4.5.2008 kl. 15:41
Magnús Þór Hafsteinsson hefur verið amk tvisvar í þættinum hjá mér í vetur, var í síðasta þætti, Jón Magnússon er fastagestur, Grétar Mar hefur verið tvisvar, Kristinn H. líka; Jón var í þarsíðasta þætti og Kristinn í þættinum þar á undan.
Þetta er mannaval í Frjálslynda flokknum, betur representerað í Silfrinu en nokkrum öðrum stjórnmálaþætti.
Tími sjávarútvegsumræðunnar mun væntanlega koma. Minni á að ekki alls fyrir löngu var lögmaðurinn Magnús Thoroddsen í þættinum hjá mér og útlistaði viðhorf sín til málsins.
Egill (IP-tala skráð) 4.5.2008 kl. 15:48
Egill, kannski er ekki verið að gagnrýna hverja þú ert með í þættinum, heldur virðast menn vera "misjafnlega höndlaðir" eftir því hvar í flokki þeir eru.
Jóhann Elíasson, 4.5.2008 kl. 15:53
Eitt er það sem gleymist gjarnan í umræðunum um EBE: Aðildarríki fá ýms borgaraleg réttindi borgurum sínum til handa. Má þar nefna svonefndan „félagsmálapakka“ sem að verulegu leyti var undanskilinn við inngöngu okkar í EES á sínum tíma. Í þessum réttindapakka eru ýms mál sem verkalýðshreyfingin hefur verið að berjast fyrir handa skjólstæðingum sínum en sérstaklega íhaldsmenn hafa verið á móti slíku.
Það er því ekki svo með öllu illt að ekki boði e-ð gott.
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 4.5.2008 kl. 16:30
Sæll Sigurjón
Ég hlustaði á Silfur Egils í dag og enn og aftur verður maður vitni að því að ákveðnum hópi í þjóðfélaginu er haldið fyrir utan umræðuna ég hef nokkrum sinnum hringt í þingmenn flokksins og kvartað yfir þessu í vetur þegar þingmenn og forystumenn stjórnmálaflokkanna hafa verið í þættinum hjá Agli þá hefur frjálslyndum verið haldið þar fyrir utan. Þau fáu skipti sem þeir hafa fengið að vera í umræðunni þá hefur það verið með hinum almenna borgar í þjóðfélaginu en ekki þingmönnum hinna flokkanna. Spurningin er því þessi, hvaða rétt eiga þeir sem er haldið fyrir utan þjóðfélags umræðuna þar sem mér finnst að ætti að gefa þáttarstjórnandanum rautt spjald sem þýðir í mínum huga þriggja leikja bann.
Skipstjóri úr Grindavík (IP-tala skráð) 4.5.2008 kl. 16:56
Ríkissjónvarpið er fjölmiðill í eigu íslenska ríkissins. Því verður Ríkissjónvarpið að sjálfsögðu að undirgangast það, að það haldi ekki skipulega, lýðræðislega kjörnum fulltrúum ákveðins stjórnmálafls frá fjölmiðlinum.Það væri fullt tilefni að kæra það til mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.En því miður er ég hræddur um að Kína og Saudi Arabía ásamt hinum mannréttindaríkjunum sem skipa meirihluta í nefndinni hendi slíkri kæru í ruslatunnuna.
Sigurgeir Jónsson, 4.5.2008 kl. 17:41
Að sjálfsögðu ber að láta reyna á það fyrir mannréttindanefndinni,hvort Egill á að komast upp með þetta.
Sigurgeir Jónsson, 4.5.2008 kl. 18:17
Er ekki allt í lagi með ykkur? Það má saka Egil helgason um margt þegar kemur að því að velja viðmælendur í þættina sína, en ekki það að halda Frjálslyndum þar fyrir utan. Og það er heldur ekki hægt að gera þá kröfu til hans að hann eigi að tala um sjávarútvegsmál, bara af því að ykkur langar mest að tala um sjávarútvegsmál.
Stefán Bogi Sveinsson, 4.5.2008 kl. 18:49
Umræðurnar í dag voru skrípaleikur, en kannski er ekki við Egil að sakast heldur hvað viðmælendurnir eru hálir sem álar. Sérstaklega Guðlaugur Þór, sem komst upp með að þurfa ekki að svara hárbeittum árásum Sivjar um einkavæðingaráform í heilbrigðiskerfinu.
Hvað sjávarútvegsmál áhrærir: Ég get ekki séð að nokkuð geti komið í veg fyrir að erlendir aðilar geti eignast allan kvóta hér við land ef þeir vilja. Getur einhver frætt mig betur um það, ef ég hef rangt fyrir mér?
Theódór Norðkvist, 4.5.2008 kl. 21:10
Stjórnarskrá Íslands 72. grein
,,Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir.
Með lögum má takmarka rétt erlendra aðila til að eiga fasteingaréttindi eða hlut í atvinnufyrirtæki hér á landi.''
SællTheódór
Setti þesa gein inn fyrir þig sem er hér fyrir ofan. Þú sérð að í þesari grein kemur fram að það sé hægt að banna erlendum aðilum að eiga sem dæmi eign í Íslenskri útgerð. Það eru landslög í gildi í dag sem leyfa ekki beina eignaraðild erlenda aðila í Íslenskri útgerð en því er hægt að breytta með einföldum meirahluta alþingis á morgum ef 32 þingmenn vilja það.
Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ
B.N. (IP-tala skráð) 4.5.2008 kl. 22:38
Það má lengi deila um þá sem koma fram í þætti Egils og koma þar ekki fyrir. Ég vil hins vgar mótmæla ví að trukkararnir (vörubílstjórarnir) tilheyri alþýðu manna. Þetta eru upp til hópa atvinnurekendur, sjálfstæðir verktakar sem reka sig sem fyrirtæki. Umsjómenn gegnir allt öðru máli, þótt þeir séu reyndar fæstir "alþýða manna" vegna hárra launa. Egill ættti frekar að fjölga hjá sér fulltrúum alvöru alþýðu.
Friðrik Þór Guðmundsson, 4.5.2008 kl. 22:53
Takk fyrir þetta Baldvin. Stjórnarskráin hefur ekki reynst meira virði en salernispappír fyrir kvótagreifana sem hafa þrátt fyrir hástemmdar yfirlýsingar stjórnarskrárinnar um þjóðareign stungið kvótagróðanum í eigin vasa. Þjóðin á ekki kvótann. Nokkur fyrirtæki ráðskast með fiskinn í sjónum eins og þeim sýnist og hlæja að fátæklingunum í sjávarþorpunum.
Útlendingar geta auðveldlega stofnað einkahlutafélag (eða alþjóðaviðskiptafélag) í samvinnu við íslenska leppa sína. Það félag gæti síðan keypt skip og þar með kvóta. Ég sé því ekki að nokkur breyting myndi verða á núverandi fyrirkomulagi þó við gengjum í ESB.
Ég er ekki að leggja til inngöngu, einungis að benda á að rökin um að við missum yfirráð yfir fiskimiðunum halda ekki vatni. Við höfum misst þau hvort eð er til Samherja og fáeinna fleiri auðjöfra.
Theódór Norðkvist, 4.5.2008 kl. 23:30
Það er mín skoðun að rannsóknarblaðamaðurinn Friðrik Þór ætti að taka það með ákveðinni varúð hvernig síveliseraða intelígentían í Samfó s.s. Pétur Tyrfingsson, Grímur Atla og Dofri Hermanns flokkar fólk en vörubílstjórar landsins hafa verið flokkaðir af ýmsum úr þessum hópi sem einhvers konar smáborgarar og sérhagsmunaseggi.
Samfylkingin er sérkennilegur flokkur en þar á bæ hefja menn upp í hæstu hæðir auðmenn landsins og bjóða þá sérstaklega velkomna á landsþing sín þrátt fyrir að sumir gestanna hafi auðgast á því að gera kaupréttarsamninga nánast við sjálfa sig. Ekki er látið þar við sitja heldur voru ráðamenn í Reykjavík sársvekktir yfir því að ekki tókst að koma orkuauðlindum til GGE og búa til milljarða og milljarða ofan í fátækustu ríkjum heims í Afríku og Asíu. Það er óþórft að taka það fram að heilög Jóhanna og fleiri hafa hneykslast á umræddum kaupréttarsamningum.
Þetta gerist á sama tíma og framámenn í flokknum virðast hafa einhverja skömm á einyrkjum sem stunda sjálfstæðan atvinnurekstur s.s. vörubílstjórum og trillusjómönnnum.
Sigurjón Þórðarson, 4.5.2008 kl. 23:53
Sæll aftur Theódór
Hér eru landslögin sem segja afdráttarlaust hverir eiga fiskinn í sjónum.
Um eignarhaldsrétt útgerðarfélaga á kvóta.
Lög nr. 38 1990 1. gr. “Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.”
Ég vil sjá þessa lagagrein setta óbreytta inn í stjórnarskrána.
Baldvin Nielsen Reykjanesbæ
B.N. (IP-tala skráð) 5.5.2008 kl. 00:33
Friðrik Þór talar um sjómenn sem hálaunastétt. Það getur vel verið, að í örfáar vikur á ári megi tala um yfirmenn á loðnuskipum sem hálaunastétt. En í það heila tekið eru laun sjómanna ekki neitt til að öfundast yfir. Brúttólaunin segja ekki allt í því sambandi heldur. Það segir það sem segja þarf að nú er orðið erfitt að fá sjómenn á frystitogarana.
Trillukarl (IP-tala skráð) 5.5.2008 kl. 05:15
Í þættinum fyrir viku var rætt lengi um málefni trukkaranna.
Þá kom Magnús Þór Hafsteinson einmitt í þáttinn, varaformaður Frjálslyndra.
En það er rétt sem hér er bent á. Myndi ekki saka ef þingflokkurinn hefði konu í sínum röðum.
(Svo myndi ég nú seint segja að gamli trotskíistinn Pétur Tyrfingsson sé partur af intelligensíunni í Samfylkingunni.)
Egill (IP-tala skráð) 5.5.2008 kl. 11:51
Ég er ekki innanbúðarmaður i Samfylkingunni og get því ekki sagt nákvæmlega hver er hvað í Samfylkingunni.
Ég tók eftir því að þegar Pétur Tyrfingsson sem er í sérstöku dálæti hjá Össuri Skarphéðinssyn var að úthúða vörubílstjórum sem smáborgurum og sérhagsmunaseggjum að þá kom strollan af trúnaðarfólki í jafnaðarmannaflokknum sem tók undir með Pétri og hrósaði honum mjög fyrir naska greiningu sína á lýðnum.
Sigurjón Þórðarson, 5.5.2008 kl. 12:15
Efnistök Egils eru ein birtingarmynd á vanda RÚV sem er að stofnunin nýtur ekki nægilegs aðhalds neytenda. Ef áskrifendur væru frjálsir að því að ráðstafa afnotagjaldi sínu þá væri komið raunverulegt aðhald. RÚV sem jafnframt er öflugasti fjölmiðillinn er nánast framlenging á hinu pólitíska valdi og styður það og styrkir eins og vera ber því eigandinn og eini hluthafinn er ríkisvaldið. Þessu þarf að breyta sjá, t.d. þessa pistla:
Amy Goodman - orð í tíma töluð í og fyrir RÚV
Aðalbjörg Sigurðardóttir um RÚV árið 1944
Framtíðarmöguleikar RÚV
Tæknin breytir stöðunni varðandi ljósvakamiðlun til dreifðra byggða
RÚV - Menningarleg Maginotlína
Stofnun ljósvakasafns er löngu tímabær
Hlúa þarf betur að hljóðrituðum menningararfi
Enn birtast vankantar á fyrirkomulagi Ríkisútvarpsins ohf
Óviðunandi frammistaða RÚV í óveðrinu á Austurlandi
Ragnar Geir Brynjólfsson, 6.5.2008 kl. 23:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.