Leita í fréttum mbl.is

Eru íslenskir blaðamenn samþykkir mannréttindabrotum?

Fyrr í vikunni gerði ég að umtalsefni hver ástæðan væri fyrir því að ríkisblaðamaðurinn Egill Helgason hlífði Ingibjörgu Sólrúnu við að svara fyrir mannréttindabrot ríkisins á íslenskum sjómönnum. Hann gerði að einhverju leyti grein fyrir ástæðunni í athugasemd hér á síðunni og mátti ráða af skrifum hans að af efnahagslegri ástæðu mætti ekki ræða þessi mál.

Í hádegisviðtali Stöðvar 2 bar svo við að annar fréttamaður, Heimir Már Pétursson, fyrrum varaformannsefni Samfylkingarinnar, tók viðtal við skoðanabróður sinn, Björgvin Sigurðsson viðskiptaráðherra. Talið barst mjög að mannréttindamálum í Kína en fréttamaðurinn sá hins vegar ekki ástæðu til að spyrja einnar lítillar spurningar um hvernig ríkisstjórnin ætlaði að bregðast við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um brot ríkisstjórnarinnar á atvinnuréttindum íslenskra sjómanna.

Ef til vill er líka um tillitssemi að ræða, það að ræða mannréttindamálin er eins og að ræða snöru í hengds manns húsi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Það virðist vera hroðaleg meðvirkni í gangi hjá fjölmiðlum, stjórnmálamenn fá að úttala sig um virði mannréttinda handa öllum nema Íslendingum, merkilegur andskoti og mætti halda að fjölmiðlaelítan eins og hún leggur sig styðji þessa helvítis vitleysu. Ég tók nokkur nýleg dæmi sjá hér. Og dæmi svo hver fyrir sig.

Hallgrímur Guðmundsson, 2.5.2008 kl. 16:22

2 identicon

Þær eru frekar hvimleiðar þessar samsæriskenningar þínar Sigurjón, en svosem ekki í fyrsta sinn sem þú flaggar þeim - af ýmsu tilefni.

Mér finnst pínu gróft að kalla mig ríkisblaðamann. Nú um mánaðarmótin á ég 27 ára starfsafmæli í blaðamennsku. Tími minn hjá ríkinu öll þessi ár nær varla heilu ári.  

Ég sagði einfaldlega að ég hefði haft fullt annað til að ræða við utanríkisráðherrann á þessum stutta tíma sem ég hafði í viðtalinu en þennan mannréttindaúrskurð frá SÞ.

Ég lét hins vegar fljóta með þá tilgátu að almennt væru menn ekki spenntir fyrir því að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu á þeim efnahagslegu óvissutímum sem nú ríkja. 

Egill (IP-tala skráð) 2.5.2008 kl. 17:24

3 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Egill, hvað hefur þú fyrir þér í því að almennt væru menn ekki spenntir fyrir því að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu? Settu þig í samband við fólkið í sjávarplássunum sem hefur verið svipt viðurværi sínu með kvótakerfinu. Það er auðvelt að veltast um malbikið í Reykjavík og afla sér upplýsinga um hluti sem skiptir það fólk minna máli en landsbyggðina og röfla einhverja dellu út frá því. Þér til frekari fróðleiks þá fjallar úrskurður mannréttindanefndarinnar um kvótakerfið og hvernig það brýtur mannréttindi og mismunar gróflega þegnunum.
 

Hallgrímur Guðmundsson, 2.5.2008 kl. 17:40

4 identicon

Kemur ekki malbikinu í Reykjavík mikið við. Sjávarútvegsráðherrann er að vestan, og Halldór Ásgrímsson, faðir kerfisins, var þingmaður Austurlands. Hörðustu talsmenn kerfisins er að finna í útgerðarplássum kringum landið.

Nú hafa þessar deilur um kvótakerfið staðið í áratugi. Ég segi hreint út - ég kann öll rökin í þeim utanað, með og á móti.

En það  hefur nákvæmlega ekkert komið út úr þessum deilum.

Ég leyfði mér bara að spá því að engra sérstakra breytinga sé að vænta, það muni enginn vilja rugga bátnum í því ástandi sem er. Alveg burtséð frá þessum úrskurði frá mannréttindanefndinni.

Þið Hallgrímur og Sigurjón hafið greinilega mikinn áhuga á þessum málum og þau brenna á ykkur. Þið sakið það fólk um svik og aumingjaskap sem hefur minni áhuga á fiskveiðistjórnun.

Það verður þá bara að hafa það.  

Egill (IP-tala skráð) 2.5.2008 kl. 20:47

5 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Það eru víst ein þrjú ár síðan síðasta gagnið á keyptum auglýsingaruslpósti (sem einu sinni í fyrndinni kallaðist fjölmiðlar) gafst upp á að kalla sig og kollega sína "fjórða valdið". Það sem er algjörlega byggt á lygum og blekkingum verður víst smám saman sjálfdautt nú á tímum þegar veruleikahönnun almennings byggist í vaxandi mæli á umræðum almenningsins sjálfs og þar af leiðandi dvínandi áhrifum ruslpósts og stjórnmálamanna.

Það kemur skiljanlega ekkert út úr stýrðri umræðu. Henni er ætlað að drepa málunum á dreif og kæfa þau. En það er allt að breytast hröðum skrefum. 

Baldur Fjölnisson, 2.5.2008 kl. 21:29

6 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Einstakt svar frá annar ágætum fjölmiðlamanni, "Það verður þá bara að hafa það" Milli 70 og 80% þjóðarinnar er á móti þessum ófagnaði og ósköpum sem kvótakerfið hefur fært fólkinu í landinu og mannréttindanefnd Sameinuðu Þjóðanna hefur dæmt kerfið mannréttindabrot og grófa mismunun þegnanna.

Þá bregður svo við að þegar fjölmiðlamenn eru gagnrýndir fyrir linkind gagnvart ráðamönnum þá er svarið "Það verður þá bara að hafa það". Þetta svar styrkir einfaldlega þessi skrif mín enn betur. Egill Helgason taktu þig saman í andlitinu maður og gerðu það sem fólkið vil, haltu áfram á þeirri braut sem þú áður varst á og hættu að gera mannamun á þeim sem til þín koma. Síðan langar mig að fá ábendingu um það hjá þér hvar ég ásaka þig beinlínis um svik.

Eitt að lokum, mannréttindi verða aldrei metin út frá ástandi efnahagslega hvorki fyrr, nú eða síðar, Það ættir þú að vita. Að meta mannréttindi út frá efnahagslegum aðstæðum lýsa betur en nokkuð annað meðvirkni. Og það er það sem ég hef verið að skrifa um punktur.

Hallgrímur Guðmundsson, 2.5.2008 kl. 21:31

7 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Egill trúir ekki á tilvist samsæra (sem er gildishlaðið skammaryrði sem var fundið upp til að draga athygli frá samsærunum sjálfum) en hefur samt tjáð sig heilmikið um svok. samráð (sem er víst eins konar deyfandi útgáfa af samsærum) og því verið í á fullu í samráðskenningum. Hahahaha.

Baldur Fjölnisson, 2.5.2008 kl. 21:56

8 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Afsakið, hugtakið og skammaryrðið samsæriskenningar var fundið upp til að draga athygli frá samsærunum, vildi ég sagt hafa. Svo rammt hefur kveðið að þessum hugsunarstoppurum að nauðsynlegt hefur reynst að taka upp hugtakið samráð í stað samsæra.

Baldur Fjölnisson, 2.5.2008 kl. 22:29

9 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Ein spurning Hanna Birna. Var spyrilinn (Heimir Már) í hádegisviðtali Stöðvar 2 í dag ekki í framboði til varaformanns Samfylkingarinnar? Spyr sá sem ekki veit?

Hallgrímur Guðmundsson, 2.5.2008 kl. 22:32

10 identicon

Í hádeigisviðtali á stöð 2 ræddi fréttamaðurinn Heimir már Péturson við Björgvin Sigurðsson viðskiftaráðherra. Það vagti furðu mína þar sem þeir ræddu aðalega um mannréttindabrot kínverja á tíbetum,og þar sem fréttamaðurinn slefti ráðherranum að tala um mannréttindabrot á sínum eigin þegnum.Verður það að skoðast srm hlutdreigni á hálfu fréttamansins.

Ó. R. (IP-tala skráð) 2.5.2008 kl. 22:35

11 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Síðpóstmódernisminn byggist á því að allt sé afstætt - beisíkallí eftir því sem hentar hverju sinni. Skiljanlega. Núna er allt heila fjármálakerfið á leið á hausinn undan eigin ofurskuldaframleiðslu en það þarf að gerast á skipulegan hátt og í samstarfi við keyptan ruslpóst (sem enginn heilvita maður kallar lengur fjölmiðla).

Baldur Fjölnisson, 2.5.2008 kl. 22:46

12 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Og svo stekkur fjölmiðlaelítan upp á nef sér þegar þeir eru gagnrýndir samber þann fjölmiðlamann sem svarað hefur hér. Hádegisviðtalið verður lengi í minnum haft þar sem umræðuefnið átti að vera um stöðu efnahagsmála.

Eitt sem ég hefði vilja bæta við í fyrri athugasemd og beinist beint að Agli Helgasyni. Það er eitt að vera atvinnublaðrari í víðum skilningi, síðan er annað að halda sig við það efni sem gagnrýnt er og það er, meðvirkni fjölmiðla og fjölmiðlamanna. Algjörlega burt sé frá því hvað honum finnst um hitt og þetta. Ef hans persónulegu skoðanir eru farnar að stjórna, þá er stutt í endalokin.

Hallgrímur Guðmundsson, 2.5.2008 kl. 23:39

13 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurjón.

Þetta er ágæt spurning, og fullkomlega réttmæt. því eins og ég benti á um daginn var nær heill dagur í umræðu á Alþingi Íslendinga sem ekki var svo mikið sem EITT ORÐ um í fréttum fjölmiðla sama dag.

Þetta er ekkert nýtt eins og við vitum bæði tvö mjög vel, og okkar fólk.

Umfjöllun Egils Helgasonar í fjölmiðlum um kvótakerfi sjávarútvegs hefur verið í algjörri mýflugumynd gegnum árin, og gjörsamlega án þess að festa fingur á atriðum sem skipta máli í þeirri gagnrýni sem kerfi þetta sannarlega skyldi og ætti að hafa átt að fá ef víðsýni væri á ferð.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 3.5.2008 kl. 00:05

14 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Já, ekki lýgur hún gmaria en kurteis en hún þó eins og venjulega, þetta hefur einmitt verið í mýflugumynd þetta helv. kjaftæði.

Baldur Fjölnisson, 3.5.2008 kl. 00:33

15 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Egill, ég er kannski ekki síður að reyna að brýna þig. Ég veit að þér er ekki alls varnað, en vil segja að meðan ekki er hamrað á því óréttlætismáli sem kvótakerfið er verða náttúrlega aldrei neinar breytingar. Þögnin er verst. Og hvernig er hægt að leiða álit mannréttindanefndarinnar svona hjá sér? Það er eitthvað í þessu sem gengur ekki upp, ekki síst á sama tíma og við rembumst eins og rjúpan við staurinn við að komast inn í öryggisráðið.

Mun fylgjast spenntur með Silfrinu á morgun.

Sigurjón Þórðarson, 3.5.2008 kl. 12:56

16 identicon

Það verður ekki minnst á þetta einu orði í Silfrinu á morgun. Þetta er einfaldlega ekki á dagskrá.

Hins vegar verður rætt um heilbrigðismál, Evrópumál, efnahagsástandið.

Hér er mikið fimbulfambað um mannréttindabrot. Kvótakerfið kann að vera slæmt. En þegar menn fara að líkja því við mannréttindabrot Kínverja í Tíbet, ja þá eru þeir komnir á hálan ís.

Það er hugsanlegt að hernám Kínverja í Tíbet hafi kostað milljón mannslíf. 

Egill (IP-tala skráð) 3.5.2008 kl. 14:57

17 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Egill, eru mannréttindabrot á Íslandi enn á bannlista hjá þér? Það er hallærislegt hjá þér að setja íslensk mannréttindabrot á bannlista. Það er enginn að bera þau saman við brotin í Tíbet eða hreinsanir Stalíns en þetta er engu að síður íslenskur veruleiki sem þarf að taka á áður en við ætlum að fara að kenna heiminum betri siði. Hvernig tökum við á erfiðleikum okkar hér heima? Ef þetta er svona smávægilegt, hvers vegna þá ekki að breyta því í snatri?

Sigurjón Þórðarson, 3.5.2008 kl. 18:16

18 Smámynd: Kristin Á.Arnberg Þórðardottir

Nei auðvitað verða þau mannréttindabrot sem eru brotin á okkur þegnum þessa lands ekki rædd á morgunn.Því skildi Egill vera að eiða sínum dýrmæta tíma í svoleiðis vitleysu (það hafa ekki ennþá verið háð stríð vegna heimsins besta fiskveiðastjórnunar kerfi)en það er fullt af fólki sem hefur farið mjög ylla í þessu kerfi misst aleiguna og margur komist á vonarvöl þess vegna er þessi dómur til kominn.Og hvort sem Agli líkar betur eða verr verða þessi mál rædd líka hjá honum,hann er jú á okkar fjölmiðli

Kristin Á.Arnberg Þórðardottir, 3.5.2008 kl. 21:29

19 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Hverju missti ég af, hver líkti þessu við mannréttindabrotum Kínverja í Tíbet? Hitt er svo annað mál að mannréttindabrot eru alltaf mannréttindabrot sama hvar þau eru framkvæmd. Sum eru þess eðlis að fólk er hreinlega drepið, önnur eru þannig að fólk er hneppt í nánast ævilanga þrælkun eins og til dæmis tíðkast hér á landi. Um þetta á að tala og leysa áður en við þykjumst ætla að kenna öðrum hvernig þetta eigi að vera. Og hverjir eru best til þess fallnir, jú fjölmiðlar sem gera lítið í því og það gagnrýnum við.

Hallgrímur Guðmundsson, 3.5.2008 kl. 22:12

20 identicon

Egill samfélag á að stöðva öll mannréttindabrot strax sama hversu léttvæg þau kunna að koma fyrir sjónir miðað við önnur verri í öðrum löndum. Aðgerðarleysi býr til svigrúm til að slíkum brotum fjölgi og verði en verri og þá kannski eins og þau gerast verst í öðrum löndum. Allur er varinn góður!

Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ 

B.N. (IP-tala skráð) 4.5.2008 kl. 02:38

21 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Það vantaði bara fulltrúa frá Mugabe Zimbabve forseta í þennan meirihluta Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, til að dæma það mannréttindabrot af Íslands hálfu, að útgerðarmaður frystitogara sem hefði verið á sjó,eða hvaða skips sem væri, skyldi þurfa að kaupa sér aflaheimildir af öðrum ,sem líka hefði keypt sér aflaheimildir, til að fá að gera skipið út. Þá hefði skrípaleikurinn verið fullkomnaður.Það ber að henda þessu ályti í ruslatunnuna, og ég ætla rétt að vona að það sé búið að því.Þá er núverandi sjávarútvegsráðherra kanski búinn að gera eitthvað af viti.Kominn tími til.

Sigurgeir Jónsson, 4.5.2008 kl. 07:08

22 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Sigurgeir er vaknaður og kominn í sinn alkunna gír. Hann er kannski einn af þeim sem greitt hafa því atkvæði á síðunni minni að mannréttindabrot séu sjálfsögð og styður við þann glæp.

Hallgrímur Guðmundsson, 4.5.2008 kl. 15:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband