Leita í fréttum mbl.is

Svandís á móti því sem hún lagði til í vikunni - ekki í fyrsta sinn

Svandísi Svavarsdóttur virðist vera einkar lagið að snúa við blaðinu og er nú á góðri leið með að toppa sjálfan Össur Skarphéðinsson sem lengi var legið á hálsi fyrir að geta ekki haft sömu skoðun frá morgni til kvölds. 

Í haust sem leið beitti hún sér hart fyrir að upplýsa REI-málið en þegar hún komst í stjórn með Birni Inga var hennar fyrsta verk að senda málið í nefnd þaðan sem engar upplýsingar hafa borist almenningi.

Nú í kvöld birtist Svandís í tíu-fréttum RÚV og mátti helst skilja á henni að hún væri mjög andsnúin kaupum á húseignum og lóðum við Laugaveginn í Reykjavík vegna þess að gjörningurinn væri fordæmisgefandi. Mér þóttu þetta nokkur tíðindi þar sem Svandís samþykkti í borgarráði að kaupa umræddar eignir á mánudaginn var. Ástæðuna fyrir þessum nýjasta viðsnúningi sínum sagði hún þá að verðið væri of hátt. 

Með réttu ætti nú Tjarnarkvartettinn að líta í eigin barm ef hann hefur skyndilega eitthvað við verðlagninguna að athuga. Með aðgerðaleysi sínu og tvístíganda kom Tjarnarkvartettinn málinu í kremju sem losa þurfti um í flýti og hefur örugglega ekki verið til að gera kaupin hagstæðari fyrir Reykvíkinga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ef ég ákveð og tilkynni það fyrir hádegi að ég vilji kaupa mér... flóðhest, en þegar ég mæti til þess að ganga frá kaupunum þá reynist hann miklu dýrari en ég gerði ráð fyrir og hef efni á.....

Telst það þá ekki bara skynsamleg ákvörðun að hætta við?

Heiða B. Heiðars, 1.2.2008 kl. 00:05

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Heiða, Svandis er búin að hafa á annað hundrað daga til að ganga frá þessum máli sem hún var fylgjandi og síðan skyndilega á móti í sömu vikunni.

Sigurjón Þórðarson, 1.2.2008 kl. 00:22

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Heiða: Ég sé nú ekki þörf á því fyrir borgarfulltrúa Reykjavíkur að kaupa sér flóðhesta.

Væri ekki ráð fyrir þá að losa sig við nokkra?

Árni Gunnarsson, 1.2.2008 kl. 00:25

4 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Hér er bókun Svandísar frá því á mánudaginn var:

Svandís Svavarsdóttir óskar bókað:

Fulltrúi Vinstri grænna í borgarráði tekur undir framkomna tillögu um kaup borgarinnar á Laugavegi 4 og 6 enda er hún í fullu samræmi og samhljóða tillögu sem undirrituð flutti í borgarráði í ágúst 2006. Um er að ræða verðmæti sem felast í sögu, samhengi, götumynd og umhverfisgæðum sem verða aldrei metin til fjár. Almenn umræða er augljóslega að snúast á sveif með slíkum sjónarmiðum en því ber að fagna.

Sigurjón Þórðarson, 1.2.2008 kl. 00:29

5 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég er að hugsa um að kaupa mér flóðhest.  Er eitthvað vænt fólk í mínum vinahópi í Skagafirði sem að kann að segja mér til um reiðhnigi & hnakk á slíkar skepnur ?

Steingrímur Helgason, 1.2.2008 kl. 01:00

6 identicon

Góð grein Sigurjón. Svandís Svavarsdóttir er mesti tækifærissinni sem komið hefur fram á sjónarsviðið í stjórnmálum lengi. Í kjölfar REY málsinns þar sem hún hafði upp stór orð hjaðnaði hín eins og sprungin blaðra og kon nákvæmlega engu í verk þessa hundrað daga. Enda hefur þessi stjórn verið nefnd "Hundrað daga hundadagastjórnin" Svo þetta með Húsin Dramadrottningin Svandís sagði ábúðarfull "Einginn stjórnmálamaður er merkilegri en þessi hús og það á að kaupa þau hvað sem þau kosta, þau munu standa þarna eftir tvöhundruð ár þá verðum við öll löngu dauð" Svo er allt önnur skoðun uppi hjá drottningunni viku síðar.

Ómar Sigurðsson (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 01:04

7 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sammála Sigurjón , svona fólk er ekki trúverðugt . kv.

Georg Eiður Arnarson, 1.2.2008 kl. 07:05

8 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Eftir það sem á undan er gengið ætti ekki að koma neinum á óvart þó borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti með öllum greiddum atkvæðum að festa kaup á flóðhesti.

Jóhannes Ragnarsson, 1.2.2008 kl. 07:30

9 Smámynd: Vigfús Davíðsson


Í guðannabænum Sigurjón hættu að velta þér upp úr borgarpólítíkinni. Það verður þér og þínum flokki ekki til góðs. Það endar með því að hann kvervur. það er kannski það sem þú vilt. Þeir fóru ekki svo vel með þig, þegar þú dast út af þingi.

Vigfús Davíðsson, 1.2.2008 kl. 08:47

10 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Vigfús, mér þykja það mikil og góð tíðindi að finna jákvæða strauma og nánast umhyggju Samfylkingarfólks fyrir gengi Frjálslynda flokksins.

Það er óþarfi að ætla að minn málflutningur ráði miklu um gengi Frjálslynda flokksins þar sem ég er ekki í forystu flokksins.

Sigurjón Þórðarson, 1.2.2008 kl. 09:43

11 Smámynd: Óskar Þorkelsson

tek undir með Vigfúsi, þú ert ekki að gera frjálslynda flokknum neinn greiða með þínum skrifum um borgarmál.. í fyrsta lagi á frjálslyndi flokkurinn ekki einn einasta mann í borgarstjórn.. í annan stað eru þessi kaup Óla á þessum kofum í besta falli barnaleg.. í versta falli afspyrnu heimskuleg eins og kemur fram í könnum um fylgi flokka í reykjavík.. Frjálslyndi flokkurinn mun þurrkast út þar fyrir afglöp Ólafs sem er ekki einu sinni í flokknum þínum Sigurjón svo ég skil ekki afhverju þú ert að mæra hann.

Halda sig við krókaleyfin !

Óskar Þorkelsson, 1.2.2008 kl. 10:13

12 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Jóhannes Ragnarsson skrifaði: 

"Eftir það sem á undan er gengið ætti ekki að koma neinum á óvart þó borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti með öllum greiddum atkvæðum að festa kaup á flóðhesti."

Magnús Þór Hafsteinsson, 1.2.2008 kl. 10:31

13 Smámynd: haraldurhar

Sæll Sigurjón.

   Eg er búinn að segja þér að þig setur niður með þessum skifum þínum um borgarstjórn.  Þú veist og alþjóð veit að þarna á sér algjört klúður á öllum sviðum.

   Það að kaupa þessa kofa á tæpar 6oo milljónir og bíða ekki eftir úrskurði menntamálaráðherra, hlítur að vera fyrir ofan þinn skilning og einning minn.  Að láta eins og 100 dagar til eða frá hafi skipt máli varðandi kaup á þessum kofum skil ég ekki.

haraldurhar, 1.2.2008 kl. 17:40

14 Smámynd: Hallur Magnússon

Kæri félagi Sigurjón!

Með allri virðingu fyrir Frjálslyndaflokknum - það er ef borgarstjórinn telst til þess flokks - þá er meirihlutinn í borginni bara brandari.

Þjóðstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í Reykjavík takk!

Hallur Magnússon, 1.2.2008 kl. 21:27

15 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Auðvitað er þetta brandari, en hann er bara svo rosalega lélegur. Vorkenni yngra fólkinu í borgarstjórnarfulltrúahópi Sjálfstæðisflokksins að stjórnmálaferlar þeirra séu eyðilagðir með því að draga þau inn í þessa dellu.

Magnús Þór Hafsteinsson, 2.2.2008 kl. 10:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband