Leita í fréttum mbl.is

Grétar Mar góður - benti á flótta VG og S frá umræðu um sjávarútvegsmál

Grétar Mar var góður í kosningaþætti Stöðvar 2 í gærkvöldi. Það var greinilegt að stjórnendur þáttarins reyndu hvað þeir gátu til að þagga niður alla umræðu um sjávarútvegsmál og illræmt kvótakerfi sem hefur valdið miklum búsifjum í öllum sjávarbyggðum landsins.

Egill Helgason var kjaftstopp þegar Grétar hermdi það upp á hann að fjölmiðlarnir þegðu þunnu hljóði þegar kæmi að sjávarútvegsmálum og kvótakerfinu. Þetta var hárrétt athugasemd hjá Grétari og Egill vissi upp á sig skömmina. 

Í þættinum kom skýrt fram að það voru ekki einungis kvótaflokkarnir Framsókn og Sjálfstæðisflokkur sem voru á flótta undan umræðu um kvótakerfið, heldur höfðu VG og Samfylkingin bæst í flóttaliðið.

Samfylkingin hefur átt erfitt uppdráttar í umræðum um sjávarútvegsmál frá því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var sérstakur gestur á LÍÚ-þingi og hélt þar dæmalausa ræðu um kvótakerfið.

Steingrímur J. Sigfússon hefur einnig forðast umræðu um óréttlátt fiskveiðistjórnunarkerfi allt frá því að hann gaf út furðurit sitt um sjávarútvegsmál fyrir áratug. Mig minnir að hún heiti Róið á ný mið.

Hvers konar jafnaðarmenn og sósíalistar eru það sem sætta sig við kerfi þar sem sjómönnum er gert að greiða 70% af því sem þeir afla til einhverra sem eru tilfallandi handhafar kvótans sem er lögum samkvæmt sameign þjóðarinnar?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það er rétt að taka það fram að þó svo að Egill hafi orðið kjatstopp í þættinum að þá er ekki hægt að saka hann um að hafa reynt að koma í veg fyrir umræðu um sjávarútvegsmál í umræddum þætti.  Orðið var tekið af Grétari af einum stjórnanda þáttarins þegar hann var að ræða sjávarútvegsmál í umræðum um atvinnumál.   Þetta leit mjög illa út fyrir þáttarstjórnendur en þeir verða að gæta sín þar sem að ekki er liðið ár síðan að einn þeirra var aðstoðarmaður forsætisráðherra Halldórs Ásgrímssonar og Sigmundur Ernir hefur setið í nefndum og ráðum á vegum Framsóknarflokksins.

Sigurjón Þórðarson, 12.4.2007 kl. 13:57

2 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæll Sigurjón.Já Grétar stóðst sig vel.hann á eftir að velgja þeim undir uggum.En mér finnst það furðuleg hvað reyndir þingmenn,ráðherra og sérstaklega þarna Árni Matt tala til niður frambjóðanda FF og eins og þeir þykist eitthvað yfir þá hafnir. það verður gaman að sjá hvort háðsglottið á Árna Matt minnkar ekki í vor.Ég treysti þeim Grétari & co að minnka það til muna og ná því alveg af þessum mesta arðræninga íslandsögunnar.Þetta er að koma hjá okkur Góðir hlutir gerast hægt.Kært kvaddur

Ólafur Ragnarsson, 12.4.2007 kl. 14:06

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Árni Matt sjávarútvegráðherra til margra ára reynir hvað hann getur að forðast að ræða sjávarútvegsmál.  Það eitt sýnir veika stöðu Sjálfstæðisflokksins.

Ég hef heyrt fleiri tala um háðsglottið á Árna Matt ég tók sjálfur ekki eftir því. Eitt er víst að hann skorar ekki á því að setja sjálfan sig á háan hest, þótt dýralæknir sé og mikill áhugamaður um byggingu reiðhalla fyrir almannafé.

Sigurjón Þórðarson, 12.4.2007 kl. 14:15

4 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heill og sæll Sigurjón.

Ég vil benda ykkur á stjórn á þessum þætti var mjög góð þið getið ekki sagt að það hafi verið ó stjórn á þessum þætti Sigurjón.

Það sem menn skulu hafa hugfast þegar spurt er þá verða menn að svara spurningum sem lagðar eru fyrir þá ekki fara inná önnur málefni. Eitt sem verða menn að skilja það er stjórandi sem ræður ferð og menn verða að virða þær reglur.

Það sem mér finnst orðið mjög leiðinlegt að hlusta á umræður þegar menn eru sífellt að grípa frammí með framíköllum þetta sést hvergi nema á íslandi enda eru sumar af þessu umræðum leiðinlegar og ómálefnalegar og skila ekki neinu. 

Ég vil benda þér á Sigurjón svona ávirðingar sem þú hefur uppi hér á þáttastjórendur Stöðvar 2 eru ekki réttar hjá þér. Þú sjálfur hefur komist mjög oft í umræður til að tjá þig og þínar skoðanir.

Með svona ómálefnalegri umræður hún boðar ekki gott nema síður enn svo fyrir mann eins og þig sjálfan.

Mér fannst umræðan ekkert frábært enn framfarastjórnin bendi stjórnaranstöðunni á hvað mikið er búið að gera í þessu þjóðfélagi síðan þessi stjórn tók við sem er satt.                                             Mér fannst afturá móti ekkert nýtt koma frá ykkur sem dæmi.

Jóhann Páll Símonarson.

Jóhann Páll Símonarson, 12.4.2007 kl. 15:47

5 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Ja hérna.Ég man nú ekki betur en að svona pólítískar umræður í því landi sem ég bjó væru af sama meiði og þær hér,að talaði hver uppí annan á svona framboðsfundum.Svo er það eins og hér,þar þora menn ekki að taka umræðuna um innflytendamálin,án þess að afbaka og snúa hlutunum algerlega við.Og við sem viljum frjálsa og lýðræðislega umræðu erum bara óalandi asnar.Frægasta dæmið um svona óekta málflutning er sænski frambjóðandinn sagði meiningu sína eftir að hann hélt að búið væri að slökkva á migfóninum.Svona vilja menn umræðuna hér.Ég skora á þig Jóhann Páll að lesa Máefnabók Frjálslyndaflokksinns og segja mér á hvaða blaðsíðu þú getur fundið einhvern eim af hatri á innflytendum

Ólafur Ragnarsson, 12.4.2007 kl. 16:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband