Leita í fréttum mbl.is

Steingrímur J. Sigfússon og Jón Magnússon eru sammála í útlendingamálum!

Í riti Steingríms J. Sigfússonar Við öll sem kom út fyrir síðustu jól má kynna sér náið skoðun stjórnmálamannsins til hinna ýmsu málefna, s.s. hnattvæðingar og innflutts vinnuafls.

Jón Magnússon

Í neðangreindum köflum kemur fram að Steingrímur varar sérstaklega við því að afnema öll höft á flæði vinnuafls á milli landa. Í bókinni tekur hann þar með undir sjónarmið Frjálslynda flokksins um að það beri að stýra og takmarka óheftan innflutning fólks frá fátækari ríkjum enda geti það leitt til félagslegra undirboða. 

Steingrímur varar sérstaklega við ómaklegri gagnrýni á hendur þeim sem þora að ganga fram fyrir skjöldu sem t.d. verkalýðsfélögin og Frjálslyndi flokkurinn hafa gert. Það má segja að sú spá hafi gengið eftir, Frjálslyndi flokkurinn hefur orðið fyrir mjög ómaklegri gagnrýni og verið sakaður jafnvel um útlendingahatur og kynþáttahyggju.   

 Úr III. kafla: Atvinnulíf, viðskipti og stjórnvöld á tímum hnattvæðingar

Algengt er að talsmenn svokallaðrar hnattvæðingar láti eins og hún sé eingöngu framþróun viðskiptafrelsis og boði fráhvarf frá hvers kyns höftum og einokun. Eins séu verkalýðshreyfingin íslenska, og allir sem gagnrýna fyrirtæki eins og Impregilo, knúin áfram af heimóttarskap ef ekki öðru verra eins og kynþáttafordómum. En staðreyndin er sú að alþjóðavæðing“ eða hnattvæðing“ eru í svona tilvikum falleg orð yfir ljótan hlut. Þ.e. hvernig þeir ríkustu og öflugustu tryggja eigin hagsmuni með því að nýta sér misskiptingu í heiminum og standa þannig í reynd vörð um áframhaldandi ójöfnuð eða jafna hlutina niðurávið (bls. 74).

Einn fylgifiskur hnattvæðingar á forsendum fjölþjóðafyrirtækja og fjármagnseigenda eru félagsleg undirboð þar sem launakjör, aðbúnaður og félagsleg réttindi eru brotin niður með víxlverkun, þ.e. tilflutningi á ódýru vinnuafli og/eða flutningi atvinnustarfsemi til láglaunasvæða (e. social dumping) sem síðan er réttlætt með því að verið sé að útvega fátæku fólki vinnu og betri lífskjör (bls. 70).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég sé ekki þennan mun en það er vissulega mikill munur þegar svokallaðir fræðimenn eru búnir að afflytja málflutning Frjálslyndra.

Sigurjón Þórðarson, 11.4.2007 kl. 19:11

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég hef ekki orðið var við tilhæfulausan málflutning en ég hef orðið var við að t.d. hefur mér verið lögð orð í munn sem ég hef aldrei látið frá mér fara af andstæðingum  Frjálslynda flokksins. Hér eru sannarlega orð formanns VG sem beinir sjónum beint að innflytjendum sjálfum. 

Það þarf ekki annað að gerast en það verði vinsælt á Spáni eða í Portúgal að fara í fiskvinnslu til Íslands og menn ryðjist hingað inn og bjóðist til að vinna hér fyrir miklu lægra kaup. Það þarf ekki nema bara að íbúar í tveimur til þremur blokkum í Lissabon kæmu hingað til þess að ójafnvægi gæti skapast á íslenska vinnumarkaðnum.

Sigurjón Þórðarson, 11.4.2007 kl. 19:38

3 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Jaja já. Nú sé ég mig knúinn að taka upp hanskann fyrir Frjálslynda flokkinn, ég hef nefnilega aldrey í umræðunni heyrt neinn frá Frjálslynda flokknum segja "Ísland fyrir Íslendinga", eða eitthvað niðrandi um útlendinga allmennt. Það sem ég tók hinsvegar eftir var að í viðtali við einn mann frá Frjálslynda flokknum annarsvegar og hinsvegar Tatiönu sem er formaður (?innflytjenda?) var að það sem hún vildi í þessu máli var það sama og Frjálslyndi flokkurinn hefur verið að segja, hún orðaði það bara betur enn þeir sem orðuðu auglýsinguna sem birtist á dögunum.

Og eitt sem ég vil benda á og það er sú staðreind að ég hef ekki verið stuðningsmaður Frjálslynda flokksins.

Ólafur Björn Ólafsson, 11.4.2007 kl. 23:45

4 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Sigurjón minn ég held þú verðir nú að lesa grein Jóns "Ísland fyrir Íslenginga?" uppá nýtt ef þú heldur að þar sé sami málflutningur og í tilvitnuðum oðum Steingríms J. - Jóni og ykkur er auðvitað frjálst að draga í land en verðið að gera það skýrt og skilmerkilega- og verðið menn að meiru fyrir.

Helgi Jóhann Hauksson, 11.4.2007 kl. 23:54

5 Smámynd: Sigurður Ingi Jónsson

Sæll Sigurjón,

Ég hef sagt við þig áður að ég tel þig vera góðan dreng í vondum félagsskap. Ég segi því við þig það sem ég sagði við Kjartan, ég trúi ekki að þú ætlir að jórtra þessa tuggu þeirra Jóns og Magnúsar Þórs.

Ég verð að taka undir með Jóni Kristófer hér að ofan. Það er eðlismunur á málflutningi Steingríms J og frjálslyndra. Steingrímur beinir spjótum sínum að fjölþjóðafyrirtækjum á meðan frjálslyndir ráðast á verkafólk og kenna jafnvel hlunnförnum útlendingum um lélegan aðbúnað sinn eða lág laun.

Þá vil ég benda Ólafi Birni á frambjóðanda frjálslyndra Viðar Guðjohnsen til staðfestingar á tilvitnuðum ummælum Ísland fyrir Íslendinga. Forysta frjálslyndra hefur ekki séð ástæðu til að fordæma skrif þessa frambjóðanda þegar fjölmiðlar hafa borið þau undir þá.

Þá hljóta að vera einhver skilaboð til ykkar að allir hinir stjórnmálaflokkarnir fordæma þennan málflutning ykkar.

kk,

SIJ

Sigurður Ingi Jónsson, 12.4.2007 kl. 01:24

6 identicon

Vonandi koma engir frá Kúveit.

Þórir (IP-tala skráð) 12.4.2007 kl. 09:04

7 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég hef lesið grein Jóns Magnússonar Ísland fyrir Íslendinga? og get tekið undir flest sem þar stendur þó svo ég hefði örugglega orðað þetta með öðrum hætti en félagi minn Jón Magnússon. 

Þessi grein hefur verið rangtúlkuð og við sem höfum leyft okkur að vilja nota öryggisákvæði EES samningsins til þess að sporna við flæði fólks frá fátækari ríkjum hafa verið ranglega sakaðir um að útlendingahatur og rasisma.

Það má segja að Steingrímur J Sigfússon hafi fallið þá gildur sem varaði sjálfur við.

Sigurjón Þórðarson, 12.4.2007 kl. 10:52

8 Smámynd: Jón Magnússon

Áhyggjurnar sem Steingrímur lýsir og þú vitnar í eru af sama toga og ég hef gert. Það er enginn eðlismunur á því. Af því að grein mín Ísland fyrir íslendinga? hefur komið til umræðu bendi ég á að efnisatriðinn í greinini eru þessi:

1. Straumur útlendinga svo mikill að yfirvöld henda engar reiður á því hvað margir útlendingar eru hér.

2. Kerfið ræður ekki við síaukinn aðflutning útlendinga.

3. Með sama áframhaldi yrðu útlendingar í landinu 80 þúsund árið 2015.

4. Þó spyrnt væri við straumi innflytjenda þá hefði það ekkert með virðingarleysi fyrir öðrum þjóðum eða kynþáttafordóma að gera heldur hvernig landið okkar og þjóðfélagið þróast.

5. Sviss hefur valið hörkulegustu innflytuendalöggjöf sem þekkist.

6. Bent á aðvörurnarorð Magnúsar Þórs Hafsteinssonar varðandi að fella niður undanþáguna við frjálsu flæði vinnuafls frá nýju ríkjum ES.

7. Stór hluti þess fólks sem hingað hefur komið er harðduglegt fólk en við megum ekki missa stjórn á þróuninni

8. Ég vil ekki fá hingað öfgafulla Múslima sem hafa sín eigin lög og virða ekki lágmarksmannréttindi og misbjóða konum.

9. Ég vil ekki fá til landsins hópa sem eru til vandræða allst staðar í Evrópu.

10. Sættum við okkur við að fimmti hver íbúi Íslands tali ekki íslensku árið 2020 og þekki ekki sögu þjóðarinnar?

11. Við erum svo lítið sankorn í þjóðahafinu að mesta ógn sem sjálfstæð íslensk þjóð og íslensk menning hefur nokkru sinni staðið frammi fyrir er núna.

12. Það er okkar hlutverk að velja leiðina áfram fyrir Ísland og íslendinga.

Sigurjón hvað hefðir þú orðað öðru vísi. Þið hér Jón Kristófer og Helgi Jóhann Hauksson hvaða efnisatriðum eruð þið ósammála. Segið mér svo í hverju eru öfgarnar of fordómarnir fólgnir? Gerið það málefnalega ef ekki þá er allur ykkar málflutningur ómerkar upphrópanir.

Jón Magnússon, 12.4.2007 kl. 11:28

9 Smámynd: Sigurður Ingi Jónsson

Sæll Jón,
Ég ætla að leyfa mér að taka þátt í áskorun þinni um málefnalegar umræður um punkta þína hér að ofan.

1. Straumur útlendinga svo mikill að yfirvöld henda engar reiður á því hvað margir útlendingar eru hér.

- Ég fæ ekki séð að þessi fullyrðing geti staðist. Ef satt er, þá væri heldur ekkert að marka þær tölur sem frjálslyndir vísa gjarnan í. Sjá www.hagstofa.is.

2. Kerfið ræður ekki við síaukinn aðflutning útlendinga.

- Hvaða "kerfi" ræður ekki við aðflutta útlendinga? Það væri gott að fá tilvísun. Bent hefur verið ítrekað á að þeir útlendingar sem hingað koma eru verðmætaskapandi starfsfólk sem greiðir hér skatta eða ferðamenn, báðir hópar eru nær undantekningalaust tryggðir gagnvart sjúkrakostnaði.

3. Með sama áframhaldi yrðu útlendingar í landinu 80 þúsund árið 2015.

- Hér gætir óvandaðs málflutnings. Árið 2006 komu nærri 400 þúsund útlendingar til landsins og fjöldi starfsgreina kappkostar að fjölga þeim enn. Ég gef mér því að hér sé átt við erlent vinnuafl. Fjöldi þeirra samkvæmt Hagstofu Íslands var 18.563 einstaklingar með erlent ríkisfang í lok síðasta árs. Meðalfjölgun undanfarinna 10 ára er 1.231 á ári. Meðalfjölgun undanfarinna fimm ára er 1.847 einstaklingar á ári. Á síðasta ári nam fjölgunin 5.255 vegna gríðarlegs offramboðs á atvinnu. Orsök flölda starfsfólks undanfarin misseri er að finna í stórum verkefnum sem kalla á fleira starfsfólk en unnt er að finna á Íslandi. Ef atvinnutækifærum fækkar, þá fækkar farandverkafólki einnig. Þessi 80 þúsund sem Jón nefnir hér að ofan verða því ekki að raunveruleika nema við ráðumst í að byggja 50 Kárahnjúkavirkjanir í einu árið 2015.

4. Þó spyrnt væri við straumi innflytjenda þá hefði það ekkert með virðingarleysi fyrir öðrum þjóðum eða kynþáttafordóma að gera heldur hvernig landið okkar og þjóðfélagið þróast.

- Það er ástæðulaust að spyrna við straumi fólks sem er eingöngu að uppfylla þarfir okkar. Það að "spyrna við straumi innflytjenda" í sjálfu sér hefur ekkert með kynþáttafordóma að gera fyrr en farið er að spyrna við tilteknum þjóðfélagshópum vegna þess að meðal þeirra gætu hugsanlega leynst skemmd epli, svo sem eins og að loka aðeins á íslamstrúarfólk.

5. Sviss hefur valið hörkulegustu innflytuendalöggjöf sem þekkist.

- Fyrir það fyrsta þá er þessi fullyrðing beinlínis röng. Fjöldi þjóða er með langtum harkalegri innflytjendalöggjöf en Sviss. Þá er rétt að benda á að í Sviss er yfir 20% þjóðarinnar innflytjendur. Eftirfarandi skýrsla frá Alþjóðabankanum er góð lesning. Immigration Policy and Foreign Population in Switzerland.

6. Bent á aðvörurnarorð Magnúsar Þórs Hafsteinssonar varðandi að fella niður undanþáguna við frjálsu flæði vinnuafls frá nýju ríkjum ES.

- Í landi sem kallar eftir vinnuafli vegna ofgnóttar atvinnutækifæra, þá er lítil ástæða til að leggja hlustir við þeim aðvörunarorðum.

7. Stór hluti þess fólks sem hingað hefur komið er harðduglegt fólk en við megum ekki missa stjórn á þróuninni

- Ég tel vera leitun að innflytjendum sem ekki eru harðduglegt fólk. Það er lítil hætta á því að við missum stjórn á þróuninni nema við missum stjórn á framkvæmdum.

8. Ég vil ekki fá hingað öfgafulla Múslima sem hafa sín eigin lög og virða ekki lágmarksmannréttindi og misbjóða konum.

- Þetta er rasismi. Hreinn og klár. Hér virðist kallað eftir því að öllum sem aðhyllast íslamstrú verði meinað að flytja til landsins vegna þess að einhverjir þeirra gætu verið "öfgafullir Múslimar". Það vill hins vegar enginn fá til landsins ofstækisfólk, sama hverrar trúar það er, ef markmið þess er að sniðganga lög landsins. Það réttlætir þó ekki að saklausu fólki sem hingað vill leita með góðum hug sé snúið á brott vegna trúar sinnar.

9. Ég vil ekki fá til landsins hópa sem eru til vandræða allst staðar í Evrópu.

- Hvaða hópar eru þetta? Mótorhjólagengi? Nýnasistar? Félag forræðislausra feðra? Flóttafólk sem leitað hefur á náðir fyrrum nýlenduherra sinna?

10. Sættum við okkur við að fimmti hver íbúi Íslands tali ekki íslensku árið 2020 og þekki ekki sögu þjóðarinnar?

- Þessi spurning er alveg út úr kú. Þetta er glöggt dæmi um tilraun til þjóðernishyggju popúlisma. Hér er kastað fram einhverju ártali og uppdiktaðri prósentutölu sem enga stoð á sér í raunveruleikanum.

11. Við erum svo lítið sankorn í þjóðahafinu að mesta ógn sem sjálfstæð íslensk þjóð og íslensk menning hefur nokkru sinni staðið frammi fyrir er núna.

- Þetta er þvílík fjarstæða og dæmi um hræðsluáróður. Sjálfstæði Íslands sem þjóðar hefur aldrei í gjörvallri sögu landsins verið sterkara. Það má glöggt sjá á getu þjóðarinnar til framkvæmda, lánshæfismati ríkisins, útrás íslenskra fyrirtækja og svo mætti lengi telja.

12. Það er okkar hlutverk að velja leiðina áfram fyrir Ísland og íslendinga.

- Það er kjósenda að velja fulltrúa til að leiða landið áfram öllum til góðs. Til þess að auðvelda kjósendum valið þá þurfa frambjóðendur að opinbera skoðanir sínar og stefnu flokka sinna. Jón Magnússon hefur gert þetta skilmerkilega, en mér persónulega hugnast málflutningurinn engan veginn.

kk,
SIJ

Sigurður Ingi Jónsson, 12.4.2007 kl. 14:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband