1.12.2010 | 23:40
Vita ráðamenn almennt ekki á hverju þjóðin lifir?
Vitleysan veður of oft uppi í almennri umræðu og virðist sem æðstu ráðamenn þjóðarinnar telji það í sínum verkahring að halda hálfsannleik að almenningi. Ráðherra og þingmenn, s.s. formaður iðnaðarnefndar Skúli Helgason, hafa stigið fram og kynnt glænýja skýrslu sem á að sýna að svokallaðar skapandi greinar velti meira en sjávarútvegur og landbúnaður samanlagt.
Í skýrslunni er sagt að umræddar skapandi atvinnugreinar hafi í fyrra velt 191 milljarði króna. Í gögnum Hagstofunnar kemur fram að fluttar hafi verið út sjávarafurðir fyrir rúmlega 200 milljarða króna. Ef ég man rétt verja íslensk heimli að meðaltali um 5% af tekjum sínum í kaup á innlendum landbúnaðarvörum. Allir ættu að sjá hversu vafasöm sú fullyrðing er að umræddar atvinnugreinar velti meiru en sjávarútvegur og landbúnaður. Í sjálfu sér eru þessar vangaveltur einnig algerlega tilgangslausar.
Mér finnst það nálgast geggjun að þjóð sem glímir við skort á gjaldeyri skuli ekki skoða það af meiri alvöru að sækja meira í endurnýjanlega fiskveiðiauðlind, sérstaklega í ljósi þess að ekki þarf að auka fjárfestingu að neinu marki og greinin nýtir innlenda framleiðsluþætti í miklu meira mæli en t.d. stóriðjan.
Ekki svo að skilja að ég amist við list og hönnun, ég óttast bara að menn vanmeti ferðamenn og frumframleiðslugreinarnar. Eitt þarf ekki að útiloka annað - VEIÐUM MEIRA.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bloggvinir
- Helga Þórðardóttir
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Jens Guð
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ásta Hafberg S.
- Jóhann Elíasson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Georg Eiður Arnarson
- Óskar Þorkelsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Hallur Magnússon
- Sigurður Þórðarson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Katrín
- Þarfagreinir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Frjálslyndi flokkurinn í Eyjafirði
- Hallgrímur Óli Helgason
- Jón Kristjánsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Kjartan Eggertsson
- Halla Rut
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- ragnar bergsson
- Bjarni Harðarson
- Rannveig Þorvaldsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Eiríkur Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- erlahlyns.blogspot.com
- Agný
- Guðjón Ólafsson
- Einar Ben
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Halldór Jónsson
- Elvar Atli Konráðsson
- Kristján H Theódórsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Helgi Már Barðason
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Víðir Benediktsson
- Valgerður Sigurðardóttir
- Jens Sigurjónsson
- Vestfirðir
- Sigurður Ásbjörnsson
- Jón Magnússon
- Viðar Friðgeirsson
- Axel Jóhannes Yngvason
- Svava S. Steinars
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Quackmore
- Árni "Gamli" Einarsson
- Haukur Már Helgason
- Þóra Guðmundsdóttir
- Heiða Þórðar
- Steingrímur Ólafsson
- Vefritid
- Ársæll Níelsson
- S. Einar Sigurðsson
- Rannveig H
- Gísli Gíslason
- Bjarni Kjartansson
- Steingrímur Helgason
- Fiðrildi
- Baldur Fjölnisson
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Linda Lea Bogadóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Hanna
- Sverrir Stormsker
- Ottó Marvin Gunnarsson
- gudni.is
- Einar Vignir Einarsson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Jóhann Kristjánsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- María Harðardóttir og Þorsteinn Narfason
- Grétar Rögnvarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Steinn Hafliðason
- Landssamband ungra frjálslyndra
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Þórir Aðalsteinsson
- Vilborg Traustadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Sævar Einarsson
- Ketilás
- Ómar Pétursson
- Eyþór Grétar Grétarsson
- FF
- Jón Þór Bjarnason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Róbert Tómasson
- Landvernd
- ThoR-E
- Haraldur Baldursson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- busblog.is
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Svanhildur Karlsdóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Árni Árnason
- Grétar Mar Jónsson
- Perla
- Ingunn Guðnadóttir
- Irma Þöll
- Skattborgari
- Gulli litli
- Jón Snæbjörnsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- kreppukallinn
- hreinsamviska
- Arinbjörn Kúld
- Orgar
- Guðjón Baldursson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Gunnar Björn Björnsson
- Haraldur Hansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Birna Steingrímsdóttir
- Gestur Guðjónsson
- Jónas Rafnar Ingason
- Stríða
- Götusmiðjan
- Brynja skordal
- Haraldur Bjarnason
- Guðmundur Óli Scheving
- Ásta
- Markús frá Djúpalæk
- Jörundur Garðarsson
- MIS
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Björn Júlíus Grímsson
- S Kristján Ingimarsson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Magnús Kristjánsson
- Bergur Sigurðsson
- Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Heimssýn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Óskar Arnórsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Árni Davíðsson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Árelíus Örn Þórðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- L.i.ú.
- Rafn Gíslason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Samtök Fullveldissinna
- Vaktin
- Arnar Guðmundsson
- Lárus Baldursson
- Sveinn Elías Hansson
- Þórarinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Berglind Steinsdóttir
- Bjarney Vigdís Ingimundardóttir
- BJÖRK
- Björn Emilsson
- Dagný
- Dominus Sanctus.
- Friðgeir Sveinsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Pálsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Högni Snær Hauksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jón Þórhallsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Ingólfsson
- Stefán Júlíusson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sveinn Björnsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Úrsúla Jünemann
- Valdimar H Jóhannesson
Tenglar
Mínir tenglar
- Losnað við pestina Þetta hefur reynst mér vel við að losna við allar pestir þá 5 mánuði sem ég hef reynt immiflexið
- Ginseng Hér fæ ég kraftinn
- Frjálslyndi flokkurinn Vill breyta kvótakerfinu
- Ungmennasamband Skagafjarðar Ég er formaður
- Hér kaupi ég tölvudótið Ódýrt og gott
Sjávarútvegsmál
- Hafró Stofnunin þar sem ákveðið er hversu mikið má veiða
- Landssamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ
- Landssamband smábátaeigenda LS
- Jörgen Niclasen Formaður Fólkaflokksins í Færeyjum
- Helgi Áss Grétarsson Sérfræðingur í HÍ á vegum LÍÚ
Fréttamiðlar
- Al Jazeera Gefur Bandaríkjamönnum engin grið
- BBC BBC
- Börsen Dönsk fjármálasíða
- Seðlabankinn Musteri Davíðs
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 111
- Frá upphafi: 1013226
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 62
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Apríl 2023
- Október 2022
- Október 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Janúar 2019
- Apríl 2018
- Desember 2017
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- Nóvember 2014
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Athugasemdir
Þjóðarhagur kallar á frjálsar handfæra veiðar, sem leysa
fátæktar og atvinnu vanda Íslendinga, mætum á Austurvöll,
alla fimmtudaga kl.14.00, biðjum Alþingi að efna loforð
um frjálsar handfæraveiðar.
Aðalsteinn Agnarsson, 2.12.2010 kl. 00:05
Er ekki eitthvað rangt við þessa hagfræði? Ég fæ þetta ekki til að ganga upp. Er ekki verið að margfalda veltu þeirra tekna sem koma vegna útflutningstekna þjóðarbúsins? Hvað er hægt að eyða sömu krónunni oft?
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 2.12.2010 kl. 00:09
Góður Aðalsteinn. Mæta kl. 2 í dag! – Og góður Sigurjón!
Og ekki er ég fyrr farinn að slá þessu inn en Aðalsteinn sjálfur birtist hér sem bakrödd, í beinni útsendingu á Útvarpi Sögu og hvetur enn til þess sama.
En sannarlega tek ég undir með ykkur Jóhannesi, Sigurjón, að það er eitthvað gruggugt við þessa hagfræði. En allt er þarna eflaust til tínt, ekki bara listir og bókmenntir, heldur og útgáfa ósannindasnepla eins og ESB-fréttablaðsins, einnig DéVaffsins með sín furðulega mörgu kattalíf, ennfremur allar bíóferðir manna, eins og þær eru nú gjaldeyrissparandi, o.s.frv.
Jón Valur Jensson, 2.12.2010 kl. 10:03
Þið virðist ekki skeyta um hvað er rétt og rangt í umfjöllun ykkar um framlag skapandi atvinnuvega. Í samanburðinum við sjávarútveg og landbúnað var skýrt tekið fram að þar var borið saman við veiðar á fiski og framlag búskapar, þar inni var ekki virðisaukinn sem skapast í vinnslustöðvunum og sölu afurðanna. En Sigurjón hikar ekki við a skrumskæla þetta og segir að út hafi verið fluttar sjávarafurðir fyrir rúmlega 200 milljarða króna. Ég rengi það ekki en þessi samanburður var engan veginn við útflutningsverðmæti sjávarafurða eða smásöluverð landbúnaðarafurða.
Og jábræður þínir Sigurjón eru ekki vandaðri að virðingu sinni en þú, fljótir að bíta á agnið. Fátt finnst mér eins ömurlegra við bloggið sem þið sem skrumskælið umræðuna og látið rök lönd og leið.
Sigurður Grétar Guðmundsson, 2.12.2010 kl. 11:02
Sigurður Grétar, skrumskæling mín felst ekki í öðru en að vitna beint í gögn Hagstofu Íslands.
Annars er þessi samanburður eins og ég bendi á um veltu skapandi greina og þeirra sem eru þá líklegast minna skapandi, algerlega tilgangslaus.
Sigurjón Þórðarson, 2.12.2010 kl. 11:16
Heilir og sælir; Sigurjón - og aðrir gestir þínir, jafnan !
En; þar sem Sigurður Grétar Lagnafrömuðurinn knái, úr Þorláks höfn, hefir svo góðar tengingar, inn í Stjórnarráð Íslands, ætti hann að geta gefið okkur upp, raunverulega ástæðu fyrir því, hvers vegna þau Jóhanna og Steingrímur, og hirð þeirra, gera allt; sem þau geta, til þess að drabba niður atvinnulífið, í landinu.
Fyrir skömmu; ákváðu forvígismenn Auðbjargar ehf - og Atlants humars ehf, í heima byggð Sigurðar Grétars, að segja upp 40 manns, til lands og sjávar, uppsögn; hver óþörf hefði verið, næðu útvegsmenn og fiskverkendur, að standa saman, gegn reglugerða grautum Hafrannsóknastofnunar, á landsvísu - og iðka veiðar og vinnzlu, upp á þann máta, sem tíðkast hafði, fyrir upptöku fisk veiðikvótans, á sínum tíma.
Það er; með ólíkindum, að annar eins dugnaðarforkur, sem Sigurð ur Grétar, skuli hengja sinn klakk, á kviktré dusilmennanna, suður í Reykjavík, með þeim hætti, sem alkunnur er.
Mætti halda; að sá ágæti drengur, Sigurður Lagnafrömuður, hafi gengið í björg úrræða leysisins, algjörlega - hver svo sem; ástæð an geti verið, fyrir því.
Með beztu kveðjum; sem áður og fyrri, úr Árnesþingi /
Óskar Helgi
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 2.12.2010 kl. 12:42
Fyrir utan að setja fram tekjur eingöngu en ekki niðurstöðu kredit og debit. Það er líka alveg hægt að efast um að "hinar skapandi greinar" geti staðið einar og sér.
Hjákátlegt og sorglegt að fletta textavarpinu núna og sjá frétt þar sem listamenn eru að fara fram á að komast á fjárlög (undir rós) og síðan næsta frétt á eftir: "Heimahjúkrun barna hætt"!
Held að lagnirnar hans Sigurðar, eins og ég hef gaman af því að lesa pistlana um þær, séu stíflaðar á æðstu stöðum.
Sindri Karl Sigurðsson, 2.12.2010 kl. 19:37
Þessi flökkusaga eða brandari sem ég hef stundum rekist á útskýrir líklega að einhverju leyti hvernig menn fá það út að skapandi greinar velti svona miklu.
Það kom forríkur maður í lítið sveitaþorp í Englandi bókaði svítuna á sveitahótelinu í viku. Hann borgaði 1000 pund í fyrirframgreiðslu.
Hóteleigandinn varð mjög ánægður og borgaði húsgagnasmiðnum 1000 pund sem hann skuldaði honum.
Húsgagnasmiðurinn varð mjög ánægður og borgaði kaupmanninum 1000 pund sem hann skuldaði honum.
Kaupmaðurinn varð mjög ánægður og borgaði píparanum 1000 pund sem hann skuldaði honum.
Píparinn varð mjög feginn og borgaði þorpshórunni 1000 pund sem hann skuldaði henni (hún var búin að hóta að rukka konuna hans) Þorps hóran varð mjög ánægð og borgaði hóteleigandum 1000 pund sem hún skuldaði honum fyrir herbergi til að stunda sína vinnu.
Svo kom Ameríkaninn niður í lobbíið og sagðist vera hættur við að vera í þorpinu og hóteleigandinn endurgreiddi honum 1000 pund.
Allir voru nú skuldlausir og ánægðir.
Hreinn Sigurðsson, 2.12.2010 kl. 20:08
Skemmtilegar umræður hér á síðunni, eins og vænta mátti. Ég er nú ekki háskólagenginn og þess utan lífeyrisþegi og því ætti ég nú varla að leyfa mér að opna skoltinn um þetta eða annað af málefnum stundarinnar. Hitt er annað mál, að inn í mitt ferkantaða höfuð er svolítið erfitt að koma því heim og saman að þessar greinar, sem frú Kolbrún Halldórsdóttir er í forsvari fyrir afli svo mikilla tekna fyrir þjóðarbúið, sem hún vill meina að þær geri. Mér sýnist að mest af þeirri veltu, sem þessar greinar skapa, séu til komnar frá skattpeningum þjóðarinnar. Reyndar krafðist hún þess í kvöldfréttum RÚV að þau framlög yrðu aukin stórlega og stýring þess hvernig þeim er varið yrði færð frá stjórnmálunum yfir til listafólksins sjálfs, sem er mál út af fyrir sig. En til þess að einhverjir peningar séu á ferðinni í þjóðfélaginu þarf að framleiða eitthvað sem einhver vill kaupa, þ.e. við þurfum að flytja út verðmæti, sem við fáum greitt fyrir inn í landið. Frú Kolbrún vildi gera sem minnst úr þeim verðmætum, sem t.d. sjávarútvegur skapar á móti því sem hún telur hinar skapandi greinar framleiða. Eftir því sem ég best veit og skil tölur Hagstofunnar, er útflutningur hinna skapandi greina ekki verulegur á móti t.d. sjávarafurðum. Annars er stór hættulegt að blanda sér í þessi mál, þar er nefnilega talsvert mikið til af heilögum kúm.
Þorkell Guðbrandsson (IP-tala skráð) 2.12.2010 kl. 21:24
Lagiðst í smá rannsókn í dag þessi skyrsla verður ekki gefin út fyrr en í mars 2011 en þá verður hún skyldulesning til að geta fagnað því að við séum að bæta í undirstöður þjóðfélagsins. Skilst þó án þess að ég geti fullyrt að þetta sú meðal annars hringitónar síma sem leið til þess að 5% af veltu símans sé þarna inni síðan framlög ríkis og sveita til þessara greina sem sagt skattarnir okkar. Fer þá að skilja betur hagfræðina á bak við að skatta okkur út úr kreppunni. En skyrslan er ekki komin út enn og ekki á vef ráðuneytisins því miður
Jón Aðalsteinn Jónsson, 2.12.2010 kl. 21:25
Þetta var ansi góð dellusaga en það er talsverður sannleikur í henni.
Já þetta með heilögu beljurnar og furður textavarpsins þá er nauðsynlegt að taka þessi mál til umræðu og vera tilbúinn að taka á sig skvettur en umræðan er fyrir löngu farin út í algjöra vitleysu og vitleysan búin í fræðilegan búning. Það sem mér finnst undarlegast er að margir sem hafðir eru í hávegum í ráðandi fjölmiðlum, komast upp með að tala niður til framleiðslugreinanna.
Það verður spennandi að fylgjast með útkomu skýrslunnar en mér segir svo hugur að útkoma hennar muni frestast þar til að Tónlistarhúsið í höfninni verði opnað með mikilli viðhöfn.
Sigurjón Þórðarson, 2.12.2010 kl. 23:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.