Leita í fréttum mbl.is

Keyptir stjórnmálamenn - óheiðarleg stjórnmál

Frjálslyndi flokkurinn beitti sér gegn kvótabraskinu, einkavinavæðingunni, fyrir opnu bókhaldi stjórnmálaflokka og rannsókn mála á borð við olíusamráðssvikamálinu.  Flokkurinn og frambjóðendur hans fengu í samræmi við það fáar sem engar krónur frá fjárglæframönnunum og saknar þeirra ekki.

Ofurhá fjárframlög siðleysingja skýra sérkennilega hegðun stjórnmálamannanna og jafnvel eftir hrunið s.s. baráttu Sigmundar Davíðs framsóknarhöfðingja gegn því að hægt væri að kyrrsetja eignir fjárglæframanna.  Sú barátta grundvallaðist á "mannréttindasjónarmiðum" en kappinn hefur hingað til ekki gert athugasemd við að mannréttindi á sjómönnum séu brotin.

Sömuleiðis skýra fjárframlögin hvers vegna Samfylkingin sérstaklega ræður æðstu þjóna fjárglæframannanna úr bankakerfinu í lykilstöður í stjórnkerfinu.  Ekki hefur þar verið látið við sitja heldur hefur flokkurinn ásamt samstarfsflokkinum Vg beitt sér fyrir sérstökum skattaafslætti fyrir fjárglæframennina og koma til þeirra fyrirtækjunum sem þeir ráku í þrot.

 

 


mbl.is Bankastyrkir í stjórnmálin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurjón.

Undirlægjuháttur flokksmanna þíns eigins flokks gagnvart fáránlegum vinnubrögðum flokksforystu á sínum tíma er því miður ekkert betri og því skortir trúverðugleikann einnig þar á bæ.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 15.4.2010 kl. 02:39

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ekki veit ég hvað þú ert að tala um en til hamingju með sæti á lista Framsóknarflokksins sem vill sérstaklega gæta að mannréttindum fjárglæframanna.

Sigurjón Þórðarson, 15.4.2010 kl. 08:22

3 Smámynd: Haraldur Baldursson

Það er von mín að umræðan um þáttöku Jóhönnu Sigurðardóttur í hrunaveislunni miklu hverfi ekki úr umræðunni. Það er langur listinn af fólki sem flytja þurfti nauðungarflutningum af Alþingi. Samfylkingin Sjálfsætðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn....allir verða þeir að senda stóran hluta sinna þingmanna í varanlegt stjórnmálafrí. Gæfa xF er mikil og undirstrikar að auður verður ekki með krónum talinn.

Annars stendur þetta allt í Hávamálum :
"Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur."

Haraldur Baldursson, 15.4.2010 kl. 08:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband