29.10.2009 | 12:50
Tímamótagrein Ólínu Þorvarðardóttur
Það var ánægjulegt að lesa grein eftir Ólínu Þorvarðardóttur sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Í greininni fjallar þingmaðurinn um þá staðreynd að kvótakerfið hefur algerlega brugðist því hlutverki sínu að "byggja upp" þorskstofninn. Þorskveiðin nú er einungis þriðjungurinn af því sem hún var áður en farið var að vinna eftir mjög umdeildum reiknisfiskifræðilegum aðferðum Hafró, sem stangast reyndar illilega á við viðtekna vistfræði.
Nú er spurning hvort að fleiri stjórnarliðar séu tilbúnir til þess að fara í gegnum og ræða það augljósa að ráðgjöf Hafró hefur ekki reynst sem skyldi. Víst er að Össur Skarphéðinsson daðraði við það á sínum tíma að taka ráðgjöf reiknisfiskifræðinga til endurskoðunar, en hafði ekki kjark þegar til átti að taka.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:54 | Facebook
Bloggvinir
- Helga Þórðardóttir
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Jens Guð
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ásta Hafberg S.
- Jóhann Elíasson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Georg Eiður Arnarson
- Óskar Þorkelsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Hallur Magnússon
- Sigurður Þórðarson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Katrín
- Þarfagreinir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Frjálslyndi flokkurinn í Eyjafirði
- Hallgrímur Óli Helgason
- Jón Kristjánsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Kjartan Eggertsson
- Halla Rut
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- ragnar bergsson
- Bjarni Harðarson
- Rannveig Þorvaldsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Eiríkur Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- erlahlyns.blogspot.com
- Agný
- Guðjón Ólafsson
- Einar Ben
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Halldór Jónsson
- Elvar Atli Konráðsson
- Kristján H Theódórsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Helgi Már Barðason
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Víðir Benediktsson
- Valgerður Sigurðardóttir
- Jens Sigurjónsson
- Vestfirðir
- Sigurður Ásbjörnsson
- Jón Magnússon
- Viðar Friðgeirsson
- Axel Jóhannes Yngvason
- Svava S. Steinars
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Quackmore
- Árni "Gamli" Einarsson
- Haukur Már Helgason
- Þóra Guðmundsdóttir
- Heiða Þórðar
- Steingrímur Ólafsson
- Vefritid
- Ársæll Níelsson
- S. Einar Sigurðsson
- Rannveig H
- Gísli Gíslason
- Bjarni Kjartansson
- Steingrímur Helgason
- Fiðrildi
- Baldur Fjölnisson
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Linda Lea Bogadóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Hanna
- Sverrir Stormsker
- Ottó Marvin Gunnarsson
- gudni.is
- Einar Vignir Einarsson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Jóhann Kristjánsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- María Harðardóttir og Þorsteinn Narfason
- Grétar Rögnvarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Steinn Hafliðason
- Landssamband ungra frjálslyndra
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Þórir Aðalsteinsson
- Vilborg Traustadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Sævar Einarsson
- Ketilás
- Ómar Pétursson
- Eyþór Grétar Grétarsson
- FF
- Jón Þór Bjarnason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Róbert Tómasson
- Landvernd
- ThoR-E
- Haraldur Baldursson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- busblog.is
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Svanhildur Karlsdóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Árni Árnason
- Grétar Mar Jónsson
- Perla
- Ingunn Guðnadóttir
- Irma Þöll
- Skattborgari
- Gulli litli
- Jón Snæbjörnsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- kreppukallinn
- hreinsamviska
- Arinbjörn Kúld
- Orgar
- Guðjón Baldursson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Gunnar Björn Björnsson
- Haraldur Hansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Birna Steingrímsdóttir
- Gestur Guðjónsson
- Jónas Rafnar Ingason
- Stríða
- Götusmiðjan
- Brynja skordal
- Haraldur Bjarnason
- Guðmundur Óli Scheving
- Ásta
- Markús frá Djúpalæk
- Jörundur Garðarsson
- MIS
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Björn Júlíus Grímsson
- S Kristján Ingimarsson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Magnús Kristjánsson
- Bergur Sigurðsson
- Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Heimssýn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Óskar Arnórsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Árni Davíðsson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Árelíus Örn Þórðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- L.i.ú.
- Rafn Gíslason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Samtök Fullveldissinna
- Vaktin
- Arnar Guðmundsson
- Lárus Baldursson
- Sveinn Elías Hansson
- Þórarinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Berglind Steinsdóttir
- Bjarney Vigdís Ingimundardóttir
- BJÖRK
- Björn Emilsson
- Dagný
- Dominus Sanctus.
- Friðgeir Sveinsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Pálsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Högni Snær Hauksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jón Þórhallsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Ingólfsson
- Stefán Júlíusson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sveinn Björnsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Úrsúla Jünemann
- Valdimar H Jóhannesson
Tenglar
Mínir tenglar
- Losnað við pestina Þetta hefur reynst mér vel við að losna við allar pestir þá 5 mánuði sem ég hef reynt immiflexið
- Ginseng Hér fæ ég kraftinn
- Frjálslyndi flokkurinn Vill breyta kvótakerfinu
- Ungmennasamband Skagafjarðar Ég er formaður
- Hér kaupi ég tölvudótið Ódýrt og gott
Sjávarútvegsmál
- Hafró Stofnunin þar sem ákveðið er hversu mikið má veiða
- Landssamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ
- Landssamband smábátaeigenda LS
- Jörgen Niclasen Formaður Fólkaflokksins í Færeyjum
- Helgi Áss Grétarsson Sérfræðingur í HÍ á vegum LÍÚ
Fréttamiðlar
- Al Jazeera Gefur Bandaríkjamönnum engin grið
- BBC BBC
- Börsen Dönsk fjármálasíða
- Seðlabankinn Musteri Davíðs
Nýjustu athugasemdir
- Birtir yfir stjórnmálunum: Komið þið sælir; á ný ! Jóhann Stýrmaður ! Segjum tveir:: jeg s... 24.12.2024
- Birtir yfir stjórnmálunum: Því miður "bresta krosstré sem önnur tré". Fréttir voru að be... 24.12.2024
- Birtir yfir stjórnmálunum: . . . . rjett í þessu; greinir frjettastofa Ríkisútvarpsins frá... 22.12.2024
- Birtir yfir stjórnmálunum: Jæja... Það á að herja á fiskeldi, bæði á landi og sjó, þó með ... 22.12.2024
- Birtir yfir stjórnmálunum: Sæll Sigurjón æfinlega; og til heilla, með kjör þitt þann 30. X... 22.12.2024
- Birtir yfir stjórnmálunum: Ja misjöfnum augum lýta menn "silfrið". Ég hefði nú haldið að ... 22.12.2024
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.12.): 50
- Sl. sólarhring: 103
- Sl. viku: 823
- Frá upphafi: 1015200
Annað
- Innlit í dag: 41
- Innlit sl. viku: 729
- Gestir í dag: 37
- IP-tölur í dag: 37
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Apríl 2023
- Október 2022
- Október 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Janúar 2019
- Apríl 2018
- Desember 2017
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- Nóvember 2014
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Athugasemdir
Kannski að hún (Ólína) hafi séð ljósið í samtölum við Færeyinga og Grænlendinga á Norðurlandaráðsþinginu. En hvort hún hafi skilning á vandamálinu er ég efins um. Ekki frekar en froðusnakkurinn úr Eyjum, þessi Róbert Marshall
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 29.10.2009 kl. 13:15
Það er nú svo að Ólína er eini þingmaðurinn af núverandi þingmönnum sem hefur eitthvað rætt um kvótakerfið, og fengið bágt fyrir af mörgum. Það fór eins og mig grunaði að vinstri rauð grænir mundu alfarið fara eftir Hafró um hámarksafla, en að þeir færu á fjórar og beygðu sig í duftið fyrir LÍÚ það reiknaði eg aldrei með. Það þarf með öllum ráðum að brjóta þetta upp í Hafró þetta gengur ekki lengur þeir komast upp með að falsa tölur ár eftir ár og birta í fjölmiðlum sem vísindaleg rannsókn, eins og t.d tölur um brottkastið nýlega.
Bjarni Kjartansson, 29.10.2009 kl. 13:24
Þegar á reynir hefur Samspillingin aldrei hugreki til að taka á þessu kerfi, þetta er bara "spunni & enn eitt lýðskrum sem kemur frá XS", Ólína reynir að vera sá aðili sem gagnrýnir XS, en hefur engan trúverðugleika í því hlutverki, en félagi Mörður er þó alaveganna trúverðugur þegar hann gagnrýnir Samspillinguna, því hann meinar það sem hann segir...lol...!
kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)
Jakob Þór Haraldsson, 29.10.2009 kl. 13:27
Og nú sem fyrr á að "vernda" sýktu síldina svo hún geti dáið áhyggjulaus og laus við ónæði. Spurning hvort ekki eigi að veita henni virðulega útför með ræðuhöldum og yfirsöng grátkórs LÍÚ.? Hann er í afar góðri þjálfun og sama er að segja um bæði stjórnanda og undirleikara.
Árni Gunnarsson, 29.10.2009 kl. 15:29
Jóhannes Laxdal, það hefur örugglega ekki spillt fyrir að Ólína hefur mögulega eitthvað kynn sér fiskveiðar í Færeyjum.
Bjarni og Jakob Þór, það er rétt að saga Samfylkingarinnar er kolbiksvört þegar kemur aðkomu flokksins að sjávarútvegsmálum en Jóhanna Sigurðardóttir samþykkti á sínum tíma fyrir framsal og sölu veiðiheimilda og hefur nákvæmlega ekki gert nokkuð með að koma á móts við álit Mannréttindanefndar SÞ og er skömm Jóhönnu Sigurðardóttur mikil fyrir vikið. Hvað varðar Ólínu og trúverðugleika hennar og Samfylkingarinnar þá verður auðvitað að líta til þess að það hefur ekkert gerst í skynsemis og jafnræðisátt þrátt fyrir að flokkurinn ráði lögum og lofum í landsmálum.
Árni, já nú syngur Jón Bjarnason á LÍÚ fundi mikinn dýrðarbrag um vernd sýktu síldarinnar en hér er bútur úr mæringum. Einhver hvíslaði því reyndar að mér að búfræðingurinn væri með þessu oflofi að hæðast að algjöru árangursleysi nýtingastefnunnar sem að Ólína bendir réttilega á.
Sigurjón Þórðarson, 29.10.2009 kl. 16:00
Ólína er ekki megin-burðarstólpi í Samfylkingunni (xS). Þingmenn xS fara gjarnan í allar áttir í málflutningi sínum, þó þau nái alltaf saman í einu máli. Sjávarútvegsstefna xS er loðinn og "umsemjanleg". Orð Ólínu má því ekki túlka sem stóra sannleik nokkurs... því miður
Haraldur Baldursson, 29.10.2009 kl. 16:23
Er þetta ekki sama Ólína sem sagði að Íslendingar hefðu gott af því að greiða Ice-save?
Gísli Bergsveinn Ívarsson, 29.10.2009 kl. 17:14
Sama er hvadan gott kemur. Thjódin öll á ad standa saman gegn theirri forréttindaklíku sem er í hagsmunagaeslu hjá LÍÚ og Mogganum.
Thetta er staersta málid. Spurningin er AF HVERJU er ekki búid ad stofna fjöldasamtök ....thverpólitísk samtök gegn thessu glaepakerfi?
Ef íslendingar gerdu sér grein fyrir thví ráni sem á sér stad med thessu kerfi yrdi thad umsvifalaust tekid úr gildi.
Allir tapa á kvótakerfinu nema örfáir gerspilltir bjánar sem er andskotans sama thótt thetta spillingarkerfi sé eydileggandi á allan hátt og algerlega óhagstaett thjódarbúinu.
Var ekki annars verid ad samthykkja bann vid öllu bortkasti á fiski á thinginu í Svíthjód?
Thetta bölvada kvótakerfi drepur allan gódan móral í thjódfélaginu. Íslendingar munu aldrei njóta sín med thetta spillingarkerfi í gangi. Thjódin verdur aldrei heil fyrr en búid taka upp sanngjarnt kerfi thar sem allir hafa jafnan adgang ad fiskveidum án sérréttinda.
Koma verdur í veg fyrir ad Spillingarflokkurinn og Framsóknarspillingin komist til valda. Thessir flokkar elska ekkert frekar en thann vidbjódslega perversisma sem kvótakerfid bídur uppá.
Goggi (IP-tala skráð) 29.10.2009 kl. 17:54
Þetta sagði Jón Bjarnason í þingræðu í apríl:
"Við í VG erum staðráðin í að vinda ofan af núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi í áföngum, tryggja verndun og uppbyggingu fiskistofna og byggðatengja fiskveiðiheimildirnar að hluta. Við Vinstri græn viljum skapa fleiri tækifæri í sjávarbyggðum t.d. með því að auka smábátaútgerð á ný, fullvinna aflann innanlands og stuðla að fiskeldi og vistvænum og sjálfbærum veiðum. Rétt íbúanna í sjávarbyggðunum til þess að nýta auðlindir meðfram ströndum landsins verður að tryggja, sömuleiðis nýliðun í sjómannastéttinni".
Flottur!
Jón Kristjánsson, 29.10.2009 kl. 22:00
Gísli: Eru skuldir sjávarútvegsins ekki að verða jafn háar og Ise-save? Hver kemur til með að borga þegar búið verður að afskrifa í gömlu bönkunum?
Bjarni Kjartansson, 29.10.2009 kl. 22:21
Góð ábending hjá þér . Við þurfum að eimmitt að losa okkur út úr flokkapólitíkinni og hrósa mönnum fyrir það sem vel er gert . Ég vona að Ólína fái fleiri flokksbræður og stjórnarliða með sér í að ræða málefni sjávarútvegsins. Oft hefur verið þörf að taka á þessum málum en nú er nauðsyn.
Helga Þórðardóttir, 29.10.2009 kl. 23:52
Bjarni: Þetta er týpízk smjörklípa eins og sumir skreyta sig mikið með núna
Gísli Bergsveinn Ívarsson, 30.10.2009 kl. 00:14
Já, sagði Ólína eitthvað vitrænt...
Steingrímur Helgason, 30.10.2009 kl. 01:19
Það virðist erfitt að koma ykkur í skilning um að kvótakerfið (hagfræðilegi huti fiskveiðistjórnunarkerfisns) og leyfilegur hámarksafli (líffræðilegi hluti kerfisins) tengjast ekki neitt. Kvótakerfið var sett á til að minka sóknarþunga og bæta afkomu útgerðar. Tryggja fiskveiðiarð. Ákvörðun um hámarksafla er allt annar hlutur. Það er erfitt að ræða þessi mál við fólk sem hrærir þessu öllu saman og getur ekki aðskilið þessa tvo megin þætti fiskveiðistjórnunarkerfisins.
Ég reikna alls ekki með því að Ólína skilji þessi mál enda það eina sem hún skilur varðandi fiskveiðimál er hatur hennar á útgerðarmönnum. Það er frekar lélegt innlegg í þessa umræðu.
Kvótakerfið var sett á við erfiðar aðstæður 1984 þegar tap á útgerðinni var gríðarlegt, enda veiðigetan allt of mikil. Það var í lokin ákveðið að útgerðin sjálf myndi axla þá ábyrgð og í staðin fengju þeir nýtingarréttin. Þjóðin á hinsvegar auðllindina, sem er allt önnur Ella.
Gunnar Þórðarson (IP-tala skráð) 30.10.2009 kl. 08:28
Það mættu fleiri huga að skoðunum og rökum þeirra manna sem Ólína vitnaði til í greininni.
Haraldur Bjarnason, 30.10.2009 kl. 08:37
Allt tal um mikla þorskveiði í Færeyjum er lygaþvæla,og skora ég nú á þá sem halda sliku fram að birta eihverjar tölur málai sínu til stuðnings.Ólína Þorvarðardóttir er ekkert annað en fyrrverandi borgarfulltrúi úr R.vík sem vill að nýtingarréttur til fiskveiða verði færður til Ríkisins til að hygla afætum í R.vík og þar með henni sjálfri.Ég gat ekki séð á nýafstöðum landfundi smábátaeigenda að hún hefði nokkurn stuðning manna úr því kjördæmi sem bjálfaðist til að trúa orðagjálfri hennar með því að koma henni á þing.En hún er komin heim til R.Víkur.
Sigurgeir Jónsson, 30.10.2009 kl. 08:39
En þeir sömu menn sem höfnuðu þjóðnýtingarrugli Ólínu á téðum Landsfundi lögðu jafnframt til að forstjóri Hafró segði af sér, og var það ekki rökstutt nánar þar sem flutningsmenn tillögunnar töldu að öll rök lægu fyrir.Sú tillaga var felld með þeim rökum helstum að tillagan væri ekki nógu kurteisleg.Forstjóri Hafró fylgdist með atkvæðagreiðsunni úr fjarlægð og fékk úrslitin tilkynnt í gegnum síma.Tillagan verður flutt aftur á næsta ári, og verður þá farið fram á það að forstjórinn verði viðstaddur atkvæðagreiðsluna.
Sigurgeir Jónsson, 30.10.2009 kl. 08:51
Jæja Sigurgeir, ég átti reyndar langt samtal við færeyskan ráðamann fyrir viku síðan sem sagði mér að veiðin væri mikil en verð hefðu verið nokkuð lág á mörkuðum þannig að útgerðarmenn hefðu dregið við sig að nota fiskidagana (Það sýnir auðvitað að sá billegi áróður um að allir muni fiska upp í einum rikk ef skipt er yfir í fiskidagakerfi á ekki við rök að styðjast.
Það var sömuleiðis grein Sigurgeir í síðustu viku á vefnum Nordlyset sem greindi frá góðum aflabrögðum og fyrir skömmu var einnig grein á dimmu.fo þar sem sagt frá góðri þorskveiði.
Sigurjón Þórðarson, 30.10.2009 kl. 13:11
"Það virðist erfitt að koma ykkur í skilning um að kvótakerfið (hagfræðilegi hluti fiskveiðistjórnunarkerfisins) og leyfilegur hámarksafli (líffræðilegi hluti kerfisins) tengjast ekki neitt."
Gunnar. Ég er ekkert hissa á að þér gangi erfiðlega að koma mönnum i skilning um að úthlutunarkerfið hafi ekkert með takmarkanir á framleiðslugetu líffræðilega hluta kerfisins að gera.
Atli Hermannsson., 30.10.2009 kl. 21:04
Þegar menn settu vannýttar tegundir eins og skötusel í kvóta var það eingöngu gert til að búa til veð.
Sigurður Þórðarson, 30.10.2009 kl. 22:42
Ósköp á hann Sigurgeir alltaf erfitt með að viðurkenna árangurinn af sóknarkerfinu í Færeyjum.
Og Gunnar Þórðarson notar enn orðhengilsháttinn um kvótakerfið.
Árni Gunnarsson, 30.10.2009 kl. 22:48
Ef menn sofa rólega yfir að milljón tonn af makríl syndi í yfirborði hafsins og éti 10 falda þyng sína af seiðum. Hvers vegna eru menn yfir höfuð að hafa orða á nokkrum tugum þúsunda þorsktonna til eða frá?
Sigurður Þórðarson, 30.10.2009 kl. 22:55
Tímamótagrein!!!!!!! Hjá Ólínu!!!!!! Eru ekki allir hressir bara
Katrín Linda Óskarsdóttir, 30.10.2009 kl. 23:38
Ja, ef þið eruð að tala um sömu grein og eg sá - þá geri ég athugasemd við Barentshafskaflann í henni.
Man ekki alveg nákvæmlega, en eitthvað á þá leið að þorskstofninn þar hafi stækkað og það þakkað mikilli veiði (ekki nákvæmlega svona) og einhverjir Rússneskir vísindamenn nefndir til sögunnar o.s.frv.
Eg held þetta sé þjóðsaga.
Ástæður þess að þorskstofn í Barentshafi virðist braggast er aukið eftirlit með veiðinni, td. strangari reglur í esb með löndunum og hitt að veðurskilyrði hafa batnað í Barents (þ.e. ofan í sjónum sko)
En með kvóta almennt - auðvitað þurfa að vera takmarkanir á veiði. Annað gengur ekki. Tæknin svo mikil.
En ísl. kvótakerfið er tóm vitleysa. Sérstaklega framsalið og svo tilheyrandi veðsetningu uppí rjáfur (Það "varð til fjármagn" eins og guttinn sagði)
En hitt er svo annað mál svo sem að búið er að rugla svo með þetta kvótadæmi í umræðunni að mikil firn eru. Það eru sterk öflá bak við núverandi kerfi. Mjög sterk. Þau munu verja sitt greni. Ekki spurning.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 31.10.2009 kl. 01:03
Ég er sammála þeirri skoðun sem hefur komið fram hérna að ákvörðun hámarksafla og gjafaúthlutunarkerfi kvóta eru sitthvor hluturinn.
LÍÚ hefur margoft reynt að spyrða þetta saman sem órjúfanlega heild og gagnrýnendur hafa leyft LÍÚ að stýra umræðunni.
Finnur Hrafn Jónsson, 31.10.2009 kl. 02:44
Það eru útgerðarmenn sjálfir sem eru að rústa kerfinu,veit um dæmi um mann sem er með ca. 80 t.kvóta skráðan á bát sem er með haffærisskírteini en er ekki á sjó því vélin er ónýt,hann leigir út kvótann og lifir á því.Er það ekki framkoma þessara manna sem almenningi blöskrar og krefst þess að núverandi kerfi verði leyst upp.
Sigurgeir Á. (IP-tala skráð) 31.10.2009 kl. 11:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.