23.9.2009 | 21:12
Steingrímur J. búinn að kúska Jón Bjarnason
Þeir sem horfðu á Kastljós kvöldsins sáu að Jón Bjarnason var ekki með sjálfum sér. Kvótabaninn var skyndilega orðinn ráðvilltur kvótavinur. Hann hafði enga stefnu hvað varðar sjávarútvegsmál þrátt fyrir að hafa kynnt gleiður stefnu Vinstri grænna fyrir örfáum mánuðum. Það er greinilegt að Steingrímur, formaður VG og sá sem samþykkti framsalið á sínum tíma - sem er upphaf hrunsins - hefur tekið Jón kallinn í gegn þannig að hann veit ekki í hvora löppina hann á að stíga.
Nú er að sjá hvort að Guðjón Arnar komi vitinu fyrir manninn þegar hann mætir kl. 9 í fyrramálið niður á Skúlagötu.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bloggvinir
- Helga Þórðardóttir
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Jens Guð
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ásta Hafberg S.
- Jóhann Elíasson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Georg Eiður Arnarson
- Óskar Þorkelsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Hallur Magnússon
- Sigurður Þórðarson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Katrín
- Þarfagreinir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Frjálslyndi flokkurinn í Eyjafirði
- Hallgrímur Óli Helgason
- Jón Kristjánsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Kjartan Eggertsson
- Halla Rut
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- ragnar bergsson
- Bjarni Harðarson
- Rannveig Þorvaldsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Eiríkur Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- erlahlyns.blogspot.com
- Agný
- Guðjón Ólafsson
- Einar Ben
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Halldór Jónsson
- Elvar Atli Konráðsson
- Kristján H Theódórsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Helgi Már Barðason
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Víðir Benediktsson
- Valgerður Sigurðardóttir
- Jens Sigurjónsson
- Vestfirðir
- Sigurður Ásbjörnsson
- Jón Magnússon
- Viðar Friðgeirsson
- Axel Jóhannes Yngvason
- Svava S. Steinars
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Quackmore
- Árni "Gamli" Einarsson
- Haukur Már Helgason
- Þóra Guðmundsdóttir
- Heiða Þórðar
- Steingrímur Ólafsson
- Vefritid
- Ársæll Níelsson
- S. Einar Sigurðsson
- Rannveig H
- Gísli Gíslason
- Bjarni Kjartansson
- Steingrímur Helgason
- Fiðrildi
- Baldur Fjölnisson
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Linda Lea Bogadóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Hanna
- Sverrir Stormsker
- Ottó Marvin Gunnarsson
- gudni.is
- Einar Vignir Einarsson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Jóhann Kristjánsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- María Harðardóttir og Þorsteinn Narfason
- Grétar Rögnvarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Steinn Hafliðason
- Landssamband ungra frjálslyndra
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Þórir Aðalsteinsson
- Vilborg Traustadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Sævar Einarsson
- Ketilás
- Ómar Pétursson
- Eyþór Grétar Grétarsson
- FF
- Jón Þór Bjarnason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Róbert Tómasson
- Landvernd
- ThoR-E
- Haraldur Baldursson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- busblog.is
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Svanhildur Karlsdóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Árni Árnason
- Grétar Mar Jónsson
- Perla
- Ingunn Guðnadóttir
- Irma Þöll
- Skattborgari
- Gulli litli
- Jón Snæbjörnsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- kreppukallinn
- hreinsamviska
- Arinbjörn Kúld
- Orgar
- Guðjón Baldursson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Gunnar Björn Björnsson
- Haraldur Hansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Birna Steingrímsdóttir
- Gestur Guðjónsson
- Jónas Rafnar Ingason
- Stríða
- Götusmiðjan
- Brynja skordal
- Haraldur Bjarnason
- Guðmundur Óli Scheving
- Ásta
- Markús frá Djúpalæk
- Jörundur Garðarsson
- MIS
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Björn Júlíus Grímsson
- S Kristján Ingimarsson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Magnús Kristjánsson
- Bergur Sigurðsson
- Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Heimssýn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Óskar Arnórsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Árni Davíðsson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Árelíus Örn Þórðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- L.i.ú.
- Rafn Gíslason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Samtök Fullveldissinna
- Vaktin
- Arnar Guðmundsson
- Lárus Baldursson
- Sveinn Elías Hansson
- Þórarinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Berglind Steinsdóttir
- Bjarney Vigdís Ingimundardóttir
- BJÖRK
- Björn Emilsson
- Dagný
- Dominus Sanctus.
- Friðgeir Sveinsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Pálsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Högni Snær Hauksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jón Þórhallsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Ingólfsson
- Stefán Júlíusson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sveinn Björnsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Úrsúla Jünemann
- Valdimar H Jóhannesson
Tenglar
Mínir tenglar
- Losnað við pestina Þetta hefur reynst mér vel við að losna við allar pestir þá 5 mánuði sem ég hef reynt immiflexið
- Ginseng Hér fæ ég kraftinn
- Frjálslyndi flokkurinn Vill breyta kvótakerfinu
- Ungmennasamband Skagafjarðar Ég er formaður
- Hér kaupi ég tölvudótið Ódýrt og gott
Sjávarútvegsmál
- Hafró Stofnunin þar sem ákveðið er hversu mikið má veiða
- Landssamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ
- Landssamband smábátaeigenda LS
- Jörgen Niclasen Formaður Fólkaflokksins í Færeyjum
- Helgi Áss Grétarsson Sérfræðingur í HÍ á vegum LÍÚ
Fréttamiðlar
- Al Jazeera Gefur Bandaríkjamönnum engin grið
- BBC BBC
- Börsen Dönsk fjármálasíða
- Seðlabankinn Musteri Davíðs
Nýjustu athugasemdir
- Hæstaréttardómari götunnar: Sæll Sigurjón; æfinlega ! Burt sjeð; frá viðhorfum Jóns Stein... 31.1.2025
- Aðgerðablaðamennska Morgunblaðsins: Takk fyrir svarið, Sigurjón. Inga Sæland sagði í viðtali, "Við ... 23.1.2025
- Aðgerðablaðamennska Morgunblaðsins: Flokkur fólksins var rétt skráður en lögum var síðan breytt got... 23.1.2025
- Aðgerðablaðamennska Morgunblaðsins: Ég las eftirfarandi á Vísi.is: Skrifstofa Alþingis hefur staðf... 23.1.2025
- Aðgerðablaðamennska Morgunblaðsins: Nei alls ekki það er ekki rétt hvernig færðu það út? 22.1.2025
- Aðgerðablaðamennska Morgunblaðsins: Er það ekki rétt að Flokkur fólksins fékk peninga sem hann átti... 22.1.2025
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 630
- Sl. sólarhring: 655
- Sl. viku: 726
- Frá upphafi: 1021060
Annað
- Innlit í dag: 578
- Innlit sl. viku: 664
- Gestir í dag: 553
- IP-tölur í dag: 540
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Apríl 2023
- Október 2022
- Október 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Janúar 2019
- Apríl 2018
- Desember 2017
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- Nóvember 2014
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Athugasemdir
Ekki horfi ég björtum augum til framtíðarinnar, eftir að hafa horft á Sjávarútvegsráðherra í Kastljósi kvöldsins. Hann bara "tafsaði" og stamaði og gat ekki svarað einni einustu spurningu. Hvað höfum við eiginlega gert mikið af okkur svo við verðskuldum svona lagað?
Jóhann Elíasson, 23.9.2009 kl. 21:21
Ég þekki fjölskyldumenn fyrir vestan sem hófu handfæraveiðar nú í sumar, vegna heimilda sem núverandi sjávarútvegsráðherra veitti.
Aflaverðmætið var þetta 2-3 milljónir. Þetta kom sér vel þar sem þeir áttu báta og búnað.
Ég held nefnilega að þetta sé lausnin. Að færa veiðiskapinn í rólegheitum yfir í kyrrstæð veiðarfæri svo sem net, línu og handfæraveiðar.
Þessir stóru togarar veiða varla upp í eldsneytiskostnað við að toga með þessi stóru troll.
Þetta með stamið er nú bara til að gera grín að á þorrablótum, ooog, eee-eee, kútmagakvöldum.Þorsteinn H. Gunnarsson, 23.9.2009 kl. 21:25
Þorsteinn þetta snýst voðalega lítið um stam og grín heldur um svik Vg undir forystu kvótavinarins Steingríms J.
Sigurjón Þórðarson, 23.9.2009 kl. 21:48
Það var skelfilegt að horfa upp á Jón í kvöld. Átakanlegt, væri fyndið ef þetta væri ekki svona alvarlegt, þ.e. að hafa jafn duglausan mann í ráðuneytinu. Guðjón Arnar verður að segja upp störfum í ráðuneytinu ef þetta á fram að ganga. Þ.e.a.s. ef hann vill ekki láta bendla nafn sitt við þessa vitleysu.
Þórður Már Jónsson, 23.9.2009 kl. 22:00
Það er rétt Þórður, Guðjón verður að hugsa sinn gang.
Sigurjón Þórðarson, 23.9.2009 kl. 22:08
Hvað er verið að gera með þennan mann sem Sjávarútvegsráðherra . Ég bara skil þetta ekki . Hann hefur ekki hundsvit á sjávarútvegsmálum . Þetta var alveg skelfilegt viðtal . Hann gat engu svarað .
Vigfús Davíðsson, 23.9.2009 kl. 22:21
Dularfull tök í ráðuneytinu.Eru menn heilaþvegnir,þegar þeir koma þar inn, til starfa.
Það er stórmerkilegt,hvað menn snarsnúast.
Stjórnmálamenn,sem hafa verið í stjórnarandstöðu.Hafa í öllu falli verið hatræmir andstæðingar kvótakerfisins.En er þeir koma svo,í þá aðstöðu,að verða sjávarútvegsmálaráðherra.Þá snýst allt við í kollinum á þeim.
Það þarf að senda einhvern dulspeking til finna það,hvort stólinn eða skrifstofa ráðherra,sé haldin einhverjum álögum.
Það væri kannske ráð að hreinsa öllu út úr skrifstofunni,áður en næsti ráðherra tekur við.Ég held að það verði ekki langt að bíða.
Þá kemur í ljós hvort,það gagnar eitthvað.
Ingvi Rúnar Einarsson, 23.9.2009 kl. 22:56
Jón Sterki Bjarnason skynjar fiskimið landsins svipað og Bóndinn í Kenýa sem átti 140 nautgripi fyrir nokkrum árum,en ræktað land leifir aðeins 8 nautgripi árið 2009 þótt beitiland sé stækkað um tugi eða hundruð hektara.Eðlilegt að maðurinn stami og verði orðlaus með slíka þankaganga.Honum væri nær þiggja bjartsýnis þanka S.þ.eða Íslenskra útrásafyrirtækja,og fyrst Jón sterki er nú bæði land og sjávarútvegs ráðherra ætti hann breyta kú í þorskýgildi.Þú átt 2 kýr,þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í gervifyrirtæki mágs þíns,gengur svo yfirtöku með vísan i skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar.Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn af öllum 7 kúnum.Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8kýr, með eigendarétti að einni til viðbótar. þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum stjórnmálamanni og átt þá níu kýr.Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í hlutafjárútboði.
Lúdvik (IP-tala skráð) 23.9.2009 kl. 23:20
Lúðvík, þetta er góð lýsing og nú er Jón sterki kominn í að afskrifa til þess að hægt sé að gefa upp á nýtt í sama spillingarleiknum.
Sigurjón Þórðarson, 23.9.2009 kl. 23:52
Aðalatriði málsins er að við veiðum allt of lítið af flestum botnlægum fiskistofnum. Þar er vitleysa númer eitt.
Halda þarf ráðstefnu um það mál - strax. Nýta þar 10 ára reynslu úr Barentshafinu með veiði um 30% umfram rágjöf - og svo a.m.k. 30% óskráða extra veiði - (staðfest af Norsku Fiskistofu) þar að auki...
Þá er veiðiráðgjöfin orðin 100 + 30% = 130 - 30% = 169 Raun-veiði í Barentshafinu síðustu 10 árin - eru sem sagt konstant um 70%
Þetta þýðir að þorskveiðin hér ætti að vera tillagan 155 þúsund tonn - plús 70% = 108 þúsund tonn til viðbótar = 155+108= 263 þúsund tonn....
Um þetta þarf að halda ráðstefnu - og bæta líka við ýsu- ufsa o.fl...
Væri þetta gert svona (nýjasta reynslan út Barentshafi - eru ný sönnuð raunvísindi) þá er komin forsenda fyrir 5% auðlindagjaldi vegna aukningarinnar - og 20 þúsund tonn af þessu gætu t.d. farið til strandveiða - allir borgi svo 5% auðlindagjald af lönduðum afla...
Auðlindagjaldið 5% færi beint í að byggja upp nýjan gjaldeyrisvarasjóð - kaupa gull mánaðarlega og geyma það í Sviss...
Um leið og þetta væri gert - myndi atvinnuleysi minnka snarlega - sjávarbyggðir myndu aftur taka við að afla meiri gjaldeyris fyrir þjóðina..... fyrir þessu á að b erjast fyrst og fremst - og laga svo galla í kvótakerfinu þar á eftir ....
En ef ekki má fletta ofan af dellunni í Hafró - þá líst mér ekki á framtíðina í sjávarútvegi.... það er kjarni málsins - hætta að deila um kvótakerfið - en taka Hafró í gegn - þar er próblem númer eitt....
Kristinn Pétursson (IP-tala skráð) 24.9.2009 kl. 00:44
Mjög öflug hagsmunasamtök hafa nánast hrætt líftóruna úr Jóni Bjarnasyni . Fjölmargir forysumenn í sjávarútvegi , t.d. Binni í Vinnslustöðinni , hófu mikinn áróður gegn fyrningarleið en í reynd gegn öllum breytingum í kvótamálum . Binni reiknaði allan sjávarútveginn í gjaldþrot á örfáum árum hróflað væri við eign(takið eftir:eign) útgerðamanna . Nokkrir bæjarsjórar fengu að vera með og sáu fyrir sér hrun byggðarlaga "sinna" . Er von nema að Jóni hafi brugðið? Útgerðarmenn hafa áður leikið þennan leik , þ.e. breytt samtökum sínum í stjórnmálaflokk .
Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 24.9.2009 kl. 10:27
Hrafn: Útgerðarmenn þurfa ekki að breyta samtökum sínum í stjórnmálaflokk. Þeir hafa nú þegar einn slíkan í gíslingu og annan í taumi. Helmingaskiptaflokkarnir munu aldrei koma til með að breyta þessu kerfi. Og þeir munu komast að völdum á næsta kjörtímabili miðað við allt. Dugleysi núverandi ráðherra er því enn verra fyrir vikið. Ef stjónarflokkarnir nýta sér ekki þetta sögulega tækifæri þá er þetta orðið mjög erfitt.
Þórður Már Jónsson, 24.9.2009 kl. 11:10
Þórður : ég er sammála þér . Sjálfstæðisflokkur og Framsókn eru varðhundar kerfisins . Styrmir Gunnrsson sagði eitt sinn að það yrði borgarastyrjöld ef reynt yrði að taka kvótann af útgerðarmönnum . Það sem var merkilegt í framgöngu útvegsmanna eins og t.d. Binna í Vinnslustöðunni var að hann setti sig í hlutverk þess sem upplýsir og útskýrir .Hann kom ma í sjónvarpinu þar sem hann úskýrði ársreikninga fyrir þingmönnum Framsóknar á Suðurlandi! Kannski Þorseinn Már hafi verið með álíka kennslu fyrir norðan .
Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 24.9.2009 kl. 13:03
Sjávarjörðum fylgja netlög í sjó.
Ætlar Jón Bjarnason að virða eignarrétt sjávarjarða og veita samtökum eigenda sjávarjarða setu í starfshóp um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða?.
SES hefur farið fram á að fá setu í starfshópnum, en Jón Bjarnason hefur ekki svarað ítrekuðum óskum SES þess efnis.
Mun Jón Bjarnason láta LÍÚ stjórna ferðinni og líta algjörlega framhjá einu einkaaðilunum, sem eiga eignarhlut í auðlindinni?
Netlög (IP-tala skráð) 24.9.2009 kl. 15:15
Hvað er þessi maður að gera sem ráðherra ? Af hverju var hann ekki heiðarlegur og afþakkaði boðið og viðurkenndi að hann skorti gáfur og þekkingu á þessum málaflokkum. Að minnsta kosti getur hann ekki einu sinni tjáð sig um þessi mál svo nokkur maður skilji
Finnur Bárðarson, 24.9.2009 kl. 15:39
Sammála þessu, herfilegt viðtal við vanhæfan mann.
Best fannst mér þegar Helgi spurði hann ítrekað af hverju kvóti væri bundinn við tegundir sem kvótahafar væru ekki að nýta, hann vissi ekkert um þetta, talaði í hringi og endurtók í sífellu ,,já en... til þess þarf að breyta lögum", blaðraði svo um hvernig lagasetning fer fram á Íslandi, ,,fyrst kemur frumvarp, svo þarf Alþingi að fjalla um frumvarpið...., 3 umræður... svo verður að lögum". Til þess eins að eyða tímanum eða vegna þess að hann var orðinn svo ruglaður að þetta var það eina sem honum datt í hug að segja.
Þarna er ekki skýr maður á ferðinni, það sanna dæmin og saga hans í stjórnmálum (t.d. fjölmörgum öðrum viðtölum og yfirlýsingum).
Þegar maður rýnir svo í lög um stjórn fiskveiða, virðist vera, eins og Helgi benti reyndar ítrekað á, að það sé stjórnsýslan sem A: ákveður hvort tiltekin tegund fari inn í kvóta (sé sett aflamark) og þar af leiðandi B: hvort hún fer út úr kvóta. En eins og þeir sem til þekkja vita, þarf engar lagabreytingar til þess. Ráðherrann virðist vera alveg utangátta hvað þetta varðar.
Hitt var þó sýnu verra, það var þegar Helgi bar undir hann ummæli hans sjálfs varðandi úrskurð samkeppnisyfirvalda um verðsamráð bænda. Það var þá fyrst sem í ljós kom hversu illa gefinn greyið maðurinn er og hversu illa upplýstur hann er. Í fyrsta lagi ber að skýra samkeppnislög skv. tilgangi þeirra, þ.e. að valda neytendum tjóni með því að hafa samráð um verðlagningu. Höfuð tilgangur sk.laga er að vernda neytendur, almenning. En Jóni fannst þetta fjarstæða og vildi að manni skildist, nema bara samkeppnislög úr gildi, ,,auðvitað er eðlilegt að hafa samráð í kreppu". Hann tók svo dæmi um að bankarnir hefðu þurft að hafa samráð um greiðsluúrræði og það sýndi og sannaði að samk.lög væru óþörf og óæskileg. Hann virðist því ekki vita að samk.yfirvöld lögðu blessun sína yfir það, þrátt fyrir gildandi samk.lög. Og að svigrúm er til slíkra hluta innan gildissviðs þeirra, enda er tilgangur aðgerða eins og þessara ekki að valda neytendum tjóni með samráðinu. Lögin sjálf heimila undanþágur frá þeim þegar þurfa þykir.
Í annan stað er einfaldlega hægt að setja lög, almenn lög, sem undanskilja ákveðinn atriði frá samk.lögum, ef tilgangur þess er málefnalegur, eins og þurfa þykir.
Þetta rugl frá þessum manni varðandi þau atriði sem hann var spurður út í, í K.ljósi, er fyrir mér meira en nægileg ástæða til þess að hann segi af sér nú þegar. Gersamlega vanhæfur maður í alla staði, ekki einu sinni með þokkalega greind til að meta mál sjálfstætt.
S.H. (IP-tala skráð) 24.9.2009 kl. 17:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.