Leita í fréttum mbl.is

Snaran í blaði Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi

Ég var að koma úr mat og sá þá að mér hafði borist heim prófkjörsbæklingur Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Þar var fríður hópur fólks sem vildi koma að endurreisninni en nánast enginn sá ástæðu til eða tækifæri í að breyta kvótakerfinu í sjávarútvegi sem hefur verið liður í virkri stjórnarstefnu Sjálfstæðisflokksins og gert sitt til að leggja sjávarbyggðir í rúst.

Það var ein undantekning frá þessari reglu, knattspyrnukappinn Þórður Guðjónsson, en það sem hann hafði til málanna að leggja var að tryggja áframhaldandi kerfi sem viðheldur mannréttindabrotum með þeim rökstuðningi að það væri brýnt að tryggja uppbyggingu og hagræðingu í fiskveiðistjórnunarkerfi undanfarinna ára.

Það er greinilegt að maður hefur bara verið úti á túni að sparka í bolta. Að minnsta virðist hann ekki hafa hugmynd um að skuldir greinarinnar hafa margfaldast en tekjur staðið nánast í stað, búið er að girða fyrir nýliðun í greininni og þjóðin veiðir einungis þriðjung þess afla sem heimill var ÁÐUR en farið var í svokallað uppbyggingarstarf.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rannveig H

Stefnan brást ekki það var fólkið sögðu þessir menn. Nú er sama fólkið í boði XD. Hver brást þá hverjum?

Rannveig H, 16.3.2009 kl. 17:22

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ég hefði haldið að þú ættir að taka þessu fagnandi. Þú hefur þá eitthvað til að berjast fyrir.

Ragnhildur Kolka, 16.3.2009 kl. 19:01

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Nei satt að segja þá tek ég þessu ekki fagnandi.

Það er sárt að verða vitni að því að fólk sem vill taka þátt í stjórnmálum treystir sér alls ekki að taka til málefnalegrar umræðu kerfið sem olli hruninu.

Sigurjón Þórðarson, 16.3.2009 kl. 19:30

4 identicon

Ég held bara að Þórður Guðjónsson ætti að halda sig við knattspyrnunna

Stjórnmál eru ekkert fyrir þann kappa.

Arnar B. Guðjónsson (IP-tala skráð) 17.3.2009 kl. 00:16

5 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég veit það ekki Arnar en það getur vel verið að Þórður átti sig á hlutunum en það er orðið nokkuð ljóst að Einar K. verður við sama heygarðshornið og áður þ.e. áframhaldandi höft á sjávarútveginum og niðurskurð aflaheimilda.

Það er annað sem ég veitt eftirtekt en það er Evrópustefna flokksins en Samfylkingin hafði Sjálfstæðisflokkinn í það að reka áróður meðal flokksmanna fyrir inngöngu í ESB en nú virðist það gleymt og grafið rúmum mánuði síðar.

Sigurjón Þórðarson, 17.3.2009 kl. 09:36

6 identicon

Sæll Sigurjón:

Persónurnar Þórður eða Einar K skipta minna máli en málefnin.

Ég hefi nokkrum sinnum reynt að fá upp á borðið úrræði ykkar frjálslyndra um úrlausnir vandamála í kvótakerfinu, en að mínu viti hafa svörin verið ansi klén.

Stoðar eitthvað að svara með?:

1) auknar veiðar

2) aukið frelsi til veiða

3) Alþingi og sveitarstjórnir úthluti veiðiheimildum

Við sem vinnum við þennan útveg, amk mörg okkar, gerum okkur grein fyrir að það duga ekki lausatök á heimildum til fiskveiða, það hefur reynslan sýnt td hvað varðar brottkastið.

Ég tel að þið frjálslyndir eigið allt erindi inn á Alþingi en fer fram á að eitthvað bitastætt fylgi gagnrýni ykkar:

1) Á hverju marka frjálslyndir að fiskistofnar þoli auknar veiðar? Undanfarin mörg ár hefur smár bolfiskur verið ráðandi víða. Við erum að drepa fleiri einstaklinga en nokkru sinni fyrr. Það myndi síst lagast með fleiri önglum í sjó eins og þið leggið til.

2) Frelsið til veiða, hvað er bak við það? Mega allir halda til veiða sem vilja, er einhver kvöð um veiðarfæri, eitthvert aflahámark, einhver tímamörk?

3) Fyrir mína parta frábið ég mér framhald á sértækum úthlutunum aflaheimilda í forsjá opinberra aðila, reynslan er ekki mjög skemmtileg.

Að lokum, eigi einhver trúverðugleiki að vera í ykkar ádrepum um kvótakerfið, þá verður að fylgja raunhæf útfærsla.

Með bestu kveðju, Vilhj

Vilhjálmur Jónsson (IP-tala skráð) 17.3.2009 kl. 12:16

7 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Vilhjálmur, það er alveg sama hversu föst tök eru notuð til þess að hafa eftirlit með ranglátu og óskynsamlegu kerfi, s.s. íslenska kvótakerfinu, það dugar ekki neitt. Fiskistofa hefur yfir margfalt meiri fjármunum að ráða en efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra. Þrátt fyrir það áætla opinberir aðilar að brottkast á verðmætum teljist í milljörðum.

Í Færeyjum er hins vegar miklu skynsamlegra kerfi og þar voru til skamms tíma tveir veiðieftirlitsmenn - sem höfðu lítið að gera. Þeir voru tveir til að einhver væri á vakt þótt einn færi í frí. Það er einfaldlega ósanngjörn krafa að fara fram á endanlega útfærslu á því að greiða úr flóknu kerfi sem hefur haft í för með sér byggðaeyðingu og mannréttindabrot.

Frjálslyndi flokkurinn hefur sagt að auka eigi veiðiheimildir strax og dreifa aukningunni með jafnræðislegum hætti þar sem tekið er tillit til byggða og í öðru lagi að allar veiðiheimildir verði innleystar af ríkinu og nýtingarréttur fyrndur smám saman.

Það að halda því fram að þorskstofninn þoli ekki meiri veiðar á sama tíma og Hafrannsóknastofnun reiknar út að hrefnan ein éti meira en flotinn tekur til sín er órökrétt og í öðru lagi er vöxtur einstaklinga lítill sem bendir enn fremur til þess að ekkert sem kalla má ofveiði sé í gangi. 

Sigurjón Þórðarson, 17.3.2009 kl. 15:59

8 Smámynd: Árni Gunnarsson

Mikið óskaplega var það mikil gæfa fyrir þessa þjóð að það var engin Hafrannsóknarstofnum á Íslandi árið 1774.

Það sumar veiddust innan við 200 fiskar fyrir öllu Norðurlandi á 70 tonna þilskipi. Mikil ofboðsleg ofveiði hlýtur að hafa átt sér stað árið áður á litlu kænunum með hampfærin. Eða brottkastið maður minn!

Árni Gunnarsson, 18.3.2009 kl. 00:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband