Leita í fréttum mbl.is

Byggðastefnan

Núna snýst byggðastefnan ekki um að halda við hinum dreifðu byggðum, heldur í landinu. Ef borið er saman hvernig núverandi stjórnvöld hafa haldið á málum til að leysa úr byggðavandanum og yfirvofandi kreppu fyrr á árinu má því miður sjá ýmis líkindi. Í vor fóru bæði utanríkisráðherra og forsætisráðherra í löng ferðalög til að auglýsa að allt væri traust. Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins og fylgisveinar, s.s. Hannes Hólmsteinn, hafa farið í ófáar ferðir til að tilkynna heiminum að hér sé besta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi. Ingibjörg Sólrún neitaði um mánaðamótin ágúst-september að opna augun fyrir yfirvofandi vanda og á forsíðu Viðskiptablaðsins mátti lesa að engin kreppa væri á Íslandi rétt eins og haldið er fram að sjávarútvegskerfið sé hagkvæmt þegar það hvetur til sóunar.

Ég vona svo sannarlega að ríkisstjórnin boði til alvöruaðgerða í efnahagsmálum og vinni hratt, s.s. við endurskoðun sjávarútvegsstefnunnar, í sparnaði í utanríkisráðuneytinu, við lækkun vaxta og að tryggja að hjól atvinnulífsins snúist. Þetta eru byggðamál dagsins. Ef litið er til þess hvernig sama ríkisstjórn hefur brugðist við vanda dreifbýlisins hefur það verið með því að búa til skýrslu með venjulegu kjaftæði um tækifæri og ógnanir sjávarbyggða á borð við Grímsey, haldnar ráðstefnur og hlaupið yfir að ræða vanda atvinnugreinanna í byggðunum. Til þess að þagga niður í einstökum óánægjuröddum er slett byggðakvóta til sérvalinna aðila.

Við skulum þó vona að ríkisstjórnin breyti aðeins um kúrs og skoði alla þætti, þá sérstaklega atvinnugreinina sem gefur okkur mestan gjaldeyri og mest tækifæri til að gera betur, sjávarútveginn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)

Hvað verður eftir þegar þéttur her erlenda lögfræðinga hefur náð innsetningu á veðsetningar kótans ?

Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock), 12.10.2008 kl. 21:35

2 identicon

Hér kemur smá morgunkorn frá mér sem er úr grein minni ,,Á tímamótum,, sem birtist í Morgunblaðinu feb.2004 

,,Því er það algjört ábyrgðarleysi og glæfraspil að kvótabraskarar í skjóli núverandi valdhafa sýsli sín á milli í gjafakvótakerfinu sem þeir hafa komið sér upp sjálfir. Heildarverðmæti kerfisins er um 500 milljarða kr. virði á innanlandsmarkaði. Sú tala gæti hæglega þrefaldast ef erlendum fjárfestum yrði hleypt inn í greinina. Hér verða lýðræðis- og sjálfstæðissinnar að standa vaktina. Nú hafa hinir fáu útvöldu tekið a.m.k. 50 milljarða kr. út úr greininni til einkanota með þessari aðferð. Það þarf ekki mikla rökhugsun til að sjá að sú aðgerð ein er ígildi peningaprentunar sem ekki er innistæða fyrir.''

Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ

B.N. (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 21:51

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það má reikna með því að það verði alger uppstokkun á íslensku efnahagslífi en það er víst að eignir bankanna munu ekki nægja fyrir 8.000 milljarða skuldum þeirra og sama má segja um mörg ísl. fyrirtæki þ.e. að rekstur þeirra getur ekki staðið undir gífurlegum skuldum.

Það má reikna með að mörg fyrirtæki fari í þrot og verði aflúsuð af skuldum í kjölfarið.  Það væri algerlega óábyrgt fyrir ísl. stjórvöld að breyta ekki kvótakerfinu í leiðinni til þess að minnka sóun, tryggja yfirráð og koma á skynsamri stjórn fiskveiða.

Það væri meira óráðið að halda áfram með mannréttindabrot til þess að halda í gjaldþrota kerfi.

Sigurjón Þórðarson, 12.10.2008 kl. 22:19

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hér ert þú komin aðeins fram úr þér, þótt ég skrifi undir það sem þú segir Sigurjón. Hér er samhengið stærra en menn átta sig á og nú ríður á að þeir gerningar, sem eru í uppsiglingu verði stöðvaðir.

Ef við semjum við IMF, þá er sjálfstæði Íslands farið og þar með ákvörðunarréttur okkar yfir auðlindunum. Það verður að stöðva þann gerning. Að senda borderline mongólíta í slíkar viðræður er algert sjálfsmorð.  Tökum boði Rússa ef skilyrðin eru ekki of bindandi og vonum svo að þeir afskrifi þær svo er betur árar. 

Það er orðið ansi undarlegt, þegar IMF er farinn að biðla til þjóðar um að fááð lána henni. Þeim díl fylgir yfirtaka efnahagstjórnar hér. Semsagt alger valdataka, manna með annarlega hagsmuni, Bildenbergera og hringborðsriddara Globalistanna, sem hafa það eitt að markmiði að koma öllum helvítins heiminum á eina hendi.

Ég vona að menn átti sig á hvað er í uppsiglingu hér.

Ágæt byrjun, er að lesa "Falið Vald," sem hægt er að nálgast á www.vald.org

Jón Steinar Ragnarsson, 12.10.2008 kl. 22:40

5 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Þú segir nokkuð Jón Steinar, Ég er sammála Þórði Friðjónssyni í kauphöllinni hvað það varðar að hættan við að semja við Alþjóða Gjaldeyrissjóðin, eru skilyrðin sem þeir setja hvað mikið Ísland framtíðarinnar eigi að greiða niður mikið af 8.000 milljarða erlendu lánunum bankanna. Það að greiða þessa súpu niður sem samsvarar 7 faldri þjóðarframleiðslu Íslands tekur ekki áratugi heldur aldir.

Sigurjón Þórðarson, 12.10.2008 kl. 23:07

6 identicon

Leyfi mér að koma með annað korn úr grein eftir mig ,,Lýðveldið Ísland og Evrópusambandið'' sem birtist í Morgunblaðinu 6.júni 2004

,,Annað ákvæði í EES- samningnum um frjálst fjármangsflæði milli aðildarríkjanna skipti sköpum og fullveldissinnar treystu því ekki að okkar litla hagkerfi stæðist ágang erlends fjármagns og myndi því hreinlega sogast inn í hringiðu hagkerfis Evrópusambandslandanna. Þetta myndi leiða til þess að Íslendingar misstu efnahagslegt sjálfstæði sitt í framtíðinni.''

Baldvin Nielsen Reykjanesbæ 

B.N. (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 23:59

7 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég tek undir með Jóni Steinari.

Mátt nú aðeins fara að missa þig smotterí með einstefnulega eilífa umræðuvæl um kvótann Sigurjón í þinni pólitík, ef að atkvæði mín eiga að fá að vera þín í framtíðinni, þó að þarft mál sé.

Í dag er bara ný staða, nýtt land, á nýjum forsendum.

Sjálfstæðinu ber að halda.

Eftir því sem að ég best les eru meintar ~skuldir~ útgerðarinnar komnar í þjóðareigu, þannig að 'kvódinn' er enda mestmegniz líklega kominn heim aftur.

Tökum þráðinn upp þar.

Steingrímur Helgason, 13.10.2008 kl. 00:49

8 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ef menn bara googla reynslu svokallaðra þróunarlanda af IMF, þá skilja þeir hvað ég á við. IMF skákar auðlindum til vildarvina og þjóða. Dæmin eru í Afríku og suður Ameríku, þar sem þjóðir hafa í kreppu fallist á afarkost IMF, þótt þær væru auðugar hvað varðar auðlindir. Þetta hefur IMF gleypt upp og sligað þjoðir með vaxtaokri og fasískum skilyrðum, sem taka sjálfræðið af stjórnendum. Þeir styðja ákveðna leppa sem beita lögreglu og hervaldi gegn fólki, sem kvartar undan kúgun, mannréttindaníði og sulti.

Auðlindirnar eru í höndum megafyrirtækjanna og ekkert skilar sér til fólksins. Ástandið verra til frambúðar en ella. Þetta er ekki eins "alþjóðlegt" og menn halda. Þetta er hagsmunaklúbbur gráðugra heimsvaldasinna, sem búa til sína eigin peninga rétt eins og aðrir bankar. Lestu um það hvernig bankarnir búa til peninga í falið vald. Hvers vegna verðbólga myndast og fl. Kíktu svo líka á IMF á Wikipedia og skoðaðu skilyrði þeirra og sögu og sérstaklega þá gagnrýni sem þar er nefnd. Wikipedia er þó hlutlaus silkihanski þarna.

Ég hef aldrei óttast meir um framtíð þjóðarinnar eftir að ég sá að IFM þrögnvaði sér á milli okkar og rússa í þessu máli.  Það eru mikil örlög í hendi óvita eins og stendur og ég vona að einhver hafi nú hönd með í bagga, nema að þetta sé vilji þeirra föðurlandssvikara, sem sitja við stjórnvöl þessa lands.

Það má nefna í frægu viðtali við DO að hann segir ráðgjafa frá JP Morgan Chase (einkabanki og hinn stæsti í heimi. Globalistabanki) sé inni á gafli í Seðlabankanum! Það er svona eins og að biðja steingrím Njálsson að gæta barnanna sinna.

Jón Steinar Ragnarsson, 13.10.2008 kl. 02:13

9 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það er rétt Steingrímur það þarf að hamra á fleiri málum s.s. að lækka vexti og tryggja að heimili sem glíma við aukna greiðslubyrði komist ekki í þrot. Ástandið nú er súrealískt en Björn Ingi Rei-maður og sá sem aðstoðaði Halldór Ásgrímsson við að ráðstafa bönkunum til vildarvina Sjálfstæðis og Framsóknarflokks skrifar leiðara Fréttablaðsins og á morgun getur maður eflaust lesið leiðara eftir fyrrum formann Sjálfstæðisflokksins sem ber mikla ábyrgð á gjaldþrotakerfi í sjávarútvegi.

Málið er að það blasir við að hægt sé að gera mun betur í sjávarútveginum, veiðar meira, minnka sóun og auka innlenda vinnslum. Sjávarútvegurinn skilar okkur nálægt annarri hverri krónu í vöruútflutningi en til að flytja álið góða út þá þarf að flytja gríðarlega mikil verðmæti inn í landið þannig að nettó situr ekki mikið eftir. 

Sigurjón Þórðarson, 13.10.2008 kl. 09:18

10 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæll Sigurjón , góð grein hjá þér , ég set hana inn á Heimaklett . kv .

Georg Eiður Arnarson, 14.10.2008 kl. 13:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband