Leita í fréttum mbl.is

Fjölskyldan styður Hannes Hólmstein

Ég var í boði þar sem hinir og þessir voru að ræða mál Hannesar Hólmsteins. Flestir, ef ekki allir, vorkenna prófessornum vegna bágrar fjárhagsstöðu hans, vilja fyrirgefa honum og meta það sem hann hefur lagt til umræðunnar í íslensku samfélagi óháð því hvort þeir hafa verið sammála honum eða ekki. Það voru að vísu nokkrir sjómenn sem ala þá von í brjósti að Hannes endurskoði fleiri þætti en þá sem hann hefur verið réttilega dæmdur fyrir að hafa haft rangt við í.

Þá á ég auðvitað við það þegar hann hefur farið um heimsbyggðina og hælt íslenska kvótakerfinu í hástert. Sjómennirnir bíða spenntir eftir því að Hannes mæti í Kastljósþátt í næstu viku jafn iðrandi og biðjist afsökunar á að hafa platað heimsbyggðina með röngum fullyrðingum um að eitthvað gott væri við íslenska kvótakerfið sem hefur verið dæmt af Sameinuðu þjóðunum brotlegt gegn mannréttindum.

Það verður þó að segjast eins og er að það er ein gömul kona sem er sanntrúaður kommúnisti sem var ekki jafn jákvæð í garð Hannesar og aðrir. Hún hló við og lét flakka að Hannes yrði ekki eins skaðleg padda eftir þetta mál og fyrir.

Fyrirgefum Hannesi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

nasty ... .. sammála kommakvensunni.

Óskar Þorkelsson, 5.4.2008 kl. 00:20

2 Smámynd: Landfari

Já Þetta góður vinkill á þetta annars að sumu leiti spaugilega mál.

Aumt fyri fræðimann og það prófesor í félagsvísindum að vera dæmdur fyrir að fara ekki eftri fræðunum sem hann er að kenna.

Og svo hin hliðin að vera dæmdur fyrir að nota sömu aðferðir, við skrif um rithöfund, sem þessi sami rithöfundur notaði.

Það er vandlifað í henni veröld. Segi nú bara ekki annað.

Landfari, 5.4.2008 kl. 00:53

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurjón.

Ég hef fulla samúð með Hannesi varðandi þetta dómsmálastilstand, en það breytir því ekki að ég er jafn ósammála honum um skipan mála í fiskveiðistjórnun hér við land og áður.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 5.4.2008 kl. 01:07

4 Smámynd: Jens Guð

  Ég tek undir kröfu Sigga,  www.siggith.blog.is, um að Hannes fái ókeypis í sund.

Jens Guð, 5.4.2008 kl. 01:22

5 identicon

Verð að viðurkenna að ég er eiginlega sammála gömlu konunni. Hitt er svo aftur annað mál að Hannes er haldinn þráhyggju og einhverjum fleiri geðkvillum, sem henni tengjast. Við getum að sjálfsögðu ekki áfellst neinn fyrir að vera sjúkur. Ábyrgð hinna er hinsvegar mikil, sem hafa espað hann til óhæfuverka, hvort sem er nefndur ritstuldur vegna sjúklegs haturs tiltekinna afla í þjóðfélaginu á húmanistanum Halldóri Laxness, ellegar að hanga eins og hundur á roði á hinu kolólöglega og glæpsamlega fiskveiðistjórnunarkerfi sem Bogesenar þessa lands hafa hengt eins og myllustein um háls alþýðu landsins.

Ellismellur (IP-tala skráð) 5.4.2008 kl. 13:44

6 identicon

Maður hefur mýkst við þetta allt saman.  Þú átt myndar stúlku Sigurjón. Búinn að koma þér í Héðinsfjörð?

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 5.4.2008 kl. 15:38

7 Smámynd:  Grétar Rögnvarsson

Sammála gömlu konunni Sigurjón, en veit ekki alveg með Jón Ólafsson, get nú alveg haft samúð með Hannesi að þurfa aða fara að borga þeimpeninga.

Grétar Rögnvarsson, 6.4.2008 kl. 11:09

8 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Ég verð nú að segja að allt þetta írafár hefur vakið með mér löngun til að verða mér úti um bindin þrjú eftir Hannes og hreinlega lesa þau. Það hlýtur eitthvað að vera varið í þessar bækur fyrst vesenið hefur verið svona mikið vegna þeirra. Það held ég - svei mér þá.

Magnús Þór Hafsteinsson, 7.4.2008 kl. 21:59

9 Smámynd: Fannar frá Rifi

nú kemur svo spurninginn hvort eitt gangi yfir alla  í samfélaginu og þá sérstaklega í Háskóla Íslands.

Núna hafa margir prófesórar farið með mikinn í umræðum undanfarinn ár. þeir fullyrða eitt og síðan þegar annað er sannað, meir að segja þegar þær alþjóðastofnanir sem þeir sjálfir hafa notað tölur frá segja að þeir hafi algjörlega rangt fyrri sér, þá er ekkert gert.

eða má kannski aðeins skjóta á Hannes því hann er hægri maður? er þetta kannski eftir allt saman bara persónubundið hatur á honum sem ræður skrifum margra um hann og oft á vegum margra fræðimanna? 

Annars verð ég að taka undir með Magnúsi Þóri um bækurnar. Þær hljóta að vera krassandi víst svona mikið veður skapaðist í kringum þær. Enda verða aðstandendur alltaf sárir ef ekki er um lof rit að ræða.

Fannar frá Rifi, 8.4.2008 kl. 20:28

10 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég er sammála þér Fannar HÍ þarf að gæta gera meiri kröfur burt séð frá hægri og vinstri. 

Ég er þeirrar skoðunar að ýmsir sérfræðingar hafi farið nokkuð bratt í að nota sín fræði glæfralega í að beita sér fyrir ákveðnum málstað.  Ég þekki vel til að náttúrufræðingum hættir til að nota haldlítil rök til að berjast gegn ýmsum framkvæmdum s.s. nú nýlega veginum um Þingvelli en þeir sem eru andsnúnir veginum fara út um víðan völl í fullyrðingum og eða getgátum um eyðingu fiskistofna. Ég hef fullan skilning á þeim sjónarmiðum að vera andsnúin því að leggja hraðbraut í gegnum þjóðgarð en samt finnst mér að það þurfi að vera einhver skynsamleg mörk á hvaða ráðum fræðimenn beita í andspyrnu sinni.

Sama má segja um ýmsar fullyrðingar róttækra feminista í nafni fræða og rannsókna sem eru oft á tíðum ekki hafnar yfir gagnrýni og hvað þá frekari skoðun.

Sigurjón Þórðarson, 8.4.2008 kl. 21:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband