2.1.2011 | 00:05
Bröndóttur kynlífsfræðingur tjáir sig
Mér finnst að Lilja Mósesdóttir ætti að sýna því meiri skilning að líffræðingurinn Össur Skarphéðinsson grípi til dýralíkingamáls. Össur segist vera fróðari en flestir um kynlíf laxfiska en eitthvað á karlinn samt erfitt með að nýta þá þekkingu til þess fara með gagnrýnum hætti yfir hræðilega ráðgjöf Hafró.
Ekki hefur dýralíkingamál alltaf þótt neikvætt í íslenskum stjórnmálum. Hver man ekki eftir ráðherranum úr Húnavatnssýslu sem var óðum að jafna sig eftir erfiða aðgerð og sagðist vera álíka sprækur og sex vetra graðfoli.
Össur getur verið meinfyndinn en minnir mig engu að síður oft á vel haldið bröndótt heimilisfress. Hann á það til að ýfa sig og setja upp kryppuna gagnvart andstæðingum þegar hann veit af öruggu skjóli. Hóglífskötturinn neitar sér sjaldan um að fá sér góðan blund eins og frægt er og fara síðan á næturrall.
Segir Össur sýna VG fyrirlitningu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:07 | Facebook
Bloggvinir
- Helga Þórðardóttir
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Jens Guð
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ásta Hafberg S.
- Jóhann Elíasson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Georg Eiður Arnarson
- Óskar Þorkelsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Hallur Magnússon
- Sigurður Þórðarson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Katrín
- Þarfagreinir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Frjálslyndi flokkurinn í Eyjafirði
- Hallgrímur Óli Helgason
- Jón Kristjánsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Kjartan Eggertsson
- Halla Rut
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- ragnar bergsson
- Bjarni Harðarson
- Rannveig Þorvaldsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Eiríkur Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- erlahlyns.blogspot.com
- Agný
- Guðjón Ólafsson
- Einar Ben
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Halldór Jónsson
- Elvar Atli Konráðsson
- Kristján H Theódórsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Helgi Már Barðason
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Víðir Benediktsson
- Valgerður Sigurðardóttir
- Jens Sigurjónsson
- Vestfirðir
- Sigurður Ásbjörnsson
- Jón Magnússon
- Viðar Friðgeirsson
- Axel Jóhannes Yngvason
- Svava S. Steinars
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Quackmore
- Árni "Gamli" Einarsson
- Haukur Már Helgason
- Þóra Guðmundsdóttir
- Heiða Þórðar
- Steingrímur Ólafsson
- Vefritid
- Ársæll Níelsson
- S. Einar Sigurðsson
- Rannveig H
- Gísli Gíslason
- Bjarni Kjartansson
- Steingrímur Helgason
- Fiðrildi
- Baldur Fjölnisson
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Linda Lea Bogadóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Hanna
- Sverrir Stormsker
- Ottó Marvin Gunnarsson
- gudni.is
- Einar Vignir Einarsson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Jóhann Kristjánsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- María Harðardóttir og Þorsteinn Narfason
- Grétar Rögnvarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Steinn Hafliðason
- Landssamband ungra frjálslyndra
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Þórir Aðalsteinsson
- Vilborg Traustadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Sævar Einarsson
- Ketilás
- Ómar Pétursson
- Eyþór Grétar Grétarsson
- FF
- Jón Þór Bjarnason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Róbert Tómasson
- Landvernd
- ThoR-E
- Haraldur Baldursson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- busblog.is
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Svanhildur Karlsdóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Árni Árnason
- Grétar Mar Jónsson
- Perla
- Ingunn Guðnadóttir
- Irma Þöll
- Skattborgari
- Gulli litli
- Jón Snæbjörnsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- kreppukallinn
- hreinsamviska
- Arinbjörn Kúld
- Orgar
- Guðjón Baldursson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Gunnar Björn Björnsson
- Haraldur Hansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Birna Steingrímsdóttir
- Gestur Guðjónsson
- Jónas Rafnar Ingason
- Stríða
- Götusmiðjan
- Brynja skordal
- Haraldur Bjarnason
- Guðmundur Óli Scheving
- Ásta
- Markús frá Djúpalæk
- Jörundur Garðarsson
- MIS
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Björn Júlíus Grímsson
- S Kristján Ingimarsson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Magnús Kristjánsson
- Bergur Sigurðsson
- Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Heimssýn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Óskar Arnórsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Árni Davíðsson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Árelíus Örn Þórðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- L.i.ú.
- Rafn Gíslason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Samtök Fullveldissinna
- Vaktin
- Arnar Guðmundsson
- Lárus Baldursson
- Sveinn Elías Hansson
- Þórarinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Berglind Steinsdóttir
- Bjarney Vigdís Ingimundardóttir
- BJÖRK
- Björn Emilsson
- Dagný
- Dominus Sanctus.
- Friðgeir Sveinsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Pálsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Högni Snær Hauksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jón Þórhallsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Ingólfsson
- Stefán Júlíusson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sveinn Björnsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Úrsúla Jünemann
- Valdimar H Jóhannesson
Tenglar
Mínir tenglar
- Losnað við pestina Þetta hefur reynst mér vel við að losna við allar pestir þá 5 mánuði sem ég hef reynt immiflexið
- Ginseng Hér fæ ég kraftinn
- Frjálslyndi flokkurinn Vill breyta kvótakerfinu
- Ungmennasamband Skagafjarðar Ég er formaður
- Hér kaupi ég tölvudótið Ódýrt og gott
Sjávarútvegsmál
- Hafró Stofnunin þar sem ákveðið er hversu mikið má veiða
- Landssamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ
- Landssamband smábátaeigenda LS
- Jörgen Niclasen Formaður Fólkaflokksins í Færeyjum
- Helgi Áss Grétarsson Sérfræðingur í HÍ á vegum LÍÚ
Fréttamiðlar
- Al Jazeera Gefur Bandaríkjamönnum engin grið
- BBC BBC
- Börsen Dönsk fjármálasíða
- Seðlabankinn Musteri Davíðs
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 1014404
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Apríl 2023
- Október 2022
- Október 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Janúar 2019
- Apríl 2018
- Desember 2017
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- Nóvember 2014
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Athugasemdir
Ekki hef ég enn séð það fress sem gjammar Sigurjón. Ég sagði eitt sinn við Össur að hann minnti mig á smáhund sem gjammaði í öfugu hlutfalli við stærð. Hann lét sér vel líka. Þetta var á þeim tíma þegar hann vakti gjarna um nætur við bloggskrif.
Össur á sér enga bót
upp fyrir að nefna
Meri sagði Móses snót
mey ei undirgefna
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 2.1.2011 kl. 01:11
Annar bloggari var rétt í þessu að líkja Össuri við vörtusvín.
Vendetta, 2.1.2011 kl. 03:49
Gamall brandari snérist nú um það hvernig hægast væri að koma á hann slaufunni. Man einhver.....?
Jón Logi (IP-tala skráð) 2.1.2011 kl. 10:39
Ef maðurinn vissi eitthvað um eitthvað annað en fiskakynlíf. Hann er bæði illa að sér um flest sem skiptir máli, sneyddur dómgreind, siðferði eins og Icesave málið sannaði best, og kann ekki ensku. Það var mjög neyðarlegt að lesa meðmælabréfið fræga til eins ótýndasta glæpamanns Íslandssögunnar sem Össur skrifaði til Sameinuðu Þjóðanna, fullt af óskiljanlegum hlutum, sem skiljast samkvæmt íslenskri málhefð en ekki ensku, svo og málfræðivillum og öðrum gloríum. Þessi maður er okkar að athlægi og við verðum að losna við hann. Hann skaðar bæði ímynd okkar og er stórhættulegur með siðleysi sínu. Fyndinn er hann ekki. Alvöru húmor ber vitni um gott hugmyndaflug og er sprottið af þörfinni fyrir að miðla gleði og hlátri, og barnslegri leikgleði sem ber vitni persónutöfrum. Össur er bara eins og eineltispúkinn feiti að reyna að vinna sér stig með að benda á það sem fer miður hjá hinum krökkunum, og fá þannig minni athygli sjálfur.
Íslandi Allt. (IP-tala skráð) 2.1.2011 kl. 13:17
Þessir fimmaurabrandarar um Össur eru eitthvað svo dapurlegir. Össur er einn skemmtilegasti og litríkasti stjórnmálamaður okkar harðduglegur og fylginn sér. Maður sem er með fleiri en níu líf í pólitík og það er meira en segja má um Sigurjón Þórðarson sem kjósendur hafa ítrekað hafnað í kosningum. Fyrrverandi formaður flokks hans varð að skríða í skjól VG og fá hálunaða stöðu fyrir klíkuskap án auglýsingar hjá ríkinu þegar kjósendur höfðu hafnað honum og flokk hans í síðsutu kostningum. Það er ekki skrítið að ekkert gengur að vinna Frjálslynda flokknum fylgi þegar málflutningur formannsins er allur á einn veg. Tilefnislítið gjamm og skætingur út í persónur svona eins og götustrákur sem hrópar á eftir vegfarendum. Sem betur fer þá hefur Samfylkingin aldrei farið niður á þetta plan enda heldur hún sínu ótrúlega vel þó taka hafi þurft margar erfiðar og sársaukafullar ákvarðanir undanfarið við endurreisn landsins.
Guðrún (IP-tala skráð) 2.1.2011 kl. 13:26
"Guðrún" tilfinningar þínar virðast bera þig ofurliði en ég bendi einmitt á að Össur sé fyndinn.
Til þess að leiðrétta leiðan misskilning hjá "Guðrúnu" þá vil ég benda á að mér var ekki hafnað í síðustu kosningum heldur fékk Frjálslyndi flokkurinn ágæta kosningu í Skagafirði og er stærri Samfylkingin. Ég á reyndar von á að staða Samfylkingarinnar hafi versnað til muna í Skagafirði eftir aðför Guðbjarts Hannessonar að Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki.
Sigurjón Þórðarson, 2.1.2011 kl. 14:01
Það er aldeilis að Guðrún er hrifin af Össuri og Samfylkingunni. Eitthvað er hún hrædd við Frjálslynda og reynir að ata okkur auri sem ekki er fótur fyrir. Mér finnst hún nú frekar haga sér eins og götustrákur. Sjálfsagt er að svara Össuri á sama hátt og hann gerir við aðra þingmenn. Var það ekki Össur sem byrjað að kalla Lilju hryssu og telur hana ekki stjórnarliðinu. Lilja er einn ötulasti þingmaður þjóðarinnar og ég tel að menn að meiri að verja hennar málstað
Helga Þórðardóttir, 2.1.2011 kl. 14:02
Össur er ekki fyndinn. Náttúrulega fyndinn maður er það afþví hann hefur hugmyndaflug til að miðla skemmtilegum athugunum, og gott hjarta sem vill miðla gleði. Gerfi-húmoristar þróast af eineltis kjaftakellingum, sem aðrir fara að hlægja að út af samviskubiti yfir siðleysinu að smjatta á kjaftasögunum þeirra. Slíkt fólk er í raun ekki fyndið, aðrir láta sem svo sé af samviskubiti yfir að njóta siðleysis þeirra. Þetta er munurinn á Össuri og borgarstjóranum okkar og öllum öðrum góðum mönnum, Chaplin, Monthy Python genginu og öllum hinum. Össur er alls ekkert fyndinn og fólki sem finnst það er bara leiðinlegt og hefur ekkert hugarflug né ímyndunarafl, og getur því bara hlegið að óförum annarra.
Skammist ykkar föðrulandssvikara pakk. (IP-tala skráð) 2.1.2011 kl. 19:52
Áfram Jón Gnarr og allir góðir og fyndnir menn.
Niður með Össur og annað pakk sem leiðinlegu fólki finnst fyndið!
Niður með föðurlandssvikara og Icesave-aumingja!
Skammist ykkar föðurlandssvikara pakk. (IP-tala skráð) 2.1.2011 kl. 19:54
Vegna athugasemdar SYFP hér að ofan þá skilst mér Jón Gnarr og Össur séu sammála um að greiða Icesave hvað sem það kostar en það er smekksatriði hvor sé skemmtilegri Össur eða Jón Gnarr.
Ég segi það satt að mér finnst Össur skemmtilegri.
Sigurjón Þórðarson, 2.1.2011 kl. 20:08
Sæll Sigurjón!
Það sem eftir stendur og upp úr gnæfir er einfaldlega, að hagfræðingurinn Lilja Mósesdóttir, sem mikið hefur haft sig í frami svo ekki sé meira sagt og talið sig mjög gildandi, þekkir ekki skáldleg blæbrigði og fegurð síns eigins móðurmáls eða myndlíkingamöguleika þess.Það segir nú ansi mikið um hana og meir en kunnáttan í hagfræði!
Magnús Geir Guðmundsson, 3.1.2011 kl. 10:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.