Leita í fréttum mbl.is

Hvaða vit er í því að stórauka vegagerð á sama tíma og umferð dregst saman?

Vandséð er að eitthvert vit sé í kröfum "aðila vinnumarkaðarins" að kalla eftir stóraukinni vegagerð á sama tíma og umferð dregst gríðarlega saman.  Ég hef ekki séð að þjóðarbúið sé að verða af miklum verðmætum vegna þess að vörur og þjónusta komist ekki leiðar sinnar á þjóðvegum landsins.  Hins vegar er augljóst að umferðartollahlið í kringum Höfuðborgina mun draga enn frekar úr umferð og viðskiptum.

Augljós tækifæri í íslensku efnahagslífi eru að endurskoða frá grunni fiskveiðistjórnunarkerfið.  Það hlýtur hver maður að sjá, að það sé eitt og annað brogað við kerfi sem skilar nú á land þriðjungnum af þeum þorskafla sem veiddist að jafnaði fyrir daga kerfisins.  Reyndar er þorskaflinn nú minni en hann var árið 1913! 

Þeir sem hafa lagt leið sína um hafnir landsins í sumar hafa séð, að takmarkað frelsi til handfæraveiða hleypti lífi í sjávarbyggðirnar.  Sá galli hefur verið á strandveiðunum, að aflinn hefur dregist frá því sem öðrum leyfist að veiða.  Menn geta séð það í hendi sér hvað það yrði mikil innspýting fyrir efnahagslífið að auka aflaheimildir og frelsi smærri sem stærri báta til fiskveiða.

Það virðist ekki vera nokkurt lag á stjórnun landsins og svo sannarlega eru ráð "aðila vinnumarkaðarins" ekki upp á marga fiska. Öll áhersla stjórnvalda er að bjarga fjármálstofnum en láta síðan heimilin mara í hálfu kafi. 

Bóta- og skattakerfið virðast hvetja til svartrar atvinnustarfsemi og letja fólk til að fara í láglaunastörf.  Ekki er sótt um störf sem auglýst eru laus til umsóknar. Hvernig má það vera að enn þurfi að flytja inn starfsfólk í hundraðatali til þess að vinna í sláturhúsum á sama tíma og þúsundir Íslendinga ganga atvinnulausir?

Þjóðin hefur ekki efni á þessari óstjórn en 123 milljarða halli á ríkissjóði á síðasta ári og þungur skuldabaggi þjóðarbúsins býður ekki upp á frekari óráðsíu.


mbl.is Framlengir kreppuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. ágúst 2011

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband