Leita í fréttum mbl.is

Er það fundalismi að vilja ekki halda áfram að endurtaka sömu mistökin?

Egill Helgason skrifar sem endranær ágætan pistil á Eyjuna í dag, þar sem að hann telur mig vera vera eitthvað sem kallast fundamentalista sem ég veit ekki alveg hvað er og telur mig ennfremur vera öndverðri skoðun við Ragnar Árnason hagfræðing. 

Ég er virkilega ánægður með að vera settur á yst á hinn kannt við Ragnar Árnason hagfræðing sem taldi ári fyrir hrun að rétt væri að hætta algerlega veiðar úr þorskstofninum vegna þess hve þjóðarbúið stæði afskaplega vel.  Með því taldi Ragnar að hægt væri að byggja þorskstofninn enn hraðar upp en ella. Hann trúir þeirri vitleysu að með því að veiða minna núna þá sé hægt að veiða miklu meira seinna en það hefur víst aldrei  gengið eftir enda stangast það á við viðtekna vistfræði.

Ég hef ekki orðið var við annað en að sjónarmið í sjávarútvegsmálum eigi víðtækan hljómgrunn en í gær átti ég ágætan fund með þingmönnum Hreyfingarinnar þar sem hinar ýmsu hliðar kvótakerfisins voru ræddar.

Ég lít beinlínis á að festa kvótakerfið í sessi næstu tvo áratugi sé glæpsamlegt gagnvart þjóðinni en með því er verið að koma í veg fyrir rækilega endurskoðun á grunn atvinnuvegi  sem skapar bróðurpartinn af gjaldeyrístekjum þjóðarinnar.  Kerfið hefur reynst illa en það átti að skila á land 500 þúsund tonnum af þorski árlega en aflinn nú er einungis 160 þúsund tonn.  Ef teknar eru aðrar botnfisktegundir sem hafa verið settar inn í kvóta á síðustu árum þá er sama sagan upp á teningnum og er heildar botnfiskafli helstu tegunda helmingurinn af því sem hann var fyrir 20 árum.
Sagan segir okkur að ráðgjöfin hefur reynst illa.

Með frumvarpinu eins og það liggur fyrir er verið að reisa múra um þau fyrirtæki sem fyrir eru með sérleyfum, sem mun koma í veg fyrir eðlilega samkeppni og getur hver séð það fyrir sér með hvaða rekstur sem er að það getur komið sér vel fyrir þá sem hafa yfir slíku leyfi að ráða.  Það væri t.d. ekki amalegt fyrir Eyjuna og Pressuna að fá einkaleyfi hjá Steingrími J. og Jóni Bjarna til að reka fréttavef.  Ég er hins vegar ekki viss um að það geti verið heilbrigt og hagfellt fyrir almenning og það jafnvel þó svo að Björn Ingi greiði árlega einhverja þúsundkalla til rithöfundasambandsins. 
Fréttir af frumvarpinu bera það með sér að það er algerlega verið að girða fyrir nýliðun og þar með framþróun atvinnuvegarins.

Það verður fróðlegt að fylgjast með Ólínu Þorvarðardóttur verja það á þingi að festa ónýtt fiskveiðistjórnunarkerfi í sessi sem leikið hefur Vestfirði og í raun landið allt mjög illa ekki einungis stórskaðað landið fjárhagslega heldur einnig valdið siðrofi og mannréttindabrotum.  Ég reikna s.s. frekar með því að hún bregðist við með því að beina sjónum manna að "stærri "málum s.s. að manna ísbjarnarvaktir á Hornströndum og Norðurlandi.

Ef þessi sjónarmið lýsa einhverju sem kallast fundamentalismi að vilja endurskoða kerfi sem reynst hefur vægast sagt illa, þá gengst ég glaður  og ánægður við því.


Er munur á stefnu Bjarna Ben og Árna Páls?

Þær fréttir sem borist hafa af sjávarútvegsfrumvarpi Jóns Bjarnasonar bera það með sér að ríkisstjórn Vg og Samfylkingarinnar sé í þann mund að svíkja öll  þau loforð  sem gefin voru fyrir síðustu kosningar. Í stað þess að breyta kvótakerfinu í átt til þeirra fyrirheita sem kjósendum voru gefin er ætlunin að festa illræmt kerfi og mannréttindabrot kirfilega í sessi.

Fjórflokkurinn virðist samur við sig og þegar á reynir er augljóst að enginn munur er á stefnu ráðandi þingmanna. Í þessu skyni er ágætt að velta því upp hvort einhver grundvallarmunur sé á stefnu Árna Páls og Bjarna Ben eða þá Jóns Bjarnasonar og Einars Kristins. Allir setja þeir hag fjármálakerfisins og kvótahafa ofar hag heimila, byggðanna og þjóðarinnar.

Nú er að vonast til þess að Ólafur Ragnar Grímsson forseti grípi í taumana og leyfi þjóðarvilja að ráða í sjávarútvegsmálum - ekki fjórflokknum.

 


mbl.is Kvótafrumvarp afgreitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 10. maí 2011

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband