Leita í fréttum mbl.is

Jón Gnarr maður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar

Jón Gnarr borgarstjóri er maður ársins að mati fréttastofu Stöðvar 2 sem er í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.  Fréttamiðlum Jóns Ásgeirs var endurúthlutað af Samfylkingunni til fyrri eigenda sem er einn af höfuðpaurum hrunsins á sama tíma og tekið var af mikilli hörku á skuldum heimilanna

Í viðhafnarviðtali við Jón Gnarr þar sem að hann birtist áhorfendum ýmist sem geimvera eða friðarsinninn Dalai Lama þá boðaði hann framboð til Alþingis sem ætlaði litlu sem engu að breyta í íslensku samfélagi.

Ekki kemur á óvart að Stöð 2 styðji þann mann heilshugar sem engu vill breyta þó svo að hann hafi sýnt af sér fádæma undarlegheit og hroka.

 

 


mbl.is Jón Gnarr maður ársins á Stöð 2
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fýla Samfylkingarinnar á síðasta degi ársins

Í fréttum RÚV í hádeginu var rætt við forsætisráðherrann okkar en það fór ekki á milli mála að Samfylkingin kveður árið í mikilli fýlu yfir því að sitja uppi með Jón Bjarnason í ríkisstjórninni.

Það sem veldur óánægjunni er fyrst og fremst að Jón Bjarnason er af og til eitthvað að káfa í að framkvæma kosningaloforð Samfylkingarinnar um að jafna aðgang landsmanna að fiskveiðiauðlindinni.  Tillögurnar sem valda óánægju Jóhönnu Sigurðardóttur eru ekki að fyrna veiðiheimildir eins og Samfylkingin lofaði heldur að úthluta einungis lítilræði af viðbótarveiðiheimildum með jafnræði í huga. 

Harka Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra er svo mikil í málinu að engu máli skiptir þó svo að auknar tekjur samfélagsins af auknum fiskveiðum séu margföld sú upphæð sem fyrirhugað er að skera niður í heilbrigðiskerfinu og gerðu þar af leiðandi sársaukafullan niðurskurð óþarfan.


mbl.is Ríkisráðsfundur í morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 31. desember 2010

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband