Leita í fréttum mbl.is

Fá rök gegn því að þjóðin fái að segja sína skoðun

Það eru fá rök gegn því að Ólafur Ragnar Grímsson leyfi þjóðinni að segja skoðun sína á Icesave-samningnum.  Málið var pínt í gegnum þingið og greinilegt að sumir þingmenn Vg sem studdu málið gerðu það með óbragð í munni og eftir miklar fortölur Steingríms sem hefur persónugert málið.

Samfylkingin og Steingrímur ættu að vera ákaflega sátt við að þjóðin fái að segja sína skoðun í lýðræðislegri atkvæðagreiðslu en þingmenn stjórnarliðsins hafa á síðustu misserum flutt hástemmdar ræður um beint lýðræði og þjóðaratkvæðagreiðslur. Steingrímur J. var mikill baráttumaður fyrir því að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram um fjölmiðlamálið sem var miklu minna mál og þess vegna væri það stílbrot ef að formaður Vg berðist gegn því að þjóðin fengi að segja álit sitt á Icesave-samningnum.


mbl.is Forseti tekur sér frest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin ræðst gegn fóstru sinni

Ekki kom á óvart að Samfylkingin skyldi standa sem einn maður fyrir því að þjóðin skyldi greiða Icesave-reikninginn.

Flokkurinn og frambjóðendur hafa verið í gegnum árin á framfæri og nánast í fóstri hjá útrásarfyrirtækjunum. Samfylkingin myndaði sérstaka stjórn með Sjálfstæðisflokknum sem hafði það að meginmarkmiði að greiða fyrir ötulu starfi útrásarvíkinga Samfylkingarinnar.

Núna í kvöld þegar Samfylkingin sendi þjóðinni reikninginn vegna útrásarinnar þá þóttist flokkurinn hvergi hafa komið nærri þó svo að fyrir viku síðan hafi flokkurinn beitt sér hart fyrir sérstakri skattaívilnun fyrir þá sem eiga sök á Icesave-klafanum.

 

 


Bloggfærslur 31. desember 2009

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband