Leita í fréttum mbl.is

Það er þungt yfir álverssáttmálanum

Ég hef reynt að átta mig á því hver kjarni deilu ASÍ og SA gegn ríkisstjórninni er. Það er látið í veðri vaka að deilan sé fjölþætt og snúist um vanda heimilanna, skatta og jafnvel sjávarútvegsmál. Þegar betur er að gáð virðast Samtök atvinnulífsins og Aþýðusamband Íslands alls ekki vera að pressa á stjórnvöld um að afnema verðtryggingu og taka á gengistryggðu lánunum og vaxtaokrinu.

Málið virðist vera bara eitt - þrátt fyrir stóryrði - að þrýsta á byggingu álvers í Helguvík.

Aldrei hef ég heldur heyrt þessi samtök sameinast um að taka á gjaldþrota fiskveiðistjórnunarkerfi og auka veiðar og virðast þeir síamstvíburarnir Villi og Gylfi telja að lausnin felist í álveri.

Baráttan fyrir stóriðju er góðra gjalda verð en ég set spurningarmerki við þetta dellumeik um að í húfi sé einhver sáttmáli um stöðugleika. Svo virðist sem Samfylkingin í ríkisstjórn sé að keyra með fulltingi þessara samtaka á samstarfsflokkinn.


Bloggfærslur 27. október 2009

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband