Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
30.12.2017 | 23:04
Hreðjatakið
Ég hef lengi verið mjög mótfallinn því að útvegurinn geri samninga við
útlend umhverfissamtök eða fyrirtæki á þeirra vegum um vottun á sjávarafurðum.
Ég sannfærðist endanlega um það eftir að hafa lesið bókina "The end of the line" sem hampað var af mjög umhverfisverndarsamtökum ofl. Í stuttu máli er bókin hinn mesti óhróður um fiskveiðar, lýsir m.a. togveiðum með mjög ógeðslegum hætti. Höfundur bókarinnar Charles Clover mælti einfaldlega gegn áti á þorski, en með MSC vottun á fiskveðum! MSC vottun er tilkomin vegna samstarfs WWF og auðhringsins Unilever.
Með því að beygja sig undir að "staðlar" umhverfissamtaka séu lykill að mörkuðum þá er jafnframt verið að gangast undir að umrædd samtök geti breytt stöðlum eða túlkunum, þannig að mörkuðum sé lokað á forsendum umræddra vottunarfyrirtækja sbr. grásleppuna nú. Staðreyndin er sú að áhrifafólk í þessum græna geira er einfaldlega fordómafullt í garð fiskveiða og telur að þær eigi að heyra fortíðinni til.
Atvinnugreinin er því núna rétt að finna smjörþefinn af því sem koma skal. Það er merkilegt að útvegurinn sjálfur hefur greitt háar fjárhæðir til vottunarfyrirtækjanna til þess að ná þessu hreðjataki á greininni.
Ef farið er yfir þessa skýrslu sem byggir m.a. á stofnmati Hafró úr
togararallinu, þá orðið löngu tímabært að Landsamband Smábátaeigenda hafni stofnmati Hafró á hrognkelsi. Það er augljóst að það er eitthvað meira en lítið að mati sem gefur til kynna að stofnstærð hængs í ákveðinni fisktegund sveiflist með allt öðrum hætti en stofnstærð hrygnunnar, en það sýnir niðurstaða Hafró í tilfelli grásleppunnar og rauðmagans! Það er einnig mjög furðulegt að nota stofnmat á botnfiskum, SMB (togararallið) til þess að meta stofnstærð hrognkelsa, sem halda sig næri yfirborði
sjávar utan hrygningartímans. Það þarf að fá það fram hvað það eru margir fiskar á bak við útreikningana á stofnstærðinni en ég gæti trúað því að þeir séu ekki margir.
Það MSC hafi um árabil vottað ákveðna veiðiaðferð sem hefur verið óbreytt svo áratugum skipti og taki síðan upp á að breyta um kúrs á grundvelli stóraukins uppreiknaðs aukaafla er mjög ótrúverðugt. Ég sem líffræðingur myndi áður fara rækilega í gegnum það hvort að stofnstærðmat umræddra tegunda sem veiðast í auknum mæli sem aukaafli, en áður, hafi verið ábyggilegt í þeim gögnum sem lögð voru til grundvallar í samanburðinum.
Afturkalla MSC-vottun fyrir grásleppuveiðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.10.2016 | 21:49
Athugið ég er í framboði
Mér finnst rétt að skýra fjarveru mína í þætti á Stöð 2. með oddvitum lista sem bjóða fram til Alþingis 2016, í Norðvesturkjördæminu. Ástæðan er einföld - Fréttastofa Stöðvar 2 útilokaði mig frá því að taka þátt í þættinum.
Ekki veit ég hvers vegna Stöð 2 vill leggja bann á málflutning Dögunar í Norðvestur kjördæminu - Ekki er ólíklegt að það sé gagnrýni Dögunar á fjármálasukkið og skattaskjólin, sem tengist óneitanlega eigendum Stöðvarinnar?
Dögun sem berst fyrir almannahagsmunum hefur mátt sæta þöggun á Stöð 2 á meðan nýtt framboð Viðreisnar, með áberandi andlitum, auðmanna, talsmanna kvótagreifa og álvera auk kúlulánaþega hafa verið eins og gráir kettir í þáttum fjölmiðlasamsteypunnar.
Ég vil þakka þeim mörgu í kjördæminu sem ég hef hitt á ferðum mínum síðustu vikur fyrir sérstaklega góðar móttökur og vona að áframhald verði á því.
Sigurjón Þórðarson
oddviti lista Dögunar í Norðvestur kjördæminu.
23.8.2016 | 21:29
Verður Viðreisn enn einn sérhagsmunaflokkurinn?
Það skýtur óneitanlega skökku við að sjá Þorstein Víglundsson í framvarðarsveit Viðreisnar í ljósi þess að formaður flokksins, hefur boðað markaðslausnir við úthlutun aflaheimilda.
Á síðustu árum hefur fyrrverandi formaður SA, Þorsteinn Víglundsson boðað að litlu eða engu mætti breyta í kvótakerfinu næstu áratugina! - "Kvótakerfið þarf að vera hafið yfir pólitískt dægurþras"
Því miður þá sýnir valið á frambjóðandanum að það fylgir ekki hugur máli í tali formanns Viðreisnar, um að það eigi hætta sérgæsku við örfáa. Ekki er það heldur til þess að auka trúverðugleika Viðreisnar til raunverulegra breytinga í sjávarútvegsmálum að helsti hugmyndafræðingur flokksins í sjávarútvegsmálum, er Daði Már Kristófersson hagfræðingur. Hann hefur hingað til skrifað "lærðar" greinar, þar sem hann hefur mælt fyrir lækkun veiðigjalds og gegn því að allur fiskur sé verðlagður á frjálsum fiskmarkaði. Engu máli skipti um niðurstöðuna þó svo augljósasta leiðin til að ná fram frekari verðmætum út úr sjávarauðlindinni sé að hráefnið fari til þeirrar fiskvinnslu sem getur gert greitt hæsta verðið og þá væntanlega gert mest verðmæti úr aflanum. Vart þarf að taka það fram tvöfalda verðlagningin hefur verið mjög ívilnandi fyrir örfáa.
Ég held að það væri ráð fyrir Viðreisn að gera hreint fyrir sínum dyrum, en flokkurinn virðist stefna í að verða enn einn sérhagsmunaflokkurinn.
Frjálslyndur hægri krati | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.1.2016 | 10:38
Vill Bjarni "selja" flugstöðina?
Svar fjármálaráðherra verður vart skilið með öðrum hætti, en að hann vilji koma flugstöðinni í Keflavík að stórum hluta í hendurnar á einkaaðilum.
Reynsla Dana af sölunni á Kastrup til ástralska fyrirtækisins Macquarie var hræðileg. Í kjölfarið rann allur hagnaður fyrirtækisins beina leið í skattaskjól í gegnum skúffufyrirtæki í Lúxemborg.
Ég átta mig ekki fyllilega á því hvers vegna fyrirspyrjandinn, sá efnilegi þingmaður Vilhjálmur Árnason, hefur áhyggjur af rekstri fríhafnarinnar, þar sem hægt er að fá þar suður frá brennivín í öllum matvörubúðum á staðnum.
Einkarekstur fríhafnar skynsamlegur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2015 | 23:17
NATO ætti að lægja öldur
Ekki er það gæfulegt að framkvæmdastjóri NATO standi þétt á bak við árás Tyrkja á Rússa og það áður en búið er að fara yfir málsatvik.
Tyrklandi er stjórnað af Réttlætis- og þróunarflokknum (AKP), sem byggir fyrst og fremst á trúarlegum gildum. Tyrkir ásamt Sádum hafa grafið undan stjórn Sýrlands og dregið lappirnar í báráttunni gegn ISIS. Það kom berlega fram í umsátri ISIS um Kobane og rökstuddur grunur hefur lengi verið uppi um að vistir og olía ISIS fljóti fram og aftur yfir landamæri Tyrklands og Sýrlands.
Tyrkir hafa hins vega ekkert dregið við sig að ráðast á þá sem hafa verið hve harðastir í baráttunni gegn ISIS þ.e. Kúrda og Rússa.
Hyggilegast væri að NATO lími ekki örlög bandalagsþjóða við vafasöm uppátæki Erdogan.
Mikil samstaða innan NATO | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.11.2014 | 09:23
Ríkisbankinn
Landsbankinn er í eigu ríksins og á ábyrgð Bjarna Benediktssonar. Harkalegar uppsagnir á konunum í Ólafsvík eru rökrétt framhald af uppsögnum Bjarna, á starfsfólki í ræstingu í stjórnarrárðinu.
Gert að hætta samstundis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.4.2013 | 22:38
Vg úr meirihlutasamstarfi í Skagafirði?
Ný staða virðist vera komin upp í meirihlutasamstarfi Sveitarfélagsins Skagafjarðar sem fulltrúar Vg og Framsóknarflokkas stofnuðu til - hér um árið. Efstu menn á lista Vg þeir Gísli Árnason og Bjarni Jónsson hafa gengið til liðs við J-lista Jóns Bjarnasonar og verður sá fyrrnefndi í 4. sæti á lista Jóns í Norðvesturkjördæminu.
Um þessa stöðu hafa framsóknarmenn ekki tjáð sig en þögn þeirra um hinn nýjan samstarfsaðila gefur til kynna að þeir hafi lagt blessun sína yfir Jónsflokk.
5.4.2013 | 10:46
Ekki auknar þorskveiðar - fjölgar á elliheimilinu
Útreikningar Hafró á þorskstofninum sýna að hann er heldur minni en í fyrra! Það blasir við að ef fylgt verður núverandi nýtingarstefnu, að þá munu þorskveiðar ekki verða auknar heldur standa í stað og verða áfram innan við helmingur af því sem þorskveiðin var, fyrir daga kvótakerfisins.
Það sem veldur mér áhyggjum er að mælingar sýna að það er fækkun í öllum aldurshópum frá því í fyrra, nema þeim elstu. Mjög er áberandi hvað það er mikil fækkun á milli ára í hópi tveggja ára fiska og nýliðun helst áfram léleg.
Það þarf ekki mikinn sérfræðing til að spá fyrir um framvindu stofnsins þegar eina fjölgunin er í elsta aldurhópnum - elliheimilinu.
Kvótinn verði aukinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.3.2013 | 22:35
Verður Ingibjörg Sólrún á vaktinni?
þær Þórhildur Þorleifsdóttir og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafa lengi fylgst að í stjórnmálunum - í Kvennalistanum og síðan fóru þær stöllur saman í Samfylkinguna. Báðar fóru þær þaðan út vegna Landsdómsmálsins sem var að lokum einungis höfðað gegn Geir Haarde einum en ekki samverkafólki hans.
Nú hlýtur sú spurning að vakna hvort að Ingibjörg Sólrún geri hlé á leiðangri sínum í Afganistan til þess að komast á vaktina með Þorvaldi og Þórhildi.
Þórhildur Þorleifsdóttir í 1. sæti Lýðræðisvaktar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.3.2013 | 15:37
Páfanum óskað heilla
Hvað getur verið rangt við að óska nýjum páfa heilla í störfum sínum?
Vissulega hefur kirkjan í gegnum aldirnar borið ábyrgð á ýmsu misjöfnu sem of langt mál er að tala um. Ýmsar skoðanir Frans eru umdeildar og hafa valdið úlfúð og á það ekki einungis við um viðhorf hans til kynferðismála heldur einnig ýmis ummæli um Falklandseyjastríðið.
Er nú ekki um að gera að óska honum heilla í að stýra gömlu fleyi með úr sér gengnum kompás.
Ekki í nafni allrar íslensku þjóðarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggvinir
- Helga Þórðardóttir
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Jens Guð
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ásta Hafberg S.
- Jóhann Elíasson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Georg Eiður Arnarson
- Óskar Þorkelsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Hallur Magnússon
- Sigurður Þórðarson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Katrín
- Þarfagreinir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Frjálslyndi flokkurinn í Eyjafirði
- Hallgrímur Óli Helgason
- Jón Kristjánsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Kjartan Eggertsson
- Halla Rut
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- ragnar bergsson
- Bjarni Harðarson
- Rannveig Þorvaldsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Eiríkur Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- erlahlyns.blogspot.com
- Agný
- Guðjón Ólafsson
- Einar Ben
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Halldór Jónsson
- Elvar Atli Konráðsson
- Kristján H Theódórsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Helgi Már Barðason
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Víðir Benediktsson
- Valgerður Sigurðardóttir
- Jens Sigurjónsson
- Vestfirðir
- Sigurður Ásbjörnsson
- Jón Magnússon
- Viðar Friðgeirsson
- Axel Jóhannes Yngvason
- Svava S. Steinars
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Quackmore
- Árni "Gamli" Einarsson
- Haukur Már Helgason
- Þóra Guðmundsdóttir
- Heiða Þórðar
- Steingrímur Ólafsson
- Vefritid
- Ársæll Níelsson
- S. Einar Sigurðsson
- Rannveig H
- Gísli Gíslason
- Bjarni Kjartansson
- Steingrímur Helgason
- Fiðrildi
- Baldur Fjölnisson
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Linda Lea Bogadóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Hanna
- Sverrir Stormsker
- Ottó Marvin Gunnarsson
- gudni.is
- Einar Vignir Einarsson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Jóhann Kristjánsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- María Harðardóttir og Þorsteinn Narfason
- Grétar Rögnvarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Steinn Hafliðason
- Landssamband ungra frjálslyndra
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Þórir Aðalsteinsson
- Vilborg Traustadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Sævar Einarsson
- Ketilás
- Ómar Pétursson
- Eyþór Grétar Grétarsson
- FF
- Jón Þór Bjarnason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Róbert Tómasson
- Landvernd
- ThoR-E
- Haraldur Baldursson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- busblog.is
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Svanhildur Karlsdóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Árni Árnason
- Grétar Mar Jónsson
- Perla
- Ingunn Guðnadóttir
- Irma Þöll
- Skattborgari
- Gulli litli
- Jón Snæbjörnsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- kreppukallinn
- hreinsamviska
- Arinbjörn Kúld
- Orgar
- Guðjón Baldursson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Gunnar Björn Björnsson
- Haraldur Hansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Birna Steingrímsdóttir
- Gestur Guðjónsson
- Jónas Rafnar Ingason
- Stríða
- Götusmiðjan
- Brynja skordal
- Haraldur Bjarnason
- Guðmundur Óli Scheving
- Ásta
- Markús frá Djúpalæk
- Jörundur Garðarsson
- MIS
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Björn Júlíus Grímsson
- S Kristján Ingimarsson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Magnús Kristjánsson
- Bergur Sigurðsson
- Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Heimssýn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Óskar Arnórsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Árni Davíðsson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Árelíus Örn Þórðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- L.i.ú.
- Rafn Gíslason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Samtök Fullveldissinna
- Vaktin
- Arnar Guðmundsson
- Lárus Baldursson
- Sveinn Elías Hansson
- Þórarinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Berglind Steinsdóttir
- Bjarney Vigdís Ingimundardóttir
- BJÖRK
- Björn Emilsson
- Dagný
- Dominus Sanctus.
- Friðgeir Sveinsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Pálsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Högni Snær Hauksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jón Þórhallsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Ingólfsson
- Stefán Júlíusson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sveinn Björnsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Úrsúla Jünemann
- Valdimar H Jóhannesson
Tenglar
Mínir tenglar
- Losnað við pestina Þetta hefur reynst mér vel við að losna við allar pestir þá 5 mánuði sem ég hef reynt immiflexið
- Ginseng Hér fæ ég kraftinn
- Frjálslyndi flokkurinn Vill breyta kvótakerfinu
- Ungmennasamband Skagafjarðar Ég er formaður
- Hér kaupi ég tölvudótið Ódýrt og gott
Sjávarútvegsmál
- Hafró Stofnunin þar sem ákveðið er hversu mikið má veiða
- Landssamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ
- Landssamband smábátaeigenda LS
- Jörgen Niclasen Formaður Fólkaflokksins í Færeyjum
- Helgi Áss Grétarsson Sérfræðingur í HÍ á vegum LÍÚ
Fréttamiðlar
- Al Jazeera Gefur Bandaríkjamönnum engin grið
- BBC BBC
- Börsen Dönsk fjármálasíða
- Seðlabankinn Musteri Davíðs
Nýjustu athugasemdir
- Vg vill selja og veðsetja íslenska firði!: Hefur afkoman ekki veirð frábær? https://contact.blog.is/blog/... 25.4.2024
- Aðgerðin gekk vel en sjúklingurinn dó: Komdu sæll Sigurjón og "GLEÐILEGT SUMAR". Ég hef verið nokkuð ... 25.4.2024
- Vg vill selja og veðsetja íslenska firði!: Dominus S. til að fyrirbyggja frekari misskilning þá er rétt að... 24.4.2024
- Vg vill selja og veðsetja íslenska firði!: Hins vegar er ég fylgjandi þinni stefnu tengt öllu þegar að kem... 24.4.2024
- Vg vill selja og veðsetja íslenska firði!: Vg er væntanlega ekki að fara að selja neina firði í hendur er... 24.4.2024
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.4.): 32
- Sl. sólarhring: 411
- Sl. viku: 1017
- Frá upphafi: 967907
Annað
- Innlit í dag: 31
- Innlit sl. viku: 865
- Gestir í dag: 30
- IP-tölur í dag: 30
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Eldri færslur
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Apríl 2023
- Október 2022
- Október 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Janúar 2019
- Apríl 2018
- Desember 2017
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- Nóvember 2014
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Af mbl.is
Innlent
- Heldur inn í nóttina tuttugu kílóum léttari
- Búið að slökkva sinueldinn
- Myndir: Baldur og Felix opnuðu kosningaskrifstofu
- Sinueldur á Arnarnesi
- Höfum ekki náð að skríða upp úr þeirri gryfju
- Lýðheilsuverðlaun forsetans afhent
- Myndir: Katrín bauð til sumarfagnaðar á Nasa
- Brotið á dreng sem ætlaði að koma upp um barnaníðing
- Væri að ljúga ef ég segðist ekki stressaður
- Myndir: Snjóflóð féll í Fnjóskadal
Íþróttir
- Prófaðu að setja 0,9 sekúndur á skeiðklukku
- Man ekki eftir sambærilegum leik
- KR nælir í ungan leikmann
- Sonur Tiger komst ekki á US Open
- Guardiola Við gætum tapað eins og Liverpool
- Keflavík skaut Blika úr keppni (myndskeið)
- Njarðvík sigraði á flautukörfu
- Yrðum ekki fyrsta liðið í heiminum til að koma til baka úr 2:0
- Fannst við betri á flestum sviðum
- Foden magnaður í sigri City (myndskeið)