3.6.2008 | 11:32
Auðvitað á að aflílfa dýrið
Það er lítið vit í því að ætla að fara að ná ísbirninum sem er í næsta nágrenni við Sauðárkrók lifandi. Ég held að þeir sem fari fram á það séu ekki búnir að hugsa það mál til enda s.s. flutning á mörg hundruð kg. dýri með þyrlu eða bíl ofan af heiði.
Hvert á að fara með dýrið til geymslu, þar til dýrið yrði flutt með varðskipi úr landi?
Það er miklu nær að klára málið og vera ekki að vandræðast með ísbjörninn næstu daga og jafnvel vikur.
Lögregla á slóðum ísbjarnarins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bloggvinir
- Helga Þórðardóttir
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Jens Guð
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ásta Hafberg S.
- Jóhann Elíasson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Georg Eiður Arnarson
- Óskar Þorkelsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Hallur Magnússon
- Sigurður Þórðarson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Katrín
- Þarfagreinir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Frjálslyndi flokkurinn í Eyjafirði
- Hallgrímur Óli Helgason
- Jón Kristjánsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Kjartan Eggertsson
- Halla Rut
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- ragnar bergsson
- Bjarni Harðarson
- Rannveig Þorvaldsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Eiríkur Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- erlahlyns.blogspot.com
- Agný
- Guðjón Ólafsson
- Einar Ben
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Halldór Jónsson
- Elvar Atli Konráðsson
- Kristján H Theódórsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Helgi Már Barðason
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Víðir Benediktsson
- Valgerður Sigurðardóttir
- Jens Sigurjónsson
- Vestfirðir
- Sigurður Ásbjörnsson
- Jón Magnússon
- Viðar Friðgeirsson
- Axel Jóhannes Yngvason
- Svava S. Steinars
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Quackmore
- Árni "Gamli" Einarsson
- Haukur Már Helgason
- Þóra Guðmundsdóttir
- Heiða Þórðar
- Steingrímur Ólafsson
- Vefritid
- Ársæll Níelsson
- S. Einar Sigurðsson
- Rannveig H
- Gísli Gíslason
- Bjarni Kjartansson
- Steingrímur Helgason
- Fiðrildi
- Baldur Fjölnisson
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Linda Lea Bogadóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Hanna
- Sverrir Stormsker
- Ottó Marvin Gunnarsson
- gudni.is
- Einar Vignir Einarsson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Jóhann Kristjánsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- María Harðardóttir og Þorsteinn Narfason
- Grétar Rögnvarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Steinn Hafliðason
- Landssamband ungra frjálslyndra
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Þórir Aðalsteinsson
- Vilborg Traustadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Sævar Einarsson
- Ketilás
- Ómar Pétursson
- Eyþór Grétar Grétarsson
- FF
- Jón Þór Bjarnason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Róbert Tómasson
- Landvernd
- ThoR-E
- Haraldur Baldursson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- busblog.is
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Svanhildur Karlsdóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Árni Árnason
- Grétar Mar Jónsson
- Perla
- Ingunn Guðnadóttir
- Irma Þöll
- Skattborgari
- Gulli litli
- Jón Snæbjörnsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- kreppukallinn
- hreinsamviska
- Arinbjörn Kúld
- Orgar
- Guðjón Baldursson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Gunnar Björn Björnsson
- Haraldur Hansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Birna Steingrímsdóttir
- Gestur Guðjónsson
- Jónas Rafnar Ingason
- Stríða
- Götusmiðjan
- Brynja skordal
- Haraldur Bjarnason
- Guðmundur Óli Scheving
- Ásta
- Markús frá Djúpalæk
- Jörundur Garðarsson
- MIS
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Björn Júlíus Grímsson
- S Kristján Ingimarsson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Magnús Kristjánsson
- Bergur Sigurðsson
- Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Heimssýn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Óskar Arnórsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Árni Davíðsson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Árelíus Örn Þórðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- L.i.ú.
- Rafn Gíslason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Samtök Fullveldissinna
- Vaktin
- Arnar Guðmundsson
- Lárus Baldursson
- Sveinn Elías Hansson
- Þórarinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Berglind Steinsdóttir
- Bjarney Vigdís Ingimundardóttir
- BJÖRK
- Björn Emilsson
- Dagný
- Dominus Sanctus.
- Friðgeir Sveinsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Pálsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Högni Snær Hauksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jón Þórhallsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Ingólfsson
- Stefán Júlíusson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sveinn Björnsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Úrsúla Jünemann
- Valdimar H Jóhannesson
Tenglar
Mínir tenglar
- Losnað við pestina Þetta hefur reynst mér vel við að losna við allar pestir þá 5 mánuði sem ég hef reynt immiflexið
- Ginseng Hér fæ ég kraftinn
- Frjálslyndi flokkurinn Vill breyta kvótakerfinu
- Ungmennasamband Skagafjarðar Ég er formaður
- Hér kaupi ég tölvudótið Ódýrt og gott
Sjávarútvegsmál
- Hafró Stofnunin þar sem ákveðið er hversu mikið má veiða
- Landssamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ
- Landssamband smábátaeigenda LS
- Jörgen Niclasen Formaður Fólkaflokksins í Færeyjum
- Helgi Áss Grétarsson Sérfræðingur í HÍ á vegum LÍÚ
Fréttamiðlar
- Al Jazeera Gefur Bandaríkjamönnum engin grið
- BBC BBC
- Börsen Dönsk fjármálasíða
- Seðlabankinn Musteri Davíðs
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 109
- Frá upphafi: 1013224
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 61
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Apríl 2023
- Október 2022
- Október 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Janúar 2019
- Apríl 2018
- Desember 2017
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- Nóvember 2014
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Af mbl.is
Fólk
- Herra Hnetusmjör fagnar átta árum edrú
- Katrín prinsessa laumaðist á fund í Windsor-kastala
- Endurgerði þekkt kvikmyndaveggspjald buxnalaus
- Liam Payne borinn til grafar
- Elton John mætti allnokkrum kílóum léttari
- Fyrrverandi Playboy-kanína fær ekki aðgang að stefnumótaforriti
- Jarðarför Liams Payne í dag
- Vaknar grátandi af söknuði um miðjar nætur
Athugasemdir
Ok, þannig ef konan þín yrði veik, þá ertu að segja það væri mun aðveldara að aflífa hana í stað þess að eyða pening í að láta hana liggja á spítala og eyða pening í lækna og láta hana bíða á göngum ef það er ekki rúmpláss og eyða pening í bensín á sjúkrabílinn...
Þannig sem þú hugsar um konuna þína líka þá eða?
I I (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 11:39
Nýskupúki ertu, farið hefur fé verr en að bjarga Bjössa. Væri bara skemmtilegt, við gerum ekki nógu mikið af skemmtilegum hlutum sem bæta andann.
Eysteinn (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 11:42
Þarna er frjálslyndum best lýst. Vilja enga nýbúa
Sibbi (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 11:45
Ingþór, þó svo ég hafi reynt ýmislegt þá hefur mér aldrei dottið í hug að leggja lag mitt við ísbjörn.
Sigurjón Þórðarson, 3.6.2008 kl. 11:45
Bara fá Tf Sif til að hýfa það á brott á meðan það er sofandi og sleppa því á eitthvert sker við Grænland, allt í lagi að gera það, þetta eru dýr í útrýmingarhættu, er það ekki... en verra er að á meðan dýrið væri að sofa úr sér, þá kæmu kannski einhverjir aðrir og dræpu það og nýttu kjötið og haminn....já, vel ígrundað hjá þér, Sigurjón og raunsær þarna, þetta er erfitt mál, ætli sé ekki best að aflífa það blessað og bara setja það á Hafíssafnið...þetta er of mikið mál að ætla að koma dýrinu burt lifandi en hvað með að setja upp svona sædýrasafn eins og í gamla daga en bara á Króknum...ég er nú að hugsa um að taka rúnt um svæðið á eftir og athuga með dýrið...
alva (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 11:46
Vilji er allt sem þarf. Annað eins verið gert erlendis með góðum árangri. Bara spurning um viðhorf. Það er nú ekki langt til Grænlands. Hann hefur jafn mikinn rétt á að lifa og ég og þú.
Bylgja Hafþórsdóttir, 3.6.2008 kl. 11:47
Já
Sigurjón Þórðarson, 3.6.2008 kl. 11:48
Af hverju „auðvitað“? Mér er miklu ver við farfuglana, þeir geta auðveldlega borið með sér ýmsa sjúkdóma, á þá bara að aflífa þá. Þessi ísbjörn er sjálfsagt ekki mjög varasamaur ef ekki er verið að þvælast nálægt honum. Hann hefur sjálfsagt nóg að éta þarna því nóg er af sel og meira að segja stutt í selalátur. Auk þess má ekki gleyma því að ísbirnir eru líka jurtaætur. Éta bæði ber og rætur. Einhverntíman heyrði ég að náttúrulegur „diet“ ísbjarna væri að uppistöðu um 30% úr jurtaríkinu. En auðvitað þarf að fara með gát og vera ekkert að þvælast of nálægt honum enda ekki ástæða til. Hann fer örugglega af sjálfsdáðun í kaldari heimkynni án okkar „hjálpar“.
Þorsteinn Úlfar Björnsson (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 11:49
Held ekki að þessi bloggskrif þín lagi fylgishrunið...
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 11:49
Það þarf nokkuð örugglega að taka ákvörðun hvað skuli gera fyrir myrkur.
Sigurjón Þórðarson, 3.6.2008 kl. 11:51
Er ekki bjartasti tími ársins um það bil að bresta á? Það dimmir ekki á þessum árstíma fyrir norðan þótt rökkvi hér sunnan heiða. Betra að flýta sér hægt. Festina lente.
Þorsteinn Úlfar Björnsson (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 11:53
Ég á von á því að lögreglan á Sauðárkróki hafi í ýmsum öðrum verkum að snúast en að elta ísbjörn um heiðar í næsta nágrenni við Sauðárkrók.
Mitt mat er að það sé skynsamlegt að taka þá kaldranalegu ákvörðun sem allra fyrst að aflífa dýrið.
Varðandi það hvort að ísbjörninn hafi sama rétt til lífsins og við Skagfirðingar, þá er það góðar pælingar en það má líka velta því upp hvort að ísbjörninn hafi meiri rétt til lifsins en til dæmis refurinn eða hagamúsin.
Sigurjón Þórðarson, 3.6.2008 kl. 12:06
Ingþór!þetta var ómerkilegur samanburður þó ekki sé meira sagt.Gísli er Sigurjón einhverstaðar í framboði? "fylgishrun"Nú er flokksystir þín Þórunn búin að ákveða að björninn skuli feldur,ekki held ég að fylgið hrynji við það .Það er örugglega einhvað annað sem veldur hruni hjá SF
Rannveig H, 3.6.2008 kl. 13:07
Ég hefði nú ekki alveg verið svona grófur eins og Ingþór að setja konuna inn í dæmið. Tökum því spik feitann ímyndunar-útlending sem villist upp á fjalli og er með spik feita ímyndunar-fjölskyldu sína með í för; tvo ímyndunar-krakka og ímyndunar-konu slagandi hátt í tonnið.
Liðið kemur þrammandi eins og þursaflokkur (ekki samt syngjandi!) að "björgunarsveitarmönnum" sem halda að hólar og hæðir séu farnar að gefa af sér tröllskessur. Þeir bregða á það ráð að skjóta hele familien í hræðslu sinni og bera fyrir sig á fréttamannafundi að aflífa þurfti þau því þau sköpuðu bráðahættu á Sauðárkróki og nágrenni, fyrir svo utan það að það er svo erfitt (kostnaðarsamt?) að flytja liðið með þyrlu eða bíl (hækkandi bensínverð??) niður (vitandi að það þarf hvort eð er að flytja þau niður hvort sem er; dead or alive!!).
Kannski ekki furða að svæðið sé nefnt í höfuðið á sauðum ef þetta er svarið við málinu (með fullri virðingu fyrir fólkinu þaðan). Ísbjörnin hefur villst af leið hingað og minnsta málið hefði verið að flytja hann aftur til Grænlands aftur, nema Björn Bjarna hefði geta nýtt sér nafna sinn í löggæslu um helgar á höfuðborgarsvæðinu.
eikifr (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 13:23
Gísli Baldvinsson - hvað segirðu nú þegar i ljós er komið að Þórunn Sveinbjarnardóttir var sammála mér um að það væri illskársti kosturinn að fella dýrið?
Sigurjón Þórðarson, 3.6.2008 kl. 13:39
Auðvitað var það illskásti kosturinn, Íslendingar, hvar er raunsæið!!
alva (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 13:42
Samfylkinginn að reyna að slá ryk í augu fólksins og fá það til að gleyma Samfylgingarkreppunni með að plaffa 1 stk. ísbjörn. Menn gleyma meira að segja að rífast yfir að Bensínið hækkar enn og Gengið fellur... Til hamingju Ísland
Sibbi (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 14:08
Ég er sammála þér Sigurjón í þessu máli.. auðvitað er slæmt að þurfa að aflífa svona dýr en hvað á að gera ? Gefa því að éta og klappa því bak við eyrun ? dýr sem þvælast út af sínum heimaslóðum hvar sem það er í heiminum eiga sér oftast nær ekki lífs auðið.. því miður.
Óskar Þorkelsson, 3.6.2008 kl. 14:18
Hver segir að dýr þvælist endilega af sínum heimaslóðum. Hvað með öll dýrin sem hafa sloppið úr dýragörðum og þurft hefur að aflífa. Með hvað flugfélagi skyldu þau hafa pantað sér far??????? Oft er þetta heimsku mannsskepnunnar um að kenna en ekki dýrunum
Styrkár (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 14:46
Helvítis útlendingar....
Hann hefur komið með Grænlandsflugi Íslandsflugs og keypt miða aðra leið bara, sjálfsagt ætlað sér að keppa við sjómenn norðan heiða um aflann...
Íslendingur (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 15:02
Þannig að málið almennt er að þegar einhver fer af sínum heimaslóðum er viðkomandi bara réttdræpur? Þetta er nú hálfgert múslima-syndrome sem maður er að heyra hérna sem ég er alfarið á móti.
eikifr (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 16:36
Var þetta ekki bara kalt mat? Hvað hefði orðið um ísbjörninn ef hann villst inn í þokuna? Myndin sem fylgdi fréttinni var líka villandi, sá björn leit út eins og Knútur í dýragarðinum sem allir vilja knúsa.
Berglind Steinsdóttir, 3.6.2008 kl. 17:12
Það var rangt hjá ráðherra þegar hún vitnar í hvað gert er á Svalbarða, þarna er einfaldlega um að kenna að umhverfisyfirvöld hafa ekkert lært frá því síðast þegar drepinn var björn við ísland, í kringum '95.
Á Svalbarða gilda strangar reglur - og við ónauðsynlegu drápi eru ströng viðurlög. Vinn þar sem fararstjóri í óbyggðum og hef þurft að beita þekktum aðferðum við ísbirni. Grundvallarreglan á Svalbarða er sú að björninn má ekki drepa nema í nauðvörn - innan 20 metra, þegar annað hefur ekki dugað.
Eins er á Grænlandi, þar sem ég bý, hér eru líka strangar reglur, þó ekki eins og á Svalbarða.
Eini munurinn á Íslandi og þessum tveimur svæðum, er að þar hafa menn lært af reynslunni og rannsóknum. Íslendingar hafa ekkert lært né undirbúið neitt eftir henginguna '95.
Björninn var drepinn þar sem heimamenn höfðu á engri reynslu að byggja, og ráðherra veit ekkert um hvernig þetta er gert í nágrannalöndunum.
Baldvin Kristjánsson, 3.6.2008 kl. 17:41
það gleymist alveg að hugsa um áhrif þessarar ákvörðunar. að aflífa dýrið var ekki endi sögunnar, íslendingar vilja að ferðamenn sæki landið heim, færi landanum peninga. íslendingar vilja vera marktækir í alþjóðaviðskiptum. málið er svo mikið meira heldur en hvað skal gera við dautt dýrið. ég bið fyrir að alþjóðafréttastofurnar frétti ekki af þessum mistökum er þarna áttu sér stað. björinn er alfriðaður, hann mátti ekki aflífa. þó að landinn hefði þurft að leggja í þetta kostnað, já að koma honum sofandi aftur til síns heima, þá tel ég að það hafi verið það eina rökrétta í málinu. tilkynna hefði þurft fólki að halda sig frá svæðinu, banna almenning þarna nálagt, setja lið í fylgjast með bangsa......færa honum fisk með svæfingarlyfjum í, og já leggja svo í kostnað við að koma honum heim. íslendingar eiga undir höggi í alheiminum, og þó það séu kannski öfgamenn sem hafa hæst, og vita minnst hvort sem um er að ræða hvalveiðar eða annað....þá hafa þeir áhrif í kringum sig. ég held að málið sé rétt að byrja, og tel jafnvel að landinn þurfi heldur betur að svara fyrir þessi mistök! þetta var í vanhugsaðari fljótfærni gert.....
tvíburinn brottflutti (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 18:41
Sæll Sigurjón
Voru menn nú ekki dálítið fljótir á sér að skjóta greyið. Eða voru menn of seinir á sér kannski, að úthugsa leið til að ná honum lifandi.
Hefði ekki verið hægt að reka allt fólk af fjallinu og loka veginum til að styggja hann sem minnst ?
Hefði ekki verið hægt að ná í hvelli, í einhvað aflóga hross úr Húnavatnssýslunni (fullt af þeim þar) og skjóta það og blóðga uppi á fjalli, til þess að halda Bjössa kyrrum á fjallinu ?
Hefði ekki verið hægt að taka mark á dýralækninum á Blönduósi varðandi það að blanda svefnlyfinu í ætið ?
Hefði ekki verið hægt að fá gámabíl af Króknum með 20 feta gám til ná í einn svefnrotaðann Björn upp á fjall ?
Hefði ekki verið hægt að útbúa þennan sama gám á einum klukkutíma með einföldum hætti þannig að Þverbjörn gæti búið þar örfáa daga ?
Hefði ekki verið hægt að ákveða í rólegheitum hvernig utanlandsferðinni hjá Þverbirni yrði háttað ? (og hann sofandi úti í gámi)
Hefði verið hægt að fá betri landkynningu en þá að Þverbjörn hefði fengið að líta sitt eðlilega umhverfi á ný og það í kastljósi erlendra fjölmiðla ?
NEI ÞAÐ HEFÐI EKKI VERIÐ HÆGT
Birgirsm, 3.6.2008 kl. 21:41
Brigirsm kemur með rétta punkta hér fyrir ofan.
Nú er ég eldheitur ísbjarnavinur og búinn að vera í mörg ár.
Og aldrei þessu vant ósammála Sigurjóni.
En svona er það - við þurfum ekki alltaf að vera sammála.
Meira á magnusthor.eyjan.is
Magnús Þór Hafsteinsson, 3.6.2008 kl. 21:57
Það er engu líkara, miðað við margar þær athugasemdir sem ég hef verið að lesa, en að fólk álíti að þarna hafi verið á ferðinni ljúft og gæft gæludýr en ekki stórhættulegt villidýr, sem var mönnum og skepnum stórhættulegt. Heldur fólk virkilega að það hefði verið hægt að ákveða eitthvað í "rólegheitum" eitthvað í sambandi við villt dýr? Það hefði kannski átt að segja við bangsa, að nú ætti hann bara að leggja sig í nokkra klukkutíma, því nú ætti að ákveða hvað ætti að gera við hann? Nei ég er á því að þarna hafi verið tekin hárrétt ákvörðun og svo verðum við að hafa það í huga að við vorum engan vegin í stakk búin til að taka á uppákomum sem þessari.
Jóhann Elíasson, 3.6.2008 kl. 22:04
sæll já þetta með ís-bjössa það er alltaf leiðinlegt þegar þarf að aflífa svona falleg dýr ég get verið sammála því sem reyndur veiðimaður á hreyndír gæsir og rjúpu og fl, þá get ég nú viðurkennt að það var leiðinlegt að sjá dýrið falla enn kannski var það honum fyrir bestu ,,ég held samt að það hefði verið hægt að bjarga þessu nenni samt ekki að fara út í það menn taka oft skjótar áhvarðanir og engar áætlanir eru til.. það sem er kannski merkilegt í þessari ísbjarnarumræðu er það að menn gleyma kostnaðinum við svona hluti .. ok tökum dæmi það kosta okkur c.a að senda þyrlu eftir rjúpnaskyttu eða erlendum ferðamanni sem hefur snúið ökkla á vatnajökkli um það bil1.000.000 kr fyrir utan allar björgunarsveitir og þar eru menn líka á fullum launum hjá sínum vinnuveitendum ég er ekki að gera grín enn svona er þetta auðveitað hefði verð gott að bjarga birninum enn svona fór þetta við vonandi lærum af þessari reynslu.
einar axel gústavsson í dk (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 22:42
Frjálslyndi flokkurinn er bara að klofna út af ísbirninum. Það ruglar flokkinn alveg í ríminu að bjarnarskömmin var vissulega útlendur en hvítur. Þeir vita greinilega ekki hvaða stefnu á að taka í málinu. Menn hafa nú ruglast á minni hlutum en þessu.
Víðir Benediktsson, 3.6.2008 kl. 22:43
Því í fjandanum kom ekki Sérsveit Ríkislögreglustjórans Haraldar Johannesenar,ekki með :TÁRAGASIÐ:hvað voru þeir að pæla,einnig hefði mátt koma með Rafstuðbyssurnar líka,þeir hefðu þá getað aðvarað Ísbjörninn fyrst og síðan stuðað hann.
Númi (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 23:11
Jóhann Elíasson skrifar eftirfarandi ,,,Heldur fólk virkilega að það hefði verið hægt að ákveða eitthvað í "rólegheitum" eitthvað í sambandi við villt dýr? ,,,
1 stk 200 kg Ísbjörn læstur inni í 20 feta gám! Hvað er svona hættulegt við það, er það eitthvað hættulegra og ómannúðlegra heldur en þegar verið er að flytja 300-400 kg tudda marga saman í sláturhúsbílunum fleiri hundruð kílómetra til slátrunar ?
Birgirsm, 3.6.2008 kl. 23:30
Ég er ekki frá því að sá viðkvæmi og góði drengur Magnús Þór láti tilfinningar sínar hlaupa með sig í gönur.
Það er af og frá að ungt karldýr sem villst hefur af leið skipti einhverjum sköpum um afdrif ísbjarnarstofnsins sem telur einhverja tugi þúsunda dýra.
Það að ætla að hafa björninn hlaupandi í fjöllum Skagafjarðar innan um búfénað, stangveiðimenn og túrista í einhverja daga á meðan væri verið í einhverjum reddingum með að koma réttu byssunni og lyfjunum og þyrlu norður yfir heiðar. Síðan átti eftir að smíða búr og redda fari til Grænlands og sömuleiðis að fá innflutningsleyfi fyrir björninn.
Mér virðast sem sumir telja að þetta sé svona álíka mál og að flytja kött á milli landshluta. Ég heyrði í kvöld í pottinum í einum þeirra sem stóð að því að fella dýrið, en hann hafði á orði að gripurinn hafi ekki verið árennilegur þegar hann kom á harðaspretti á móti hópnum.
Ég get tekið undir að dagurinn var ekki góður fyrir Þórunni umhverfisráðherra þó svo að hún hafi tekið hárrétta ákvörðun um að láta drepa dýrið. Málið er að hún þorði einhvern vegin ekki að standa fyllilega með þeirri ákvörðuninni.
Sigurjón Þórðarson, 3.6.2008 kl. 23:43
Þórunn Ísbjarnardóttir ???????
Birgirsm, 3.6.2008 kl. 23:50
Hvar fær dýrið inn á gólf hjá sér þegar það verður búið að stoppa hann upp? Umhverfisráðherra?
Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ
B.N. (IP-tala skráð) 4.6.2008 kl. 08:11
Mikið er nú gott að íslendingar séu örþjóð án kjarnorkuvopna fyrst svona var tekið á þessari miklu ógn sem eitt ísbjarnagrey á unglingsaldri er. Við hefðum, Sigurjón haft tveggja mánaða svigrúm til að ná bjarnargreyinu fyrir myrkur. En að loka ekki af svæðið og prufa að gefa bangsa að éta svefnlyfjamengað hrátt kjöt hefði nú ekki tekið langan tíma og varla geta valdið almannaógn á þessu strjábýla svæði fyrst vitað var um björnin. Og fyrst umhverfisráðherra og lögreglan á staðnum voru bjargar og hjálparlaus í þessu hættuástandi, hefði ekki verið hægt að flytja lögreglusveitina norður sem barði á vörubílstjórum og kárahnjúkaandstæðingum með landsfrægum árangri.
Guðlaugur (IP-tala skráð) 4.6.2008 kl. 08:45
Ég skifaði smá um þetta mál hérna fólk má ekki missa sig í ruglinu.
Sævar Einarsson, 4.6.2008 kl. 08:58
Guðlaugur, ætli það sé ekki álíka langt frá Sauðárkróki og að þeim stað þar sem björninn var skotinn og frá 101 og upp í Árbæ.
Sigurjón Þórðarson, 4.6.2008 kl. 09:47
Skilurður ekki að Ísbirnir eru í útrýmingarhættu og því átti að reyna allt sem hægt væri til að koma í veg fyrir dráp. Lögreglan átti að vísa strax forvitnu fólki burt og loka veginum, síðpan hefði verið hægt að egna fyrir hann gildru eða setja svefnlyf í kjöthræ.
Nú er það staðfest að Frjálslyndi flokkurinn er ekki bara á móti útlendingum (innflytjendum) heldur einnig dýrum sem er slæmt.
Skarfurinn, 4.6.2008 kl. 10:46
Frábær pistill hjá Guðlaugi, sniðugt hefði verið að senda brjáluðu piparúða löggurnar norður úr því að umhverfisráðherra og löggan á staðnum voru bjargarlaus, sem er umhugsunarefni, svo talar löggan við einhverja byssumenn úr skotfélaginu og láta myrða hinn nýja gest okkar.
Skarfurinn, 4.6.2008 kl. 10:49
Skarfur það er rétt að þú hafir það í huga að það voru fleiri en Frjálslyndir sem studdu ákvörðun umhverfisráðherra.
Sigurjón Þórðarson, 4.6.2008 kl. 11:15
Og afhverju ætli þeir séu í útrýmingarhættu ? það skyldi þó aldrei vera vegna hlýnunar ? og Skarfurinn fer í sandkassann og kemur með æðislega barnaleg ummæli sem eru varla svaraverð en ég geri það samt og spyr á móti, Er Samfylkingin þá ekki á móti dýrum líka fyrst ráðherra gaf leyfi til að aflífa dýrið ? Svo skulum við aðeins skoða þetta og ef ráðherra hefði gefið fyrirmæli um að það mætti alls ekki aflífa dýrið og Bjössi horfið inní þokuna og hann hafi farið yfir fjallið og einhver ferðamaður, göngugarpur eða unglingar í tjaldi þar, og ekki vitað af Bjössa og hann gert sé mat úr einhverjum, hvað þá ? hvað segja þeir þá sem eru gjörsamlega blindaðir af tilfinningum inní almenna skynsemi ?
Sævar Einarsson, 4.6.2008 kl. 11:19
OK þá er ég barnalegur allt í lagi með það. En hver segir að ég sé í Samfylkingunni Sævarinn ?
Í Fréttablaðinu segir upplýsingafulltrúi Umhverfisráðuneytis að umhverfisráðherra hafi ekki gefið grænt ljós á að skjóta dýrið það sé misskilningur einn, hver segir satt hér ?
Skarfurinn, 4.6.2008 kl. 11:39
Það er alltaf eins með okkur íslendinga við hræðumst öll dýr sem eru stærri en við og bregðumst gjarnan við þeim með skotvopnum.Við köllum okkur veiðimannaþjóð en erum kanski bara villimenn í okkur og er talsverður munur þar á, hvað varðar kostnaðin sem hefði fylgt björgunaraðgerðum eins og ég hef heyrt fólk vera að velta sér uppúr þá var það að mig mynnir ekkert vandamál þegar keiko var fluttur með mikilli viðhöfn og gríðalegum tilkostnaði til landsins ekki sama björn eða háhyrningur.
Guðni Sigmundsson, 4.6.2008 kl. 12:14
Ég var ekki að segja að þú værir í Samfylkingunni Skarfurinn ég var einfaldlega að benda þér á hvað alhæfing þín er þvengpípandi vitlaus, ef þú skilur ekki hvað ég á við, láttu mig þá vita og ég skal orða það pent.
Sævar Einarsson, 4.6.2008 kl. 13:17
ert þú sævarinn einn af þeim sem telja sig vera veiðimenn og öll dýr megi skjóta eða ertu bara einn af þeim sem eru hræddir við þá sem stærri eru. Ert þú virkilega sammála því að þetta hafi verið rétta leiðin,
nóg er til af gámum meira að seigja littlum 12 feta sem hefðu dugað í verkefnið það virtist bara skorta viljan til að meta stöðuna og taka vel ígrundaða niðurstöðu.
Guðni Sigmundsson, 4.6.2008 kl. 14:02
Tek heilshugar undir með Guðna, þetta átti ekki að vera risa vandamál, það vantaði bara alla hugsun óg yfirvegun, með öðrum orðum landinn vill fá að skjóta allt kvikt ef það er á 4 löppum, dýravern skiptir þá engu máli. Að lögreglan á staðnum skuli ekki hafa ráðfært sig við héraðsdýralækni er klaufalegt með afbrigðum.
Nú sá ég erlend blöð áðan og þar er frétt með mynd: Ísbjörn synti frá Grænlandi til Íslands bara til að vera drepinn af skotglöðum íslendingum (skydeglade) það er skömm að þessu fyrir landann.
Skarfurinn, 4.6.2008 kl. 14:26
Enn og aftur, það voru ekki einhverjir veiðimenn sem tóku ákvörðun um að skjóta ísbjörninn heldur voru það stjórnvöld.
Sigurjón Þórðarson, 4.6.2008 kl. 14:40
Sigurjón Þ. lestu síðu 12 í Fréttablaðinu í dag, þar segir: Lögreglan á staðnum tók þá ákvörðun að láta fella dýrið, svo á forsíðu er haft eftir upplýsingafulltrúa Umhverfisráðuneytis sem heitir Guðmundur Hörður Guðmundsson: Umhverfisráðuneytið veitti ekki leyfi fyrir aftöku dýrsins, enda hafi það ráðuneyti ekki leyfi til þess. Nú ef þessi frétt er röng þá byðst ég forláts.
Skarfurinn, 4.6.2008 kl. 15:15
Lögreglan er stjórnvald.
Annars tel ég að þessi kattarþvottur Þórunnar á ábyrgð á málinu sé henni fjötur um fót. Það væri miklu nær og árangursríkara að standa með eigin ákvörðun og útskýra hvers vegna hún tók hana.
Sigurjón Þórðarson, 4.6.2008 kl. 16:31
Ef að við snúum þessu nú við og segjum fréttina svona.
; Það var kl 10 í morgun er Þórunn á Reykjaströnd var að hengja upp þvott til þerris að henni var litið út á Skagafjörð í áttina að Drangey er hún kom auga á gráann hest er var á vappi á stórri ísbreiðu, um það bil 10 km frá landi;
Hvað hefðu lögreglumenn á Sauðárkróki gert þá. Hefðu þeir hringt í sportveiðimenn á Blönduósi og beðið þá um að skjóta hestinn á færi, og að það væri betra að þeir kæmu allir 6, til vonar og vara. Eða hefði hjálparsveitin verið kölluð út og kannski landhelgisgæslan, og allt gert til þess að koma dýrinu til hjálpar og til síns heima. Ég er viss um að þeir hefðu tekið hey með sér til þess að róa hestinn og gefa honum að eta.
Það er nefnilega aðalatriðið í þessu að auðvitað hefði átt að gefa bjarndýrinu að eta og síðan að hjálpa því til þess að komast til síns heima með öllum tiltækum ráðum.
IHG
Það er
Ingvar, 4.6.2008 kl. 16:51
Samála þér Sigurjón og einnig fjöldi annara sem að ekki er alveg buin að missa tenginguna við lifið og tilveruna. Annars er fyrsta athugasemdin hér með ví smekk minsta sem að ég hef séð að minu mati
Jón Aðalsteinn Jónsson, 4.6.2008 kl. 22:27
það er hefð fyrir því að aflífa bangsa sem álpast hingað, ef ekki skotnir þá hengdir.
Rúnar (IP-tala skráð) 5.6.2008 kl. 00:02
Æðisleg samlíking á hesti og rándýri, eins og ég sagði á blogginu mínu þá er þetta ekki Knútur þó þeir séu skyldir. Og það sem ég átti við Skarfurinn var að þú sagðir að það sé núna staðfest að Frjálslyndir séu á móti útlendingum og dýrum afþví Sigurjón hefur skoðun á þessu og Magnús vildi ræða um flóttamannaferlið, það er alveg merkilegt hvað fólk getur hreinlega misstígið sig í vitsmunum. Og já Guðni Sigmundsson ég er því sammála að það átti að aflífa dýrið, afhverju er ég sammála því ? laust hungrað rándýr var nálægt mannabyggð og fjöldi fólks fór í skoðunarferð til að sjá dýrið líkt og það héldi að það væri að horfa á Animal Planet og áður en illa færi var það hárrétt ákvörðun að aflífa dýrið, ég læt skynsemi og rökrétta hugsun ekki bera tilfinningar mínar ofurliði, svona oftast nær.
Sævar Einarsson, 5.6.2008 kl. 04:52
Það er furðulegt hversu margi eru til í að láta einhverja aðra sjá um að svæfa og flytja ísbjörninn, væri ekki bara best að þessir bloggarar sæju um þann næsta sjálfir en ansi er ég hræddur um að bangsi myndi fækka í þeim hópi áður en yfir lyki.
Einar Þór Strand, 5.6.2008 kl. 11:00
Langaði að senda þér heimasíðu sem heldur utan um fréttir af meðferðargangi á Litla Hrauni, svona til að benda á að það eru jákvæðir hlutir að gerast, endilega skoðið og segið ykkar skoðun :) http//www.edrumenn.blogspot.com
Starfsmaður (IP-tala skráð) 5.6.2008 kl. 11:05
Mér finnst ekki rétt að bera Risastóran Ísbjörn saman við hest eða konuna hans Sigurjóns. Þið eruð svo grunnir greyin að það hálfa væri miklu meira en nóg. Áttu þeir að fara og handtaka hann eða meisa hann kannski bara, jú það er líklega málið.......GAS, GAS, GAS......Mér finnst persónulega aðrar fréttir í þjóðfélaginu og heiminum, meira til að hafa áhyggjur af........Við drepum dýr á hverjum degi, ekki satt????
Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 5.6.2008 kl. 12:31
Hvort sem mönnum líkar það vel eða illa, þá var það eina sem ábyrgir menn gátu gert við þessar aðstæður, þá var það að skjóta björninn, eins og gert var. Ég hef ekki heyrt um nein úrræði sem þeir mörgu sem líkaði ekki drápið, höfðu tilbúin ef ísbjörn mundi koma til Íslands.
Ólafur B. Jónsson (IP-tala skráð) 5.6.2008 kl. 23:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.