Ég hef orðið var við það í ágætum athugasemdum við skrif mín hér á síðunni að talsmenn Samfylkingarinnar botna ekkert í óánægju vörubílstjóranna og finnst mér því vel við hæfi að birta grein sem birtist í DV á dögunum.
Það virðist sem ráðamenn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar telji það fyrir neðan virðingu sína að setja sig inn í umkvartanir bílstjóranna - andinn frá stjórnarliðinu er að bílstjórarnir séu ekki nógu fínt fólk og kunni ekki að mótmæla með nógu penum og áhrifaríkum hætti líkt og samkynhneigðir og náttúruverndarsinnar eiga víst að kunna. Eflaust væri þægilegra ef Sturla Jónsson læsi ljóð á Austurvelli og héldi með bílstjórana sína í gleðigöngu í stað þess að þeyta lúðra og trufla tigna Palestínumenn í að heimsækja ráðherraliðið.
Ég legg það til að stjórnvöld komi á viðræðum við bílstjórana sem fyrst og fari yfir málið af alvöru og sýni annað en belging og sinnuleysi. Vandamál ríkisstjórnarinnar er að almenningur skynjar að ríkisstjórnin er ekki að gera neitt annað en að flögra um heiminn.
Stjórnvöld tóku nýlega upp á arma sína útgerðarmenn sem urðu fyrir niðurskurði í besta fiskveiðistjórnarkerfi í heimi og síðan bankastjórana sem eru með tugi ef ekki hundrað millur á mánuði en bílstjórarnir virðast ekki vera nógu fínt fólk fyrir Samfó og Sjálfstæðisflokkinn.
Greinin í DV:
Samfylkingin æsti til vörubílstjórauppreisnarinnar
Nú hafa ýmsir meðreiðarsveinar Samfylkingarinnar, s.s. Dofri Hermannsson og Egill Helgason, reynt að útmála mótmæli vörubílstjóranna sem einhvern asnalegan misskilning, þ.e. að bílstjórarnir fatti ekki að heimsmarkaðsverð á olíu fari hækkandi. Það er auðvitað ekki svo, bílstjórarnir eru eflaust margir hverjir að borga af erlendum lánum sem þeir hafa tekið til að fjármagna bílakaup sín. Þeir þurfa að greiða æ hærra verð fyrir olíuna til að knýja tækin áfram á meðan margur hefur boðið í verk þar sem forsendur eru allar aðrar, enda ekki gert ráð fyrir að ríkisstjórnin missti algjörlega tökin á efnahagsmálum með frægri stefnu forsætisráðherra, stefnunni að-gera-ekki-neitt.
Reyndar hefur forsætisráðherrann okkar ferðaglaði áður komið fram með nýstárlegar hugmyndir í efnahagsmálum, eins og þegar hann ætlaði sér að slá á þenslu með því að fresta framkvæmdum á Vestfjörðum, í þeim landshluta þar sem samdráttur ríkti. Ein krafa vörubílstjóranna er að lækkaðar verði álögur á olíu. Ef eitthvert mark ætti að vera hægt að taka á ráðherrum Samfylkingarinnar, t.d. samgönguráðherra og utanríkisráðherra Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, hefðu þau strax átt að taka undir kröfu bílstjóranna þar sem það eru ekki nema örfá misseri síðan núverandi samgönguráðherra sem þá var í stjórnarandstöðu sendi frá sér ákall til ríkisstjórnar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks um lækkun álaga hins opinbera vegna þess að dísilolían nálgaðist að kosta 120 kr., lítrinn. Ef farið er í gegnum þingræður núverandi samgönguráðherra á umliðnum árum blasir við að þetta var hans helsta baráttumál auk þess að jafna flutningskostnað. Í þessum ræðum hans kemur greinilega fram að hann telji að skattlagning umferðar sé margfalt meiri en varið er í uppbyggingu vegasamganga.
Þessi áhugi Samfylkingarinnar og barátta tók á sig þá mynd að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir flutti sérstaka tillögu um lækkun olíugjalds um 15%, úr 41 kr. í 35 kr.Það er aumt að horfa upp á þingmenn Samfylkingarinnar skilja vörubílstjórana eftir á berangri þegar þeir krefjast þess að farið sé að tillögum sem Samfylkingin sjálf lagði til. Þeim er att á foraðið og síðan fá forystumenn Samfylkingarinnar minni spámenn flokksins til að hía á þá.Það væri meiri bragur að því að flugkapparnir í ríkisstjórninni settust að viðræðum við bílstjórana til að leita leiða um að leysa úr málum á farsælan hátt.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:18 | Facebook
Bloggvinir
- Helga Þórðardóttir
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Jens Guð
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ásta Hafberg S.
- Jóhann Elíasson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Georg Eiður Arnarson
- Óskar Þorkelsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Hallur Magnússon
- Sigurður Þórðarson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Katrín
- Þarfagreinir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Frjálslyndi flokkurinn í Eyjafirði
- Hallgrímur Óli Helgason
- Jón Kristjánsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Kjartan Eggertsson
- Halla Rut
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- ragnar bergsson
- Bjarni Harðarson
- Rannveig Þorvaldsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Eiríkur Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- erlahlyns.blogspot.com
- Agný
- Guðjón Ólafsson
- Einar Ben
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Halldór Jónsson
- Elvar Atli Konráðsson
- Kristján H Theódórsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Helgi Már Barðason
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Víðir Benediktsson
- Valgerður Sigurðardóttir
- Jens Sigurjónsson
- Vestfirðir
- Sigurður Ásbjörnsson
- Jón Magnússon
- Viðar Friðgeirsson
- Axel Jóhannes Yngvason
- Svava S. Steinars
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Quackmore
- Árni "Gamli" Einarsson
- Haukur Már Helgason
- Þóra Guðmundsdóttir
- Heiða Þórðar
- Steingrímur Ólafsson
- Vefritid
- Ársæll Níelsson
- S. Einar Sigurðsson
- Rannveig H
- Gísli Gíslason
- Bjarni Kjartansson
- Steingrímur Helgason
- Fiðrildi
- Baldur Fjölnisson
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Linda Lea Bogadóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Hanna
- Sverrir Stormsker
- Ottó Marvin Gunnarsson
- gudni.is
- Einar Vignir Einarsson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Jóhann Kristjánsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- María Harðardóttir og Þorsteinn Narfason
- Grétar Rögnvarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Steinn Hafliðason
- Landssamband ungra frjálslyndra
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Þórir Aðalsteinsson
- Vilborg Traustadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Sævar Einarsson
- Ketilás
- Ómar Pétursson
- Eyþór Grétar Grétarsson
- FF
- Jón Þór Bjarnason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Róbert Tómasson
- Landvernd
- ThoR-E
- Haraldur Baldursson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- busblog.is
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Svanhildur Karlsdóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Árni Árnason
- Grétar Mar Jónsson
- Perla
- Ingunn Guðnadóttir
- Irma Þöll
- Skattborgari
- Gulli litli
- Jón Snæbjörnsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- kreppukallinn
- hreinsamviska
- Arinbjörn Kúld
- Orgar
- Guðjón Baldursson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Gunnar Björn Björnsson
- Haraldur Hansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Birna Steingrímsdóttir
- Gestur Guðjónsson
- Jónas Rafnar Ingason
- Stríða
- Götusmiðjan
- Brynja skordal
- Haraldur Bjarnason
- Guðmundur Óli Scheving
- Ásta
- Markús frá Djúpalæk
- Jörundur Garðarsson
- MIS
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Björn Júlíus Grímsson
- S Kristján Ingimarsson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Magnús Kristjánsson
- Bergur Sigurðsson
- Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Heimssýn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Óskar Arnórsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Árni Davíðsson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Árelíus Örn Þórðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- L.i.ú.
- Rafn Gíslason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Samtök Fullveldissinna
- Vaktin
- Arnar Guðmundsson
- Lárus Baldursson
- Sveinn Elías Hansson
- Þórarinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Berglind Steinsdóttir
- Bjarney Vigdís Ingimundardóttir
- BJÖRK
- Björn Emilsson
- Dagný
- Dominus Sanctus.
- Friðgeir Sveinsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Pálsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Högni Snær Hauksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jón Þórhallsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Ingólfsson
- Stefán Júlíusson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sveinn Björnsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Úrsúla Jünemann
- Valdimar H Jóhannesson
Tenglar
Mínir tenglar
- Losnað við pestina Þetta hefur reynst mér vel við að losna við allar pestir þá 5 mánuði sem ég hef reynt immiflexið
- Ginseng Hér fæ ég kraftinn
- Frjálslyndi flokkurinn Vill breyta kvótakerfinu
- Ungmennasamband Skagafjarðar Ég er formaður
- Hér kaupi ég tölvudótið Ódýrt og gott
Sjávarútvegsmál
- Hafró Stofnunin þar sem ákveðið er hversu mikið má veiða
- Landssamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ
- Landssamband smábátaeigenda LS
- Jörgen Niclasen Formaður Fólkaflokksins í Færeyjum
- Helgi Áss Grétarsson Sérfræðingur í HÍ á vegum LÍÚ
Fréttamiðlar
- Al Jazeera Gefur Bandaríkjamönnum engin grið
- BBC BBC
- Börsen Dönsk fjármálasíða
- Seðlabankinn Musteri Davíðs
Nýjustu athugasemdir
- Sjálfstæðisflokkurinn er í miklum vanda: Sæll Sigurjón. Er það rétt, hefur Flokkur fólksins ekki haldið ... 30.12.2024
- Birtir yfir stjórnmálunum: Komið þið sælir; á ný ! Jóhann Stýrmaður ! Segjum tveir:: jeg s... 24.12.2024
- Birtir yfir stjórnmálunum: Því miður "bresta krosstré sem önnur tré". Fréttir voru að be... 24.12.2024
- Birtir yfir stjórnmálunum: . . . . rjett í þessu; greinir frjettastofa Ríkisútvarpsins frá... 22.12.2024
- Birtir yfir stjórnmálunum: Jæja... Það á að herja á fiskeldi, bæði á landi og sjó, þó með ... 22.12.2024
- Birtir yfir stjórnmálunum: Sæll Sigurjón æfinlega; og til heilla, með kjör þitt þann 30. X... 22.12.2024
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.12.): 652
- Sl. sólarhring: 655
- Sl. viku: 784
- Frá upphafi: 1015934
Annað
- Innlit í dag: 597
- Innlit sl. viku: 707
- Gestir í dag: 579
- IP-tölur í dag: 576
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Apríl 2023
- Október 2022
- Október 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Janúar 2019
- Apríl 2018
- Desember 2017
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- Nóvember 2014
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Af mbl.is
Erlent
- Trump lýsir yfir stuðningi við Johnson
- Fundað um öryggisbresti vegna árásinnar
- Einn látinn og þrír á sjúkrahúsi
- Íslenskur læknir: Hrikalegt að þetta sé hægt
- Lögðu hald á sjö tonn af kókaíni
- Sættir í stóra gallabuxnamálinu
- Frost og snjór í austurhluta Bandaríkjanna og Evrópu
- Felldi 20 palestínska vígamenn í stórri aðgerð
- Vandamál með lendingarbúnað í annarri flugvél
- Þjóðarleiðtogar minnast Jimmys Carters
Fólk
- Fimm ákærðir vegna andláts Liam Payne
- Stal senunni klæddur upp eins og Buddy
- Linda Lavin látin
- Eiginkona Bruce Willis deildi einlægri færslu
- Harðákveðinn í að setjast ekki í helgan stein
- Retro Stefson troðfyllti Hlíðarenda
- Geir Ólafs bregður á leik í færeyskri auglýsingu
- Manneskjan rennur í gegnum mig
Athugasemdir
nokkuð mikið til í þessu. Samfylkingin þarf að hysja upp um sig brækurnar.. ég hef orðið illkilega svekktur yfir sinnuleysi þeirra og undirlægjuhátt við sjálftektarflokkinn.. allt fyrir stólana !
Óskar Þorkelsson, 24.4.2008 kl. 13:20
Rétt hjá þér Sigurjón,það eru stjórnvöld sem hafa brugðist hinum venjulega launamanni í þessu landi.Skömm Samfylkinguna er stærst vegna þess hún er að bregðast stórum hluta sinna kjósenda .Flokkurinn er sem fyrr trúr sínum gæðingum og skildi það ekki koma nokkrum á óvart en að Ingibjörg Sólrún og Samfylkingin skildu hlaupa undir bagga með Flokknum eru svik við kjósendur Samfylkinguna af verstu sort og því er núna reiði í fólki sem telur sig svikið af þeim sem það taldi sínir.
Jon Mag (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 14:22
Ekki ætla ég að fjölyrða um viðbrögð stjórnmálamanna við uppþotum vörubílstjóra. Aftur á móti tel ég bílstjóranna hafa slæman málstað og nota vondar aðferðir við að koma honum á framfæri.
Kröfur vörubílstjóra eru tvær. Annars vegar að fá að keyra dauðþreyttir og stórhættulegir um þjóðvegina. Hin er að álögur á eldsneyti verið lækkaðar. Á Íslandi er eldsneytisverð og álögur á eldsneyti með því lægsta sem gerist. Það er mikil nauðsyn að draga úr eldsneytisnotkun. Það rétta væri að taka annað hvort upp sérstakann umhverfisskatt á eldsneyti eða að krefjast þess að keyptur losunarkvóti fylgdi allri sölu á eldsneyti.
Aðferðir vörubílstjóra eru einfaldlega þær að trufla og skemma fyrir samborgurum sínum. Það væri nær að Sturla læsi ljóð.
Og til hvers er þetta? Bílstjórarnir böðlast áfram bara til að græða meira. Til að geta keypt stærri flatsjá og stærri dekk undir jeppann. Ég hef litla samúð með þeirra málstað og aðferðum.
Hinni (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 16:40
Heill og sæll; jafnan, Sigurjón og aðrir skrifarar !
Þetta er kjarni málsins; Sigurjón, eins og varst vís með, að benda svo rækilega á. Nafni minn; Óskar Þorkelsson, segir einuigis, ''mikið til í þessu'', en,, af einhverjum furðulegum ástæðum, segir hann ekki skilið, enn, við Aumingjafylkinguna (''Samfylkinguna''.
Einhver tryggð, einhver hollusta, sem við hin fáum ekki séð, að réttlæti fylgispekt nafna, við þennan óþverra.
Sem fyrr, beztu þakkir enn, Sigurjón minn.
Með beztu kveðjum, sem oftar / Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 17:39
:).. ég er næstum því farinn Nafni en vegna skorts á öðru betra hef ég staldrað við um sinn..
Óskar Þorkelsson, 24.4.2008 kl. 19:53
"Kröfur vörubílstjóra eru tvær. Annars vegar að fá að keyra dauðþreyttir og stórhættulegir um þjóðvegina." Þetta meðal annars segir Hinni í sinni athugasemd. Hvað réttlætir að þessi sami Hinni megi keyra eftir þess vegna 24 stunda vinnu hvert og hvað lengi sem honum sýnist? Síðan segir þessi Hinni "Á Íslandi er eldsneytisverð og álögur á eldsneyti með því lægsta sem gerist." Jahá svona eru rökin, en vil þessi Hinni ekki þá í leiðinni bera saman samgöngukerfin í löndunum í kringum okkur og útskýra í leiðinni hvernig þær eru. Einnig má til gamans geta þess að í löndunum sem við berum okkur saman við þá eru þessi lönd með heilu herina sem þau reka, einnig flug og þyrlu björgunarsveitir og strandgæslu sem eru margfalt öflugri en við höfum.
Hallgrímur Guðmundsson, 24.4.2008 kl. 22:39
kæri Sigurjón:Hvernig mundir þú leysa þetta mál?Væri ekki nær að við gerðum öryrkjum og ellilífeyrisþegum lífið örlítið léttara.Þeir lepja dauðan úr skel meðan við hin sem erum að drepast úr sjálfelsku erum að berja mann og annan fyrir hvað?Það kom mér ekki á óvart að stjórnmálamenn kæmu fram eins og frelsandi englar og hefðu svo gríðarlegan skilning á reiði bílstjóra.Hvílík hræsni.það er nokkuð ljóst að sami rassinn er undir ykkur öllum!Gleymum bara þeim sem minnimáttar eru,húsnæðislausir,matarlausir,jafnvel klæðalausir.JÁJÁ við hin sem höfum það svo gott eigum hús,bíla,fjórhjól,og fleira verðum að fá bensínlækkun.Sjáðu bara:Hefur fólk kyrrsett bíla sína og notað þess í stað strætó?Ónei.Skrítin er hún orðin forgangsröðin í þessu landi okkar.Við ættum að skammast okkar.Það er verið að væla um að bil milli ríkra og þá sem ekki eiga nóg af peningum(en vildu eiga meira)sé orðið svo mikið.EINMITT:En það er allt í lagi að bilið milli þeirra sem ekkert eiga og þeirra sem eiga þó eitthvað sé meira.Þvílík hræsni sem orðin er hjá einni þjóð!!
Himmalingur, 24.4.2008 kl. 23:26
Tókstu eftir hvatningarhrópum vörubílstjóranna sem voru staddir á planinu til árásarmannsins í upphafi árásarinnar? Það mætti endurtaka sýningu upptökunnar og hafa hljóðið þá aðeins hærra! Ég mana sjónvarpsstöðina sem á myndbandið að gera það.
Ætli að Lára Ómarsdóttir hjá Stöð 2 hafi átt einhvern þátt í árásinni og hvatningarhrópunum? Neeeei. Hún segir að hún hafi bara verið að grínast varðandi eggjakastið. Það gerir jú fólk í þessari stöðu á svona stundum. Kannski er hún bara að "segja satt" eins og Sturla þegar hún ber þetta af sér? Þar hafið góðan stuðningsmann.
Sigurbjörn Friðriksson, 25.4.2008 kl. 00:59
Þú veist betur Sigurjón. Í raun lækkar olíugjald á næstu árum sbr. vegaáætlun.
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 11:40
Já ég held að Samfylkingin sé að sýna hvers konar rekahald þessi flokkur er, stefnulaus tækifærissinnaður og vanbúin til stjórnarsetu. Einnig veldur mér áhyggjum hversu takmarkalaus persónulegur metnaður Ingibjargar Sólrúnar er og hann á eftir að verða skattgreiðendum þungbær.
ragnar bergsson, 25.4.2008 kl. 11:43
Þegar þessi mál eru skoðuð þá má ljóst vera að það voru mikil mistök fjármálaráðherra og samgönguráðherra að hafa ekki boðið talsmönnum mótmælanda á sinn fund til að fara yfir stöðu mála yfir kaffi og góðu meðlæti. Alltaf er slæmt þegar menn geta ekki talað sig saman, hlustað á sjónarmið annarra og leggja e-ð til málanna sem leyst gæti óánægjuna.
En ráðamenn á Íslandi í dag eru því miður alltof uppteknir af að reyna að leysa helst öll vandræði heimsbyggðarinnar en nota aðferð strútsins hér heima: að aðhafast ekkert fyrr en allt er komið í óefni.
Þessi mótmæli voru auðvitað óvenju hörkuleg og því var ástæðan meiri að ráðamenn stigu stundarkorn ofan úr fílabeinsturninum og ljá máls á að ræða við mótmælendur. En kannski það hafi ekki verið unnt á neinum friðsemdarnótum en viðleitni hefði verið betra en þessi ósköp sem dundu yfir síðasta vetrardag.
Sennilega hefði mátt nota annað en piparúða á mótmælendur. Þeirri aðferð á einungis að beita í sjálfsvörn en ekki til „árásar“. Hyggilegra hefði verið að hafa slökkvibíl með háþrýstidælu en fara þarf mjög varlega í að beita slíkri aðferð því lífshættulegt kann að vera fyrir hendi ef slíkri sprautu er beint af fullum krafti. Saklaust hefði verið að senda eina smágusu upp í loftið þó ekki væri nema til að kæla menn örlítið niður og til aðvörunar! Lögreglan hefur heilmikið vald sem allir eiga að taka tillit til en auðvitað er valdið alltaf vandmeðfarið og því á aldrei að beita nema með mjög mikilli varkárni.
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 25.4.2008 kl. 11:57
Sæll Sigurjón!
Þú segir að fulltrúar ríkistjórnarinnar hafi ekki rætt við bílstjóra og sýni ekkert annað en belging og sinnuleysi. Ég var búinn að heyra í fréttum að fjármálaráðherra og samgönguráðherra áttu oftar en einu sinni fundi með bílstjórum. Það voru sem sagt rangar fréttir?
Sturla Jónsson hefur tjáð sig um þessa fundi of sagt að þeir hefðu verið tilgangslausir. Af hverju hann sagði það veit ég ekki. Hins vegar benda þessi orða hans til að viðræður hafi farið fram, ekki satt?
Ég las af því frétt að samgönguráðuneytið er að undirbúa breytingu á ákvæðum um hvíldartíma bílstjóra. Er það ekki til að bregðast við málflutningi atvinnubílstjóra?
Kæri Sigurjón.
Það er ágætt hjá þér að tjá þig um þessi mál, en ég held að ofsagt sé að Samfylkinga hafi æst til uppreisnar.
Ég held líka að það sé ósatt að stjórnvöld vilji ekki ræða við þessa menn eða gera neitt. Þessi óvandaði málflutningur þinn er þér alls ekki samboðinn. Þú ert alltof klár og réttsýnn maður til þess.
Orðfæri stjórnmálamanna þarf að vera málefnalegt og vandað og þetta mál er svo viðkvæmt að það er enn mikilvægara að menn gæti hófs í málflutningi.
Mér finnast þessi átök sorgleg og tel að ekki sé sanngjarnt að halda fram að Samfylking sé að æsa til uppreisnar.
Mér brá líka er ég las hatursbréf til dómsmálaráðherra. sem birt hafa verið á netinu. Slík bréf eru túlega sprottin af hinni hörðu gagnrýni sem ýmsir aðilar hafa beint að þeim manni.
Þess vegna held ég að við ættum að hugleiða það að sleggjudómar og upphrópanir okkar geta leitt til slæmra hluta.
Jón Halldór Guðmundsson, 25.4.2008 kl. 12:24
Ægir og Jón Halldór ef að farið í gegnum þingræður Ingibjargar Sólrúnar og Kristjáns Möllers auk margra viðtala við Kristján þá ætti að vera fullljóst að Samfylkingin gaf fyrirheit um lækkun olíuverðs auk þess að taka á ýmsum umkvörtunum bílstjóranna.
Það er lítið vit í því fyrir Samfylkinguna að sýna bílstjórunum ekki meiri sveigjanleika og vilja til alvöru viðræðna og ætla síðan út til Palestínu til að greiða úr heldur stærri málum. Bílstjórarnir hafa haldið því fram að lítil meining hafi verið í viðræðum og þær hafi verið beint tilgangslausu hjali fyrir 3 árum.
Inn í þetta mál blandast auðvitað að bílstjórarnir sem og almenningur allur er að fara illa út úr efnahagsástandinu og mörgum finnst sem að ríkisstjórnin sé í furðulegum leiðöngrum út um allan heim s.s. að redda herþotum frá Danmörku, Noregi, Frakklandi Kanada og Bretlandi til þess að fljúga yfir landið en þetta er eflaust stefna Ingibjargar Sólrúnar sem að sannir og heilir flokksmenn munu verja fram í rauðan dauðann þó svo að þeir hinir sömu hafi rölt nokkrar Keflavíkurgöngur.
Sigurjón Þórðarson, 26.4.2008 kl. 08:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.