Leita í fréttum mbl.is

Sjálfstæðisflokkurinn er í miklum vanda

Bjarni Ben er fyrrverandi ráðherrann sem gaf út fyrir örfáum vikum síðan, hátt í 4 þús tonna veiðiheimildir til stórútgerðarinnar í fisktegund sem Hafró, hafði lagt til friðun á, þ.e. djúpkarfanum.
 
Sá sami Bjarni sér nú alla meinbugi á því að leyfa örlítið frelsi til strandveiða þrátt fyrir að það sé ekki nokkur lifandi leið að ofveiða fiskistofna með handfæraveiðum og að 72% þjóðarinnar styðji frelsið.
Bjarni stendur gegn keikur gegn einstaklingsfrelsinu og fyrir einokun þeirra stóru. 
 
Flest ef ekki allt bendir til þess að ráðamenn þjóðarinnar ættu miklu frekar að hvetja til aukinnar veiði á þorski en að letja sjómenn. Ekki þarf að líta til annars að fyrir 100 árum síðan eða árið 1924, þá var þorskveðin liðlega 50% meiri en hún er í ár.  Hafa ber í huga að í þá daga voru hvorki löggiltar vigtar í hverri höfn né njósnadrónar í háloftunum. 
Það væri a.m.k. einnar messu virði fyrir Sjálfstæðismenn og jafnvel fleiri að fara yfir forsendur þeirra atvinnuhafta sem þeir vilja halda áfram að beita sjávarbyggðirnar.
 

mbl.is Kerfi sem mun éta sig upp að innan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Sigurjón. Er það rétt, hefur Flokkur fólksins ekki haldið landsfund síðan 2019? Hafa engar kosningar átt sér stað í flokknum síðan þá, s.s. formann, ritara, gjaldkera? Hvað með samþykkta reikninga? Ef þetta er satt og rétt, má svona lagað?

Helga Dögg Sverrisdóttir (IP-tala skráð) 30.12.2024 kl. 11:11

2 identicon

Sæll á ný; Sigurjón - sem og þið nafna, bæði !

Ágætar upprifjanir af þinni hálfu Sigurjón; sem og áhugaverðar fyrirspurnir Helgu Daggar, ekki síður.

Eins; og jeg gat um á dögunum, krafði jeg Eyjólf Ármannsson

skýrra svara varðandi bókunar fjandan nr. 35, síðdegis.

Því miður; sló Eyjólfur úr og í / kom inn á EFTA paragröff og hvað eina, sem ætti að rjettlæta meðferð íslenzka þingsins varðandi það mál - jeg benti Eyjólfi á löngu tímabær samskipti Íslands við Mið og Suður- Ameríkuríkin, ekki síður en Mið- Asíuríkið Kazakhstan, ekki síður,t.d.

Það var eins; og Eyjólfur væri, nú þegar hnnepptur í einskonar spennitreyju Evrópusambandsins (eins: og væri að nefna snöru í hengds manns húsi, þá jeg nefndi uppsögn EES samningsins, eða tímabæra endurskoðun hans) hann vísaði til málamiðlananna við hina stjórnarflokkana, hresstizt þó, þá jeg nefndi andstöðu Einars Þveræings Eyjólfssonar á sínum tíma, þá Ólafur II. Haraldsson Noregskonungur (1015 - 1028) ágirntizt Grímsey, forðum.

Má segja; að Eyjólfur sje í einskonar sjálheldu innan stjórnarinnar, unz honum tækizt mögulega, að hrista af sjer slenið varðandi bókunar fjandann, ásamt öðru því, sem að yfirgengilegri heimtufrekju Brussel - Berlínar öxulsins lítur.

Með beztu kveðjum; sem endranær, af Suðurlandi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 30.12.2024 kl. 20:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband