Leita í fréttum mbl.is

Hálfkák og hókus pókus barnamálaráðherra

Stefna hlýtur að felast í því að stjórnvöld séu með skýra áætlun, en fréttir af Menntaþingi bera með sér að svo sé alls ekki.
Það lítur verulega illa út hjá barnamálaráðherra að vera með 20 ómótaðar aðgerðir um hvert eigi að fara og hvernig á að nálgast óljóst markmið.
Ekki er það gert með einhverju samtali um allt og ekkert og hvað þá með ófullmótuðum gagnagrunninum Frigg sem verður lítið annað fyrsta kastið en samantekt á nemendaskrám fyrir megnið af skólum landsins.
 
Vissulega hefur ráðherra lagt niður eina stofnun Menntamálastofnun og búið til aðra með langa nafninu Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Að sögn ráðherra er betra andrúmsloft á þeirri með langa nafninu en það er ekki hægt að búast við aukinni; samhæfni, skilvirkni og betri yfirsýnar, aðeins vegna þess að stofnunin er ný. 
Sérstaklega á það við nú þegar ekki virðist vera óljóst um hvert skuli stefna og sá grunnur sem átti að tryggja hókus pókus árangur inn í skólastofunni er enn  á frumstigi.
         
 

mbl.is Tíu mánaða bið, tuttugu „aðgerðir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Því fyrr sem þessi ráðherra kemst frá völdum því betra. Hefur sýnt sig í gegnum ráðherratíð hans að hæfni hans er ekki í takt við verkefnið sem hann tók að sér. Menntamálin eru ekki í góðum farvegi, alveg sama frá hvaða sjónarhorni það er skoðað.

Þetta er ráðherrann sem lætur mannréttindi barna, sem kæra sig ekki um trans-málaflokkinn og þeim fer fjölgandi, eru þvinguð í fræðslu um efnið. Líka þau börn hvar foreldrar hafa frábeðið sig slíku. 

Ráðherra sem leyfir skólastofnunum að ljúga að börnum um að kynin séu fleiri en tvö, að menn geti skipt um kyn og að heilbrigðisstarfsfólk og foreldrar geti sér til um kyn barns við fæðingu er kominn á ,,woke" vagninn. 

Helga Dögg Sverrisdóttir (IP-tala skráð) 3.10.2024 kl. 10:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband