Leita í fréttum mbl.is

Dauðarefsing Pírata

Flokkur fólksins lagði fram frumvarp í síðustu viku sem felur í sér að heimilt verði að vísa hættulegum glæpamönnum úr landi þó svo þeir hafi fengið hér stöðu flóttamanns. Þingmaður Pírata fann það út í umræðunni með langsóttum og ógeðfelldum hætti að með því væri Flokkur fólksins að leggja til dauðarefsingu. Hún Arndís Anna margtuggði vitleysuna svo oft að hún virtist vera farin að trúa áburðinum. Auðvitað snýst málið um hag Íslands og Íslendinga  þannig að hægt sé vísa m.a. barnaníðingum úr landi.

Það er ótrúlegt að þetta ákvæði sé ekki nú þegar í lögum en Inga Sæland lagði breytinguna til sl. vor en þá guggnuðu ríkisstjórnarflokkarnir á að samþykkja málið. Í stað þess að segja þjóðinni satt um hver hindrunin væri fyrir þessu þjóðþrifamáli þá settu sumir Sjálfstæðismenn á einhvern kjaftavaðal um að óljós lagatækni stæði í veginum.

Eins og fyrr segir þá var frumvarpið lagt að nýju fram í síðustu viku, enda bólar ekkert á frumvarpi sem dómsmálaráðherra boðaði að ætti að koma sama efnis á haustþingi. Skýringin á biðinni kom fram í viðtali við tilvonandi formann Vg, Svandísi Svavars en hún greindi frá því að hún hefði bannað Sjálfstæðisflokknum að koma fram með frekari frumvörp um útlendingamál.

Það er alveg kristaltært að Vg er í harðri samkeppni við bæði Sósíalista og sérstaklega Pírata um atkvæði þeirra sem vilja leggja niður landamærin og hleypa öllum sem hingað reka á fjörur landsins hæli með tilheyrandi útgjöldum. 

Baráttan er hörð um þessi fáu atkvæði þar sem hluti þingmanna Samfylkingarinnar virðast einnig hafa blandað sér nýlega með krafti í baráttuna.

Okkur í Flokki fólksins teljum rétt að senda þá með hraði úr landi sem hafa misnotað gestrisni landsmanna m.a. barnaníðinga - Hvers vegna eru Píratar, Vg og fleiri á móti því? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Sigurjón; sem jafnan og áður !

Píratar; eru búnir að margsanna fyrir löngu, að þeir eru sams konar úrhrakslýður, og flest- allir liðsmenn svo kallaðs fjórflokks.

Þeir eru; af sama lágkúrulega meiði, og þessi lýður, sem með völdin fer í landinu í dag:: Arndís Anna, er svona ámóts skjóða og þær Guðrún Hafsteinsdóttir og KVIKU Kristrún Frostadóttir - marklausar með öllu, og láta sjer eiginlega hagsmuni samlanda sinna, í ljettu rúmi liggja.

Hver, er til dæmis munurinn, á loftslags skrjóðunum Birni Leví Gunnarssyni og Guðlaugi Þór Þórðarsyni, t.d. ?

Eða; Sigurði Inga Jóhannssyni og Guðmundi Inga Guðbrandssyni ?

Allt; sömu bjálfarnir, sem trúa á þráláta heimsku þeirra kjósenda, sem fylgt hafa þessu ruzlara liði - árin út og árin inn:: kjörtímabil eftir kjörtímabil !

Með beztu kveðjum; sem oftar og áður, af Suðurlandi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 30.9.2024 kl. 21:51

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Eru útlönd = opinn dauði ?

Guðmundur Ásgeirsson, 1.10.2024 kl. 00:55

3 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Óskar Helgi er alveg með þetta og engvu við það að bæta.

Góð spurning frá Guðmundi.

Sigurður Kristján Hjaltested, 1.10.2024 kl. 07:42

4 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Oft er nú Óskar Helgi Helgason réttsýnn en sjaldan eins og núna. 

Sigurður I B Guðmundsson, 1.10.2024 kl. 10:54

5 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Þetta er mjög furðuleg röksemdarfærsla hjá Pírötum og óneitanlega harðneskjuleg í garð íslensks samfélags. 

Sigurjón Þórðarson, 1.10.2024 kl. 15:23

6 identicon

Sælir; á ný !

Guðmundur.

Heimspekileg spurning; af þinni hálfu.

Sigurður Kristján og Sigurður I B.

Þakka ykkur; drengilegan stuðninginn - enda ekki sagt í neinum 1/2 kæringi, af minni hálfu.

Sigurjón.

Píaratar; eru einskonar V. herdeild niðuníðzlu og moldviðris, í íslenzku samfjelagi.

Eru einskis nýtir; til ALVÖRU þjóðþrifa verka.

Með beztu kveðjum; sem þeim fyrri /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 1.10.2024 kl. 20:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband