Leita í fréttum mbl.is

Formaður Framsóknar jaðarsetur Norðvestrið

Ég kom inn á þingið í dag sem varaþingmaður, en það sem ég rak augun fyrst í er að Sigurður Ingi virðist markvisst hafa jaðarsett þingmenn sína í  Norðvesturkjördæminu. 

Það er ljóst enginn af þingmönnum Framsóknar í Norðvesturkjördæminu gegnir ráðherraembætti eða formennsku í neinni nefnd og virðist vera sem oddvitinn í kjördæminu sá ágæti drengur Stefán Vagn hafi einhverra hluta verið lækkaður í tign og gerður að varaformanni í stað þess að gegna formennsku áður í fjárlaganefndinni.  

Ef farið er yfir nefndarskipan flokksins, þá blasir við að formaðurinn hafi farið nokkuð langt niður lista til þess að manna formennsku í nefndum með öðrum en þingmönnum í Nv kjördæminu m.a. er Þórarinn Ingi sóttur alla leið niður í þriðja sæti á lista Framsóknar í Norðaustkjördæminu.  Þórarinn er þekktastur fyrir að beita sér gegn því að kjötvinnslur lúti samkeppnislögum en það mun án nokkurs efa verða dýrt fyrir neytendur og bændur. 

Ekki hefur Sigurður Ingi látið það nægja að jaðarsetja þingmenn kjördæmisins heldur er augljóst að hann hafi misbeitt valdi sínu sem innviðaráðherra til þess að krækja í megnið af vegafé kjördæmisins og koma því annað. 

Svo rammt hefur kveðið að hnupli innviðaráðherrans fyrrverandi og núverandi fjármálaráðherra að einn af jaðarsettu þingmönnum Norðvesturkjördæmisins Lilja Rannveig steig í pontu Alþingis og bar upp kvörtun undan stöðu mála sem má fyrst og fremst rekja til formannsins.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband