Leita í fréttum mbl.is

Bjarni Ben og litli sveitarstjórnarmaðurinn á Þórshöfn

Æðsti prestur vitleysunnar í sjávarútvegi, Ragnar Árnason emerítus var látinn vera boðberi sannleikans á fundi SFS í dag, þar sem rekinn var harður áróður fyrir afnámi allra gjalda af SFS. Ragnar er sérfræðingurinn sem hélt því fram árið 2007 að hagkvæmast væri að hætta þorskveiðum í a.m.k. eitt ár til þess að fá enn meiri afla seinna. Hann hélt því fram í ljósi þess hve þjóðarbúið stæði vel. Málið er að kenningar Ragnars í fiskifræði hafa aldrei gengið upp og munu aldrei ganga upp og allir vita hvað þjóðarbúið stóð vel ári fyrir hrun eða hitt þá heldur.

Þrönga auðmannaklíkan í SFS kann sér ekki magamál en í gær fréttist af því að Ísfélagið væri að stilla brothættum sveitarfélögum upp við vegg og færi fram á að Langanesbyggð tæki þátt í byggingarkostnaði og fyrirspurn íbúa í Fjallabyggð á fundi á Ólafsfirði gaf til kynna að fyrirtækið hefði fengið sérstakan aflátt hjá Fjallabyggð af hafnargjöldum. Fyrirtæki SFS eru farin að sækja stíft í að komast yfir alla byggðakvóta m.a. samfélagsfyrirtækið FISK Seafood á Sauðárkróki.

Núverandi fyrirtæki sem eru ofan á nú í sjávarútvegi eru það ekki vegna þess að þeim sé stjórnað betur en öðrum fyrirtækjum eða að í þau hafi valist rjóminn af stjórnendum þjóðarinnar sem hafa getað gert eitthvað sem aðrir kunna ekki. Ástæðan er einfaldlega sú að þau hafa einokun á því að nýta sjávarauðlindina og geta nálgast hráefnið langt undir markaðsvirði. Þetta veit Bjarni Benediktsson forætisráðherra mætavel en þegar á hólminn er komið þá stendur hann ekki með þjóðinni en mögulega metur hann stöðu sína rétt eins og litli sveitarstjórnarmaðurinn á Þórshöfn þ.e. að hann treystir sér ekki í þá stóru?

Ef Bjarni væri að hugsa um almannahag þá tæki hann á því að stóru sjávarútvegsfyrirtækin komist upp með að verðleggja hráefnið langt undir raunvirði og þar að auki að þau hafi sjálfdæmi um að endurvigta aflann. 

Þjóðin fengi mun meira í sinn hlut ef lögð yrðu niður öll auðlindagjöld og í stað þess yrði komið á eðlilegri verðmyndun og vigtun aflans. 

Fiskurinn færi þá til vinnslu til þeirra sem gætu greitt hæsta verðið og það myndi skrúfa fyrir streymi fjármuna í skattaskjól. 

Það er engin vestræn þjóð sem sættir sig sambærilegt ástand og ríkir hér á Íslandi hvað varðar helstu útflutningsgrein landsmanna sem byggir þar að auki á sameiginlegri náttúruauðlind þjóðarinnar.

Það gerir ekki heldur Namibía.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Það er víst afar kalt fyrir norðan þessa dagana og þá skreppur lífræðilingurinn víst mjög saman, og minnimáttarkenndin stjórnar ferðinni. 

Sigurður Þorsteinsson, 11.9.2024 kl. 10:11

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það var yndislegt veður á Hofsósi í gærkvöldi og sólarlagið draumkennt. það er óþarfi að hafa miklar áhyggjur af okkur Norðlendingum en takk samt.  

Sigurjón Þórðarson, 11.9.2024 kl. 14:26

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sjö og nítján?
Nota HTML-ham

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband