29.7.2024 | 17:33
Tekur dómsmálaráðherra þátt í þögguninni?
Það var verulega vond ákvörðun hjá ríkissaksóknara Sigríði Friðjónsdóttur að hlaupa á eftir kröfu Semu Erlu og Solaris og fara fram á það við dómsmálaráðherra að vararíkissaksóknari Helgi Magnús Gunnarsson verði leystur tímabundið frá störfum. Dómsmálaráðherra á auðvitað ekki að verða við þeirri ósk heldur ætti ráðherrann að standa með Helga Magnúsi og fleiri landsmönnum sem hafa legið um árabil undir ofsóknum Sýrlendingsins M. Th. Jóhannessonar.
Ef ráðherra gerir það ekki er verið að senda út meðvirk skilaboð til lögreglumanna, blaðamanna og annarra opinberra starfsmanna um þöggun á nauðsynlegri og gagnrýnni umræðu um útlendingamál.
Málið er að Helgi Magnús sagði ekkert nema sannleikann um að það væri verið að flytja inn vondan kúltur sem væri frábrugðinn því sem Íslendingar mættu venjast. Staðreyndin er sú að glæpatíðni innflytjenda frá ákveðnum menningarheimum í nágrannaríkjunum m.a. á sviði alvarlegra kynferðisbrota er mun hærri en t.d. innfæddra Skandínava.
Það verður fróðlegt að sjá hvernig ráðherra bregst við þessari ósk, þar sem hún er ekki aðeins komin frá Solaris heldur studd af áhrifafólki með tengsl við Vg, en Oddur Ástráðarson hefur sakað Helga Magnús um hatursorðræðu.
Helgi verði leystur frá störfum tímabundið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:52 | Facebook
Bloggvinir
- Helga Þórðardóttir
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Jens Guð
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ásta Hafberg S.
- Jóhann Elíasson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Georg Eiður Arnarson
- Óskar Þorkelsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Hallur Magnússon
- Sigurður Þórðarson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Katrín
- Þarfagreinir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Frjálslyndi flokkurinn í Eyjafirði
- Hallgrímur Óli Helgason
- Jón Kristjánsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Kjartan Eggertsson
- Halla Rut
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- ragnar bergsson
- Bjarni Harðarson
- Rannveig Þorvaldsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Eiríkur Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- erlahlyns.blogspot.com
- Agný
- Guðjón Ólafsson
- Einar Ben
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Halldór Jónsson
- Elvar Atli Konráðsson
- Kristján H Theódórsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Helgi Már Barðason
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Víðir Benediktsson
- Valgerður Sigurðardóttir
- Jens Sigurjónsson
- Vestfirðir
- Sigurður Ásbjörnsson
- Jón Magnússon
- Viðar Friðgeirsson
- Axel Jóhannes Yngvason
- Svava S. Steinars
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Quackmore
- Árni "Gamli" Einarsson
- Haukur Már Helgason
- Þóra Guðmundsdóttir
- Heiða Þórðar
- Steingrímur Ólafsson
- Vefritid
- Ársæll Níelsson
- S. Einar Sigurðsson
- Rannveig H
- Gísli Gíslason
- Bjarni Kjartansson
- Steingrímur Helgason
- Fiðrildi
- Baldur Fjölnisson
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Linda Lea Bogadóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Hanna
- Sverrir Stormsker
- Ottó Marvin Gunnarsson
- gudni.is
- Einar Vignir Einarsson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Jóhann Kristjánsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- María Harðardóttir og Þorsteinn Narfason
- Grétar Rögnvarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Steinn Hafliðason
- Landssamband ungra frjálslyndra
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Þórir Aðalsteinsson
- Vilborg Traustadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Sævar Einarsson
- Ketilás
- Ómar Pétursson
- Eyþór Grétar Grétarsson
- FF
- Jón Þór Bjarnason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Róbert Tómasson
- Landvernd
- ThoR-E
- Haraldur Baldursson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- busblog.is
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Svanhildur Karlsdóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Árni Árnason
- Grétar Mar Jónsson
- Perla
- Ingunn Guðnadóttir
- Irma Þöll
- Skattborgari
- Gulli litli
- Jón Snæbjörnsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- kreppukallinn
- hreinsamviska
- Arinbjörn Kúld
- Orgar
- Guðjón Baldursson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Gunnar Björn Björnsson
- Haraldur Hansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Birna Steingrímsdóttir
- Gestur Guðjónsson
- Jónas Rafnar Ingason
- Stríða
- Götusmiðjan
- Brynja skordal
- Haraldur Bjarnason
- Guðmundur Óli Scheving
- Ásta
- Markús frá Djúpalæk
- Jörundur Garðarsson
- MIS
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Björn Júlíus Grímsson
- S Kristján Ingimarsson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Magnús Kristjánsson
- Bergur Sigurðsson
- Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Heimssýn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Óskar Arnórsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Árni Davíðsson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Árelíus Örn Þórðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- L.i.ú.
- Rafn Gíslason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Samtök Fullveldissinna
- Vaktin
- Arnar Guðmundsson
- Lárus Baldursson
- Sveinn Elías Hansson
- Þórarinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Berglind Steinsdóttir
- Bjarney Vigdís Ingimundardóttir
- BJÖRK
- Björn Emilsson
- Dagný
- Dominus Sanctus.
- Friðgeir Sveinsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Pálsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Högni Snær Hauksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jón Þórhallsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Ingólfsson
- Stefán Júlíusson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sveinn Björnsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Úrsúla Jünemann
- Valdimar H Jóhannesson
Tenglar
Mínir tenglar
- Losnað við pestina Þetta hefur reynst mér vel við að losna við allar pestir þá 5 mánuði sem ég hef reynt immiflexið
- Ginseng Hér fæ ég kraftinn
- Frjálslyndi flokkurinn Vill breyta kvótakerfinu
- Ungmennasamband Skagafjarðar Ég er formaður
- Hér kaupi ég tölvudótið Ódýrt og gott
Sjávarútvegsmál
- Hafró Stofnunin þar sem ákveðið er hversu mikið má veiða
- Landssamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ
- Landssamband smábátaeigenda LS
- Jörgen Niclasen Formaður Fólkaflokksins í Færeyjum
- Helgi Áss Grétarsson Sérfræðingur í HÍ á vegum LÍÚ
Fréttamiðlar
- Al Jazeera Gefur Bandaríkjamönnum engin grið
- BBC BBC
- Börsen Dönsk fjármálasíða
- Seðlabankinn Musteri Davíðs
Nýjustu athugasemdir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.12.): 7
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 115
- Frá upphafi: 1014245
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 61
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Apríl 2023
- Október 2022
- Október 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Janúar 2019
- Apríl 2018
- Desember 2017
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- Nóvember 2014
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Af mbl.is
Viðskipti
- Hverjir eru fjárfestar?
- Verðbólguspá næstu mánaða hefur hækkað
- Markmið að vera fjárfestingarhæft
- Afgangur á viðskiptajöfnuði 45,7 milljarðar
- Skel hlýtur viðskiptaverðlaun
- Hagstofan og gervigreindin
- Heimilin vel í stakk búin
- Kaldbakur kaupir fyrir 400 milljónir í Högum
- Helmingur erlendrar netverslunar kemur frá Eistlandi
- Samræming hönnunargagna
Athugasemdir
Þakka þér fyrir góða færslu Sigurjón. Það er alveg ljóst, að verði dómsmálaráðherra við ósk ríkissaksóknara um að víkja Helga Magnúsi Gunnarssyni úr starfi sínu tímabundið, þá er verið að senda þau skilaboð til ofstopaliðsins m.a. Semu Erlu og félaga að þeim sé allt heimilt. Sema Erla hefur um árabil staðið í því að ófrægja fólk, sem vill takmarka flæði ólöglegra innflytjenda til landsins. Það yrðu heldur betur skilaboð til þeirra sem hafa mátt þola illmælgi og róg Semu Erlu og félaga ef dómsmálaráðherra tekur þátt í þögguninni í stað þess að bera sannleikanum vitni.
Helgi Magnús hefur ekki sagt neitt nema satt.
Jón Magnússon, 29.7.2024 kl. 18:15
"Mikill hiti var í Sigurjóni Þórðarsyni þegar hann sást nær nakinn ganga í humátt eftir unglingsstúlkum sem hlupu frá honum þegar hann nálgaðist. Gremja hans var auðséð og ómögulegt að sjá upp á hverju hann tæki næst." eða "Sigurjón Þórðarson steig loks upp úr heita pottinum og gekk að lauginni en gramdist að hann náði ekki sinni uppáhalds braut vegna unglingsstúlkna sem náðu henni á undan honum. Nú þurfti hann að ákveða hvaða aðra braut hann ætti að nota"
Lýsingarnar eru af sama atburðinum og báðar jafn sannar. Sannleikan má segja á marga vegu. Helgi Magnús kaus að nota sömu aðferð og notuð er við fyrri lýsinguna. Sannleikurinn gefur ekkert endilega rétta mynd. Án þess að ljúga nokkru er hægt að rústa mannorði frómustu manna eða sverta hópa sem ekkert hafa til þess unnið.
Að lokum, "Ég er bara að segja satt" og "þetta er tilraun til þöggunar" eru stöðluð svör í miklu uppáhaldi hjá rasistum þegar þess er krafist að þeir beri ábyrgð á orðum sínum.
Vagn (IP-tala skráð) 29.7.2024 kl. 21:38
Hafa "SOLARIS-hjálparsamtök fyrir hælisleitendur" sem starfa að eigin sögn til almannaheila við fólksflutninga yfir landamæri, uppfyllt skráningarskyldu sína sem slík?
119/2019: Lög um skráningarskyldu félaga til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri
1. gr. Gildissvið.
Lög þessi gilda um félög til almannaheilla sem stofnað er til eða starfrækt eru í þeim tilgangi að safna eða útdeila fjármunum í almannaþágu og eru með starfsemi yfir landamæri.
Skylt er að skrá félag skv. 1. mgr. í almannaheillafélagaskrá sem ríkisskattstjóri starfrækir.
SOLARIS-hjálparsamtök f. hælisl (6002170380)
Rekstrarform: Félagasamtök
Og hvar er ársreikningurinn birtur skv. 10 gr. laganna?
Guðmundur Ásgeirsson, 29.7.2024 kl. 22:19
Guðmundur, einmitt það væri fróðlegt að fá nánari upplýsingar um félagið.
Sigurjón Þórðarson, 29.7.2024 kl. 22:42
Það sem ég er að reyna að vekja athygli á er að þessi ákveðnu samtök virðast einfaldlega vera ólögleg.
Guðmundur Ásgeirsson, 29.7.2024 kl. 22:55
Verður meintur brotamaður sjálfkrafa saklaus ef annar meintur brotamaður kærir?
Vagn (IP-tala skráð) 29.7.2024 kl. 23:38
Vagn. Nei alls ekki, en jafnt skal ganga yfir alla.
Er ólöglegt að vekja athygli á ólöglegri starfsemi?
Guðmundur Ásgeirsson, 30.7.2024 kl. 00:11
Ahmad Mansour er palestínskur sálfræðingur sem býr í Þýskalandi, hann þekkir vel til málefna innflytjenda af sínu þjóðerni og hefur látið skoðanir sínar í ljós. Hann heldur því fram að "góða fólkið" séu rasistar sem líti í raun og veru niður á þetta fólk, sjái það fyrir sér sem einskonar "koddabangsa" sem stöðugt þurfi að kjassa. Það þarf varla að taka fram að Ahmad Mansour og fjölskyldu hans hafa borist margar líflátshótanir og verður hún að njóta lögregluverndar.
Hördur Thormar (IP-tala skráð) 30.7.2024 kl. 00:30
Solaris voru skráð 10.01.2017 samkvæmt skatturinn.is. Og hafa ekki skilað ársreikningi. En það virðist eiga við fleiri:
Guðmundur, hvað á svo að gera við þessari ólöglegu starfsemi Solaris, Flokks fólksins og Hagsmunasamtaka heimilanna?
Vagn (IP-tala skráð) 30.7.2024 kl. 01:43
Halldór Þormar, ég get tekið undir það með sálfræðingnum að það séu ákveðnir fordómar hjá "góða fólkinu" að halda það að fólk sem kemur frá öðrum menningarheimum þar sem umburðarlyndi er lítið gagnvart öðrum trúarbrögðum og ólík viðhorf til kynjanna,að það varpi þeim viðhorfum frá sér bara við það eitt að stíga fæti á Keflavíkurflugvelli.
Sigurjón Þórðarson, 30.7.2024 kl. 13:04
Hér er þáttur sem fjallar um Ahmad Mansour. Þátturinn er á þýsku en með enskum texta. Extremismusforscher Ahmad Mansour: Gegen den Hass | Israel und Palästina | BR Story | BR
Hördur Thormar (IP-tala skráð) 30.7.2024 kl. 13:21
Vagn.
Þarna þekki ég þig. Ekki í fyrsta skipti sem þú berð fyrir þig rangtúlkunum til að halda einhverju fram sem enginn fótur er fyrir. Hvort þú gerir það vísvitandi eða af vanþekkingu skal ósagt látið a.m.k. í þessu tilviki. Ég skal því nota tækifærið til að leiðrétta þessa rangtúlkun og fræða þig í leiðinni.
Keldan sem þú vísar til er einkafyrirtæki og hefur sem slíkt ekkert opinbert hlutverk í eftirliti með því hvort að félög uppfylli lagaskyldur sínar. Gögn um ársreikninga sem þar eru birt eru fengin úr ársreikningaskrá Skattsins. Hvorki stjórnmálasamtökum né almennum félagasamtökum ber skylda til að skila ársreikningum þangað. Sú skylda nær aðeins til hlutafélaga og sambærilegra lögaðila sem stunda atvinnrekstur.
Stjórnmálasamtök
Samkvæmt 9. gr. laga um fjármál stjórnmálasamtaka ber slíkum samtökum að skila ársreikningum til ríkisendurskoðanda, sem birtir þá eins fljótt og auðið er. Sjá hér:
Ríkisendurskoðun - Ársreikningar stjórnmálasamtaka
Ef þú skoðar listann finnur þú þar ársreikninga allra helstu stjórnmálasamtaka, þar á meðal þeirra sem þú nefndir. Þar með er sú lagaskylda uppfyllt og ekkert ólöglegt á ferðinni.
Félög til almannaheilla
Hagsmunasamtök heimilanna eru skráð hjá fyrirtækjaskrá Skattsins sem félag til almannaheilla. Þar sem þau samtök eru aðeins með starfsemi innanlands er slík skráning valkvæð en ekki skylda eins og í tilviki slíkra félaga með starfsemi yfir landamæri. Skráning Hagsmunasamtaka heimilanna sem félags til almannaheilla er því ekki aðeins lögleg heldur umfram skyldu. Samtökin uppfylla öll skilyrði laga um félög til almannaheilla nr. 110/2021 og eru vottuð sem slík af fyrirtækjaskrá Skattsins.
Hér geturðu séð skráningu Hagsmunasamtaka heimilanna á vef fyrirtækjaskrár: Hagsmunasamtök heimilanna (5202092120)
Athugaðu að þar segir að Rekstrarform sé Almannaheillafélag
Samkvæmt lögum um félög til almannaheilla er slíkum samtökum skylt að halda bókhald og semja ársreikning í samræmi við lög um bókhald. Eigi síðar en mánuði eftir samþykkt ársreiknings skal birta hann á vef félagsins eða opinberlega með sambærilegum hætti. Það hafa Hagsmunasamtök heimilanna alltaf gert með því að birta ítarlea ársskýrslu sem inniheldur ársreikning, á vef félagsins fyrir árlegan aðalfund. Reyndar hafa þau alltaf gert það, mörgum árum lengur en lög um félög til almannaheilla hafa verið í gildi og áður en samtökin voru skráð sem slík. Þannig hafa þau ekki aðeins uppfyllt lagaskyldur sínar í þeim efnum árum saman heldur gengið lengra í því en að lágmarki hefur verið skylt. Það hafa þau gert til að sýna ábyrgð og gegnsæi enda er öll starfsemi þeirra fyrir opnum tjöldum. Þess vegna þurftu samtökin ekki heldur að breyta neinum starfsháttum sínum þegar þau skráðu sig sem félag til almannaheilla því þau uppfylltu þá þegar öll skilyrði laganna. Þar er því ekkert ólöglegt á ferðinni heldur þvert á móti gengið lengra í vönduðum starfsháttum en skylt er.
Félög til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri
Ólíkt félögum til almannaheilla sem starfa aðeins innanlands, er slíkum samtökum sem starfa yfir landamæri ekki frjálst heldur skylt að skrá sig sem slík. Þeim er að sama skapi skylt að birta ársreikning á sama hátt og að ofan greinir og sú skylda er óháð því hvort þau hafa uppfyllt skráningarskyldu eða aðrar skyldur sínar samkvæmt lögum um skráningarskyldu félaga til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri nr. 119/2019. Þessar auknu skyldur sem eru lagðar á svona félög sem starfa yfir landamæri eru í þágu varna gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka eins og kemur fram í greinargerð með frumvarpi til laganna, enda eru mörg dæmi um misnotkun slíkra samtaka í þessháttar tilgangi.
Hér geturðu séð skráningu "SOLARIS-hjálparsamtök f. hælisl" á vef fyrirtækjaskrár: SOLARIS-hjálparsamtök f. hælisl (6002170380)
Athugaðu að þar segir að Rekstrarform sé Félagasamtök.
Ekki almannaheillafélag og enn síður almannaheillafélag með starfsemi yfir landamæri, heldur aðeins almenn félagasamtök. Það samræmist ekki skráningarskyldu slíkra samtaka.
Þú getur svo sjálfur leitað á vef þeirra að ársreikningum og kannað hvort þau hafi uppfyllt skyldur sína til að birta þá. (Höskuldarviðvörun: sú leit mun ekki bera árangur.)
Þessi samantekt skýrir vonandi þær skyldur sem hvíla á hverri af þessum þremur tegundum samtaka, þann blæbrigðamun sem er á þeim og hvað þarf til að uppfylla þær, nógu vel til þess að hver sem er geti sjálfur dregið sínar eigin ályktanir.
Guðmundur Ásgeirsson, 30.7.2024 kl. 13:44
Guðmundur, til gamans gerði ég bara eins og þú þegar þú sakaðir samtök um glæp. Leitaði í nokkrar mínútur að einhverju á netinu sem engin skylda er að setja á netið. Og lét það sem ég vissi ekki eftir þá leit nægja til að mynda mér þá skoðun að öll þrjú samtökin væru sek um sama glæp. Þú opnaðir á þessa aðferðarfræði og ættir frekar að gleðjast yfir árangri kennslu þinnar.
Vagn (IP-tala skráð) 30.7.2024 kl. 15:14
Ég velti því fyrir mér hver, og ég spyr Sەma, getur eða þorir að gagnrýna tyrknesk stjórnvöld fyrir fjöldamorð gegn Kúrdum? Skrifaði hún eina línu gegn glæpum Erdogans gegn Kúrdum? Opnaði Sema munninn fyrir hernámi tyrkneska hersins á löndum nágrannalanda, eins og íraska Kúrdistans, eins og Afrin, og hins vegar austur af Efrat og sýrlenskum löndum? Þorir hún að gagnrýna stjórnvöld í Ankara fyrir að koma í veg fyrir Kúrda frá málfrelsi, eða er Sema pólitískur skíthæll að nýta sér íslendinga... ég vona ,Já, að hún heyri orð mín og svara mér!
Salah karim (IP-tala skráð) 30.7.2024 kl. 16:18
Það er akkúrat sem hún er" pólitískur skíthæll" sem er að reyna að grafa undan okkar lýðræði.
Haraldur G Borgfjörð, 30.7.2024 kl. 17:14
Vagn.
Ólíkt þér fullyrti ég ekkert nema það sem fótur er fyrir. Það var ekki gert til neins gamans. Enginn var sakaður um refsivert athæfi (glæp) heldur var bent á að ein tiltekin samtök væru brotleg við lög og það var stutt gildum rökum. Svo er það annarra en mín að meta hvort og hvaða viðurlögum brotið skuli sæta.
Ég opnaði ekki á neitt annað en staðreyndir. Þú fórst aftur á móti með fleipur en ert vonandi einhvers vísari núna.
Guðmundur Ásgeirsson, 30.7.2024 kl. 18:51
Guðmundur, að koma með spurningar og vitna í lög sem fjalla um það sem spurt var um eru ekki rök. Það sem þú ekki veist eru ekki rök og sanna aðeins eitt.
Vagn (IP-tala skráð) 30.7.2024 kl. 20:52
Vagn.
Ég varpaði aðeins fram þeim spurningum hvort umrædd samtök hefðu uppfyllt skráningarskyldu sína og hvar ársreikningur þeirra væri birtur eins skylt er samkvæmt lögum.
Vísaði jafnframt á það hvar svörin mætti finna svo að hver sem kærði sig um það gæti dregið sínar eigin ályktanir.
Fyrst að þú gast ekki dregið neinar ályktanir sjálfur af þeim upplýsingum, hefur mér vonandi tekist núna að auka skilning þinn með nánari skýringum í seinni athugasemdum.
En hvað finnst þér um það að samtök sem segist vilja láta gott af sér leiða fari ekki eftir lögum sem er ætlað að sporna við peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka?
Guðmundur Ásgeirsson, 31.7.2024 kl. 00:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.