Leita í fréttum mbl.is

Er hér komin ástæðan fyrir töfinni á rannsóknarskýrslunni?

Er ekki orðið tímabært að óska Jóhönnu Sigurðardóttur og ekki síður Steingrími J. Sigfússyni til hamingju með opið og gagnsætt ferli, opna og gagnsæja stjórnsýslu þar sem byggt er upp réttlátara Ísland? Steingrímur hefur greinilega verðlaunað félaga sinn úr fjórflokknum, Ólaf Ólafsson, sem þurfti að taka að sér á sínum tíma að eignast hlut í Búnaðarbankanum og gat ekki treyst bankanum sínum fyrir fjármununum heldur þurfti að flytja þá alla til Tortóla í öruggt skjól.

Svo virðist sem Steingrímur hafi komist að því í kjölfar húsleitar í fyrravor að allar grunsemdir um að Ólafur hafi farið óvarlega með fé séu á rökum reistar og þess vegna þurfi Steingrímur að hampa honum enn frekar og tryggja aukið neyslufé.

Eitt er víst, Tryggvi Gunnarsson hefur grátið yfir einhverju allt öðru en því að Ólafur Ólafsson hafi komist í álnir fyrir pólitísk tengsl. Þess vegna hefur hann þurft að gera frekari leit að orsökum hrunsins.

Ég velti fyrir mér af hverju Sigríður Benediktsdóttir hafi ekki verið á furðulega fundinum í Alþingishúsinu. Kannski var hún hágrátandi heima hjá sér eða bara ósammála þessum drætti á útgáfu skýrslunnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eygló

Þetta fer að verða einn allsherjar grátkór.

Hvað meina mennirnir með því að ýja svona að ... og nota véfréttastíl.  ÞAÐ finnst mér ótækt!

Eygló, 28.1.2010 kl. 02:13

2 identicon

Hér á nýja Íslandi er allt við það sama, og bara haldið áfram að mylja undir vini og kunningja.

Guðrún Hlín (IP-tala skráð) 28.1.2010 kl. 07:24

3 identicon

"Can yOu believe it - they are not going to pay - those mother f**kers - business as usual - Ísland "stórasta spilta land heims..!"

kv. Heilbirgð skynsemi (fun.blog.is)

Jakob Þór Haraldsson (IP-tala skráð) 28.1.2010 kl. 08:49

4 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég er langt frá því viss um að fólk muni kyngja þessu þó svo að Vg og Samfylkingin reikni með því.

Hvaða skilaboð eru þetta til atvinnurekenda og almennings sem fara eftir reglum og reyna að standa skil á sínu?

Sigurjón Þórðarson, 28.1.2010 kl. 10:09

5 identicon

Er ekki Ólafur Ólafsson grunaður um fjársvik í Al Thani málinu?   Ég hélt að Arion banka væri umhugað um mannorð sitt núna en svo virðist ekki vera!

Ragnar

Ragnar Eiríksson (IP-tala skráð) 28.1.2010 kl. 12:23

6 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Jú jú hann var með Mohammed Al Thani í miklu leikriti. 

Það er merkilegt að Steingrímur J. skuli verðlauna Ólaf Ólafsson sérstaklega en það þarf einhver að fara yfir hvaða sleik Vg fær.  Það er auðveldara að skilja afstöðu Samfylkingarinnar en flokkurinn fékk gríðarlega háa styrki frá fyrirtækjum Ólafs Ólafssonar.

Sigurjón Þórðarson, 28.1.2010 kl. 13:03

7 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ázt í leynum að forframazt í ázt með meinum ?

Steingrímur Helgason, 28.1.2010 kl. 23:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband