Leita í fréttum mbl.is

Óskað eftir mildi í klósetmálum

Merkasti stjórnmálamaður landsins skrifaði víðlesna grein undir fyrirsögninni "Ég neita að pissa standandi."

Í greininni fjallar hún um mikinn metnað ráðherra Sjálfstæðisflokksins í klósetmálum sem birtist í glænýrri hollustuháttarreglugerð.

Í stuttu máli þá fela breytingarnar í sér að

Annað hvort þá þarf:

a) að hafa snyrtingar á veitingastöðum og opinberum stöðum rétt eins og í Alþingishúsinu, opin fyrir bæði kynin.

b) eða þá að bæta við kynlausri snyrtingu.

Nú starfa ég alla jafna við heilbrigðiseftirlit og skoða hundruð snyrtinga á hverju ári og sé það í hendi mér að breytingin muni leiða til bæði mikils kostnaðar og óhagræðis vítt og breitt um landið.

Það á á ekki síst við um minni félagsheimili t.d. í Hegranesi í Skagafirði og minni vínveitingahús vítt og breitt um landið

Ég hef tekið málið upp nokkrum sinnum við núverandi umhverfisráðherra án nokkurs árangurs og tók því til þess ráðs sem varaþingmaður Flokks fólksins að leita eftir liðsinni forseta þingsins í málinu. Til þess að fá ráðherra til þess að sýna minni rekstraraðilum mildi í klósetmálum.

Það er nefnilega svo að snyrtingarnar  í Alþingishúsinu eru ekki í samræmi við nýja reglugerð og það er fyrirséð að þingið þurfi að fara í talsverðan kostnað til að mæta metnaði ráðherra.

Ef vilji væri til þá væri hægt að gera það með því að láta nýtt ákvæði um snyrtingar gilda um nýja starfsemi eða gefa rekstraraðilum rúman tímafrest til þess að ljúka úrbótum.

Þessi tregða Guðlaugs Þórs umhverfisráðherra kemur á óvart þar sem honum er tíðrætt um gullhúðun, en samt er hann illfáanlegur til þess að breyta þessu og öðru sem snýr að minni fyrirtækjum.  

Það sem er sárast við þessa þrjósku er að hún getur snúist upp í neikvæðni í garð þess fámenna hóps sem reglugerðinni er ætlað að standa vörð um. 


Bloggfærslur 26. september 2024

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband