Leita í fréttum mbl.is

Það var hæ, hó, hopp og hí og undirritað á Hóli

Ríkisstjórn Vg, Framsóknarflokks og Bjarna Ben sem mynduð var um að byggja upp innviði landsins hefur mistekist hrapalega ætlunarverk sitt og stefnir í að skila vegakerfinu í miklu verra ástandi en hún tók við því. 

Það verður ekki tekið af ráðamönnum ríkisstjórnarinnar að þeir hafa verið iðnir við að munda penna og skrifa undir áætlanir sem reyndar hafa ekki gengið eftir m.a. um Borgarlínuna.

Hér er skrifað undir 2016

Borgarlína 2016

 

 

 

 

 

 

 

2019 var aftur skrifað undir Borgarlínu.

September 2019

 

 

 

 

2020 var enn og aftur haldinn íburðarmikill

fundur um Borgarlínu.

Borgarlínan 2020

 

 

 

 

 

 

 

Aftur er skrifað undir Borgarlínuna árið 2022.

bORGARLÍNAN 2022

 

 

 

 

 

 

 

Sigurður var byrjaður að grafa fyrir Borgarlínunni 2023.

Borgarlina 2023

 

'

 

 

 

 

 

Og enn er skrifað undir Borgarlínu árið 2024.

Borgarlína 2024

 

 

 

 

 

 

 

Þessi Borgarlínufarsi er farinn að minna á byggingu þjóðarleikvangsins eða Sundabrautarinnar, en umræðan um þau mannvirki hefur staðið yfir nánast linnulaust frá síðustu aldamótum en lítið sem ekkert gerst.

Reikningsdæmið hefur vissulega verið lifandi og erfitt að henda reiður á hvort Borgarlínan verði leidd í stokka, göng eða sér akreinar og ennfremur óljóst hvort vagnar eða önnur farartæki verða nýtt.

Í stað þess að Borgarlínuverkefnið sé á forræði Vegagerðarinnar og hún efld þá hefur verið búið til nýtt opinbert batterí þ.e. Betri Samgöngur ohf. sem hefur afar óljósa stjórnskipulega stöðu og flækir miklu frekar en einfaldar úrlausn og skipulagningu verkefnisins.

 

 


mbl.is Sáttmálinn fullfjármagnaður næstu fimm árin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. ágúst 2024

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband