Leita í fréttum mbl.is

Skinhelgi Vinstri grænna

Skinhelgi Vinstri grænna á sér fá takmörk. Vg sagðist ætla að: tryggja eignarhald auðlinda, vera utan ESB og á móti AGS. Flokkurinn  hefur algerlega snúið við blaðinu og selt orkuauðlindir þjóðarinnar, sótt um aðild ESB og er orðinn bandingi AGS.

Íslenskufræðingurinn og menntamálaráðherrann Katrín Jakobsdóttir sem þóttist ætla að beita sér fyrir gagnsærri stjórnsýslu, hefur ekki enn haft fyrir því að þýða viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem er grundvallarplagg fyrir framtíð landsins. Í plagginu kemur fram hvað AGS vilji að ríkisstjórnin geri og get ég ekki séð annað en að Steingrímur J sé farinn sinna skítverkum sjóðsins.

Óskiljanlegt er að flokksmenn Vg vilji binda trúss sitt við sjóðinn í stað þess að fara að ráðleggingum hagfræðingsins Lilju Mósesdóttur sem sér að leið AGS er ófæra.


Bloggfærslur 23. maí 2010

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband