Leita í fréttum mbl.is

Sigmundur Davíð er of dýr Neyðarkall

Framsóknarflokknum eða að minnsta kosti hluta þingflokksins stendur til boða og er fús til að bjarga ríkisstjórn Samfylkingar og Vg. Framsókn er ætlað að fylla skarð þremenninganna sem Samfylkingin og Steingrímur J. vilja flæma úr Vg.  Ástæðan fyrir reiði Samfylkingarinnar og Steingríms J. í garð Lilju Mósesdóttur og fylgismanna hennar er fyrst og fremst óþægðin í: Icesave, Evrópusambandsumsókninni,  í skuldamálum heimila, efnahagsstefnu AGS og einkavæðingu orkuauðlindanna. 

Liðsmen Samfylkingarinnar hafa tíðkað það að ráðast hvað eftir annað persónulega á "óþæga" þingmenn og ráðherra Vg. Steingrímur og brúða hans Björn Valur hafa látið sér vel líka þegar svívirðingar hafa dunið á villiköttunum og aldrei hafa þeir lyft litla fingri þeim til varnar á meðan þeir hafa hvað eftir annað hlaupið í vörn fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur.

Helsti vandinn við fyrirhugaða björgun er að ef farið verður í æfingarnar þá mun nokkuð örugglega þurfa að fylla skarð fleiri en þriggja þingmanna Vg. Það gerir það að verkum að ekki er nægjanlegt að treysta eingöngu á stuðning Evrópusinnaðra þingmanna s.s. Sivjar og Guðmundar Steingrímssonar.  Hætt er við því að reikningur neyðarkallsins Sigmundar Davíðs eigi eftir að reynast of dýr og ég tala nú ekki um víxill neyðarkellingarinnar Vigdísar Hauksdóttur.

Ekki má gleyma því að þau Steingrímur J. og Jóhanna plötuðu Sigmund Davíð illilega þegar minnihlutastjórn Vg og Samfylkingar var mynduð hér um árið.


mbl.is „Missa sig í spunanum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. desember 2010

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband