Leita í fréttum mbl.is

Aðgerðablaðamennska Morgunblaðsins

Fréttir Morgunblaðsins af Flokki fólksins eru orðnar hálfbroslegar. Það dylst fáum að Andrea Sigurðardóttir formaður Hvatar félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík sem starfar jafnframt sem blaðamaður á Morgunblaðinu, er ekki að skrifa hér hlutlæga frétt um smávægilegan formgalla á skráningu Flokks fólksins.  

Líklegast mun þessi aðgerðablaðamennska formanns Hvatar ekki hafa önnur áhrif en að draga úr trúverðugleika annarrar umfjöllunar miðilsins og er það miður þar sem að Hádegismóum er að finna margt ágætt starfsfólk sem lætur ekki pólitískt kapp bera fagmennskuna ofurliði.

Við í Flokki fólksins munum auðvitað, bæta úr þessum formgalla og formfesta jafnframt betur gróskumikið innra starf Flokks fólksins.

 


mbl.is Flokkur fólksins fær ekki styrk í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vanstilling SFS

Viðbrögð talsmanna stórútgerðarinnar við ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið svigrúm til handfæraveiða einkennist af jafnvægisleysi.  Framkvæmdastjóri SFS leggst jafnvel svo lágt að; halla réttu máli, fara með ýkjur og atvinnuróg gagnvart veiðum smábáta sem ég ætla ekki að fjalla um í þessu greinarkorni, hvað sem síðar verður. Mér finnst þetta mjög miður þar sem hagsmunir stórútgerða og smábáta fara saman á mörgum sviðum og því undarlegt að SFS sé að beina kröftum sínum að því að drepa niður alla nýliðun, frelsi og vaxtarbrodda í greininni. 

 

Fyrirfram hefði maður talið vænlegra fyrir þá sem fara tímabundið með nýtingarrétt á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar að sýna meiri stillingu og sanngirni í umræðunni.

Vissulega er það ekkert nýtt að menn hafi farið fram úr sér m.a. forstjóri Síldarvinnslunnar, Gunnþór Björn Ingvason sem fór mikinn á fundi fyrir nokkrum árum þegar fram fór umræða um breytingar á kvótakerfinu. Á einum fundinum tók hann upp ljósmynd af börnum sínum og lýsti yfir mikilli örvæntingu um örlög barnanna.

Mögulega metur forstjórinn það svo að þetta upphlaup hafi skilað tilætluðum árangri þar sem áramótaávarp hans einkennist af vanstillingu og ýkjum vegna strandveiða. Boðaði forstjórinn  uppsögn sjómanna, fækkun skipa og lokun á fiskvinnslum.  

Það vita það allir Seyðfirðingar og þá væntanlega Gunnþór betur en aðrir að lokun fiskvinnslunnar Gullbergs á Seyðisfirði hafði ekkert með strandveiðar að gera heldur vantaði meira hráefni í risavinnslu Samherja. Á hinn bóginn tryggja strandveiðar áframhaldandi líf í höfnum Austurlands, burt séð frá hrókeringum höfðingja stórútgerðarinnar.

Búsorgir stórútgerðarinnar vegna strandveiða eru stórundarlegar, þar sem miklu nær væri að hafa áhyggjur af fiskveiðiráðgjöfinni.  Á örfáum árum þá hafa veiðiheimildir í þorski dregist saman um 60 þús. tonn og viðmiðunarstofninn er metinn hafa dregist saman um mörg hundruð þúsund tonn, þrátt fyrir að ráðgjöfinni hafi verið fylgt út í ystu æsar!

Sama má segja um loðnuveiðarnar að þær eru nú svipur hjá sjón miðað við hvað þær voru áður. Gott ef loðnuveiði síðustu tveggja áratuga sé ekki innan við þriðjungur af því sem veiðin var áratugina tvo þar á undan. 

Vissulega vona ég Gunnþóri og börnunum hans hafi vegnað vel en að sama skapi þá væri óskandi að hákarlar stórútgerðarinnar héldu örlítið aftur af kappi og gróðafíkn sinni með það fyrir augum að gefa smáseyðunum í greininni líf, en þeir litlu eiga víst börn einnig.

 

 

 

 


Bara ef það hentar mér

Ákvörðun um nýtingu á sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar er í eðli sínu pólitísk ákvörðun.  Í seinni tíð hefur ákvörðun um nýtingu fiskistofna verið ákvörðuð af aflareglu sem mótuð var af hagfræðingum og útfærð af Hafró.  Það væri í sjálfu sér hið besta mál ef reglan hefði skilað einhverjum árangir en svo er alls ekki.

Sá mæti maður Árni Sverrisson, fyrrverandi skipstjórnandi hjá Hafró og formaður Félags skipstjórnarmanna hlýtur að sjá ósamræmið í því hjá fyrrum ráðherra Bjarna Ben að víkja algerlega frá ráðgjöf Hafró þegar komið er að djúpkarfanum og gefa út 3.800 tonna veiðiheimildir, en tilkynna nánast í sömu andrá að ekki megi víkja frá sömu ráðgjöf upp á sporð þegar komið er að þorskinum.

Ástæðan fyrir þessari tvöfeldni var að fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins vildi greiða götu stórútgerðarinnar með því að leggja til hliðar ráðgjöf Hafró á sama tíma og hann sagði hana svo heilaga að ekki mætti með neinu móti koma á móts við sjávarbyggðirnar og strandveiðar, með neinum sveigjanleika.

Ef forysta SFS meinti eitthvað með ábúðafullu tali um ábyrgar fiskveiðar og óbrigðulli ráðgjöf, þá hefðu samtökin haft forgöngu um stöðva veiðar þegar vart var við mikinn djúpkarfa sem meðafla, í stað þess að gráta út veiðiheimildir sem "vísindin" eða aflareglan sagði að væru ósjálfbærar veiðar. 

Vissulega má hafa skilning á því að forysta Félags skipstjórnarmanna vilji víkja frá fiskveiðiráðgjöf sem hentar ekki hagsmunum félagsmanna.

Erfiðara er að átta sig á því hvað liggur að baki því þegar forysta Félags skipstjórnarmanna spyrðir sig við SFS í andstöðu við Strandveiðar og hve lítil áhersla er sett á gagnsæja verðmyndun á afla.  

Það er augljóst að hátt verð á færafiski á fiskmörkuðum hefur afar jákvæð áhrif á uppgjör til umbjóðenda Félags skipstjórnarmanna. 

Það þarf vart að taka það fram að ég var sammála Bjarna Ben um að sveigja verulega frá ráðgjöf hvað varðar djúpkarfa og furða mig því að hann hafi ekki viljað víkja örlítið frá ráðgjöfinni í þorski, til að koma á móts við skuldbindandi álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.

 

 

 

 


mbl.is Djúpkarfakvótinn tryggði laun sjómanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaðan á kvótinn að koma?

Forysta Flokks fólksins hefur síðstu vikurnar verið spurð út í hvaðan kvótinn eigi að koma í frjálsar handfæraveiðar og jafnvel er verið að býsnast yfir því hvaðan það smáræði sem veiðist í 48 daga strandveiðikerfinu eigi að koma?

Stutta svarið er að fiskurinn eigi að koma úr hafinu!

Það er nefnilega svo að flest ef ekki allt bendir til þess að Íslandsmið séu vannýtt. Ekki er það aðeins fyrir þá staðreynd að veiðin á Íslandsmiðum fyrir einni öld síðan var um 60% meiri þá en hún er nú, heldur gefa nýjustu athuganir Hafró eindregið til kynna að bæta eigi í veiðina.

Í glænýrri stofnmælingarskýrslu Hafró kemur skýrt fram að meðalþyngd flestra árganga þorsks sé vel undir meðaltalsþyngd frá árinu 1996 (sjá mynd 3). Fróðlegt væri að sjá sambærilegan samanburð við meðalvöxt áranna þegar veiðin var mun meiri t.d. á áttunda og níunda áratugnum.

Það er kristaltært að eina rökrétta líffræðilega svarið við litlum vexti þorsks í veiðistofni er að auka verulega veiðarnar. 

Vissulega er svarið annað ef haldið er áfram að fylgja í blindni aflareglu sem byggir ekki á neinni líffræði, en þá ætti að horfa til þess að sú ráðgjöf hefur einfaldlega reynst afar illa. Það kemur m.a. fram endurtekið í lítilli nýliðun (fjölda 3. ára fisks sem er að koma inn í veiðina). Einnig þeirri staðreynd að aflinn er miklu mun minni en höfundar aflareglunnar spáðu sjálfir fyrir um að hann yrði m.ö.o. reglan hefur ekkert forspárgildi.  

Það er ekki heldur hægt að horfa fram hjá því að gríðarlegt magn af þorski gufar hreinlega ítrekað upp í stofnmati Hafró, en upp úr 2018 gufaði upp af viðmiðunarstofni þorsks magn sem svarar til um tveggja ára þorskafla Íslendinga. Þessi uppgufun varð þrátt fyrir að ráðgjöfinni hafi verið fylgt upp á punkt og prik.

Það er hvorki ábyrgt né á nokkurn hátt forsvaranlegt að leggja heilu byggðalögin í eyði á borð við Grímsey ofl. sjávarbyggðir á grundvelli ósveigjanlegrar "ráðgjafar" sem er hvorki í samræmi við upphafleg markmið né vistfræðileg lögmál.

Það er því bæði skynsamlegt og ábyrgt að sýna sveigjanleika hvað varðar auknar vistvænar strandveiðar og hleypa af stokkunum tilraunaverkefnum þar sem sjávarbyggðirnar koma að stjórnun á nýtingu fiskimiða í túnfæti þeirra.

Tilvalið væri að hefja undirbúning við að hleypa strandveiðistjórnunarverkefnum af stað í Grímsey og Raufarhöfn.

 

 

 

 

 

 


Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband