Leita í fréttum mbl.is

Atkvæðagreiðslan sem Alþingi tapaði

Stjórnmálastéttin reið ekki feitum hesti frá í dag. Sjálfstæðisflokkur og þó einkum Framsóknarflokka koma mjög laskaðir út úr deginum en varaformenn beggja flokka fóru gegn formönnum sínum. Vinstri grænir eru eins og fjaðralausar pútur eftir daginn, flokkurinn verður örugglega lengi að ná áttum ef hann nær því nokkurn tímann eftir að hafa farið gegn grunnstefnumiðum sínum.

Einhver kann að líta svo á að Samfylkingin hafi náð sínu í gegn og sigrað en það felst varla sigur í því að hafa stórskaðað samstarfsflokkinn þannig að hann verður vart stjórntækur á næstu mánuðum og árum. Samfylkingin hefur verið staðin að stórkostlegum óheiðarleika, m.a. að fela skýrslur sem geta haft áhrif á afstöðu manna.

Hvað varðar þann draum að ganga inn í náðar-Icesave-faðm Evrópusambandsins leyfi ég mér að efast um að við séum nokkru nær því í dag en í gær.


mbl.is Samþykkt að senda inn umsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Einarsson

Eina góða við þetta er VG = R.I.P.

Sævar Einarsson, 16.7.2009 kl. 15:09

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Já Vg er búnir að vera - það er á hreinu.  Maður hefur ákveðnar áhyggjur af upplausn í samfélaginu en það er greinilegt að liðið við Austurvöll deilir þeim áhyggjum ekki með mér.

Sigurjón Þórðarson, 16.7.2009 kl. 15:13

3 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Jú, við erum einu stóru skrefi nær því markmiði að komast í ESB.

Ég minnist nú einhverra vígaferla hjá Frjálslynda flokknum undanfarin ár, minnti mig eiginlega á Sturlungaöld! 

Guðbjörn Guðbjörnsson, 16.7.2009 kl. 15:23

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Sigurjón, þetta er svartur dagur í lýðræðissögu landsins.  Ég verð nú að segja að ég er hlynntur því að landið fari í viðræður við ESB en ekki á þeim forsendum að einum SPRELLIGOSA sé afhent fullt og nánast óheft UMBOÐ til samninga um AFSAL þjóðarinnar á eignum og auðlindum.  Ætli það sé áætlunin að Svava Gestsson verði AÐALSAMNINGAMAÐUR landsins?

Jóhann Elíasson, 16.7.2009 kl. 15:27

5 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Guðbjörn, já það eru víst þó margir sem sakna raddar Frjálslynda flokksins á þingi.

Sigurjón Þórðarson, 16.7.2009 kl. 15:37

6 identicon

Athylgisverðast í þessu öllu saman er sú staðreynd að tvöföld atkvæðagreiðsla um hvort eigi að fara í aðildarviðræður eins og Sjálfstæðisflokkur lagði til var næstum því búin að hljóta meirihluta atkvæða á þingi. Það eru í raun stórfréttir.

Flestir bjuggust við að þessi tillaga næði ekki einu sinni í gegn á landsfundi flokksins í haust. Í ljós kom að þessi tillaga hlaut afgerandi fylgi þegar á reyndi.

Enginn bjóst við að þessi tillaga ætti nokkra möguleika á þingi fyrir nokkrum dögum. Hins vegar kom í ljós að það voru fulltrúar fjögurra flokka sem greiddu þessari tillögu atkvæði. Ekki hefði þurft nema einn framsóknarmann til að hún hefði verið á jöfnu. Það er frétt dagsins.

Líklegt verður að teljast að þessi niðurstaða sé gríðarlegur ósigur fyrir Össur skarphéðinsson. Hann getur þá ekki sniðgengið þá staðreynd að það er ekki eins mikill áhugi fyrir ESB og hann hélt.

joi (IP-tala skráð) 16.7.2009 kl. 15:54

7 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Vissulega má lýkja þessu við svartan dag í ljósi þeirra peninga sem fara út um gluggann til að kanna eitthvað sem á að vera augljóst - fáum aldrei undanþágu frá einu eða neinu. Enn & aftur er SAMSPILLINGIN að henda 1200 milljónum út um gluggann, fyrst "umsókn tengt Öryggisráðinu" og nú "umsókn tengt EB" - á meðan brennur allt sem brunnið getur hérlendis - meira að segja ÞINGVELLIR brenna - frekar TÁKNRÆNT.....:).

Mestu skiptir þó að í næstu viku verði "BJARTIR dagar" og þessir sauðir niðri á alþingi segi "NEI við ICESLAVE samningunum" - okkur er ekki viðbjargandi sem þjóð ef SAMSPILLINGIN nær einnig að "blekkja menn" til að samþykkja þennan "arfa lélega & stórhættulega samning" - Við skulum VON það besta en búast við því versta....:).

kv. Heilbrigð skynsemi

Jakob Þór Haraldsson, 16.7.2009 kl. 16:56

8 identicon

Til hamningju Ísland, loksins skynsamleg ákvörðun á Alþingi Íslendinga. heldur þú að við séum svo sérstök að við séum merkilegri en Finnar, Damir og Svíar? það er eingöngu verið að hugsa um hagsmuni almennings í þessu máli á kostnað stjórnsýslu sem býður upp á klæikuskap og spillingu. Húsnæðislán lækka um tugir og hundruðir miljóna. 20 miljón króna lán til 40 ára fer úr því að hafa greiðslubyrði upp á 17 falt lánið niður í 1,2 falt, þ.e úr 274 miljónum eftir 40 ár í 24 miljónir. Þetta eru rúmlega 800% munur sem þýðir þá mestu kjarabót sem íslenskum almenningi býðst upp á. Þarna munu færast á hverju ári 228 miljarðar frá auðmönnum til almennings. Mestu frjámagnsflutningar á milli stétta frá upphafi lýðveldisins.

Valsól (IP-tala skráð) 16.7.2009 kl. 17:04

9 Smámynd: Elle_

Svartur dagur er orðið. Vaðið var yfir lýðræðið í Alþingi í dag. 

Elle_, 16.7.2009 kl. 17:20

10 identicon

Sigurjón.

Þú fellur í sömu gryfju og sjálfstæðismennirnir á þingi , sem greiggu atkvæði á móti ESB viðræðum.  Ekkert mélefnalegt , bara skítur út í aðra þá til að upphefja sjálfan sig er það ekki ?

,,Sértrúarhóp"  kalla ég þá sem ekki vilja fara í aðildarviðræður.  Allir þeir er skrifa á móti ESB nota sömu gildin og gert er hjá sértrúarhópum !

Við viljum enga sértrúarhópa  !

JR (IP-tala skráð) 16.7.2009 kl. 21:01

11 Smámynd: Elle_

Nei, JR. Fullt af fólki vildi bara lýðræðislegar kosningar.  Og það hefur akkúrat ekkert með trú að gera.  Og það þýðir ekki einu sinni að fólk sé endilega andvígt aðild.  

Elle_, 16.7.2009 kl. 21:32

12 Smámynd: Elle_

Hins vegar mun ég aldrei kjósa þetta vegna þess að það er verið að þvinga okkur núna inn í umræður.

Elle_, 16.7.2009 kl. 21:36

13 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

JR, ég tel mína andstöðu vera byggða á málefnum sem ég hef kynnt mér ágætlega s.s á ferðalögum og fundum í sjávarbyggðir ESB.  Ég sé að innganga í ESB grefur undan undirstöðuatvinnugrein landsmanna.

Valsól virðist telja að innganga í ESB verði einhvers konar stólpípa á spillinguna og úrræðaleysi stjórnvalda.  Ég vil minna á að vera í sambandinu er engin ávísun á hreinsun eða stjórnkænsku.  Á Ítalíu eru dæmi um að ekki sé hægt að farga sorpi vegna stjórnleysis og rugls, þrátt fyrir langa veru í sambandinu.

Sigurjón Þórðarson, 16.7.2009 kl. 22:21

14 identicon

Það sem mér finnst standa upp úr eftir þessar ESB aðildarumsóknarkosningar á Alþingi í dag er einfaldlega það "ábyrgðarleysi" sem þingmenn þjóðarinnar eru enn og aftur að sýna okkur í verki.  Á meðan grunnur þjóðfélagsins, heimilin, brenna og spillingin heldur áfram að grassera eru menn að eyða tímanum í karp um það hvort það eigi að kjósa um að fara í aðildarviðræður.  Hvaða rugl er þetta eiginlega?  Þjóðin á einfaldlega að fá að kjósa um aðild að ESB þegar samningur liggur fyrir.  Einungis þannig getum við tekið upplýsta ákvörðun.  Að kjósa um að fara í viðræður sem við höfum ekki nokkra hugmynd um hvað munu færa okkur er svona svipað og launþegar færu að kjósa um það hvort þeir ættu að fara í kjaraviðræður.

þórarinn (IP-tala skráð) 16.7.2009 kl. 23:03

15 identicon

Það átti ekkert að þrasa um það Þórarinn.   Það er satt hjá þér að það er ábyrgðarleysi að þrasa um það.  Fólkið átti bara að fá að kjósa án nokkurs þrass.  Og það er ekki það sama og kjósa um að fara í kjaraviðræður.  Og það finnst mér bara fráleitt. 

Almennur borgari (IP-tala skráð) 16.7.2009 kl. 23:16

16 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Það er grátlegt að helmingnum að þvi sem að ríkið náði inn með að hækka birgðar á lántakendum um 8000 000 000 skuli núna eitt í að semja um hluti sem að allir vita hvernig eru með því að lesa aðildarsamninga annarra. Sorglegt mjög sorglegt þeir sem að lenda í því að fá ekki bót meina sinna til dæmis í heilbrigðiskerfinu vegna sparnaðar ættu að hugsa um þetta þeir sem að sjá lánin hækka ættu að hugsa um þetta og þeir sem að sjá nauðsynjavöruna hækka ættu að hugsa um þetta. Já hugsa vel ol lengi hvernig Norræna velferðar ógnarstjórnin fer með skatt peningana okkar

Jón Aðalsteinn Jónsson, 16.7.2009 kl. 23:37

17 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Jón, það er rétt hjá þér þetta er sorglegt. Elítan í Samfylkingunni og Steingrímur hafa misst alla jarðtengingu.

Sigurjón Þórðarson, 16.7.2009 kl. 23:52

18 Smámynd: Steingrímur Helgason

Það verður þó að viðurkennazt að í dag stóðu Frjálzlyndir sig bezt af öllum stjórnmálaflokkum.

Súrt, sætt, en satt...

Steingrímur Helgason, 17.7.2009 kl. 01:22

19 Smámynd: Árni Gunnarsson

Afgreiðsla og umræða Alþingis í dag á aðildarumsókn var eins og öll ummræða samfélagsins hefur lengstaf verið um þetta mál- grunn, ómarkviss og yfirborðskennd. Kannski hitti ræða Péturs H. Blöndal mig mest, en hann dró fram efasemdir um stjórnarskrárheimild Alþingis til að afgreiða málið og rök hans þóttu mér sannfærandi.

Mikill þungi hefur verið lagður í röksemdina "við verðum að sjá hvað er í boði til að geta tekið upplýsta ákvörðun." Í þessu máli sem öðrum pólitískum málum er einboðið að hver talar fyrir sig og um það er óþarft að deila. Hvað mig áhrærir þá þarf ég ekki að sjá hvað er í boði. Ég er andvígur aðildinni og byggi þá afstöðu á því sem ég veit.

Og það sem ég veit er einfaldlega að eftir að Ísland hefði fullgilt samning um aðild að ESB væri þjóðin búin að afsala fullveldi sínu til yfirþjóðlegrar stofnunar.

Svo einfalt er nú það mál sem mín afstaða grundvallast á. Auðvitað er þessi afstaða mín ekki algild en ég veit um fjölmarga sem eru sama sinnis og ég.

Árni Gunnarsson, 17.7.2009 kl. 01:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband