Leita í fréttum mbl.is

Hvers vegna vill Svandís bola þeim Ögmundi og Jóni Bjarna í burt?

Mér finnst nýr umhverfisráðherra vera farinn að færa sig nokkuð upp á skaftið en Svandís er nýbakaður þingmaður og glænýr ráðherra.  Það er ekki hægt að túlka orð ráðherra um að jafna kynjahlutföllin með öðrum hætti en þeim að hún krefjist afsagnar Ögmundar Jónassonar eða Jóns Bjarnasonar fyrir þær einu sakir að þeir séu af röngu kyni. 

Maður hefði haldið nýbakaður ráðherra Vinstri grænna ætti að vera nokkuð ánægður með það að vera kominn í sjálft umhverfisráðherra sem ætti að vera helgasta ráðuneyti flokksins og einbeita sér að sínum málaflokkum og jú efnahagsmálunum í stað þess að byrja daginn á að bola öðrum ráðherrum úr embættum.

 


mbl.is Karl stendur upp fyrir konu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ja, vel byrjar það hjá nýrri ríkisstjórn.  Gefur þetta ekki fyrirheit um framhaldið?

Jóhann Elíasson, 12.5.2009 kl. 15:41

2 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Sigurjón ég er afar ánægð með Svandísi og tel hana vera mjög svo efnilegan þingmann. Þetta jafnréttiskjaftaæði held ég að sé eingöngu þráhyggja. Ekki virtuð þið það hjá FF, það er kanski það sem varð yllur að falli. Segi nú svona

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 12.5.2009 kl. 15:41

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það má vera að þetta sé efnilegt en hún er varla mætt í vinnuna.

Sigurjón Þórðarson, 12.5.2009 kl. 15:49

4 Smámynd: Rannveig H

Svandís lýsti því yfir að þetta væru henni mikil vonbrigði forysta flokksins hefur haft það að markmiði að það sé jafnt kynjahlutfall sem er bara gott mál. Er ekki alltaf verið að leita jafnvægis sumir kvarta um að öll stjórnin komi úr 101 svæðinu. Aðrir tala um að endurnýjun hafi ekki verið nóg. Vg á fullt af flottum og hæfum konum svo það mátti alveg jafna kynjahlutfallið.

Rannveig H, 12.5.2009 kl. 16:13

5 identicon

Svandís vill meina að Steingrímur leysi málið svona:

Hún sjálf og Jón Bjarnason eða Ögmundur víki 

og inn komi í staðinn 

Þuríður Bachman og Álfheiður Ingadóttir. 

Þá held ég hvíni nú fyrist í femínistaklíkunni.

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 12.5.2009 kl. 17:19

6 identicon

Ósköp væri það nú gott að losna við Jón Komma úr ráðuneyti...

Óskar Guðmundsson (IP-tala skráð) 12.5.2009 kl. 17:21

7 Smámynd: Ingvar

En það eru jöfn skipti í dag 6 sem hugsa um konur og 6 sem huugsa um karla. Jóhanna telst með körlunum.

Ingvar

Ingvar, 12.5.2009 kl. 17:27

8 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Hefði ekki fyrir nokkurt gull viljað vísa Ögmundi og Jóni Bjarna frá. Ef sveigjanleiki og heilbrigð skynsemi á að víkja fyrir þetta feminista eitthvað, ja þá er ekki mikið vit eftir í þessum prinsippum. Allt er gott innan hóflegra marka. þú skiptir ekki um heila í einhverjum eftir kyni. Svona ferkantaður er bara ekki hægt að vera með góðri þjóðarsamvisku eins og við þurfum svo mikið af núna. Ber virðingu fyrir feminisma upp að vissu marki en megum ekki gleyma að þetta snýst um þjóðina í heild sinni en ekki einungist feminista. Er ekki Svandís blessunin að hugsa um landið í heild sinni? Gefum henni séns á að útskýra mál sitt, en taldi hana það málefnanlega að gera ekki mál úr svona aukaatriði á erviðum tímum. Jæja vonandi bregðast ekki krosstré. Hvar er pabbi hennar að vinna núna? Gangi þér vel Svandís mín, þú hefur sýnt að þú ert hörkukerling. Vertu bara þú sjálf í pólitíkinni en ekki leiksoppur þeirra sem eldri eru. þannig vinna alvöruhugsjónamenn og konur. Gaktu hægt um gleðinnar dyr og gættu að þér. Ertu  virkilega að vinna fyrir landið í heild sinni eða bara að þínum hugðarefnum?

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 12.5.2009 kl. 17:31

9 Smámynd: Haraldur Baldursson

Þetta er merkilegt fyrirbrigði þessi jafnréttisbarátta. Stundum er full mikil áhersla lögð á að skoða í klofið á fólki í stað þess að gæta að öðrum líkamshlutum, eins og tl dæmis höfðinu. En þetta er því miður með þessi ágætu mál eins og önnur að ef þetta er keyrt út í öfga kemur svona staða upp.

Haraldur Baldursson, 12.5.2009 kl. 17:41

10 identicon

Haraldur,

  Ég held að þetta sé nú engvir öfgar. Þetta er nú bara nákvæmlega það sem VG stendur fyrir, þ.e. jafnrétti á milli kynjanna. Hvernig sem það svo er reiknað út.  Þetta er nákvæmlega það sem mátti eiga von á. VG-fólk hefur skrumskælt jafnréttishugtakið hingað til, og mun gera það áfram. Við höfum bara ekkert betra á bjóða þessi misserin í pólitíkinni á Íslandi. 

   Þetta er hálfvitaskapur, og hún veit það. 

Jóhannes (IP-tala skráð) 12.5.2009 kl. 18:05

11 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Spörum stóru orðin um hálvitaskap. Ég tel mig ekki ver heilvita þó ég sé að tjá mig um þessi mál. Langar að minna á að VG standa í grunnin fyrir réttlæti og finnst dálítið lélegt að koma með svona sleggjudóma. En það er með réttlætið eins og annað að það nær yfir svo breitt svæði og ekki einfalt að útfæra það. En betur sjá augu en auga. Einn sér eins og einn, tveir sjá eins og þrír. Notum tjáningarfrelsið til að gera góða hluti.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 12.5.2009 kl. 21:34

12 identicon

Ég get aldrei alveg skilið þetta kynjakvótamál, við erum öll menn, og það sem skiptir máli er það sem við stöndum fyrir.   það sem annars vekur athygli mína núna er, af hverju Atli Gíslason er ekki einn af ráðherrunum í þessari ríkisstjórn.

björk pétursdóttir (IP-tala skráð) 12.5.2009 kl. 22:29

13 identicon

Svandís Svavarsdóttir og VG. eru og verða altaf með vesen.  Kynjakvóti, er laungu útdauður.  Fólk er fyrir laungu búið að átta sig á því að einstaklingar standa og falla með sínu ágæti hvort sem þeir eru konur eða karlar.

G (IP-tala skráð) 12.5.2009 kl. 23:50

14 identicon

Er það virkilega réttlæti í augum sumra að karlmaður eða kona ef því er að skipta skuli gjalda fyrir kyn sitt? Er það ekki bannað samkvæmt landslögum? Það væri fróðlegt að láta reyna á það fyrir dómstólum. 

Baldur Þór (IP-tala skráð) 13.5.2009 kl. 00:00

15 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Þetta er allt yfirgengileg della. SF og VG hafa 5 ráðherra hvor flokkur. Er hægt að hafa jöfn kynjahlutföll undir þeim kringumstæðum? Deilið með 2 í 5 og og spáið í útkomuna.

Sigurður Sveinsson, 13.5.2009 kl. 07:11

16 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Mér sýnist þetta mál þegar betur er að gáð snúast minnst um kynjakvóta heldur átök innan flokksins um ESB.  Svandís sem er nokkuð mildari í viðhorfum sínum gagnvart ESB vill koma ESB harðlínumönnum frá.

Það virðist vera nokkur hiti í málinu og ýmsum brögðum beitt. 

Sigurjón Þórðarson, 13.5.2009 kl. 09:46

17 identicon

Sigurður,

   Þetta er góður punktur. Þau gætu kannski komið sér um að annar flokkurinn væri með 2 karla, og hin 2 konur. Þá væri komið upp annað vandamál  Þetta er yndislegt. Hvað ætli það séu búið að eyða mörgum milljörðum síðustu árin í að karpa um svona hluti. 

    Er kyn eina breytan í stjórnmálum í dag. Ég bara spyr???

   Sigurjón, 

        Já, þetta er svo hálfvitaleg útspil, að það er líklegt að þetta sé einhver leikur af hennar hálfu. Þetta er stór furðulegt. 

   Hvernig getur það verið bein krafa að 50% ríkisstjórnar séu konur??  Af hverju að vera koma með þessa umræðu núna þegar loksins næstum helmingur alþingismanna eru konur. Einnig að hlutföllin í ríkisstjórninni eru nánast jöfn, og að þar sér maður, að fólk er valið eftir hæfni(í flestum tilfellum). 

    Þess vegna segi ég aftur.....þvílíkur hálfvitaskapur!!!

Jóhannes (IP-tala skráð) 13.5.2009 kl. 17:00

18 identicon

Mátti til með að bæta við.

    Var núna að lesa ályktun ungra vinstri grænna. Maður veit s.s. að þetta lið þarfnast athygli, en að þeir skuli apa þetta eftir ráðherranum segir nú ansi mikið, ekki satt?

   Þrátt fyrir þetta mun maður ennþá styðja vinstri græna með samfylkingu, en er þetta ekki magnað, að hugsa sér að reyna að eyðileggja uppbyggingu Íslands, með hálfvitaskap.  

    Anna Sigríður,

        Öfgar verða alltaf öfgar, alveg sama hver á í hlut. Þetta er augljóslega rugl tillaga, gerð til í útsmognum pólitískum tilgangi. Þetta snýst ekkert um eitthvað tjáningarfrelsi. Þetta snýst um FRELSI, Þ.E. FRELSI til að standa á eigin fótum, og ekki þurfa að lúta, heimskum stjórnmálamönnum, og hana nú!!  

Jóhannes (IP-tala skráð) 13.5.2009 kl. 17:12

19 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Þú hittir naglann á höfuðið sem oft áður, Sigurjón Þórðarson. Auðvitað snýst þetta um ESB enn og aftur. SJS á undir högg að sækja, því að VG=hreyfingin er sem ostur, sem maðkar hafa komist í, EBé=maðkar NOTA BENE !

Atli Gíslason, sem ég sá fyrir mér sem ráðherra, talaði sig fram úr ráðherrastólnum með ótímabærum yfirlýsingum gegn ESB-umsókn. Jafnvel greindustu mönnum getur orðið á í hita leiksins.

ég vona samt, að Atli Gíslason láti ekki deigan síga og eflist frekar í andstöðunni gegn Evrópu-auðvaldinu.

Með kveðju, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 19.5.2009 kl. 08:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband