Leita í fréttum mbl.is

Ráðningin sýnir ráðaleysi Geirs

Það er augljóst að Geir Haarde ber ábyrgð á stöðu efnahagsmála á Íslandi hvað sem ýmsir vinir ríkisstjórnarinnar, s.s. Katrín Júlíusdóttir, reyna að bera blak af honum. Sumir reyna jafnvel að telja fólki trú um að George Bush eigi meginsökina vegna heimskreppunnar. Það er auðvitað ekki svo þar sem Geir hefur sýnt algjört andvaraleysi gagnvart erlendri lántöku viðskiptabankanna sem hafa dælt fé til viðskiptavina til að kaupa húsnæði og bíla. Í lok árs 2005 var staða þjóðarbúsins neikvæð við útlönd um 856 milljarða en hefur nú versnað gríðarlega, í vor var hún 2.212 milljarðar.

Til þess að komast út úr erfiðleikunum er ráðinn fyrrum forstöðumaður Hagfræðistofnunar HÍ sem hefur m.a. komið með það sérkennilega ráð að hætta þorskveiðum í nokkur ár í þeirri von að þorskurinn staflist upp á miðunum, og staflist síðan eftir það í enn stærri stæður.

Á vordögum 2006 skilaði nýi efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar af sér skýrslu ásamt hagfræðingnum Mishkin þar sem meginefnið var að efnahagslífið á Íslandi stæði einkar styrkum fótum og var skýrsla hagfræðinganna ósammála varnaðarorðum Danske bank um íslenska fjármálakerfið. Ef meira mark hefði verið tekið á þeirri gagnrýni sem íslenska fjármálakerfið varð fyrir á haustdögum 2005 frá Danske bank væri staðan allt önnur og Geir léttari í skapi.

Það er eins og mig minni að nýráðinn efnahagsráðgjafi hafi einnig talið að skuldabréfaútgáfa í íslenskum krónum, svokölluð jöklabréf, sýndu styrk íslenska efnahagskerfisins og blásið þar með á þá gagnrýni að þetta gæti verið varasamt. Það kemur á óvart að Tryggvi stökkvi í þessa vinnu því að maður hefði haldið að fjárfestingarfyrirtækið Askar Capital sem Tryggvi stýrir þyrfti á öllu sínu að halda eftir að hafa tapað 800 milljónum króna í fyrra.

Það er ekki úr vegi að óska þeim Geir og Tryggva góðs gengis. Ekki veitir þeim af. En þeir verða þá að horfast í augu við og viðurkenna fyrri mistök.


mbl.is Nauðsynlegt að ná niður verðbólgu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Einarsson

Mér persónulega finnst þetta skref í rétta átt og loksins er yfirvaldið að viðurkenna að efnahagskerfið er ekki eins gott og það tönglast á í hverju einasta viðtali. Það þurfa fleiri en almenningur að halda að sér höndum og byrja að spara.

Sævar Einarsson, 18.7.2008 kl. 17:50

2 Smámynd: Beturvitringur

Það er mikill styrkur í því að viðurkenna veikleika sinn! Gefum sjens

Beturvitringur, 18.7.2008 kl. 20:51

3 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Mér hefur þótt aðal vandamál Ríkisstjórnarinnar það að horfast í augu við staðreyndir.

Það er alls ekki hægt að taka á neinum vanda hvorki þessum né öðrum þegar hlutirnir eru ekki séðir í réttu ljósi.

Meðan það er líf, þá er von, er það ekki ?

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 18.7.2008 kl. 21:19

4 identicon

Kanski Geir fari að rétta skútuna við með aðsoð fagaðila vonandi!

guðjón einarsson (IP-tala skráð) 18.7.2008 kl. 21:57

5 Smámynd: Óskar Þorkelsson

he he ég gat ekki annað en brosað þegar ég las þetta.. svo satt Sigrujón.. svo satt allt saman. 

Óskar Þorkelsson, 18.7.2008 kl. 22:19

6 Smámynd: Árni Gunnarsson

Tryggvi Þór er gleggri og raunsærri en flestir þeir hagspekingar sem ríkisstjórnir okkar hafa haft á að skipa undanförnu. Það er allavega mitt mat á honum. En auðvitað er hann ekki alvís. Friðunarpólitík í fiskveiðstjórn hefur ekkert með skynsemi að gera eins og við vitum. Þetta er slæmur vírussjúkdómur, og það er alkunna að afar erfitt er að fást við vírusa. Þar duga engin venjuleg lyf.

Mér hefur stundum dottið í hug hvort stólpípan gamla og góða hafi nokkurntíman verið reynd þar til þrautar.

Hún reddaði þó Jónínu Ben þarna í Póllandi!

Árni Gunnarsson, 18.7.2008 kl. 23:34

7 Smámynd: Hinrik Jóhannsson

er ekki bara verið að ná sér niður á auðmenn og setja á hausinn eins og hafskip hér um árið

Hinrik Jóhannsson, 18.7.2008 kl. 23:41

8 identicon

Tryggvi þór segir. Mitt hlutverk verður að aðstoða forsætisráðherra við að leiða saman fólk til að koma með lausnir.Ég segi nei takk ekki fleiri afætur sendum allan þingheim til Italiu og fáum framsóknarmanninn Paul Ramses til að taka til.Einn fyrir 63 og allan aragrúa af fólki og við spörum marga miljarði en þjóðin heldi krónunni og Ramses.

Lúðvík (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 00:29

9 identicon

Ég held að staðan sé í dag sú að Guð einn getur hjálpað okkur Íslendingum til að rétta kompásinn af.  

Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ

B.N. (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 00:50

10 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Það er óttalega aumt hjá þessari ríkisstjórn að ráða efnahagsráðgjafa eftri dúk og disk sem síðan á væntanlega að skýla sér bak við í framhaldinu.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 19.7.2008 kl. 01:53

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Á vordögum 2006 skilaði nýi efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar af sér skýrslu ásamt hagfræðingnum Mishkin þar sem meginefnið var að efnahagslífið á Íslandi stæði einkar styrkum fótum og var skýrsla hagfræðinganna ósammála varnaðarorðum Danske bank um íslenska fjármálakerfið. Ef meira mark hefði verið tekið á þeirri gagnrýni sem íslenska fjármálakerfið varð fyrir á haustdögum 2005 frá Danske bank væri staðan allt önnur og Geir léttari í skapi.


Og engu að síður hafa hlutabréf í Danske Bank helmingast í verði á síðustu 12 mánuðum - og - öll þjóðfélög í ESB eru að fara að undirbúa langa 8-10 ára dvöl inni á ESB-klósettinu.

Greining Jyske Bank frá 04:07:08: Evrópskir bankar eru til dæmis í mun meiri hættu frá undirmálslána-kreppunni en amerískir bankar eru því þeir hafa einfaldlega fjármagnað stærsta hlutann af þessum lánum, eða samtlas 900 milljarða dollara - Púnktur

Gullna hliðið lokast - gengishrun evru yfirvofandi ?

Það verður ekki gaman að heyra sönginn í ESB búum þegar þeir koma út sumarfrínum til þess eins að opna uppsagnarbréfin. Danske Bank er bara banki, - alveg ágætis banki, en samt einungis banki og einnig stjórnað af mönnum Útrás Danske Bank klikkar herfilega

Gunnar Rögnvaldsson, 19.7.2008 kl. 08:16

12 Smámynd: Hanna

Ég tel að Geir sé að viðurkenna mistök með þessari ráðningu.  Sjálfsagt að gefa þeim sjens - ástandið verður varla verra en það er núna.

Hanna, 19.7.2008 kl. 09:20

13 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það er ekkert að því fyrir stjórnvöld, sem sinna viðamiklum störfum og axla þunga ábyrgð, að afla sér sérfræðiþjónustu. Hennar er eflaust þörf á tímum eins og nú.

Kæmist þú á ráðherrastól, Sigurjón, yrðirðu þá manna óráðþægastur?

Svo skulum við bara vona, að þessi ráðning verði ekki til þess, að nein Eessbé-einsýni komist á borð þeirra félaga, Geirs og Tryggva.

Jón Valur Jensson, 19.7.2008 kl. 09:36

14 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Jón Valur, ýmsir mætir menn tekið að sér ráðgjöf á þessu sviði og ber fyrstan að nefna Benjamín Eiríksson og mér hefði þótt mjög ólíklegt annað en Benjamín hefði goldið varhug við ástandi efnahagsmála í byrjun árs 2006 en þá var Tryggvi fenginn til að skrifa skýrslu ásamt bandaríkska hagfræðingnum, Miskhin. 

Það er óhætt að fullyrða að  Tryggvi Þór hafi metið ástand efnahagsmála í skýrslunni með mjög svo óraunsæjum hætti en hér að neðan er útdráttur úr henni sem er að finna á vef fjármálaráðherra, en henni var einkum ætlað hrekja skrif Den Danske bank um veikleika íslensks fjármálalífs.

Bent er á að undirstöður íslensks efnahagslífs eru traustar; hagkerfið er sveigjanlegt, lífeyrissjóðakerfi landsmanna sjálfbært og staða ríkisfjármála einstaklega góð. Aukinn viðskiptahalli og erlend skuldasöfnun eru ekki merki um erfiðleika heldur afleiðing lántöku til arðbærra fjárfestingarverkefna.

Það að íslensk heimili nýta sér sterkt gengi krónunnar og flytja inn varanlegar neysluvörur og draga síðan úr slíkum innflutningi þegar krónan veikist er talið merki um hagsýni þeirra.

Einnig er bent á að þrátt fyrir öran vöxt lántakna íslenskra banka erlendis hafi lánveitingar og eignir þeirra erlendis einnig vaxið hratt. Þar sem áhættumat bankanna er gott og þeir ekki viðkvæmir fyrir sveiflum á gengi krónunnar er hröð aðlögun á gengi krónunnar ekki talin ógn við fjármálastöðugleikann. Þar sem reglur og eftirlitsstofnanir fjármálamarkaðarins eru jafnframt skilvirkar telja skýrsluhöfundar fráleitt að bera stöðu mála á Íslandi í dag saman við það ástand sem ríkti í löndum Asíu áður en fjármálakreppa skall á þar fyrir tæpum áratug.

----------- 

 Árni Mathiessen tók undir það sem fram kom í skýrslu hagfræðinganna og mál veltust áfram með þeirri undantekningu að bankarnir notuðu tækifærið og fjámögnuðu sig lengra fram í tímann og voru að því leytinu til betur undirbúnir undir kreppu á lánsfjármörkuðum haustið 2007 en sumir erlendir bankar að öðru leyti breyttist ekkert.

Danske bank hafði nefnilega mjög margt til síns máls í sínum viðvörunum og það áttu stjórnmálamennirnir Árni Matt og núverandi forsætisráðherra að vita.  Íslenskt fjármálalíf reyndist brothætt og það sem furðulegast er að Geir Haarde neitar að skoða sumar leiðir til að komast út úr ófærunum s.s. að veiða meiri þorsk.

Í stað þess að styrkja varnir  í lok árs 2005,  2006 og á árinu 2007 s.s. að takamarka innstreymi lánsfjár í landið, ákvað formaður Sjálfstæðisflokksins að gera ekki neitt og bankarnir héldu áfram að bera inn lánsfé í enn meiri mæli en áður þekktist.  Síðla sumars 2007 fór síðan að draga verulega úr aðgangi að lánsfé og það varð dýrara en áður sem leiddi það fljótleg til lækkunar á gengi krónunnar eins og Danske bank hafði spáð fyrir um og mikilli verðbólgu.

Niðursveiflan í íslensku efnahagslífi var fyrirsjáanleg en Geir Haarde ákvað einhverra hluta vegna að gera ekki neitt á sínum tíma og "nýi" ráðgjafinn Tryggvi Þór skellti sömuleiðis skollaeyrum við öllu tali um að eitthvað mætti betur fara. 

Nú er spurningin hvort að Geir og Tryggvi Þór séu réttu mennirnir til þess að koma þjóðinni út úr þeim vanda sem þeir sáu ekki þó svo þeim væri rækilega bent á hann.

Ég hef mínar efasemdir um það.

Sigurjón Þórðarson, 19.7.2008 kl. 11:32

15 Smámynd: Jón Magnússon

Er það ekki eðlilegt Sigurjón að Geir skuli velja Tryggva til að aðstoða sig. Tryggvi hefur verið helsti sporgöngumaður efnahagsstefnu ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar og síðari framlenginga af henni. Þá gat hann að vísu sveipað sig vísindaskikkjunni vegna starfa sinna í Háskóla Íslands.  Tryggvi Þór ber því ábyrgð á efnahagsástandinu. Þess vegna er það e.t.v. rökrétt afleiðing af fyrri störfum Tryggva að velja hann sem sérstakan efnahagsráðgjafa.

Jón Magnússon, 19.7.2008 kl. 12:01

16 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Það virðist fokið í felst skjól hjá ríkisstjórninni og hún trúlega búin að  átta sig á stöðunni. Auðvitar velur forstætisráðherran þann einstakling til starfmans sem er á sama máli og hann til að styrkja stöðu sína, það er rökréttu samhengi.

Það verður hins vegar spurning um réttmæti og áreiðanleika þegar kemur að niðurstöðum og tillögum. Eðlilegra hefði verið að velja óhlutdrægan einstakling, jafnvel fleiri en einn til að leggja fram raunhæft mat á stöðunni og tillgögur sem eru í takti við það.

Það kann aldrrei góðri lukku að stýra þegar pólitíkin ræður för í ráðgjöfinni, því væri það trúverðugra ef þverfagleg samvinna liggur að baki henni.

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 19.7.2008 kl. 13:09

17 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég varð nú svolítið bjartsýnn þegar fyrstu fréttir komu af þessari ráðningu, hugsaði með mér að loksins ætlaði ríkisstjórnin að gera eittvað í efnahagsmálunum en svo kom viðtal við Tryggva Þór og þá var mér ljóst að hann hafði bara verið ráðinn til þess að VERJA AÐGERÐALEYSI ríkisstjórnarinnar í þessum málaflokki, því miður verð ég að segja að ég hef mun minna álit á Tryggva Þór eftir þessa uppákomu en áður.

Jóhann Elíasson, 19.7.2008 kl. 13:29

18 Smámynd:  Grétar Rögnvarsson

þarf Geir einhvern ráðgjafa, hefur hann ekki snillinginn Davíð Oddsson sem ráðgjafa,þetta gengur allavega rosalega vel hjá þeim.

Grétar Rögnvarsson, 19.7.2008 kl. 15:57

19 Smámynd: Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)

Í mínum augum er þetta gott hjá kallinum.

Hinsvegar hefði verið heppilegra að leita hjálpar fyrr.

Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock), 19.7.2008 kl. 16:30

20 identicon

Hefði ekki verið nær fyrir Geir að ráða Þorvald Gylfason sem var það frammsýnn að vara við þessu og það fyrir mörgum árum. Þorvaldur gæti síðan fengið Guðmund Ólafson hagfræðig til að hjálpa til.

Valsól (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 17:22

21 Smámynd:  Grétar Rögnvarsson

Þorvaldur Gylfason er of klár fyrir Geir og svo er hann ekki venslaður rétt pólitískt séð.

Grétar Rögnvarsson, 19.7.2008 kl. 21:15

22 Smámynd: Árni Gunnarsson

....Þrjátíu stig er minn óskahiti. Við fjörutíu og fimm gráður.....líður mér eins og spældu eggi og var álíka frjór í hugsun og forsætisráðherra á krepputímum.

(Úr dagbók Þráins Bertelssonar, Fréttablaðið 19. júlí 2008)

Árni Gunnarsson, 20.7.2008 kl. 11:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband