Leita í fréttum mbl.is

Bjartasta vonin dofnar

Ýmsir eru farnir að velta því fyrir sér hver verði næsti formaður Sjálfstæðisflokksins. Þeir sem hingað til hafa verið taldir líklegri til þess að taka við keflinu hafa ekki styrkt stöðu sína á kjörtímabilinu.  Sammerkt er með þeim að þeir hafa gjarnan boðað mikla sókn og breytingar með stórfenglegri flugeldasýningu, en þegar til kastanna hefur komið hefur skotist upp lítil ýla sem varla hefur náð upp fyrir þakskeggið. 

Guðrún HafsteinsÍ kjölfarið hefur nafn Guðrúnar Hafsteinsdóttur oftar verið nefnt til sögunnar sem vænlegur kostur. Hún hefur ekki verið með mikið orðagjálfur, heldur boðað breytingar með yfirveguðum hætti og að því virðist reynt að vinna þeim.

Nú í þinginu í síðustu viku virtist sem að það væri slokknað dómsmálaráðherranum í svörum við fyrirspurnum um landamæragælsu og vanrækslu flugfélaga við að upplýsa hverjum þau eru að fljúga til landsins.

Guðrún virkaði eins og hver annar ísaður embættismaður langt innan úr kerfinu sem var sáttur við að hingað kæmu liðlega 150 þúsund manns árlega sem stjórnvöld vissu engin deili á.  Ráðherrann virtist hamingjusamur með að íslensk lög vikju fyrir sjónarmiðum flugfélaganna þar til búið væri að fara í einhverjar viðræður um málið við Evrópusambandið.  Það hreyfði ekki við neinu þó svo að dæmi væru um að útlendingum sem hefði verið brottvísað kæmu til landsins hvað eftir annað m.ö.o. landamærin eru galopin. 

Svör við því hvort taka ætti upp auknu eftirliti á landamærunum voru með sama sniði - engin pólitísk sýn eða skilaboð og öllum ákvörðunum vísað til ríkislögreglustjóra.

Það er vonandi að dómsmálaráðherra hressist sem fyrst og boði festu í málaflokknum - Ekki veitir af.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Meira hvað þessi útlendingamál geta vafist fyrir fólki. Mér þykir mjög auðvelt að segja tökum um 5% af landsmönnum, hlúum að þeim og byggjum þeim gott líf á Íslands. Þeir eiga að læra íslensku og geta fótað sig í íslensku samfélagi.

Meira hvað þingmenn eru fljótir að falla ofan í gamla skurði í stað þess að hefja mokstur á nýjum. ;) 

Hef orðið vör við að grunnskólar senda upplýsingar á ensku til foreldra sennilega til að létta þeim lífið ef maður spyrði. Slíkt á að banna, gervigreindin getur þýtt íslenskuna fyrir þetta fólk og liður í að lesa íslensku. Við aumingjavæðum útlenda fólkið í landinu með því að halda íslenskunni frá því. Túlkaþjónusta á bara að vera í boði í 2-3 ár, síðan á kostnað foreldra.

Við þurfum að hreinsa til það er nokkuð ljóst.

Helga Dögg Sverrisdóttir (IP-tala skráð) 16.3.2024 kl. 09:18

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Sjálfstæðisflokkurinn hætti að vera hægri flokkur í valdatíð Bjarna. Er rekald á öldum stjórnmálanna í dag.

Birgir Loftsson, 16.3.2024 kl. 09:32

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Sjálfstæðisflokkurinn gengur út á að þjóna auðmönnum og þingmenn flokksins kippa sér ekki upp við að leggja stein í götu minni atvinnurekenda á þeirri leið.

Sigurjón Þórðarson, 16.3.2024 kl. 09:47

4 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Sigurjón þú varst einu sinni bjartasta vonin í Frjálslynda flokknum. Svo hafðir þú ekki einu sinni manndóm til þess að halda flokknum þínum á floti. Guðrún er að taka á málum sem þú hafðir aldrei manndóm til. Nú ert þú kominn á endastöðina, ferð að líta á pláss á elliheimilinu. Varðhundur kerfisins. Reynir að verja aðgerðir heilbrigðiseftirlitsins um allt land. Þú verður mjög  leiðinlegt gamalmenni. 

Sigurður Þorsteinsson, 16.3.2024 kl. 13:44

5 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Sigurjón sérðu ekki fyrir þér þegar þú ert kominn á elliheimilioð og þá kemur athugasemd. ,,Ég vil ekki að ún mamma eða pabbi fái herbergi við hliðina á honum Sigurjóni, hann er svo leiðinlegur!"

Sigurður Þorsteinsson, 16.3.2024 kl. 13:50

6 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Góðan daginn Sigurður á þessum yndislega fallega degi - þú ert ágætur.  

Sigurjón Þórðarson, 16.3.2024 kl. 15:26

7 identicon

Sæll Sigurjón æfinlega; sem og aðrir þínir gestir !

Þakka þjer fyrir; raunsæja lýsingu á stjórnarháttum

hinna hefðbundnu blýanta nagara stjórnarráðsins, suður

í Reykjavík, Sigurjón.

Helga Dögg og Birgir !

Beztu þakkir; ekki síður til ykkar, fyrir myndræna

lýsinguna á íslenzka stjórnmála óskapnaðinum, ekki

síður.

Sigurður Þorsteinsson !

Alltaf; skalt þú finna leiðir, til þess að bera blak

af Valhallar hlandforinni, Sigurður minn.

Á hverju; sem gengur.

Úlfar Lúðvíksson; Suðurnesja lögreglustjóri var, í

tíð gufumennisins Jóns Gunnarssonar, ekki síður en

arftaka Jóns:: Guðrúnar Hafsteinsdóttur búinn að fara

fram á, að fá aðgang að farþegalistum flugfjelaganna

sem á Sandgerðis (ekki Keflavíkur) flugvelli lentu -

og lenda. Hvorki Jón nje Guðrún hafa tekið hið minnsta

mark á beiðni Úlfars, frekar ýtt undir stjórnleysið

í komu allra handanna útlendinga, þar syðra.

Sigurður minn.

Við skulum ekkert útiloka; að Sigurjóni takist að

blása glæðum í áframhald og endurkomu Frjálslynda

flokksins, ekki myndi af veita, í því kviksyndi

stjórnmálanna, sem landsmenn búa við, nú: um stundir.

Með beztu kveðjum, sem endranær, af Suðurlandi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 16.3.2024 kl. 18:37

8 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Styð ég eindregið þessa tillögu Óskars Helga, að endurvekja Frjálslynda flokkinn. Hann var talsvert á undan sínum samtíma, og ef fylgi við hann er nægilegt nú má búast við að fólk undir hans formerkjum geri betri hluti en valdafólk nú.

Segjum aldrei að menn séu of gamlir í pólitík ef þeir hafa kjark og vit og fá stuðning almennings.

Ingólfur Sigurðsson, 17.3.2024 kl. 03:28

9 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Óskar það er engin spurning að Sigurjón var afar gott efni í góðan stjórnmálamann. Hann lenti hins vega rí því að koma á þing með flokksformanni sem þekkti ekki sinn vitjunartíma og þó Sigurjón tæki við sem flokksformaður í tvö ár beið Frjálslyndi flokkurinn afhroð í næstu kosningum. Óeiningin innan flokksins var bara of mikil. Hins vegar hefur Sigurjón breyst í afdankaðan kerfiskall sem nú ver sennilega óvinsælasta opinbera batteríið þ.e. Heilbrigðiseftirlitið. Á reyndar ekki trú að hann notið þann nýbingskap sem starfsmenn eftirlitsins nota um land allt. Guðrún Hafsteinsdóttir kemur hins vegar inn á þig og gerir kröfur og formaður Sjálfstæðisflokksins ýtir út einum vinsælasta ráðherra sínum Jóni Gunnarssyni og hún tekur við á miðju kjörtímabili. Það þýðir í mínum huga að hún hafi gert kröfur og þær hafi þótt það málefnalegar að hún hafði betur. Svo kemur hún fram í þessum útlendingamálum af röggsemi og leiðir stærstu breytingar sem gerðar hafa verið í kerfinu. Auðvitað er ekki allt vonlaust í þessu kerfi frekar en heilbrigðiseftirlitinu, og það gagnrýnir  Sigurjón. Í hans stöðu mætti hann vera sanngjarnari. Óskar þið Pítatamenn eruð auðvitað í tómri steypu. Ég ætla ekki að biðja þig um að taka hausinn úr sandinum, þú ert með hann í miðjum fjóshaug. 

Sigurður Þorsteinsson, 17.3.2024 kl. 09:22

10 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ekkert skil ég í síendurteknum fullyrðingum Sigurðar um að hve Heilbrigðiseftirlitið sé óvinsælt.  Ég verð ekki var við annað en að almenningur vilji hafa virkt matvæla- og hollustuháttareftirlit m.a. til þess að tryggja matvælaöryggi og að börn í skólum búi við góð skilyrði svo eitthvað sé tínt til.  Það er ekki óalgengt að fólk leiti ráða um eitt og annað en á síðustu dögum hafa komið ýmis erindi þess efnis m.a. hvað varðar; skipulag á matvælavinnslu, gæðhandbókar á hóteli, umferðar og öryggismál á skíðasvæði, hvernig á að komast í gegnum erfiða skráningarreglugerð sem Guðlaugur Þór setti, hvað eigi að gera við mengaðan jarðveg ofl. 

Það liggur reyndar fyrir nýleg þjónustukönn 81% af þeim sem svöruðu töldu þjónustuna sem Heilbrigðiseftirlitin veita vera í meðallagi eða góða. 

Það er erfitt að átta sig á ferðalagi Guðlaugs Þórs en hann hefur verið með villandi málflutning og gert lítið úr fólki sem vinnur við matvælaeftirlit m.a. með fullyrðingum um að það sé haldið einhverju vaskablæti!  Mögulega verður ráðherrann stærri í augum einhverra og jafnvel sínum eigin með þessu tali. 

Í sjálfu sér er ekkert að því að ríkisvæða þessa þjónustu sveitarfélaganna en þá væri nærtækara að ráðherra kynnti nýtt skipulag og kosti þess og útfærslu. Sjálfstæðisflokkurinn verður að útskýra þessa undarlegu aðferðafræði og afstöðu til stofnanna sveitarfélaganna í landinu.

Ekki ætla ég að hafna því að ég sé kerfiskarl en ég held að ég sé bara þokkalega góður á því sviði eins og sumu öðru sem ég tek mér fyrir hendur.

 

Sigurjón Þórðarson, 17.3.2024 kl. 11:13

11 identicon

Sælir; sem fyrr !

Ingólfur !

Þakka þjer fyrir; drengilegar og heiðarlegar undirtektir,

við minni málafylgju.

Sigurður !

Jeg sje ekki betur; en að Sigurjón hafi komizt ágætlega

frá vel ígrunduðum tilsvörum gagnvart þínum hugleiðingum -

svo er jeg ekki Pítatamaður Sigurður minn (hafir þú átt við Pírata gerpin hefi jeg álíka skömm á þeim:: sem og á núverandi stjórnarflokkum, að Viðreisn og Samfylkingu við

bættum).

Er fjóshaugur; nokkuð verri viðverustaður, fremur en

sandbingur, Sigurður minn ?

Ekki síðri kveðjur; þeim hinum fyrri /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 17.3.2024 kl. 12:13

12 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Sá sem er með hausinn í sandinum, skilur ekkert kannski er þetta ekki spurningin um sandinn, heldur fjóshauginn eins og hjá vini þínum Óskari. Forsvarsmaður Beint frá býli kemur fram í lok síðustu viku og gagnrýnir bæði Heilbrigðiseftirlitið og regluverkið og án þess að kynna þér gagnrýnina kemur þú eins og þú sjálfur segir, kerfiskall, og ég skal bæta við ,,afdankaður" og hafnar gagnrýninni. Þættir að skammast þín Sigurjón. Tali þig meiri mann en þetta. Svo nefnir þú hagsmuni barna, minn samstarfsmaður á þessu sviði hefur bæði miklu meiri menntun, reynslu og þekkingu á því sviði en þú og segir að það væri mikill fengur að meiri framleiðslu frá aðilum eins og þeim sem framleiða Beint frá býli. Við erum ekki að skrifast hér á eingöngu maður á mann, heldur lesa þetta fleiri. Fékk símtal rétt áður frá smáframleiðanda hann sagði. ,,Auðvitað eigum við að safna saman, hvernig þetta kerfi níðast á okkur Vandamáli er bara að þessir aðilar ,,hefna sín". " Geðsleg Sigurjón. Skal sjá til þess að þessir aðilar komi sínum sjónarmiðum á framfæri. Skal sannarlega taka þátt í því að láta fara yfir það kerfi sem umhverfisráðherra, m.a. regluverk. Sá gutti ætti að gera eitthvað í málunum. 

Sigurður Þorsteinsson, 17.3.2024 kl. 13:00

13 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Held að Sjálfstæðisflokkurinn hafi tekið fyrstu skrefin í að verða Ósjálfstæðiflokkurinn, þegar Gunnar Thoroddsen myndaði klofningsstjórnina fyrir rúmum fjórum áratugum; en hann vissi vel af heilræðum Jóns Þorlákssonar frá 1926-9 að samruni Íhaldsflokksins og Frjálslynda myndu enda þannig.

En það var Davíð sem breytti honum í Marxistaflokk.

Guðjón E. Hreinberg, 17.3.2024 kl. 13:37

14 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Sigurður það hefur komið fram í fyrri svörum að ég hafi einmitt rætt við  Oddnýju Önnu um þessi mál og tel að við séum á sama báti þ.e. að vilja rýmka reglur fyrir smáframleiðendur en þó þannig að matvælaöryggið sé ásættanlegt og samkeppnisaðstöðu minni framleiðenda sem eru þegar með fullgild leyfi sé ekki raskað.  

Það er óumdeilt að skráningarreglugerð umhverfisráðherra hefur miklu frekar gert minni atvinnurekendum erfitt fyrir en greitt götu þeirra við að afla sér leyfis.  Ég er ekki viss um að þið "Sjálfstæðismenn" séuð að gera matvælaeftirliti greiða eða hvað þá ykkar sjónarmiðum um einkavæðingu og draga úr beinu matvælaeftirliti, með þessum sviguryrðum á borð við; að heilbrigðisfulltrúar séu með vaskablæti, eða þátttakendur í Sovéskum grínþættti, ofsæki atvinnurekendur, ástundi hefnd og þeir sem bera hönd fyrir höfuð sér fá stimpilinn afdankaðir kerfiskarlar sem þyrftu að fara ef vel ætti  að vera á einangraða vist á elliheimili.  Hvaðan kemur þessi illska og fordómar?

Guðjón já ég er sammála því að flokkurinn sé fyrir löngu búinn að snúast upp í andhverfu sína. Einn helsti vandi smábátasjómanna nú er mikil þorskgengd.  Það segir eitt og annað um delluna ef vandamál fiskveiðiþjóðar eru góð aflabrögð.  Ekki nóg með að Sjálfstæðisflokkurinn reyni með öllum ráðum að bregða fæti fyrir smábátasjómenn í þjónkun við örfáar stórútgerðir heldur er gengið lengra í að koma fyrir að að sjávarbyggðirnar nái vopnum sínum.  Dæmi er um að sjávarbyggð sem misst hafa nánast allar veiðiheimildir fái ekki einu sinni að nýta þann þara sem er úti fyrir ströndinni. 

Sigurjón Þórðarson, 17.3.2024 kl. 14:35

15 identicon

Komið þið sæl; enn á ný !

Guðjón E. Hreinberg !

Afbragðs útskýring þín; hversu komið er fyrir þessarri

flokks ómynd, hver flaggar fölskum fánum sjálfstæðis.

Sigurjón !

Minna mætti Sigurð Þorsteinsson einnig á; hversu

sugljóst samspil Engeyinganna (Bjarna Benediktssonar 

og ættinngja hans) er við glæpa- og hryðjuverka

fjelagið Samherja:: hvert á sjer jú dyggan formælanda

hjer á Mbl.vefnum (blog.is) sem er Páll Vilhjálmsson

blaðamaður og kennari með meiru, svona áþekk tryggð

Páls við þetta lið, og hið dapurlega Sigtúns fjelag

þeirra Selfyssinganna, hvar meirihluti bæjarstjórnar

Selfosskaupstaðar og hjáleigna hans (gengur undir

heitinu Árborg:: í daglegu tali), hefur svarizt í

fóstbræðralag með Kristjáni Vilhelmssyni og hans

fylgifiskum ýmsum, með því að færa þeim miðbæ sinn

á einskonar Silfurfati smjaðurs og inngróinnar

spillingar, sem öllum er kunnugt, sem vita vilja.

Hún er viðar þróttmikil; Mafíu starfsemin, en suður

á Síkiley og í nágrenni hennar !

Beztu kveðjur; sem fyrr og áður /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 17.3.2024 kl. 15:18

16 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Sigurjón við erum þá sammála um að efla framleiðslu t.d. hjá þeim sem vinna Beint frá býli, og auðvitað verður að gera gröfur. Sérstaklega að gera bændum kleyft að auka tekjur sínar. Þá ekki þessar kröfur í dag og aðrar á morgun. Með því að setja starfsmönnum heilbrigðiseftirlitana skýrari vinnureglur þá hef ég ekkert við það að athuga að þeir séu opinberir starfsmenn. Aðalatriðið að samskiptin séu á plani. 

Sigurður Þorsteinsson, 17.3.2024 kl. 16:01

17 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Vel á minnst. Var farinn að sagka Óskars Helga Helgasonar mikið. Gaman að heyra frá honum afur. 

Sigurður Þorsteinsson, 17.3.2024 kl. 16:03

18 identicon

Komið þið sæl; enn á ný !

Sigurður !

Þakka þjer; hlýtt hugarþel, mjer til handa.

Í Janúar 2015: ákváðu Hádegis móa menn (Morgunblaðsmenn), 

að kasta svarthamars síðu minni fyrir róða, jeg hafði verið

full harðorður í garð Lífeyrissjóða kerfisins, meðfram

ýmsu öðru, sem (í innlendum og útlendum málefnum), hafði

jeg víst verið full tungulangur, fyrir þeirra smekk.

Hefi reyndar ekki; gert neitt í því, að fá síðu mína (stofnaða á blog.is í Apríl 2007) endurreista - og óvíst,

hvort jeg nenni hjeðan af, að fá hana endurreista þar uppfrá (í Hádegis móum) Sigurður minn.

Ekki síðri kveðjur; fremur venju / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 18.3.2024 kl. 21:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband