Leita í fréttum mbl.is

Fundur haldinn í skugga mannréttindabrota formannsins

Ef eitthvert púður er í almennum flokksmönnum Vinstri grænna hljóta þeir að krefja aðalritara sinn svara við því hvers vegna í ósköpunum hann hafi vanvirt álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna og haldi áfram að brjóta mannréttindi á sjómönnum. Það er vitað að Steingrímur J. studdi framsal veiðiheimilda á sínum tíma og hefur verið stuðningsmaður óréttláts kvótakerfis sem markaði upphafið að hruninu.

Núna um helgina væri tækifæri fyrir Steingrím J. til að iðrast og snúa við blaðinu.


mbl.is Sterk skilaboð frá yngra fólki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

ertu að tala um systurnefnd nefndar SÞ sem hyllti kínverja fyrir góðan árangur í aftökum á föngum?

Fannar frá Rifi, 20.3.2009 kl. 18:45

2 identicon

Sigurjón, ég spyr þig, sem fulltrúa flokks sem var stofnaður utan um eitt mál, að leggja niður kvótakerfið, en ekkert miðað í áttina, þú jafnvel ekki náð eyrum kjósenda og dottið út af þingi. Telur þú þig í alvöru vera þess umkominn að reyna að gera lítið úr Steingrími J. Sigfússyni og hans gjörðum á alþingi? Fyrir þér og þínum örfáu flokksfélögum er nöldrið um lögin um stjórnun fiskveiða, alfa og omega allrar ykkar umræðu að frátöldum bræðravígum og illdeilum innan flokksins. Helmingur þigflokksins hlaupinn fyrir borð í miðjum róðri!!! Enginn árangur! Ykkar tími er liðinn kallinn minn!!!

Stefán Lárus Pálsson (IP-tala skráð) 20.3.2009 kl. 20:51

3 Smámynd: TARA

Ég held að Steingrímur hafi lítið haft með hrunið að gera.

TARA, 20.3.2009 kl. 21:06

4 Smámynd: Haraldur Baldursson

Steingrímur svífur um í bleiku skýi hjá trúuðum. Það rispar engin helgimyndina svo léttilega. Ég er svo sannarlega sjaldan sammála Steingrími, en finnst ykkur tilbiðjendurm ekki hans í lagi að gagnrýna þennan heilaga mann ?

Haraldur Baldursson, 20.3.2009 kl. 22:05

5 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Því mður er Steingrímur J. Sigfússon úlfur í sauðagæru. 

Stjórnmálamaður í lýðræðisríki sem viðheldur mannréttindabrotum fær hvergi háa einkunn nema þá helst í Kína eins og bent hefur verið á.

Sigurjón Þórðarson, 20.3.2009 kl. 22:23

6 Smámynd: TARA

Ég er ekki aðdáandi Steingríms J.S. en ég reyni að láta hann njóta sannmælis eins og alla aðra.

TARA, 20.3.2009 kl. 23:46

7 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Tara, mér finnst jákvætt að þú látir Steingrím njóta sannmælis en þá hlýtur þú að sjá að hann á mikla sök í þessu máli en hann samþykkti framsal veiðiheimilda og skrifaði bókina Róið á ný mið sem var óður til kvótakerfisins með strandveiðiívafi. 

Hann hefur síðan lagt blessun sína yfir áframhaldandi mannréttindabrotum með aðgerðum sínum eða réttara sagt aðgerðarleysi.

Sigurjón Þórðarson, 20.3.2009 kl. 23:55

8 Smámynd: TARA

Ég er sammála þér að hann fór illa að ráði sínu með veiðiheimildirnar og kvótamálin...og já sennilega má flokka aðgerðarleysi undir ákveðið brot....við veðrum bara að vona að hann sjái að sér karlanginn

TARA, 21.3.2009 kl. 00:09

9 Smámynd: Sigurveig Eysteins

Hefur Steingrímur verið Sjávarútvegsráðherra ???? Er hann ekki búin að vera í stjórnarandstöðu síðan..... alltaf ???!!! Hvað eru menn að tala um hér á þessari síðu ???? Ég geri ráð fyrir að þú sért að tala um smábátaeigendur sem eru kvótalausir. Ég hef tekið eftir því að skítkastið er byrjað hér á blogginu á meðal Sjálfstæðismanna, Framsóknar og Frjálslyndra, það kemur ekkert á óvart það er bara fastir liðir eins og venjulega fyrir kosningar.

Sigurjón þú er að biðja um annað tækifæri á að komast inn á þing, Steingrímur á líka rétt á að fá tækifæri, vandamálið með okkur Íslendinga er að það á allt að gerast í gær, gefum honum tækifæri, Steingrímur er bara búin að vera við stjórn í tvo mánuði.

Og svona að lokum þá hjálpar það þér ekki að kalla Steingrím úlf í sauðargæru, ef þú hefur einhvern áhuga á að fara á þing, þá ættirðu að vanda orðaval, það kostar ekkert, eigðu góða helgi.

Sigurveig Eysteins, 21.3.2009 kl. 01:36

10 Smámynd: corvus corax

Frjálslyndi flokkurinn er svo rosalega frjálslyndur að það litla sem hann hefur fengist við hefur gjörsamlega klúðrast og það nennir enginn að hlusta á vælið í þeim lengur. Bara eitt stefnumál, kvótamálið, af því að flokksmenn eiga hagsmuna að gæta og síðan sáttin og samlyndið í flokksbrotinu. Jón Magnússon, sá óalandi og óferjandi frekjudallur sem veit ekkert hvað pólitík er, tróð sér inn í flokkinn með alkunnri frekju sinni, hleypti þar öllu í bál og brand þannig að flokksbrotið logaði í illindum, allri þjóðinni til aðhláturs, og flúði síðan af vettvangi vegna ófriðar í flokksbrotinu. Maðurinn er auðvitað annað hvort hálfviti eða flugumaður sjálfstæðisflokksins, sendur til að eyðileggja flokksbrotið og reka villuráfandi sauðina aftur "heim" í faðm sjallanna. Ég hallast að því að maðurinn sé bæði flugumaður og hálfviti. Flokksbrotshyskið hefur engin efni á að tjá sig um stjórnmál eða stjórnmálamenn á meðan félagarnir skilja ekki stjórnmál.

corvus corax, 21.3.2009 kl. 08:05

11 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Sigurveig Eysteinsdóttir, mannréttindabrot íslenskra stjórnvalda verði hvorki betri né verri þó svo brotin séu framin af ráðherrum VG í stað ráðherrum Sjálfstæðisflokksins.

Það er ekki alveg rétt að Steingrímur J. hafi alltaf verið í stjórnarandstöðu en þegar hann var í stjórn sem þingmaður Alþýðubandalagsins þá samþykkti hann framsal veiðiheimilda.  Núna þegar hann er orðinn sjávarútvegsráðherra þá hefur hann alveg undir höfuð leggjast að koma á móts við þá sem sóttu mál sitt fyrir Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna.  Það gerir Steingrímur þrátt fyrir að boða umburðarlyndi og réttlæti -  Mér finnst Steingrímur vera úlfur í sauðagæru þegar sjávarútvegsmálin eru annars vegar.

Ef til vill finnst almennum félögum í VG það einfaldlega í góðu lagi að íslensk stjórnvöld brjóti mannréttindi einungis ef að VG er við völd - Ég á mjög bágt með að trúa því.  

Steingrímur J. Sigfússon hefur það í hendi sér að leyfa frjálsar handfæraveiðar strax og koma þar með á móts við álit Mannréttindanefnda  Sameinuðu þjóðanna.  Ekki hefur hann gert það hvað þá rætt við þá sjómenn sem sóttu málið gegn íslenska ríkinu.

Þessi hroki íslenskra stjórnvalda undir stjórn Steingrím J Sigfússon er með ólíkindum og ég vona svo sannarlega að maðurinn sjái að sér. 

Sigurjón Þórðarson, 21.3.2009 kl. 09:50

12 Smámynd: Haraldur Baldursson

Það er létt að ímynda sér uppsveifluna í smærri og stærri sjávarplássum ef handfæraveiðar væru leyfðar strax í dag. Það yrði gríðarleg lyftistöng fyrir svo marga, að réttlætanlegt er að velta fyrir sér hvers vegna þetta er ekki gert. Ef það truflar of mikið að þetta sé "gegn kvótakerfinu" getum kallað þetta vísindaveiðar.

Haraldur Baldursson, 21.3.2009 kl. 10:08

13 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Haraldur, það er rétt að það yrði miklu skemmtilegra stemning í kringum hlutina að gefa frelsi til handfæraveiða og maður vonar svo sannarlega til þess að VG sjái að sér.

Sigurjón Þórðarson, 21.3.2009 kl. 10:12

14 Smámynd: Haraldur Baldursson

Það gæti verið góð hugmynd að sem flestir sendu Steingrími hvatningu á sjs@althingi.is með eigin orðum, en titli á borð við...Leyfum frjálsar handfæraveiðar strax.

Haraldur Baldursson, 21.3.2009 kl. 10:44

15 identicon

Haraldur tók orðið af mér þarna um að skrifa bara Steingrími.  Sjómennirnir og við hin getum gert það.

EE elle (IP-tala skráð) 21.3.2009 kl. 11:10

16 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Þetta er góð hugmynd hjá Haraldi, í raun skil ég ekkert í Steingrími að vera ekki búinn að klára þetta mál. Svo virðist feimni fréttamanna engin takmörk sett, að þeir séu ekki búnir að spyrja karlinn.

Sigurjón Þórðarson, 21.3.2009 kl. 11:19

17 identicon

Segi það nú.

EE elle (IP-tala skráð) 21.3.2009 kl. 11:32

18 Smámynd: Haraldur Baldursson

Það eru mun fleiri launaðir fréttamenn hjá fjölmiðlum en starfandi. Hinir eru bara nedurvarpar aðsendra greina.

Haraldur Baldursson, 21.3.2009 kl. 12:22

19 Smámynd: Gústaf Gústafsson

Þú þreytist ekki á þvælunni um að Steingrímur J. sé mannréttindabrjótur, og ert í flokki hvar flokksmenn hafa aftur og aftur sýnt af sér vafasama hegðun varðandi kynþáttamál.

Hvernig er með formanninn ykkar, er hann búinn að selja kvótann sinn, eða situr hann á honum enn?

Ef einhver er að kasta grjóti úr glerhúsi, þá ert það þú minn kæri Sigurjón.

Gústaf Gústafsson, 21.3.2009 kl. 13:28

20 Smámynd: Jón Kristjánsson

Það er athyglisvert að lesa skýrsluna sem RÚV birtir um styrkveitingar til stjórnmálaflokkanna. Þar má sjá að bæði VG og Samfylking fá fullan kvóta frá nær öllum sægreifafyrirtækjunum, 300 þúsund kall! Enda  grjótþegja báðir flokkar um allt, sem snertir fisk.

Jón Kristjánsson, 21.3.2009 kl. 13:31

21 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Gústaf því miður er ekkert ofsagt í því sem ég sett fram um aðkomu Steingríms J að framsali veiðiheimilda.

Formaður Frjálslynda flokksins hefur nákvæmlega ekkert að fela enda varaði hann við hvert myndi stefna þegar framsalið var sett á en þá var hann formaður Farmanna og fiskimannasambandsins.

Það er ljótur leikur hjá eað reyna að draga nauðsynlega umræðu um réttindi erlends launafólks út í umræðu um kynþáttahyggju.

Ég vona svo sannarlega að liðsmenn VG hafi vit fyrir forystu flokksins en ég tel mig vita að mannréttindabrotin sem Steingrímur ber ábyrgð á og lætur viðgangast er eitur í beinum flestra.

Jón Kristjánsson, þetta skýrir ýmislegt.

Sigurjón Þórðarson, 21.3.2009 kl. 15:08

22 identicon

Menn geta nú ekki gert allt í einu, ekki  nema kanski kraftavekamenn!!

kolbrún Bára (IP-tala skráð) 21.3.2009 kl. 17:37

23 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Steingrímur J. Sigfússon er kjaftagleiður um alla hluti þangað til kemur að mannréttindabrotum sem varða kvótamál.

Sigurjón Þórðarson, 21.3.2009 kl. 20:24

24 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Þessi færsla virðist koma við kaunin hjá sumum. Ég er sammála þér að óneitanlega varpar þetta skugga á annars flekklausan málflutning Steingríms. Flokkur sem telur réttlæti og jöfnuð sitt aðalsmerki á ekki að sætta sig við mannréttindabrot. Sjálfsagt eru hvalir mikilvægari en sjómenn.

Gunnar Skúli Ármannsson, 21.3.2009 kl. 23:23

25 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já Sigurjón, mannréttindi ber að virða, svo mikið er víst, og vinna þarf þeim brautargöngu af heilindum án undanbragða í íslenskri pólítík fyrr og síðar, þar munu málefnin ætíð ofar mönnum að mínum dómi.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 22.3.2009 kl. 02:40

26 identicon

Ég er hissa á Steingrími J.  Og tek undir orð Skúla Gunnars: " - óneitanlega varpar þetta skugga á annars flekklausan málflutning Steingríms".  Hann verður að laga mál sjómannanna.

EE elle (IP-tala skráð) 22.3.2009 kl. 11:41

27 identicon

Leiðrétti mistök mín að ofan.  Það var Gunnar Skúli. sem ég var að taka undir með. 

EE elle (IP-tala skráð) 22.3.2009 kl. 19:26

28 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Útgerðarmennirnir,  sem fulltrúar Kína og muslimaríkjanna í mannréttindanefndinni sögðu að brotin hefðu verið mannréttindi á,voru á togveiðum en ekki handfæraveiðum.Því er vandséð hvernig Frjálslyndiflokkurinn getur haldið því fram að nú sé allt gott með því að senda þá á handfæri með tvær rúllur.Enda er þetta ekkert annað en sýndarmennska og rugl.

Sigurgeir Jónsson, 22.3.2009 kl. 21:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband