Leita í fréttum mbl.is

Hvar eru íslenskir fréttamenn?

Eitthvað er um að íslenskum fréttamönnum finnist það nánast neðan við sína virðingu að fjalla með gagnrýnum hætti um sjávarútveg. Á því eru sem betur góðar undantekningar, s.s. Kristinn Hrafnsson og Erla Hlynsdóttir. Í Spegli Ríkisútvarpsins er stöðugt fjallað um hrun lífríkis og fiskistofna án að taka það með í reikninginn að nánast óeðlilegt sé að ætla að stofnstærð lífvera, s.s. fiska, sem geta eignast gríðarlegan fjölda afkomenda sveiflist gífurlega. Aldrei er fjallað gagnrýnið um að hvergi í heiminum hafi tekist að byggja upp þorskstofn með þeim aðferðum sem íslensk stjórnvöld hafa stuðst við.  

Íslenskur sjávarútvegur aflar drýgsta hluta dýrs gjaldeyris þjóðarinnar sem mikill skortur er á um þessar mundir. Fréttamenn, svo og landsmenn allir, ættu því að vera vakandi yfir því hvort ekki sé hægt að gera betur en nú er gert, t.d. með því að koma í veg fyrir brottkast og veiða meira.

Frjálslyndi flokkurinn hefur í gegnum árin bent á hagkvæmara og betra kerfi en enn er í notkun hér á Íslandi, þ.e. að beita sóknarstýringu í stað þess að notast við kvótakerfi sem hvetur til brottkasts. Sömuleiðis hefur Frjálslyndi flokkurinn bent á að það sé óhætt að veiða langt umfram ráðgjöf Hafró enda hafi hún engu skilað í gegnum árin nema auknum niðurskurði.

Í Færeyjum fór fram hörð umræða í fyrrasumar um hvort ætti að skera veiðiheimildir niður um helming en ætla má að ef sú hefði orðið raunin hefðu Færeyingar ekki verið aflögufærir með lán til Íslendinga. Niðurstaðan úr þeim umræðum varð sú að stjórnin sprakk eftir að deilurnar fóru út um víðan völl, m.a. um lyklavöld í ráðuneytum.

Hvað afleiðingar hefur umframveiði um 50% haft? Í Færeyjum er mjög góð ufsaveiði og þorskurinn virðist vera að ná sér á strik á ný eftir lægð síðustu ára. Vel að merkja hefur ufsaveiðin í Færeyjum verið á síðasta áratug allt frá nokkrum tugum prósenta og upp í hundruð prósent umfram ráðgjöf reiknisfiskifræðinga.

Á heimasíðu Jóns Kristjánssonar fiskifræðings er mjög athyglisverð frétt úr færeyska togararallinu sem gefur heldur betur til kynna að feitur þorskur sé í miklum mæli kominn inn í veiðina.

Það er furðulegt að fylgjast síðan með formanni VG, Steingrími J. Sigfússyni, halda áfram mannréttindabrotum og meina fólki í dreifðum byggðum að draga björg í bú með handfærum. 

Og flestir fréttamenn snúa blinda auganu að þessum fréttum öllum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er ekki bróðir hans kvótakóngur fyrir  norðan,  eða svo hef ég heyrt, þess vegna  tala vinstri grænir aldrei  um kvótann, kannski er hann að vernda bróður sinn, tja það skyldi nú aldrei vera svo.

Guðrún B Hallbjörnsdótir (IP-tala skráð) 18.3.2009 kl. 15:57

2 identicon

Sæll, Sigurjón. Hringdu í síra Þórhall og sameinist.  Frjálslyndir standa tæpt hvað 5% varðar og L-listinn einnig.  Málefnastaðan ætti að vera brúanleg og að mínum dómi myndi sameining þessara tveggja flokka gera tvennt: Annarsvegar nánast tryggja málsvara á þingi sem hlýtur að vera lykilatriði, hinsvegar veit ég marga segja atkvæði gefið þessum flokkum falla niður dauð.  Sameining myndi gefa þessu sjónarmiði langt nef og jafnvel gott betur.    Í einni sæng gæti þetta tvíeyki náð 10% atkvæða og þá er ekki bara kominn öflugur málsvari gegn ESB og kvótakerfinu á þingi heldur fáið þið líka öll vinnu.  Pældu í þessu.

Kveðja,

lydur arnason (IP-tala skráð) 18.3.2009 kl. 19:33

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Gleymdu ekki að þessi umræddi þáttur er einhver svífyrðilegast hlutrægur í einhliða evruáróðri hér.  Algerlega fáránlegt að hlusta á þetta lið og því hræsnin ein eða regin heimska þeirra að ræða sjávarútvegsmálin á þessum nótum.

Jón Steinar Ragnarsson, 18.3.2009 kl. 21:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband