Leita í fréttum mbl.is

Íslenskt fyllerí í útlöndum

Enn og aftur berast einkennilegar sögur af tveggja manni tali Davíðs Oddssonar og mógúla í viðskiptalífinu. Fyrir fimm árum greindi Davíð Oddsson frá því í frægu bolludagsviðtali að reynt hefði verið að múta honum, og það voru hvorki meira né minna en 300 milljónir í boði. Nú berast fréttir af því að milljarðamæringurinn sem auðgaðist mjög á því að stjórna í örfá ár Kaupþingsbanka sem fór í þrot fyrir skömmu saki Davíð Oddsson um hótanir í sinn garð í viðtali við fréttahaukinn og REI-manninn Björn Inga Hrafnsson.

Það er sérkennilegt til þess að vita að engir sem tengjast málinu, sem hljóta að vera þó nokkrir, hafi séð ástæðu til að hafa samband við lögregluna upp á að hefja rannsókn. Enn furðulegra er að lögreglan hafi sjálf ekki séð ástæðu til að rannsaka svo alvarlegar ásakanir og jafnvel að setja menn í gæsluvarðhald meðan botn er fenginn í málin, og jafnvel leita liðsinnis alþjóðalögreglunnar. Hér er um að ræða mál sem varðar mútugreiðslu til æðsta ráðamanns lýðveldisins - á þeim tíma - og sömuleiðis ásakanir sem varða þrot stærsta fyrirtækis landsins - á þeim tíma.

Ef efnahagsbrotadeild lögreglunnar teldi flugufót fyrir þessum ásökunum væri hún löngu byrjuð á rannsóknni, en eflaust er þetta metið sem hvert annað fyllerísröfl í útlöndum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ef efnahagsbrotadeild lögreglunnar teldi flugufót fyrir þessum ásökunum væri hún löngu byrjuð á rannsóknni, 

Sko Sigurjón.. þessi deild er undir rikislögreglustjóra og BB kominn.. hvernig dettur þér í hug í eina sekúntu að þessir menn muni rannsaka sjálfan foringja FLOKKSINS ? 

Óskar Þorkelsson, 9.11.2008 kl. 22:19

3 Smámynd: Skattborgari

Það er sama hvort eitthvað er til í þessu eða ekki það á að rannsaka svona ásakanir. Það að svona ásökun komi fram minnkar trúverðuleika og hefur áhrif á þá sem henni tengjast hvort sem eitthvað er hæft í henni eða ekki.

Kveðja Skattborgari.

Skattborgari, 9.11.2008 kl. 22:39

4 Smámynd: Heidi Strand

Allt sem er í gangi er eins og glæpasaga life.

Heidi Strand, 9.11.2008 kl. 22:59

5 Smámynd: Víðir Benediktsson

Auðvitað hafa þeir verið fullir.

Víðir Benediktsson, 10.11.2008 kl. 01:11

6 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Nákvæmlega Sigurjón, tveggja manna tal er það sem Björn Ingi telur fínt að draga fram svona til að drepa á dreif ábyrgð hans eigin flokks Framsóknarflokksins undir stjórn Guðföðursins Halldórs Ásgrímssonar.

Endalaus viðtöl við fyrrum stjórnendur bankanna sem komu þjóðfélaginu á hausinn eru bull.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 10.11.2008 kl. 01:13

7 identicon

Ég er sammála þér Guðrún María að þetta er smjörklípa hjá Birni Inga. Björn Ingi er að minna á sig með Ýmsum hætti, því hann ætlar að fara fram gegn Guðna um formannskjörið. Ég hef nú ekki fylgt Frjálslyndum hingað til þó mér líki vel við menn eins og Guðjón Arnar og þó sérstaklega Jón Magnússon. Jón Magnússon er einn af fáum stjórnmálamönnum á þingi sem hefur haft kjark til að standa með þeim fimmtán þúsund einstaklingum sem bankarnir plötuðu inn í peningamarkaðssjóðina. Peningamarkaðssjóðirnir voru kynntir sem leið fyrir áhættufælna fjárfesta, og það var látlaust hringt í eldriborgara sem eru stæðsti hlutinn af þessum hóp og þau fengin til að færa peningana sína í þessa sjóði rétt fyrir fall bankana. Sé ykkar flokkur nógu klókur þá takið þið okkur upp á okkar arma og við munum styðja ykkur í næstu kostningum. Ég tek ofan fyrir Jóni fyrir stuðninginn.

Ómar Sigurðsson (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 03:24

8 identicon

Afhverju segiði að þetta sé smjörklípa hjá birni Inga??? Það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég horfði á þetta viðtal var að þetta væri góð smjörklípa hjá Sigurði forstjóra Kaupþings. Þegar þetta viðtal við hann er birt er Kaupþing aðamálið í öllum fjölmiðlum þessa lands útaf mjög svo neikvæðum málum, þarna nefnir hann tvennt til að koma Kaupþing útúr sviðsljósinu og draga inní það frekar Landsbankann enn og aftur með Ice-save og svo auðvitað Davíð Oddsson, en þetta sem Sigurður sagði um Davíð ætti nú að teljast nokkuð öruggt  til að vera "headlænið" næstu daga og vikur, en ég hefði nú viljað fá Björn Inga til að spyrja Sigurð, að víst Davíð hefði svona mikinn áhuga á að knésetja Kaupþing afhverju Kaupþing hefði þá verið eini bankinn sem fékk lán hjá SÍ til að halda sér á floti????

Steini (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 11:22

9 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

en ég hefði nú viljað fá Björn Inga til að spyrja Sigurð, að víst Davíð hefði svona mikinn áhuga á að knésetja Kaupþing afhverju Kaupþing hefði þá verið eini bankinn sem fékk lán hjá SÍ til að halda sér á floti????

Steini ertu klikkaður maður, það má ekki spyrja svona þá fýkur kúlið af þessum gæjum í hvelli og þeir breytast í flóttalega, stamandi og illa talandi viðvaninga.

Hallgrímur Guðmundsson, 10.11.2008 kl. 16:50

10 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það er meira en lítið undarlegt að Davíð Oddsson sé alltaf að lenda í þessum málum og sömuleiðis að lögreglan geri ekki neitt.

Sigurjón Þórðarson, 11.11.2008 kl. 09:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband