Leita í fréttum mbl.is

Fagra Þórunn

Þórunn Sveinbjarnardóttir stóð sig afburðavel í Kastljósinu í gær þar sem hún varði kosningastefnu Samfylkingarinnar, Fagra Ísland. Þótt ég sé ekki sammála Þórunni í mörgu er ekki hægt annað en að dást að baráttuvilja hennar þegar hún reynir eftir fremsta megni að standa við þau fyrirheit sem Samfylkingin gaf kjósendum.

Það er vissulega við ramman reip að draga fyrir Þórunni þar sem margir forystumenn Samfylkingarinnar, s.s. Össur Skarphéðinsson, Kristján Möller og Björgvin G. Sigurðsson, vinna leynt og ljóst gegn ársgamalli kosningastefnu með þegjandi samþykki formannsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þarfagreinir

Hehe ... góður þarna Sigurjón. Þetta er ekki alveg nógu gott hjá mínum flokki, því miður. Hreint ekki.

Þarfagreinir, 3.7.2008 kl. 18:41

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sammála þér Sigurjón.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 4.7.2008 kl. 01:48

3 Smámynd: Víðir Benediktsson

Það var hún sjálf sem kvittaði upp á Helguvíkurálverið. Sigmari bara láðist að spyrja hana um það. Hún mótmælir ekki á þingflokksfundum og ekki í ríkisstjórn en mætir svo fram fyrir myndavélar og segir að þetta sé henni ekki að skapi. Ég er ekki sammála, mér fannst hún ekki standa sig vel. Fólk sem kaus Samfó út á Fagra Ísland með 5 ára stóriðju hléi líður einkennilega þessa dagana. Það var annars merkilegt að Þórunn skildi ekki pilluna frá Björk og tók hana alls ekki til sín. Er til meiri afneitun en þetta? Hvað ætli hún hafi haldið að Björk væri að meina?

Víðir Benediktsson, 4.7.2008 kl. 06:23

4 Smámynd: Jóhann Kristjánsson

Það er gaman að sjá að það eru einhverjir smá dauðakippir í samtíningnum ennþá.

Jóhann Kristjánsson, 4.7.2008 kl. 23:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband