Leita í fréttum mbl.is

Fleiri en Svavar sem nenna ekki

Ólíkt nokkrum þingmönnum stjónarliðsins s.s. Ólínu Þorvarðardóttur, þá hefur Björn Valur Gíslason aldrei haft fyrir því eða nennt að kynna sér ólík sjónarmið við stjórn fiskveiða. Þetta áhugaleysi skipstjórans kom mér nokkuð á óvart þar sem að hann kemur úr byggðalagi sem hefur orðið illa úti vegna niðurskurðar á aflaheimildum. Það kom mér því ekkert sérstaklega á óvart hann nennti ekkert frekar en Svavar Gestsson að liggja of lengi yfir Icesave-málinu sl. sumar og drifi sig þess í stað á sjóinn. 

Ég hef því mikinn skilning á því að Björn Valur Gíslason varaformaður fjárlaganefndar Alþingis botni ekkert í því að forsetinn vilji fara vel yfir mál sem getur svipt þjóðina efnahagslegu sjálfstæði.


mbl.is Segir forsetann taka undarlegan pól í hæðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Akkúrat..þá er betra heima setið en af stað farið!!

Ægir Óskar Hallgrímsson, 2.1.2010 kl. 23:51

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það er grátbroslegt hvað Björn Valur er öruggur í vitleysunni.

Sigurjón Þórðarson, 2.1.2010 kl. 23:58

3 identicon

Sigurjón.

Þú ert að skjóta sjálfan þig í fótinn núna !

Ég er ekki flokksbróðir Björns Vals, en sennilega er hann sterkasti persónuleiki innan raða VG !

Þú ert að gera sjálfan þig að aula !!!!!!!!!!!!!

JR (IP-tala skráð) 3.1.2010 kl. 00:07

4 Smámynd: Helga Þórðardóttir

JR getur þú skýrt betur út hvers vegna Sigurjón gerir sig að aula í þessari færslu?

Helga Þórðardóttir, 3.1.2010 kl. 00:12

5 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Sæll Sigurjón,

þessi færsla þín er snilld og mun verða klassíker, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að hann er talinn "sterkasti persónuleikinn" af sumum.

Gunnar Skúli Ármannsson, 3.1.2010 kl. 00:12

6 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

JR, mér finnst þú vera að gera heldur lítið úr þingflokki Vg. Þau eiga það ekki skilið

Sigurjón Þórðarson, 3.1.2010 kl. 00:21

7 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Satt segir þú Sigurjón.

Gunnar Skúli Ármannsson, 3.1.2010 kl. 02:02

8 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Ekki nema von að Frjálslyndi Flokkurinn hafi þurrkast út miðað við þennan þvætting sem þú lætur út úr þér varðandi VG. Fyrst Steingrímur og nú Björn Valur! Hvað er eiginlega að þér maður?

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 3.1.2010 kl. 02:34

9 Smámynd: Helga Þórðardóttir

Jóhannes getur þú skýrt þetta aðeins betur út hver er þvættingurinn?

Helga Þórðardóttir, 3.1.2010 kl. 02:52

10 Smámynd: Árni Gunnarsson

Björn er skipstjóri á Kleifaberginu Ó.F. og alþingismaður í hjáverkum. Gæti það skýrt eitthvað að Kleifabergið sem er frystitogari á nægan kvóta? Björn Valur virðist ekki hafa áhyggjur út fyrir eigin lóðamörk.

Árni Gunnarsson, 3.1.2010 kl. 10:23

11 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Þú ert frekar beittur í dag Sigurjón :)  þú ert bestur þannig.

Óskar Þorkelsson, 3.1.2010 kl. 10:41

12 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Búið er að reka Björn Val úr stéttarfélagi skipstjórnarmanna.Hann rak sig sjálfur þaðan, annars hefði ekki verið hægt að koma honum burt.Ef hann er en skipstjóri á Kleifarberginu þá er bara ein skýring á því.Hann hefur selt sig eins og hóra.Hann laug sig inn á þing.

Sigurgeir Jónsson, 3.1.2010 kl. 10:50

13 Smámynd: Landfari

JR og Jóhannes Laxdal, er von á einhverjum málefnalegum skýringum á þessum athugsemdm ykkar.

Það eina sem mér dettur í hug út frá þessum skrifum ykkar er að uppsöfnuð reiði út af enhverju hafi brotist út og miðað við tímasetnigar gætir þar áfengi hafa hjálpað til.

Ég einfaldlega skil ekki samhengið frekar en fleiri hér.

Landfari, 3.1.2010 kl. 15:25

14 Smámynd: Brattur

Árni minn kæri Gunnarsson. Björn Valur hætti á sjó þegar hann var kosinn á þing. Hann þurfti að fara 2 túra eða svo eftir það til að klára sína vinnu á þeim vinnustað. Svo ekki er rétt að hann sé alþingismaður í hjáverkum. Varðandi kvótann sem Kleifabergið á (eða hefur) þá er Björn Valur ekki eigandi útgerðarinnar og hefur ekkert með það að gera hvort útgerðina á mikinn eða lítinn kvóta.

Rétt skal vera rétt.


Sigurgeir Jónsson. Menn sem skrifa eins og þú lýsa sínum innri manni vel.

Brattur, 3.1.2010 kl. 15:44

15 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Björn Valur laug sig inn á þing.Það er held ég skoðun flestra sjómanna.Og framkoma hans og hroki bendir til þess að hann haldi en að hann sé skipstjóri á Kleifarberginu.Því miður laug allur þingflokkur VG sig inn á þing.Það stendur ekkert einasta orð sem þau sögðu fyrir kosningar.

Sigurgeir Jónsson, 3.1.2010 kl. 17:13

16 Smámynd: Brattur

Getur þú upplýst mig hvernig Björn Valur "laug sig inn á þing "? Sigurgeir

Brattur, 3.1.2010 kl. 17:16

17 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Helga "systir", ég á við að Sigurjón sem vill verða Sigurjón Kvótabani, á að beina spjóti sínu að þeim sem einkavinavæddu fiskinn en ekki aukapersónum sem enga ábyrgð á þeim glæp bera.  Þessi sífelldi áróður gegn VG er ekkert nema sálræn skemmdarverkastarfsemi og beinir athygli frá hinum raunverulegu skaðvöldum. Og ábyrgð Sigurjóns er sínu meiri þar sem hann er fyrrverandi alþingismaður og hann veit betur

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 3.1.2010 kl. 17:53

18 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Jóhannes,

ábyrgð Sigurjóns er töluverð því hann var 4 ár þingi,

hver er ábyrgð Steingríms eftir 27 ár?

Hvers vegna á Vg að vera stikkfrí, margir þingmenn þess flokks hafa setið á þingi árum og áratugum saman.

Svo ef mig misminnir ekki illilega þá greiddi Steingrímur atkvæði með framsali kvóta??

Gunnar Skúli Ármannsson, 3.1.2010 kl. 19:44

19 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það er rétt Gunnar Skúli, Steingrímur J og Jóhanna greiddu atkvæði með framsalinu á sínum tíma og hafa nú dregið lappirnar í því að koma á móts við álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.

Sigurjón Þórðarson, 3.1.2010 kl. 20:00

20 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

@Gunnar Skúli, ég áskil mér rétt til að taka upp hanskann fyrir skúringaliðið. Það á ekki að hengja bakara fyrir smið hérna á blogginu.  Og það er skrítið þetta VG heilkenni sem þjakar Sigurjón og þú skilur væntanlega ef þú skimar færslur hans á síðasta ári.  Ég er orðinn langeygur eftir að eitthvað gerist í kvótaruglinu en við skulum hafa forgangsröðina á hreinu.  Ef þessi stjórn fellur núna sem er alveg möguleiki þá verður aldrei neinu breytt. Við skulum hafa það alveg á hreinu.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 3.1.2010 kl. 20:20

21 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Hvaða hreingerning hefur átt sér stað og hvar? 

Mannréttindabrot eru látin óátalin í sjávarútvegi, verið að veita fjárglæframönnum sem bera ábyrgð á Icesave sérstakan skattaafslátt, liðið í bönkunum er á sínum stað, formaður stjórnar FME er orðinn formaður stjórnar Íslandsbanka, sérstakur ráðgjafi Jóhönnu Sigurðard. er með mörhundruð milljarða króna kröfu í einn sukkbankann sem hann var einn æðsti stjórnandi í, ríkisstjórnin réð yfirmann greiningardeildar Landsbankans sem plataði fólkið inn sem sérstakan sérfræðing  hjá AGS - Svona má því miður lengi telja.

Sigurjón Þórðarson, 3.1.2010 kl. 20:35

22 Smámynd: Helga Þórðardóttir

Jóhannes, ég get frætt þig á því að í hruninu hef ég starfað mjög mikið með fólki í Vg. Það fólk er svo sannarlega ekki sátt við aðgerðir ríkisstórnarinnar og það aðgerðarleysi sem Sigurjón er að lýsa. Það eru margir á þeirri skoðun að framkoma þeirra geti skaðað orðspor VG og vinstrimanna. Þeir taka vonina af fólkinu um að það verði einhverjar breytingar. Við þurfum fólk með kjark og þorir að veita stjórnvöldum aðhald annars verða engar breytingar. Ég vil ekki fá Sjálfstæðis né Framsóknarflokk en ég vil að eitthvað breytist og ég veit að Sigurjón vill það líka.

Helga Þórðardóttir, 3.1.2010 kl. 20:55

23 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Sigurjón, allt þetta er sjálfsagt satt og rétt og staðfestir bara hið algera kerfishrun sem varð hér í kjölfar bankahrunsins og alls fjármálakerfisins.  Að reisa heilt þjóðfélag á rústum spillts samfélags er ekki eins og endurfæðing við skulum átta okkur á því og margt af því sem gert hefur verið mun þarfnast endurskoðunar þegar um hægist en ég hef allavega meiri trú á að hugmyndafræði VG skili okkur réttlátara þjóðfélagi heldur en hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins ef hægt er að tala um hugmyndafræði hjá því liði, miklu frekar hægt að tala um trúarbrögð þar sem flokkurinn er settur ofar öllu!  'a þessum viðkvæmu tímum túlka hrunflokkarnir alla gagnrýni á stjórnarflokkana sem stuðning við sig og það er það sem ég á við þegar ég tala um að hafa forgangsröðina á hreinu. Ef þú vilt rassskella VG, vertu þá viss um að grýta hrunflokkana fyrst

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 3.1.2010 kl. 21:04

24 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Á Vg að líðast að gera nákvæmlega ekki neitt gagnrýnislaust og halda áfram að brjóta mannréttindi - einungis vegna þess að svokallaðir hrunaflokkar þ.e. D, S og B voru spilltir?

Það er ekki hægt að líta fram hjá þeirri staðreynd að Jóhanna og Steingrímur studdu framsalið á sínum tíma sem var upphafið að hrunadansinum.

Ég vil minna á að það eru ekki allir þingmenn Vg tilbúnir til þess að fara þessa feigðarför Steingríms J og Björns Vals í Icesavemálinu og árásum á mikilvægan málskotsrétt til þjóðarinnar.  Ögmundur Jónasson og Lilja  Mósesdóttir gerðu það ekki og ýmsir aðrir fylgdu félögunum á græna hnappinn með hálfum hug og óbragði í munni.

Sigurjón Þórðarson, 3.1.2010 kl. 21:16

25 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Helga, veit ég það að ekki eru allir sáttir við aðgerðaleysi stjórnarinnar í mörgum málum en það eru takmörk fyrir því hvað stjórnvöld mega gera. Það vita allir sem vilja vita að AGS er hið raunverulega yfirvald. Endureisn efnahagskerfisins fer fram með þeirra blessun og inngrip stjórnmálamanna og ráðherra leyfast ekki í starfsemi bankanna eða skilanefndanna. Þannig er það þótt okkur þyki sem réttlæti sé fyrir borð borið.  Eins er það varðandi fjárfestingarsamningana, dagskipunin er : hingað skal fá erlent fé til fjárfestingar sama hvað það kostar.  Og í samstarfi flokka þá verða báðir að slá af. Það sem þú nefndir snýr að mestu að vafasömum stjórnvaldsaðgerðum Samfylkingar og ég er þér sammála.  En ef ice save klárast án þess að stjórnin falli þá getum við farið að vænta einhverra kerfisbreytinga. Allavega fer þá samráðsnefndin um kvótakerfið að vinna

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 3.1.2010 kl. 21:22

26 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

VG, og þar á meðal Björn Valur hefur brotið öll megin stefnumál VG sem hafa verið stefna flokksins allt frá stofnun.Nú styður flokkurinn aðild að Nató sem ekki hefur verið á stefnuskrá flokksins fyrir kosningar.Flokkurinn styður það líka núna eftir kosningar að flugvöllurinn á Miðnesheiði verði gerður að heræfingasvæði fyrir ríkin í ESB og Nató og fluttar verði í þeim tilgangi hingað herþotur sem jafnvel verði skráðar hér.Þeir sem fá æfinguna hérna verða síðan væntanlega sendir til Afganinstan eða Iraks.Björn Valur talaði fyrir því á fundum síns stéttarfélags að ekki yrði hróflað við sjómannaafslættinum.Þau lugu sig öll inn á þing, þar með talið að eftir kosningar sækja þau um aðild að ESB, sem aldrei hefur verið á stefnuskrá flokksins.VG er lygaflokkur.

Sigurgeir Jónsson, 3.1.2010 kl. 21:45

27 Smámynd: Helga Þórðardóttir

Jóhannes, ég er þér sammála með AGS og ef þú skoðar bloggsíðu mína þá veistu hvers vegna. Ég er ein af þeim sem hef verið að skrifast á við Srauss Kahn ásamt fólki úr öllum flokkum. Mér finnst slæmt að ríkisstjórnin hóti því að fara frá ef lögin verða ekki samþykkt. Skuldabyrði þjóðarinnar hefði átt að vera skoðuð í heild og meir rætt um hvort við værum yfirleitt að ráða við þetta yfir höfuð. Við viljum jú öll halda hér uppi velferðarþjóðfélagi. Þetta er ekki bara spurning um að tóra.

Helga Þórðardóttir, 3.1.2010 kl. 22:24

28 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Helga, þú segir að allir vilji halda uppi velferðarþjóðfélagi án þess að skilgreina það frekar. Vandinn í hnotskurn er að þjóðfélagið er samsett úr klíkuhópum sem enginn vill gefa eftir af sínum forréttindum. Nú þegar sýnt er að skera þarf umtalsvert niður í ríkisbákninu þá stynur kerfið!! Stjórnmálamenn hafa sýnt að þeir eru ófærir um tvennt, framselja völd sín og skera niður. það sem við þurfum er ný stjórnskipun, ný stjórnarskrá sett af vönduðum, heiðarlegum og réttsýnum sonum og dætrum landsins og umfram allt án aðkomu stjórnmálaflokka og stjórnmálamanna.  Ég vil að við þjóðnýtum lífeyrissjóðina og sameinum þá almannatryggingakerfinu. Erlendar eignir þeirra ætti að nota til að borga það sem útaf stendur þegar þrotabú Landsbankans hefur verið gert upp og einnig ætti að nota hluta til að greiða niður skuldir Landsvirkjunar og OR.  Þetta getum við gert og staðið keik í samfélagi þjóðanna en ekki eins og óreiðumenn sem hlaupa frá skuldbindingum sínum án þess að taka ábyrgð.  Ég vil margfalt taka á mig tímabundna lifskjaraskerðingu gegn því að hér fari fram siðferðilegt uppgjör.  En það gerist ekki ef við tökum ekki á bankamönnunum og sérstaklega Landsbankamönnum eins og ótíndum glæpamönnum.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 3.1.2010 kl. 23:16

29 Smámynd: Helga Þórðardóttir

Jóhannes, ég sé að við erum sammála um margt en ég verð að hryggja þig með því að mér finnst stjórnvöld ekki vera að gera sér grein fyrir því að sú leið sem þau eru að fara gengur ekki. Þau eru að skuldsetja þjóðina upp í rjáfur. Skuldirnar verða að greiðast í erlendum gjaldeyri og stjórnvöld verða að sýna fram á að við getum aflað alls þess gjaldeyris.

 Stóra málið er að það er verið að sundra þjóðinni í einhverri flokkapólitík í stað þess að fá okkur til að vinna saman að lausnum sem koma okkur út úr þeim hrikalega vanda sem við stöndum frammi fyrir.  Hættum t.d. að kalla okkur óreiðumenn sem hlupu frá skuldbindingum. Ég er enginn óreiðumanneskja og ég gerði engar skuldbindingar eins og allflestir Íslendingar. Stöndum saman og flytjum þennan boðskap til heimsins. Almenningur í Evrópu hefur skilning á þessu eins og þú sérð ef þú hefur fylgst með BBC og fleiri erlendum fjölmiðlum í dag. Nýtum okkur þetta og stöndum saman sem þjóð.

Helga Þórðardóttir, 3.1.2010 kl. 23:39

30 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Helga, það er rétt að það eru öfl sem sjá sér hag í að efna hér til óvinafagnaðar.  Þessi öfl láta einskis ófreistað í að afvegaleiða umræðuna með lýðskrumi og óbeinum lygum. Afleiðingin er hrædd og ráðvillt þjóð sem er farin að kenna endureisnaröflunum um yfirvofandi þrengingar.  Ég trúi ekki svona svartagallsrausi og hef bent á leiðir til að takast á við icesave skuldina. Leið sem virkar 100% og þar fyrir utan eigum við vannýttan þorskstofn sem sjálfsagt er að auka veiðar á til að minnka þörfina á aðstoð AGS og í þriðja lagi þá getur ferðamannaiðnaðurinn skilað miklu meiri gjaldeyristekjum ef ferðamannatíminn er lengdur og tekið fyrir svarta starfsemi.  Þetta verður síðasta athugasemdin við þessa færslu því ekki vil ég að Sigurjón banni mig

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 4.1.2010 kl. 00:00

31 Smámynd: Fannar frá Rifi

Sigurjón. afhverju þekki þá Ólína ekki munin á karfa á grunslóð og djúphafskarfa og lætur smábáta fá djúphafskarfa. eitthvað sem þeir geta ekki með nokkurum hætti náð í. það er ekki dæmi um manneskjum sem hefur kynnt sér eitt né neitt.

eina sem hún hefur kynnt sér er hvernig hún getur notað fiskin í sjónum til þess að kaupa sér atkvæði í næstu kosningum. ofan á það vilja kratar koma sínum mönnum inn í greinina aftur. allir kratar sem voru í sjávarútvegi eru farnir á hausinn eða hafa selt sig út og farið með kvótagróðan eitthvert annað, úr landi eða geyma hann á bankabókum eða kannski tapað þeim í fjármálahruninu. 

Fannar frá Rifi, 4.1.2010 kl. 19:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband