Leita í fréttum mbl.is

Mun Ármann Þorvaldsson skrifa sögu Samfylkingarinnar?

Ekki er ég viss um að ég eigi eftir að lesa bók Ármanns Þorvaldssonar, Ævintýraeyjuna, enda hef ég ekki lyst á að koma við bókina, hvað þá meira. Ekki ráða þar eingöngu fordómar heldur hef ég ekki komist hjá því að kynnast höfundi og efni bókarinnar í gegnum fjölmörg viðtöl, m.a. á Útvarpi Sögu.

Höfundur bókarinnar talar um efnahagsglæpina sem hann framdi gegn Íslendingum af þvílíkri léttúð að hann virðist ekki gera sér nokkra grein fyrir ábyrgð sinni í því að koma órorði á þjóðina og koma henni á vonarvöl. Hann hljómar svona nett eins og fjöldamorðingi sem segir að glæpirnir hafi verið áhugaverðir og skemmtilegir á sínum tíma sem nú er liðinn og komin eru önnur verkefni inn á sitt borð, m.a. þau að sinna ritstörfum og öðru skemmtilegu.

Í ljósi furðulegra samninga Samfylkingarinnar við þá sem ollu hruninu er alls ekki útilokað og jafnvel talsverðar líkur til þess að sagnfræðingurinn Ármann Þorvaldsson leggi fyrir sig ritstörf og skrifi sögu Samfylkingarinnar. Á þeim bænum er víst nokk sama hvaðan gott kemur.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Höskuldur Pétur Jónsson

Þú verður að átta þig á því að samfylkingin (samspillingin) er og hefur alltaf verið spillingarflokkur sérstaklega þegar alþíðuflokkurinn var við líði

Þannig að Ármann er akurat rétti maðurinn til að skrifa sögu samfylkingarinnar enda er hann öruglega samfylkingarmaður.

það er eins og eingin hafi horft á iðnaðarráðherra í kvöldfréttum ,allavega sér maður ekki merki þess á blogginu.

kannski eru allir ornir samdauna allri drullunni og sjá ekkert athugvert við að BJÖRGÚLFUR fjárfesti hér fyrir illa fengið fé .

Það væri kannski hægt að kirsetja eigur hans hér álandi og þar á meðal 40% í gagnaverinu 

mbk DON PETRO

Höskuldur Pétur Jónsson, 17.12.2009 kl. 00:50

2 Smámynd: Hörður J Oddfríðarson

Sæll minn kæri Sigurjón

Er þetta ekki dálítið eins og að hengja bakara fyrir smið þegar þú og fleiri hafa ekki betra pólitískt minni en það að halda að Samfylkingin sé upphaf og endir allrar spillingar í landinu og þar með aðalhrunvaldurinn? 

Ekki veit ég til þess að Ármann Þorvaldsson sé sérstakur velunnari Samfylkingarinnar og verð að viðurkenna að ég hef ekki séð hann þar á félagsfundum.  Get reyndar tekið undir með þér að þessi bókarskrif hans eru frekar undarleg, en hvað um það, honum hlýtur að vera frjálst að skrifa um málin frá sinni hlið.  Ég gæti jafnvel látið mér detta í hug að lesa bókina hans, þó ekki væri nema til að fá innsýn inn í hugarheim þess fólks sem svo illa hélt á málum innan íslenska bankakerfisins.  En til að fá skýringar á því hvers vegna menn höguðu sér eins og þeir gerðu þurfa aðrir en gerendurnir að greina, meta og skrifa um.

En nú verðurðu líka að upplýsa mig - hvaða furðulegu samningar hafa verið gerðir af Samfylkingunni við þá sem hruninu ollu?

Og þú mátt þá líka upplýsa mig hvers vegna leggja þarf djúpstæða pólítíska og persónulega merkingu í það þó einhver spyrji svona augljósrar spurningar "er ekki sama hvaðan gott kemur?".  Svari hver fyrir sig, en ég segi nei það er ekki sama.  En það þarf ekki að leggja neina sérstaka merkingu í það, hvorki til að skýra aðgerðir annarra einstaklinga, Samfylkingarinnar né fjölskyldu minnar.

Kær kveðja til þín, sjáumst í sjónum

Hörður J. Oddfríðarson, félagi í Samfylkingunni.

Hörður J Oddfríðarson, 17.12.2009 kl. 10:24

3 Smámynd: Hafþór Sig.

  Sjálfspilling eða Samspilling, skiptir ekki öllu máli.  Þessi Höskuldur sem hér skrifar fyrir ofan er í Sjálfspillingunni og því er hann að skjóta á Samspillinguna, ef hann væri í Samspillingunni þá myndi hann skjóta á Sjálfspililnguna.  Svona virkar þetta hjá þessum spillingarflokkum.

  Lausnin á þessari vitleysu er að ganga í Kristilegu stjórnmálahreyfinguna, þar er engin spilling. Þegar við komumst til valda þá verða Sjálfspillingarmenn eins og Höskuldur dæmdir í fangelsi fyrir landráð.  Sama gildir um Samspillingarmenn.

Hafþór Sig., 17.12.2009 kl. 11:09

4 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Hörður, Samfylkingin er ekki upphafið og ekki heldur endirinn á spillingu fjórflokksins en ef svo væri auðveldara fyrir landið að komst út úr erfiðri stöðu. 

Forysta Samfylkingarinnar tók þá ákvörðun fyrir liðlega 5 árum síðan að ganga sérhagsmunaöflunum á vald og í stað þess að ætla að breyta þjóðfélaginu. Ingibjörg Sólrún mætti á fund LÍÚ og talaði um mesta óréttlæti Íslandssögunnar sem eitthvert gamalt sagnfræðilegt viðfangsefni en ekki mannréttindamál þar sem fórnarlömb væru enn að leitaréttlætis utan landssteinanna.  

Samfylkingin settist síðan að kjötkötlunum með Sjálfstæðisflokknum og ákveðið að mjólka samfélagið og mynda sérstaka útrásarstjórn.  Það er svo undarlegt að sumir þeirra sem bera persónulega ábyrgð á gríðarlegu klúðri sitja enn í ábyrgðastöðum í þjóðfélaginu fyrir hönd Samfylkingarinnar s.s. þingflokksformaðurinn og að flokkurinn hefur ráðið hrunamenn úr bönkunum beint inn í ráðuneytin í trúnaðarstörf.

Samfylkingin og Vg virðast vera hjartanlega sammála um að hafa mikla leynd yfir störfum kúlulánaþeganna í bönkunum og njóta starfkrafta þeirra sem lengst.

Varðandi sérkennilegra samninga þá er má fyrst benda á frumvarp Iðnaðarráðherra um uppbyggingu gagnabanka í eigu Björgólfs Thors og síðan hefur flokkur "jafnaðarmanna" verið drjúgur í að koma sínum fjölmörgu gæðingum s.s. Jóni Sigurðssyni fyrrum stjórnarformanni FMEí sérverkefni þrátt fyrir klúður aldarinnar í FME.

Sigurjón Þórðarson, 17.12.2009 kl. 11:15

5 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Ætli nokkur læsi þá bók?

Gunnar Skúli Ármannsson, 17.12.2009 kl. 12:23

6 identicon

Varðandi samningaviðræðurnar við Björgúlf þá vil ég að það komi fram að ég er afskaplega ánægður með að valdstjórnin sé byrjuð að semja við Björgólf Thor.  Ég reyndar væri enn ánægðari ef samningaumræðurnar snerust um útivistartíma og heimsóknartíma.  Vonandi hefjast þær viðræður sem fyrst og gæti hr. Winkel leyst Katrínu Júl af hólmi.

Í alvöru tala eru menn (konur reyndar í þessu tilfelli) ekki að grínast?  Þetta er álíka gáfulegt og að semja við Steingrím Njálsson um rekstur leikskóla.  Er þessi maður ekki búinn að gera nóg?   Hann keyrði Landsbankann í þrot, greiddi ekki einu sinni fyrir hann, Eimskip í þrot, orðstý þjóðarinnar í þrot og eflaust ýmislegt annað.  Við þennan mann á að semja um undanþágur frá skattalöggjöf ofl.  Þetta er sannkölluð djöflaeyja.

Þórður Áskell Magnússon (IP-tala skráð) 17.12.2009 kl. 12:28

7 identicon

Ef menn geta ekki komið framm undir nafni þá eiga þeir ekki að blanda sér í umræðuna ,og ansi er það ódýrt að fela sig á bakvið KRISTUR .

Vonandi verður aldrei til kristilegt stjórnmálaafl eða muna menn ekki eftir ransóknarréttinum,og allri spillinguni þar á bæ.

mbk DON PETRO

H Pétur Jónsson (IP-tala skráð) 17.12.2009 kl. 13:17

8 Smámynd: Jens Guð

  Ármann þessi er meirháttar siðblindur.  Það skín út úr því litla sem ég hef heyrt um hvernig hann afgreiðir sinn þátt í bankahruninu.

Jens Guð, 17.12.2009 kl. 14:25

9 Smámynd: Rannveig H

Sigurjón! Þessi bók er bráðnauðsynleg lesning finnst mér,við lifum á ótrúlegum tímum og spyrjum gjarnan hvernig gat þetta gerst. Eftir að hafa lesið þessa bók er ég ekki jafn áttavillt, firringin ,siðblindan græðgin og klikkið er það mikið að ég næ þó einhverju áttum með það sem er að gerast í hugarheimi þeirra sem steyptu okkur í glötun og þeirra sem eru tilbúnir að halda áfram,nú er það Björgólfur Tor næst verður það Bjarni Ármann sem fær eitthvað á silfurfati.

Rannveig H, 17.12.2009 kl. 15:37

10 Smámynd: SeeingRed

Já, maðurinn virkar siðblindur á mann og virðist lítt kunna að skammast sín, man að Páll B. Baldvinsson líkti fíflinu við "hinn raupsama riddara" í ritdómi um bókina.

SeeingRed, 17.12.2009 kl. 15:50

11 identicon

Best gæti ég trúað að Ármann Þorvaldsson Jónassonar Þorvaldssonar væri framsóknarmaður. Siðferðisstigið bendir eindregið til þess.

Ellismellur (IP-tala skráð) 19.12.2009 kl. 18:45

12 Smámynd: Einar Guðjónsson

Held að Gunnar Bragi Sveinsson sé miklu betri maður í verkið. Það væri

alltaf sama síðan, samtals 94 bls.

Yrði aldrei skemmtileg bók en hann er innvígður í dólgastjórnmálin og skilur hugarfar þeirra. 

Einar Guðjónsson, 21.12.2009 kl. 01:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband