Leita í fréttum mbl.is

Kerfið ver mannréttindi lítilmagnans Jóns Ásgeirs

Íslenska réttarkerfið virðist bregðast hratt og örugglega við þegar óljósar fréttir utan úr heimi berast af því að mögulega geti málsmeðferð Baugsmála brotið í bága við úrskurð Mannréttindadómstóls. Settur umboðsmaður Alþingis og fyrrum háskólakennarinn hefur ritað bréf vegna málsins og er ekkert nema gott um það að segja að kerfið reyni að verja lítilmagnann Jón Ásgeir sem sótt er að úr öllum áttum og hefur sjálfur sagst reiðubúinn að vinna á lyftara.

Þetta er ólíkt viðbrögðunum þegar mannréttindanefndin gaf út bindandi álit um að bæta tveimur sjómönnum sem mannréttindi hafa verið brotin á en þá sá forseti lagadeildar HÍ sérstaka ástæðu til að draga gildi álitsins í efa, og fleiri innan kerfisins þyrluðu upp moldviðri til að hægt væri að líta framhjá nauðsyn þess að lagfæra siðferðilega og fjárhagslega gjaldþrota kerfi í sjávarútvegi.

Öreigaleiðtoginn Steingrímur Sigfússon hefur ekki mátt vera að því að bæta viðkomandi sjómönnum í samræmi við álitið enda hefur kallgreyið verið á fullu í afskriftum og leynimakki til þess að bjarga því sem bjarga verður. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll Sigurjón; æfinlega !

Þarna; veltir þú upp góðum fleti - en;..... hráskinnar frjálshyggj unnar, B - D - S og V listanna, munu eflaust koma eins og skæða drífa yfir þessa grein þína, í sínu hefðbundna hlutverki vandlætara ns, og loddaranna, sannaðu til.

Að þessi andskotans púki - í mannsmynd; Jón Ásgeir Jóhannesson, skuli ekki vera borinn í GULLSTÓL, af þeim Björgu Thorarensen, og öðrum viðlíka - dags, daglega, er rannsóknar efni, veraldarinnar færustu vísindamanna, svo sem.

Með beztu kveðjum; á Ásbirninga slóðir, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 2.12.2009 kl. 01:32

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Sæll Óskar,  Ég á alls ekki von á því að það komi nokkur skæðadrífa vegna greinarinna. Reyndar hringdi í mig sjómaður í gærkvöldi sem hafði lesið pistilinn og fannst honum viðbrögðin vera dæmigerð fyrir tvískinnunginn á Íslandi.  Bætti hann reyndar við að heilu fréttaaukarnir væru hvað eftir annað um meinta flóttamenn á Suðurnesjunum sem neituðu sumir hverjir samvinnu við yfirvöld um mál sín á meðan lítið sem ekkert væri fjallað um mál þeirra íslensku sjómanna sem fengu álit sér í vil hjá Mannréttindanefnda SÞ, eftir áralana baráttu og eru síðan hunsaðir.

Sigurjón Þórðarson, 2.12.2009 kl. 08:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband